Morgunblaðið - 02.02.2006, Page 56

Morgunblaðið - 02.02.2006, Page 56
Munich kl. 5:50 og 9 b.i. 16 ára Pride & Prejudice kl. 5:30 - 8 og 10:30 The Chronicles of Narnia kl. 5:30 Rumor Has It kl. 8:15 og 10:15 Harry Potter and the Goblet of Fire kl. 6 b.i. 10 ára KING KONG kl. 9 b.i. 12 ára ***** L.I.B. Topp5.is **** S.U.S. XFM 91,9 **** kvikmyndir.is **** Ó.Ö. DV ***** L.I.B. Topp5.is **** S.U.S. XFM 91,9 **** Ó.Ö. DV **** Kvikmyndir.is „Munich er tímabært stórvirki sem á erindi við alla.“ ***** S.V. Mbl. „Munich er tímabært stórvirki sem á erindi við alla.“ ***** S.V. Mbl. mynd eftir steven spielberg TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit, besta tónlist og besta klipping.5 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit, besta tónlist og besta klipping.5 mynd eftir steven spielberg TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA M.a. besta aðalhlutverk kvenna (Keira Knigthley), bestu listrænu leikstjórn og tónlist.4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA M.a. fyrir tæknibrellur4 Byggð á sönnum orðrómi... eeee L.I.N. topp5.is eeee H.J. Mbl. eee S.K. DV eee M.M.J. kvikmyndir.com 56 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ HIN unga en bráðefnilega út- varpsstöð XFM heldur sína fyrstu tónlistarverðlaunahátíð fimmtu- daginn 23. febrúar í Austurbæ. Tilnefnt er í sjö flokkum og óhætt er að segja að slagsíðan sé jað- arrokksmegin eins og útvarps- stöðin sjálf en hún telst með þeim framsæknari í íslensku útvarpi í dag. Tilnefningar til verðlauna fyrir tónlistarárið 2005 eru: Plata ársins Dr. Phil – Dr. Spock Lights On the Highway – Lights On the Highway Emotional – Trabant Hunting for Happiness – Dikta Death Before Disco – Jeff Who? Heimasíða ársins Dordingull.com Ensimi.is Rjominn.is Rokk.is Breakbeat.is Nýliðar ársins Jakobínarína Nine Elevens Reykjavík! Benny Crespo’s Gang The Viking Giant Show Besta lag ársins „Party At the White House“ – The Viking Giant Show „Nasty Boy“ – Trabant „Breaking the Waves“ – Dikta „It’s Sexy“ – Dr. Spock „Golden Age“ – Jeff Who? „Slow Return“ – Ensími „Jamison State“ – Lights On The Highway „A Little Bit“ – Sign „I’ve Got A Date …“ – Jakobínarína „My Delusions“ – Ampop „The Spell“ – Leaves „Major Label“ – Hairdoctor Tónleikaband ársins Brain Police Dr. Spock Trabant Jakobínarína Kimono Myndband ársins My Delusions – Ampop Aftermath – Kimono Glósóli – Sigurrós Whatever – Leaves Attemped Flight – Úlpa Bjartasta vonin Dikta Dr. Spock Jeff Who? Trabant Ampop Dr. Spock fær fjórar tilnefningar til tónlistarverðlauna XFM. Tónlist | Útvarpsstöðin XFM veitir sín fyrstu tónlistarverðlaun Jaðarrokk í Austurbæ TILGANGURINN er að kynna frönskum áhorfendum íslenska tónlist og vonandi kveikja áhuga plötuútgefanda hérlendis“, segir Charlie Vetter, forsprakki íslenskrar tónlistarveislu sem fyrirhuguð er annað kvöld í París. Þetta er í annað skiptið sem tónleikarnir „4000 Hertz from Islande“ eru haldnir og er tónleikahaldarinn tilbú- inn til þess að leggja allt undir til að auðga franska tón- listarflóru og kynna Ísland í leiðinni. „Það verður að segjast að markaðurinn er ekki ákaf- lega spennandi hér í Frakk- landi og það er kominn tími til að bjóða upp á góða tónlist, en af henni er nóg til á Ís- landi,“ segir Charlie