Morgunblaðið - 02.02.2006, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FISKIFRÆÐINGAR nýttu sér
áður fyrr stærð hrygningarstofns-
ins og seiðavísitölu, þegar þeir
mátu nýliðun þorsks við Færeyjar
fyrst á tíunda áratugnum. Þessir
þættir höfðu gefið nokkuð góðar
vísbendingar um væntanlega ný-
liðun. Það gjörbreyttist hins vegar
þegar hrygningarstofn í sögulegu
lámarki ásamt lágri seiðavísitölu
skilaði mjög góðri nýliðun á
miðjum áratugnum. Nýjar rann-
sóknir sýna að nýliðun ræðst af
fæðuframboði í sjónum og sjálfs-
afráni. Mest er um sjálfsafránið
þegar mikið af horuðum þorski
kemur upp að landinu, sem aftur
ræðst af því hve mikill fiskur,
þorskur og ufsi, eru um fæðuna.
Þetta er niðurstaða Peturs
Steingrund, fiskifræðings við
Fiskirannsóknarstovu Færeyja úr
rannsóknum á sambandi nýliðunar
og stærð hrygningarstofns. Nið-
urstöður þessar voru birtar í FF
blaðinu í Færeyjum í janúar.
Steingrund segir ennfremur að
það sé þó nauðsynlegt að tryggja
að hrygningarstofn þorsksins verði
ekki svo lítill að hann nái ekki að
gefa af sér góða nýliðun. Í öðru
lagi sé nauðsynlegt að nægilega
mikið sé af þorski í sjónum til að
fæðan fari ekki í aðrar fiskiteg-
undir eða sjávardýr. Það hafi oft
gerzt að lítill þorskstofn hafi gefið
góða nýliðun. Að halda þorskstofn-
inum niðri sé þó engin ávísun á
góða nýliðun.
Steingrund rekur í greininni
gang mála við Færeyjar undanfar-
in ár, en í byrjun síðasta áratugar
fór þorskveiðin niður fyrir 10.000
tonn á ári og hafði ekki verið svo
lítil í hundrað ár, að undanskildum
veiðum undir seinni heimsstyrjöld-
inni. Hann rekur einnig gang
rannsókna, sem byggðust lengst af
á seiðavísitölu og nýliðum. Þessar
Fæðan ræður
nýliðuninni
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
Petur Steingrund, fiskifræðingur í Færeyjum.
!
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
VERIÐ
HÁSKÓLI Reykjavíkur hefur valið
fimm aðila til þátttöku í hugmynda-
samkeppni um skipulag og hönnun
háskólabygginga á svæði HR í
Vatnsmýrinni. Þessir aðilar eru
valdir eftir forval sem auglýst var í
desember en þá var ákveðið að allt
að fimm aðilar tækju þátt í sjálfri
hugmyndakeppninni. Mikill áhugi
var á forvalinu og sýndu bæði aðilar
innanlands og utan verkefninu
áhuga.
Eftirtaldir hópar hafa verið valdir
til samkeppninnar:
Broekbakema, arkitekta- og ráð-
gjafarstofa, Hollandi; Juurlink &
Geluk, hönnunarstofa, Hollandi;
Sputnik, arkitektar, Hollandi;
Teiknistofan Óðinstorgi; Gert Jan
Meyer, Hollandi.
Helin og co., arkitektar, Finnlandi
Teiknistofan Tröð; Kaarina Löfst-
röm, arkitektar, Finnlandi; Marka-
Riitta Norri, arkitektar, Finnlandi;
Anna-Maija Lukkari, sérfræðingur,
Finnlandi; Ympäristötoimisto Oy –
Miljöbyrån AB, landslagsarkitektar,
Finnlandi; MMF ehf.
Henning Larsen, arkitektar, Dan-
mörku; Arkís ehf.; Landmótun.
KHR arkitektar AS, Danmörku;
ASK arkitektar ehf.; Landark ehf.;
Bisgaard PLR, landslagsarkitektar,
Danmörku; Leif Christensen, sér-
fræðingur, Danmörku.
