Morgunblaðið - 02.02.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 49
DAGBÓK
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 250-300 fm einbýlishúsi
á einhverju framantaldra svæða. Staðgreiðsla í boði.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í VESTURBORGINNI,
SKERJAFIRÐI EÐA FOSSVOGI ÓSKAST
70ÁRA afmæli. Í dag, 2. febrúar, ersjötug Þuríður Guðjónsdóttir.
Þuríður og eiginmaður hennar, Páll
Ólafsson, taka á móti vinum og vanda-
mönnum í Félagsheimili Orkuveitu
Reykjavíkur í Elliðaárdal í dag kl. 17.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Í dag, 2. febrúarer sextug Katrín Stefánsdóttir,
Hvolsvegi 23, Hvolsvelli. Eiginmaður
hennar er Anton Viggósson. Í tilefni
dagsins tekur hún á móti gestum kl.
18–21 í félagsheimili hestamanna-
félagsins Andvara á Kjóavöllum.
Dagur sjúkraþjálfunar er á morgun ogstendur Félag íslenskra sjúkraþjálf-ara, FÍSÞ, fyrir fræðandi fyrir-lestradagskrá.
Auður Ólafsdóttir er formaður FÍSÞ: „Við
höldum fræðsludag þar sem sjúkraþjálfarar
kynna niðurstöður verkefna sinna og rann-
sókna, og fjöllum um það sem er efst á baugi
innan sjúkraþjálfunarfagsins,“ segir Auður og
bætir við að dagskráin verði brotin upp af létt-
ari fyrirlestrum í bland við fræðilegri. Dag-
skránni er ætlað að veita félagsmönnum FÍSÞ
fræðslu- og samræðuvettvang en öðrum heil-
brigðisstéttum er einnig frjálst að sækja ráð-
stefnuna.
Margt góðra fyrirlesara leggja efni til ráð-
stefnunnar en fremsta meðal jafningja má
nefna dr. Ólöfu Önnu Steingrímsdóttur sjúkra-
þjálfara: „Við höfum fengið hana hingað heim
til að halda lykilfyrirlestur dagsins. Hún hefur
búið í Noregi síðustu 12 ár og lauk þar dokt-
orsnámi á síðasta ári. Erindi hennar fjallar um
tengsl kvartana við vöðvaviðbrögð hjá vinnandi
fólki, s.s. hvað varðar þreytu- og álags-
einkenni,“ segir Auður. „Einnig má geta fyr-
irlestrar Ágústu Guðmarsdóttur um skylt efni,
en hún kynnir mastersverkefni sitt sem fjallar
um líðan og vinnuumhverfi starfsfólks í leik-
skólum í Reykjavík. Að auki verða margir
áhugaverðir fyrirlestrar, s.s. um hreyfinám og
hreyfistjórnun, íþróttafræðifyrirlestrar, og
einnig verður fjallað um bakverki og offitu-
meðferðir.“
Félag íslenskra sjúkraþjálfara var stofnað
1940. Félagið er fagfélag sjúkraþjálfara með
um 430 félagsmenn. Sjúkraþjálfun byggist á
vísindalegri þekkingu með það að aðalmark-
miði að viðhalda og bæta heilsu og starfshæfni
fólks og hefur félagið því þau markmið að auka
faglega vitund sjúkraþjálfara og gæði sjúkra-
þjálfunar, en einnig að kynna starf sjúkraþjálf-
ara og auka samvinnu og samheldni.
Fyrirlestrarnir á Degi sjúkraþjálfunar verða
í fundarsölum ÍSÍ að Engjavegi 6 og hefst dag-
skráin kl. 8.30 og stendur til 15.30. Þátttöku
má skrá á physio.is þar sem einnig má finna
nánari upplýsingar um dagskrána og aðra
starfsemi félagsins.
Ráðstefna | Dagur sjúkraþjálfunar haldinn á föstudag með fróðlegri dagskrá
Fjölbreytt erindi um sjúkraþjálfun
Auður Ólafsdóttir
fæddist í Reykjavík
1962. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum við Ár-
múla 1981 og B.S. gráðu
í sjúkraþjálfun frá Há-
skóla Íslands 1986.
Hún stundar núna
mastersnám í Verk-
efnastjórnun við HÍ.
