Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 22
Daglegtlíf „ÉG HEF alltaf haft áhuga á svefnherbergi og hönnun og hef ekki getað keypt mér heila línu nema að fara til útlanda", segir Helga María Bragadóttir eigandi LínDesign sem hannaði svefn- herbergislínuna sem Freydís teikn- aði mynstur á. „Mér fannst vanta íslenska svefnherbergislínu og fór því af stað með að hanna slíka og fannst tilvalið að textílmynstrin væru hönnuð með íslensku blóma- flóruna í huga.“ Helga sendi hug- myndina inn í Nýsköpunarsjóð og var hún eitt af þeim tólf verkefnum sem komust í úrslit, en alls bárust 300 umsóknir. Línið er einungis úr úrvals baðmull og er það ofið og saumað í Kína. „Í maí á seinasta ári var ég ásamt sambýlismanni mínum Tryggva Harðarsyni í Pek- ing þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti var þar í opinberri heim- sókn. Hann hitti forsvarsmenn verksmiðjunnar sem vefur fyrir okkur línið og það var miklu trú- verðugra fyrir okkur þegar forset- inn var búinn að hitta fólkið í eigin persónu. Í framhaldi náðum við góðum samböndum og út frá því hefur þetta þróast, auk þess sem Tryggvi lærði í Pekingháskóla á sínum tíma og talar kínversku, en það er aðalforsendan fyrir því að þessi sambönd þarna úti ganga svona vel.“ Holtasóley á postulín Helga María segist ekki aðeins vera með lín í svefnherbergið því von sé á baðherbergislínu og vöggusetti auk þess sem hún selur dúnsængur og kínverskt, bone china, matar- og kaffipostulín. „Til stendur að fara í framleiðslu á ís- lenskri postulínslínu og fá íslensk- an listamann til að hanna hana með þjóðarblóminu á.“ Helga María er ekki óvön versl- unarrekstri því faðir hennar, Bragi Hinriksson, rak postulínsverk- smiðjuna og verslunina Gler og postulín í áratugi. „Pabbi var einn sá fyrsti hér á landi sem fór með framleiðslu og verslun í útrás fyrir um 25 árum síðan. Ég sé fyrir mér að LínDesign fari í útrás og verði að keðju enda finnst mér að við eigum að stefna út með íslenska hönnun.“ Hún segir engan hafa áður látið vefa fyrir sig og fjöldaframleiða ís- lenska hönnun í þessum stíl. „Næst stefni ég að því að koma með vörur inn í línuna með gleymérei-mynstri og blóðbergi sem verður einnig teiknað af íslenskum hönnuði,“ seg- ir Helga að lokum. Morgunblaðið/Sverrir Svefnherbergislínan var fyrsta textílhönnunarverk Freydísar. Morgunblaðið/ÞÖK Helga María hefur áhuga á svefnherbergjum og hönnun.  HÖNNUN Gleymmérei og blóðberg kemur næst febrúar YFIR 900 íslensk börn búsett í 39 löndum í sex heimsálfum hafa skráð sig í Íslenskuskólann á netinu frá stofnun skólans en formlegt skólastarf hófst árið 2004. Allt skólastarf fer fram á netinu www.islenskuskolinn.is, og þar geta börn á leik-, grunn- og framhalds- skólaaldri fundið viðfangsefni, sótt námskeið, búið til heimasíðu og kynnst öðrum nemendum skólans. Markmið skólans er að byggja upp öflugan skóla á netinu fyrir íslensk börn um allan heim, þar sem fram fer fjölbreytt íslenskukennsla og menn- ingarmiðlun. Nám í skólanum auð- veldar íslenskum börnum, sem búsett eru erlendis að viðhalda tungumálinu, eiga samskipti við önnur börn í svip- aðri stöðu og að missa ekki tengsl við ættingja heima. Námið auðveldar einnig aðlögun að skólakerfinu þegar flutt er heim. Í frétt frá skólanum kemur fram að áhersla er lögð á að námið fari fram í gegnum fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Nemendum gefst kostur á að sækja námskeið og þeim býðst að vinna ýmis verkefni í aldursskiptum