glað- beittur. Íslenskum hljómsveitum hefur gengið vel í Frakklandi og hafa hljómsveitir á borð við múm, Gus Gus, Sigur Rós og Bang Gang fengið góðan meðbyr Breiðir út boðskapinn Íslandsvinurinn Charlie kynntist Íslandi í gegnum Emilíönu Torrini en hann spilaði sem hljómborðsleikari á tónleikum hennar um þriggja ára skeið. Síðan hefur hann komist í kynni við fjölda Íslendinga. „Ég á góða vini á Íslandi sem margir hverjir eru tónlistarmenn og í gegnum þá hef ég upp- götvað margt skemmtilegt, en einnig í gegnum Air- waves- hátíðina á hverju ári,“ segir hann. Charlie hefur fundið hjá sér þörf til að breiða út boð- skapinn og hefur því boðið hljómsveitunum Ampop, Trabant og Plat að troða upp ásamt plötusnúðatvíeykj- unum Bongo & Buckmaster og Johnny Sexual á al- íslensku kvöldi. Þar að auki verður íslensk hressing og ljósmyndasýning í boði „Humar eða frægð“, en það er Einar Örn, fyrrverandi Sykurmoli, sem stendur að baki þeirri sýningu. „Takk, Einar,“ segir Charlie. „Ég hef fengið dygga aðstoð þó að tónleikarnir séu að mestu leyti skipulagðir af útgáfufyrirtæki mínu „Turtlecuts“, til dæmis hefur franska sendiráðið á Íslandi verið mjög hjálplegt,“ bætir hann við. Charlie er sannfærður um að íslensk „elektró-þjóðlagatónlist“ eins og hann skilgreinir tónlist gleðipopparana Trabant, eigi upp á pallborðið hjá löndum sínum. „Það hafa nokkur stór plötufyrirtæki til- kynnt komu sína og svo hafa fjölmiðlar hér óbilandi áhuga á öllu því sem viðkemur Íslandi svo það er ekki erfitt að fá þá til að koma.“ Til að hita upp mannskapinn er svo sérstök sýning á ís- lensku tónlistarheimildarmyndinni Gargandi snilld, eftir Ara Alexander, á einum af flottasta stað Parísarborgar, Tókíóhöllinni. Ísland í tísku í París Tímasetning verður að kallast sérstaklega hentug en óvenjumikið er um íslenska viðburði í París þessa dag- ana. Menningar- og tónlistarveisla var einmitt haldin laugardaginn 28. janúar þar sem ýmsir listamenn og bönd komu fram og voru íslenskar hefðir í hávegum hafðar. Boðið var upp á heita potta í kuldanum og reykt- an fisk milli atriða. Það má vera að seint fáist síldarsnakk á skemmtistað á 101-svæðinu í Reykjavík en takmarkinu var náð, íslensk stemning sveif yfir vötnum og uppátækið vakti kátínu jafnt meðal íslenskra sem og annarra gesta. Einnig hefur verið kynnt til sögunnar samstarfsverk- efni í menningarmálum milli Íslands og Frakklands sem haldið verður á Íslandi vorið 2007 og þátttöku franskrar óperu á Listahátíð í sumar. Charlie fagnar „samkeppninni“ enda finnst honum alltaf gaman þegar talað er um Ísland. „Mér þykir vænt um Ísland og Íslendinga. Ég finn hjá mér þörf til að fara þangað árlega, því á Íslandi er svo mikill kraftur og ég kem heim í hvert skipti alveg endurnærður. Svo er ekki verra að koma við á Sirkus til að fá sér einn bjór með fé- lögunum,“ segir hann, eins og sönn miðbæjarrotta. Tónlist | Charlie Vetter hjálpar Frökkum að uppgötva Ísland Nóg til af góðri tónlist á Íslandi Morgunblaðið/Sverrir Charlie er sannfærður um að íslensk „elektró-þjóðlagatónlist“, eins og hann skilgreinir tónlist gleðipopparanna í Trabant, eigi upp á pallborðið hjá löndum sínum. Eftir Söru M. Kolka sara@mbl.is www.turtlecuts.com Charlie Vetter

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.