Auður starfaði á Borg-
arspítalanum 1986-91 og var yfirsjúkraþjálf-
ari á HL-stöðinni 1992-99. Árið 1999 tók
Auður þátt í stofnun sjúkraþjálfunarstöðvar
og starfar þar enn í dag. Auður sat í fræðslu-
nefnd FÍSÞ 95-98 og fagnefnd, 99-2001, í
stjórn félagsins frá 2001 og formaður frá
2002. Auður er gift Guðmundi Tryggva Sig-
urðssyni tæknifræðingi, og eiga þau þrjú börn.
Trompgaldur.
Norður
♠10753
♥D864 S/Enginn
♦102
♣K73
Vestur Austur
♠K62 ♠ÁG984
♥10 ♥G95
♦D954 ♦G86
♣ÁDG84 ♣96
Suður
♠D
♥ÁK732
♦ÁK73
♣1052
Suður spilar fjögur hjörtu eftir þess-
ar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Dobl 3 hjörtu 3 spaðar 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspilið er spaðatvistur (þriðja
hæsta) upp á ás austurs, sem skiptir
hnitmiðað yfir í laufníu í öðrum slag.
Vestur tekur á ásinn og spilar drottn-
ingunni áfram. Blindur á þann slag á
kónginn og nú þarf að móta áætlun.
Vissulega hjálpar að sjá allar hend-
ur, en skiptingin ætti ekki að koma
sagnhafa á óvart. Hann veit að vestur á
3-5 í svörtu litunum og mjög sennilega
fjórlit í tígli. Alla vega er spilið vanda-
laust ef trompið fellur 2-2, svo sagnhafi
ætti að gera ráð fyrir 3-1 legu og reyna
að bregðast við henni.
Vandinn er þessi: Það verður að
trompa tígul tvisvar í borði, en það er
ekki hægt án þess að austur fái slag á
hjartagosa, annað hvort með yf-
irtrompun eða uppfærslu. Ef rétt er
spilað kemur það hins vegar ekki að
sök - austur má fá slag á hjartagosa,
svo framarlega sem sagnhafi tryggir
sér sjálfur sjö slagi á trompið.
Lykilatriðið er að nota innkomuna á
laufkóng til að stinga spaða. Síðan má
taka ÁK í hjarta. Næst er tígli spilað
þrisvar og stungið smátt, spaði tromp-
aður heim og tígull trompaður með
drottningunni. Spaði úr borði tryggir
suðri síðan tíunda slaginn á tromphund
með framhjáhlaupi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Tóbaksreykingar
TÓBAKSREYKINGAR eiga
hvergi og aldrei rétt á sér. Allt tal
um frelsi manna í þeim efnum er
blekking og útúrsnúningur.
Reykingar eru heimskan sjálf.
Heilsumaður.
Hver ætlar að sjá
um smælingjana?
„ÞRÝSINGUR um hækkun
lægstu launa.“ Svo hljóðar fyr-
irsögn á forsíðu Morgunblaðsins
30. janúar 2006. Hver þrýstir á
bætt kjör öryrkja og aldraðra?
Sama dag er sagt frá því í út-
varpi að Íslendingar fáist ekki í
fiskvinnu, þó að launin séu á
fjórða hundrað þúsund á mánuði!
Er ekki komið að þeim tíma-
punkti að hækka bætur aldraðra
og öryrkja hjá þeirri þjóð sem
státar af því að vera ein ríkasta
þjóð í Evrópu?
Hvaða þingmaður eða ráðherra
þorir að ríða á vaðið og krefjast
þess að leiðrétta kjör aldraðra og
öryrkja?
Aldraðir og öryrkjar er stór
hópur meðal þeirra sem eru kjós-
endur á Íslandi í dag. Aldraðir og
öryrkjar fara aðeins fram á leið-
réttingu á kjörum þessara hópa í
þjóðfélaginu.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Hátúni 10, Rvík.
Líta stjórnvöld undan?
FÁTÆKT hér á landi eykst stöð-
ugt þótt mikið hafi verið rætt um
þessi mál undanfarin ár. Þótt ör-
yrkjar og eldri borgarar hafi stað-
ið reglulega fyrir framan alþing-
ishúsið breytist ekkert. Og jafnvel
þótt öryrkjar fari í hungurverkfall
til þess að mótmæla sínum aumu
kjörum. Ég kom til einstæðrar
móður með tvö börn rétt fyrir
mánaðamótin. Hún sýndi mér inn í
ísskápinn, þar var eitt brauð,
mjólkurpottur, smá smörklípa og
nokkrar kartöflur. Þetta var það
eina sem hún hafði til að gefa
börnum sínum að borða og fjórir
dagar til mánaðamóta. Annað
barnið var lasið og hún átti ekki
peninga fyrir lyfjunum. Ég bara
spyr: Merkir tómur ísskápur góð-
æri? Pétur Blöndal, alþing-
ismaður, sagði í viðtali í sjónvarpi
nýlega að fólk gæti bara unnið
meira til að losna úr fátækt-
argildrum sem hann áleit tilbún-
ing frá vinstra fólki. Hann sagði
líka að kaupmáttur láglaunafólks
hefði aukist um 28%. Það þykir
mér furðuleg tíðindi.