OWP/P – Björn Hallsson arki-
tekt, Bandaríkjunum; Micheal Win-
stanley, arkitektar, Bandaríkjunum;
Iran fink associates, sérfræðingar,
Bandaríkjunum; Hargreaves asso-
ciates, landslagsarkitektar, Banda-
ríkjunum; ARUP, Bandaríkjunum.
Á næstu dögum verður sam-
keppnin kynnt keppendum frekar
og fá þeir frest til 3. maí næstkom-
andi til að skila inn fullunnum hug-
myndum. Dómnefnd mun síðan fara
yfir þær tillögur sem berast en dóm-
nefndina skipa Guðfinna Bjarna-
dóttir, rektor HR, Sverrir Sverr-
isson, formaður háskólaráðs HR,
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, og
arkitektarnir Ólafur Axelsson og
Sigurður Gústafsson. Búist er við að
dómnefndin kynni niðurstöður í
byrjun júní.
Valdir til þátttöku
í samkeppni
um hönnun HR
SKIPIN koma og fara frá Reyð-
arfirði enda gífurlegur uppgangur
á staðnum í kjölfar álvers-
framkvæmdanna og telja ráðamenn
bæjarfélagsins að þær örvi aðra
uppbyggingu mun meira en upp-
haflega var gert ráð fyrir.
Í mynni Reyðarfjarðar mættu
skipverjar á hafrannsóknarskipinu
Árna Friðrikssyni RE 200 flutn-
ingaskipinu BBC Argentina en það
var á leið til hafnar. Á bak við
gnæfir fjallið Snæfugl nær og
Sauðatindur fjær í kvöldhúminu.
Skipin koma og fara
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
MERK tímamót urðu
í sögu Kayakklúbbs-
ins á síðasta aðalfundi
í byrjun vikunnar
þegar Þorsteinn Guð-
mundsson, formaður
frá stofnun klúbbsins
árið 1981, lét af störf-
um. Lýkur þar með
25 ára formannssetu
Þorsteins og var hann
hylltur af fé-
lagsmönnum og þökk-
uð vel unnin störf í
aldarfjórðung. Hlaut
hann að launum gjafir
frá nýrri stjórn. Á að-
alfundinum var Jón
Skírnir Ágústsson
kjörinn nýr formaður
og varaformaður
Haraldur Njálsson. Aðrir stjórnar-
menn eru Guðmundur Breiðdal,
Páll Gestsson, Sæþór Ólafsson og
Jóhann Geir Hjartarson.
Félagsmenn í Kayakklúbbnum
eru 340 talsins og er klúbburinn
elsti kajakklúbbur landsins. Fé-
lagsmenn stunda ýmist sjókajak-
róður eða straumvatnsróður og hef-
ur starfið verið mjög öflugt að
undanförnu. Aðstaða klúbbsins er
við Geldinganes og þaðan er róið út
á sundin á hverjum laugardags-
morgni.
25 ára formannsferli lokið
Morgunblaðið/Sverrir
Þorsteinn Guðmundsson t.v., fráfarandi formaður,
með nýkjörnum formanni, Jóni Skírni Ágústssyni.
MAÐURINN sem framdi vopnað
rán í afgreiðslu Happdrættis Há-
skólans á mánudag er eftirlýstur
af lögreglu og hefur hún gert op-
inberar myndir í eftirlitskerfi af-
greiðslu happdrættisins. Þær voru
teknar kl. 11.54 á mánudaginn og
sýna ræningjann í bláleitum sam-
festingi með hettu, í hvítum skóm
með svörtum röndum, með svarta
og hvíta hanska á höndum og með
svört sólgleraugu. Hann gekk að
kassa innan við afgreiðsluborð og
tók þaðan peninga áður en hann
flúði. Reiðhjól, sem hann hafði
komið á, var skilið eftir utan við
dyrnar.
Ef einhver kannast við hjólið,
fatnaðinn; samfestinginn, hansk-
ana og/eða skóna, eða jafnvel unga
manninn á myndunum er sá hinn
sami vinsamlegast beðinn að hafa
samband við lögregluna í Reykja-
vík.
Happdrættisræn-
inginn eftirlýstur