Morgunblaðið - 02.02.2006, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 15
FRÉTTIR
aðferðir þóttu þá „góð latína“ við
stofnstærðarmat, voru þær beztu
sem menn þekktu til. Síðari hafi
svo annað komið í ljós. Árin 1994
og 1995 var nýliðun mjög góð og á
þremur árum fór aflinn úr 6.000
tonnum í 40.000 þrátt fyrir lítinn
hrygningarstofn og fiskurinn óx
mjög hratt. Þetta hafi mönnum
fundizt skrítið og því hafi verið
farið að leita skýringa á því
hvernig hrygningarstofn í sögu-
legu lágmarki og mjög lág seiða-
vísitala hafi skilað svo góðri nýlið-
un. Árið 1990 var byrjað að
rannsaka fæðuframboð á land-
grunninu við Færeyjar, einkum
grænþörunga, sem eru undirstað-
an í fæðukeðjunni. Þessar rann-
sóknir hafi síðan skýrt út hvernig
á þessu stóð. Mjög lítið var af þör-
ungum í sjónum á árunum 1990 til
1992 og líklega næstu tvö árin áð-
ur. Það skýrði hve lítil nýliðunin
var á þessum árum. Þegar gróð-
urinn jókst svo á árunum 1993 til
1995, breyttust skilyrðin alveg.
Nú var næg fæða fyrir smáfiskinn
og því varð nýliðun góð. Þorsk-
urinn óx hratt og það var skýr-
ingin á mikilli veiði 1996. Nið-
urstaðan er því að fæðuframboðið
ræður úrslitum. Mikið fæðufram-
boð eykur nýliðun, minna framboð
eykur sjálfsafrán og dregur úr ný-
liðun.
ingi grísa af norsku kyni hafi verið mjög ár-
angursrík.
„Við höfum verið í samstarfi við Norðmenn
allt frá 1994 og erum áskrifendur að erfða-
efni frá þeim. Við tökum frá þeim dýr með
reglulegu millibili, síðast í desember 2004,“
segir hann.
Lykill að árangri í kynbótum
„Þetta hefur verið lykillinn að þeim árangri
sem við höfum náð í kynbótum á síðustu ár-
um. Stofninn hér innanlands er einfaldlega of
lítill og það yrði allt of kostnaðarsamt og er
óraunhæft að halda uppi öflugu kynbótastarfi
með honum. Það er því mjög gott fyrir okkur
að geta tengst öðru landi sem gerir þetta
með hagkvæmum hætti.“ Stefnt er að inn-
flutningi fleiri grísa frá Noregi síðari hluta
KOMIÐ var með 220 norska grísi til landsins
á þriðjudag. Leiguflugvél á vegum Norð-
manna, sem flutti grísina frá Noregi, lenti á
Akureyrarflugvelli kl. 14 og voru grísirnir því
næst fluttir rakleiðis í einangrunarstöð Svína-
ræktarfélags Íslands í Hrísey.
Þaðan verður þeim svo dreift til svínabænda
til kynbóta á búum þeirra um allt land.
Grísirnir verða í a.m.k. átta vikur í einangr-
unarstöðinni í Hrísey á meðan embætti yf-
irdýralæknis gengur úr skugga um að heil-
brigði dýranna sé í lagi og að engir
sjúkdómar fylgi þeim til landsins.
Ingvi Stefánsson, formaður Svínarækt-
arfélags Íslands, segir að reynslan af innflutn-
næsta sumars. Grísirnir koma frá nokkrum
kynbótabúum í Noregi. Ingvi segir að ástæða
þess að dýrin eru fengin frá Noregi sé sú að
Norðmenn standi mjög framarlega hvað varð-
ar heilbrigði svína og þar sé rekið öflugt eft-
irlitskerfi, að því ógleymdu að norski svína-
stofninn sé mjög góður.
Upphafið að innflutningnum má rekja til
þess að Svínaræktarfélag Íslands byggði ein-
angrunarstöð í Hrísey og flutti inn tíu fengn-
ar norskar landkynsgyltur í mars 1994. Eftir
gotið voru fjörutíu gyltur teknar til undan-
eldis ásamt tíu göltum og gutu þær á árunum
1995 og 1996. Meginástæðurnar voru þær að
svínabændur voru fyrst og sækjast eftir betri
eiginleikum, s.s. hraðari vexti grísanna, minni
fóðurnotkun, meiri vöðvasöfnun og minni
fitu.
220 norskir grísir með leiguflugi til Akureyrar
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„VIÐ erum alveg himinlifandi,
þetta byrjar bara með hvelli,“ sagði
Birgir Jónsson framkvæmdastjóri
Iceland Express, en um hádegi í
gær hófst sala miða í beinu áætl-
unarflugi milli Akureyrar og Kaup-
mannahafnar. Flugið hefst 30. maí
næstkomandi.
Greinilegt er að margir ætla að
nýta sér þennan kost, að hefja ut-
anlandsferðina á Akureyri, því á
fyrsta klukkutímanum hafði á ann-
að þúsund farmiða selst.
„Við áttum alveg eins von á góð-
um viðtökum, en þetta er glimrandi
byrjun og við erum mjög ánægðir
með viðtökurnar,“ sagði Birgi.
Grunnverð farmiða milli Akur-
eyrar og Kaupmannahafnar er hið
sama og á öðrum leiðum Iceland
Express, 7.995 kr. aðra leiðina.
Takmarkað framboð er á ódýrustu
sætunum og seljast þau fyrst.
„Fólk þekkir okkar fargjaldakerfi,
veit að það er takmarkað sætafram-
boð á lægsta verðinu og að því fyrr
sem bókað er þess meiri líkur á að
ná hagstæðu verði.“
Í sumar verður flogið tvisvar í
viku milli Akureyrar og Kaup-
mannahafnar, á þriðjudögum og
fimmtudögum.
Himinlif-
andi með
viðtökurnar
VEGNA óviðráðanlegra orsaka tefst
dreifing Íslandspósts á um 30% af
þeim Orkubókum sem áttu að berast
öllum íslenskum börnum á aldrinum
5, 6, og 7 ára í gær. Helst eru það
Orkubækur sem áttu að skila sér út á
landsbyggðina sem verða fyrir töf-
inni, en þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Íslandspósti.
Fram kemur að flestar Orkubæk-
ur ættu þó að vera komnar til skila í
dag. Þá segir að þeir sem ekki hafa
fengið bókina í hendurnar geti engu
að síður tekið strax þátt með því að
skrá sig á heimasíðu Orkuátaksins,
www.orkuatak.is.
Verkefnið, sem nefnist Orkuátak
2006, mun standa yfir frá 1. febrúar
til 1. mars.
Dreifing
Orkubókar
tafðist
♦♦♦