Ég get sagt Pétri Blöndal það
að reynsla mín af þessum málum
undanfarin ár er ekki bara þjóð-
saga ættuð frá þeim sem vinstra
megin eru í pólitík. Þeim sem
hægra megin eru ofbýður mörgum
líka hvernig farið er með þetta
fólk. Það að vinna meira skilar
litlu fyrir þetta fólk því það fer
mest í skattinn. Þetta er ansi hart
í velferðarríkinu Íslandi þar sem
fáeinir útvaldir fá slík laun og
starfslokasamninga að venjulegt
fólk svimar þegar það heyrir upp-
hæðirnar.
Á meðan sumir standa í sykur-
karinu hafa aðrir ekkert að borða
stóran hlutan mánaðarins og
margt af þessu fólki stendur
reglulega fyrir utan hjálparstofn-
anir í leit að mat í sinn tóma
maga.
Það styttist í næstu alþing-
iskosningar. Kannski hrökkva
stjórnvöld upp af þyrnirósarsvefn-
inum og lofa þessu fólki öllu fögru
einu sinni enn. Þeir lofuðu lækkun
á matarskatti fyrir síðustu kosn-
ingar, en ekkert gerist. Ég vil
skora á alla þá sem hafa það gott
hér í þessu samfélagi að standa
með þeim sem minna mega sín
fyrir næstu alþingiskosningar.
Sigrún Á. Reynisdóttir,
formaður Samtaka
gegn fátækt.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
1. e4 c6 2. Rf3 d5 3. exd5 cxd5
4. Re5 Rc6 5. d4 e6 6. Bb5 Bd7
7. Rxd7 Dxd7 8. c3 h6 9. 0-0
Rf6 10. Rd2 a6 11. Bd3 Bd6 12.
He1 Dc7 13. Rf3 0-0 14. De2
Rd7 15. Bc2 Ra5 16. Dd3 Rf6
17. Re5 Hfc8 18. Dg3 Kf8 19.
Dh4 De7
Staðan kom upp á Skeljungs-
mótinu sem Taflfélag Reykja-
víkur hélt og lauk nýverið.
Daði Ómarsson (1.714) hafði
hvítt gegn Einari Sigurðssyni
(1.480). 20. Bxh6! Rd7 svartur
hefði orðið illa beygður eftir
20. … gxh6 21. Dxh6+ Ke8 22.
Dh8+ Df8 23. Dxf6. Eftir textaleikinn
er svarta staðan einnig gjörtöpuð. 21.
Bxg7+! Ke8 22. Dh8+ Rf8 23. Bd1
Rc6 24. Bh5 Bxe5 25. Bxe5 Kd7 26.
Dg7 Rxe5 27. Hxe5 Kc6 28. Dxf7 og
svartur gafst upp saddur lífdaga.
SKÁK
Hvítur á leik.
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.isLÍBANSKA kvikmyndin Í kringum
bleika húsið verður sýnd í félags-
miðstöðinni Snarrót, Laugavegi 21
kl. 20 í kvöld.
Í Beirút, höfuðborg Líbanons, hafa
tvær flóttamannafjölskyldur hreiðr-
að um sig í gömlum kastala frá því að
borgarastríðið hófst. Kastalinn
gengur undir nafninu ,,bleika húsið“.
En nýi eigandinn ákveður að reka
fjölskyldurnar burt. Hann ætlar að
rífa kastalann og byggja í hans stað
mikla verslunarmiðstöð. Allt hverfið
skiptist þá í tvær fylkingar, með og á
móti þessum framkvæmdum. Með
því að neita sér um að loka augunum
og fela sannleikann varpa leikstjór-
arnir afdráttarlausu ljósi á tímabilið
eftir borgarastríðið í Líbanon af
grípandi raunsæi. Enskur texti.
Í kringum bleika húsið
Reuters