Morgunblaðið - 02.02.2006, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.02.2006, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR Góðar vörur á góðu verði  ÚTSÖLULOK Það verður götumarkaðsstemning næstu daga í Kringlunni og Smáralind. Í verslunum á Laugavegi virðist algengt að útsölur standi fram í miðjan febrúar og jafnvel lengur. Sig- rún Ásmundar og Þorvaldur Örn Kristinsson ljósmyndari brugðu undir sig betri fætinum og heilsuðu upp á fólk með poka í höndunum. Morgunblaðið/Jim Smart „ÞAÐ er nú eiginlega al- veg undantekning að ég sé hérna í þeim tilgangi að fara á útsölur,“ sagði María Frímannsdóttir sem hafði samt sem áður náð sér í eitthvað spennandi sem hún var með í poka- horninu. „Ég er með dótt- ur minni hérna, hún býr í Austurríki og kom til landsins í gær [mánu- dag].“ Dóttirin heitir Rósa Kristín Baldursdóttir og henni finnst gaman að kíkja í verslanir þegar hún kemur til landsins. „Ég er frekar ódugleg en mér finnst gaman þegar ég dett niður á eitthvað óvænt, eitthvað sem ég er ekkert að leita að.“ Að þeim orðum sögðum kem- ur Rósa Kristín aðvífandi ásamt dóttur sinni Liliu Maríu Giovanna. „Já, það er reyndar alveg satt, ég kem heim til að versla og þegar ég kem finnst mér gaman að fara á útsölurnar,“ segir Rósa Kristín. „Hún datt bara af himnum ofan,“ segir María um óvænta komu dótturinnar og barnabarnanna til landsins. „Ég hef ekki komið til Íslands í heilt ár og það var kom- inn tími til að bregða sér hingað í góða veðrið,“ segir Rósa Kristín og María skýtur inn í: „Þetta var þvílíkt leyndarmál, við for- eldrarnir höfðum ekki hugmynd um að von væri á henni.“ Rósa Kristín sagði að gott væri að koma í góða veðrið á Íslandi. „Það var sko 19 stiga frost heima hjá mér og allt á kafi í snjó.“ Skandinavísk hönnun Rósu Kristínu finnst fólk á Íslandi klæða sig öðruvísi en fólk gerir á hennar slóðum í Austurríki. „Mér finnst óskaplega gaman að kíkja á skandinavíska hönnun, danskar búðir og svona, þegar ég kem.“ Hún segir að hún þekki Íslendinga langar leiðir þegar hún er á ferð erlendis. „Ég þekki þá alveg úr, þegar ég var í flugstöðinni í Frankfurt gat ég sigtað þá út á mörg hundruð metra færi. Syni mínum á unglingsaldri finnst allir Íslendingar svo „hipp og kúl“ og fólk er miklu hugmyndaríkara og djarfara í klæðaburði hér. Hér er svo gaman að sjá hvernig fólk blandar saman litum og munstri, ég nýt þess að sitja bara og horfa á fólk. Í Salzburg er fólk miklu einsleitara.“ Rósa Kristín segir að lokum að hún dragi mömmu sína með sér á útsölurnar þegar hún kemur hingað til lands á eins til tveggja ára fresti. „Við eigum reyndar alveg eftir að fara á Laugaveginn og Skólavörðustíginn núna, en við munum gera það líka.“ Til Íslands að versla Morgunblaðið/ÞÖK Þrjár kynslóðir á útsölurölti, Baldur Hjörleifsson, María Frí- mannsdóttir, Lilia María Giovanna og Rósa Kristín Baldursdóttir.  Miðvikudaginn 1. febrúar byrjaði götumarkaður í Kringlunni. Markaðsstemning verður í húsinu og verð sett niður í lægsta mögulegt verð. Útsölulok eru sunnudaginn 5. febrúar.  Í dag hefst götumarkaður í Smáralind. Markmiðið með markaðnum er að fólk geti gert hagstæð kaup. Útsölulok eru sunnudaginn 5. febrúar.  Haft var samband við nokkrar verslanir við Lauga- veginn og fengust þau svör að almennt yrði útsala eitthvað fram í febrúar, sumsstaðar til febrúarloka. Útsölulok SYSTURNAR Jenný og Katrín Bjarnadætur voru með barnabörnin, Anítu Kristjánsdóttur og Björk Ingvarsdóttur, með sér í leiðangri. „Við vorum aðeins að kíkja á útsölurnar,“ sögðu þær. „Við höfum ekkert skoðað fyrr en bara í dag og okkur sýnist að hægt sé að gera nokkuð góð kaup,“ sagði Katrín. „Já, já, ég keypti trefil og eina peysu,“ bætti Jenný við og lyfti pokunum. Aðspurðar segjast þær kíkja annað slagið á útsölurnar. „Jú, jú, við komum og kíkjum í búðirnar, það er enginn vafi að oft er hægt að gera góð kaup.“ Þær systur segjast ekki ætla aftur til að skoða úrvalið á götumarkaðinum. „Þetta er eiginlega bara ráp á okkur núna, við kíkjum á kaffihús í leiðinni og eigum góðan dag með barnabörnunum.“ Kaffihús í leiðinni Morgunblaðið/ÞÖK Systurnar Katrín og Jenný Bjarnadætur ásamt barnabörnum sínum, Anítu Kristjáns- dóttur og Björk Ingvarsdóttur. ERNA Guðmundsdóttir hafði ekki farið á út- sölu fyrr en daginn sem hún hitti blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins á röltinu. „Mér finnst þetta nú frekar leiðinlegt en vissu- lega er hægt að gera góð kaup,“ sagði hún. „Ég fékk tvo flotta jakka, reyndar eru þeir mjög svipaðir. Svo er ég rosalega ánægð með þetta leðurveski,“ sagði hún um leið og hún sýndi ofan í pokann. „Mér finnst hægt að gera mjög góð kaup í svona vörum.