klúbbum. Íslenskunám á netinu  MENNTUN www.islenskuskólinn.is Naglaskólinn Professionails hélt Íslands-meistaramót í naglaásetningum laug-ardaginn 28. janúar í húsakynnum skól- ans. Í fyrsta skipti fer sigurvegari keppninnar til alþjóðlegrar keppni í London. „Það var keppt í tveimur flokkum, annars vegar svokallaðri franskri naglaásetningu og hins vegar fantasíunöglum, en í báðum greinum kepptu meistarar og nemar í sérflokkum,“ segir Inga Þyrí Kjartansdóttir, skólastjóri Professionails. Fyrstu verðlaun meistara í naglaásetningu hlaut Anna Dóra Sverrisdóttir frá Reykjavík. Fyrstu verðlaun nema hlaut Ruth Guðnadóttir frá Skeið- um. Í fyrsta sæti í keppni meistara í fantasíunöglum varð Vilborg Drífa Gísladóttir úr Hafnarfirði og efst í flokki nema varð Jóhanna Sif Þórðardóttir úr Kópavogi. Þær sem sigruðu í keppni í fantasíu- nöglum förðuðu módelin sín sjálfar. Sigurvegarinn í meistaraflokki fær flug og hótel fyrir sig og módelið sitt, ásamt rétti til þátttöku í alþjóðlegri naglakeppni, European Nail Champ- ionships, sem fram fer í Earls Court í London dagana 5. til 7. mars. Jóhanna og Vilborg munu fara til London. „Þetta er alþjóðleg keppni í fleiri greinum, sem ber nafnið Professional Beauty. Kepp- endur í naglakeppninni eru meistarar síns heimalands og sigurvegarinn í keppninni hlýtur vegleg verðlaun og tit- ilinn Evrópskur naglameist- ari 2006.“ Íslandsmeistaramótið í professionail-naglaásetn- ingu hefur verið haldið tvisvar áður, en nú í ár er fyrsta skiptið sem sig- urvegaranum gefst kost- ur á að keppa um evr- ópskan meistaratitil. „Það er vaxandi eft- irspurn eftir ásettum nöglum, bæði meðal kvenna og karla, og til þess að anna eftirspurninni þarf vel menntað og þjálfað fólk,“ segir Inga Þyrí. Keppt í naglaskreytingum  NEGLUR | Alþjóðleg keppni í London Í fyrsta sæti meistara í fantasíunöglum varð Vilborg Drífa Gísladóttir. „VIÐ ákváðum að byrja á tveim- ur mynstrum og þjóðarblómið, sem er holtasóley, og fífan komu strax til greina,“ segir Freydís Kristjánsdóttir teiknari en hún hannaði mynstrin á íslensku svefnherbergislínuna. „Mér leist vel á að vinna með þjóðarblómið, það er ofsalega fallegt og eðli- legt að hugsa fyrir einhvers kon- ar markaðssetningu á því. Fífan er líka falleg og passar vel við sængurföt." Þetta er í fyrsta sinn sem Freydís vinnur slíkt verk og er ánægð með útkom- una. Í sinni eigin list vinnur Frey- dís mikið með gamlar ljós- myndir. „Ég nota gamlar ljós- myndir af fólki sem efnivið en ég er ekki endilega að reyna að ná andlitssvipnum, það er allt annað á myndunum sem ég heillast af, eins og íslenski þjóð- búningurinn, kragar á gömlum flíkum, skrítnar hárgreiðslur og þessi gamaldags stemmning yf- irleitt.“ Árið 1989 kláraði Frey- dís fjöltæknideild í Myndlista- og handíðaskólanum og eftir það fór hún að myndskreyta barna- bækur og blöð. „Ég hef mikið verið í verkefnum sem tengjast sögunni og þjóðlegum fróðleik, enda hef ég áhuga á þeim efn- um.“ Freydísi finnst frábært að fólk eigi eftir að sofa við sængurver með hennar myndum á. „Ég vildi hafa þetta einfalt og mynstrin eru mjög ólík. Ég reyndi að ná hreyfingu fífunnar og í sumar, þegar ég lá yfir hönnuninni, skoðaði ég blómin heilmikið í sínu lifandi umhverfi.“ Uppá- haldsblóm Freydísar eru mörg en annars segist hún vera mjög hrifin af maríustakki og öllum fínlegum og litlum íslenskum blómum. Þjóðarblómið á sængurver Heimasíða LinDesign er: www.lindesign.is Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.