“ Erna ætlar ekki að kíkja á götumarkaðina sem nú eru í algleymingi en var mjög ánægð með það sem hún keypti í þetta sinn. Morgunblaðið/ÞÖK Erna Guðmundsdóttir festi kaup á veski sem hún var sérlega ánægð með. Ánægð með leðurveskið Bónus Gildir 1.–5. febrúar verð nú áður mælie. verð Frosin lúða í bitum ............................... 999 0 999 kr. kg NF reyktir ýsubitar 800 g ...................... 399 0 499 kr. kg NF þorskbitar roð/beinlausir ................. 599 799 599 kr. kg Búkonu reyktur lax, bitar og flök ............ 999 1.345 999 kr. kg Ernos pizza, salami, 350 g.................... 95 0 271 kr. kg Euroshopper pastaskrúfur ..................... 69 0 69 kr. kg Euroshopper pasta makkarónur ............ 69 0 69 kr. kg Euroshopper pasta gnocchi .................. 69 0 69 kr. kg Euroshopper pastasósa í gleri, 600 g .... 129 0 215 kr. ltr Fjarðarkaup Gildir 2.–4. febrúar verð nú áður mælie. verð Blandað hakk frá Kjöthúsinu ................. 698 878 698 kr. kg Lambalæri, frosið................................. 898 998 898 kr. kg Súpukjöt frá Fjallalambi ....................... 398 548 398 kr. kg FK jurtakryddað lambalæri.................... 998 1.856 998 kr. kg Svínakótilettur úr kjötborði .................... 798 998 798 kr. kg Folaldagúllas úr kjötborði ..................... 998 1.198 998 kr. kg Farm frites franskar, 750 g.................... 99 198 99 kr. kg FK ís, 1ltr vanillu/súkkulaði................... 99 198 99 kr. ltr Coke dós, 0.33 ltr ................................ 49 83 148 kr. ltr Ariel regular/color, 3,3 kg..................... 798 998 241 kr. kg Hagkaup Gildir 1.–4. febrúar verð nú áður mælie. verð Svínagúllas ......................................... 959 1.599 959 kr. kg Svínakótilettur ..................................... 889 1.398 889 kr. kg Svínarifjasteik ...................................... 499 798 499 kr. kg Svínahnakki úrb................................... 899 1.499 899 kr. kg Krónan Gildir 2.–6. febrúar verð nú áður mælie. verð Krónu kjúklingur, blandaðir bitar............ 299 399 299 kr. kg Krónu grísabógur, reykt/úrb. ................. 699 0 699 kr. kg Krónu grísakótilettur............................. 899 1.198 899 kr. kg Ali bjúgu, 4 stk. ................................... 323 539 323 kr. kg Bertolli pastasósur, 500 g, ................... 149 198 149 kr. stk. Grand It. spaghetti, 500 g .................... 39 85 39 kr. pk. Grand It. tortellini, 250 g ...................... 199 269 199 kr. pk. Grand It. fusilli, 500 g .......................... 39 95 39 kr. pk. Myllu Fjölkornasamlokubrauð ............... 99 229 99 kr. stk. Calgonit uppþvvélatöflur....................... 799 988 799 kr. pk. Nóatún Gildir 3.–6. febrúar verð nú áður mælie. verð Lambalæri úr kjötborði ......................... 895 1.398 895 kr. kg Lambahryggur ..................................... 1.298 1.598 1.298 kr. kg Lamba sirloinsneiðar............................ 798 1.198 798 kr. kg Lambafillet rib eye ............................... 1.998 2.998 1.998 kr. kg Grísalundir, fylltar................................. 2.490 2.698 2.490 kr. kg Nóatúns skinka, 200 g ......................... 398 279 279 kr. pk. McCain Superfries, sléttar .................... 299 399 299 kr. kg Goða súpukjöt, lítill poki....................... 398 499 398 kr. kg Kjörís mjúkís, súkku./van. .................... 299 499 299 kr. ltr Mars Classic........................................ 49 99 49 kr. stk. Samkaup/Úrval Gildir 2.–5. febrúar verð nú áður mælie. verð Goði trippabjúgu.................................. 349 499 349 kr. kg Gourmet lambalæri, villikryddað............ 1286 1864 1286 kr. kg Helgarlamb m/sérkryddað.................... 1224 1748 1224 kr. kg Medisterpylsa, reykt ............................. 579 828 579 kr. kg Borgarnes skólaskinka, 165 g............... 139 199 139 kr. stk. Kjúklingaleggir, magnpakkning.............. 389 599 389 kr. kg Pepsi Max 2ltr ..................................... 99 203 99 kr. stk. Egils Tuborg grön léttöl, 500 ml ............. 49 95 49 kr. stk. Þín verslun Gildir 2. febrúar verð nú áður mælie. verð Helgargrís að indverskum hætti ............. 1398 1748 1398 kr. kg Beikonbúðingur ................................... 662 828 662 kr. kg Borgarnes hangiálegg, 150 g................ 362 482 362 kr. kg Ýmsar kjötvörur áberandi  HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.