Morgunblaðið - 08.02.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 38. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • idborg midborg.is
Með blaðinu í dag fylgir
fasteignablað Miðborgar
Innblásinn
skylduklæðnaður
Tískuvika í New York – haust og
vetur 2006-2007 | 48
Úr verinu og Íþróttir
Úr verinu | Loðnan fryst bæði í landi og um borð
Kvótaþak er gerræðisaðgerð Íþróttir | Íslendingar
mættir til leiks í Tórínó Birmingham lagði Reading 2–1
ÚTLÁNAAUKNINGIN í íslenska
bankakerfinu veldur áhyggjum, að
áliti matsfyrirtækisins Fitch Rating.
Í nýrri skýrslu fyrirtækisins um
kerfislæga áhættu í bankakerfum
einstakra landa segir að svonefnd
þjóðhagsleg viðkvæmni íslenska
bankakerfisins hafi vaxið einna mest
af þeim löndum sem fyrirtækið met-
ur. Þetta hafi gerst samfara gríðar-
legri útlánaaukningu bankanna,
mikilli styrkingu krónunnar, mikilli
gengishækkun hlutabréfa og verð-
hækkun á fasteignum.
Í skýrslunni segir að kerfislæg
áhætta í bankageiranum hafi al-
mennt farið vaxandi í heiminum á
síðustu sex mánuðum. Viðkvæmni
bankakerfisins fyrir þjóðhagslegum
þáttum (macro-prudential vuln-
erability) sé nú mest á Íslandi, Ír-
landi, í Noregi, Suður-Afríku, Rúss-
landi og Aserbaídsjan af þeim
löndum sem Fitch Ratings metur.
Lánaáhættan aukist ef útlánaþró-
unin snúist við og gengi hlutabréfa
og fasteignaverð lækki snöggt.
Bankarnir séu viðkvæmir fyrir
breytingum á hlutabréfamarkað-
inum vegna beinnar hlutabréfaeign-
ar og sameiginlegrar áhættu gagn-
vart afkomu íslenskra fyrirtækja.
Fitch um íslenska banka
Útlána-
aukningin
veldur
áhyggjum
Aukin kerfisáhætta | 11
Moskvu. AFP. | Rússneska leyniþjón-
ustan FSB hefur gert lesendum vef-
seturs síns tilboð sem hún vonar að
þeir geti ekki hafnað – boðið þeim
að starfa sem gagnnjósnarar.
Leyniþjónustan birti auglýsingu
á vefsetri sínu, www.fsb.ru: „Rúss-
neskir borgarar sem vinna með er-
lendum njósnurum geta haft sam-
band við FSB í síma til að verða
gagnnjósnarar.“
Rússnesk lög heimila að meintir
njósnarar verði ekki ákærðir að-
stoði þeir leyniþjónustuna við rann-
sóknir.
Í auglýsingunni segir að njósn-
ararnir fái að halda öllum launum
sem þeir þiggja af erlendum leyni-
þjónustum og tekið er fram að þeir
fái tækifæri til að starfa með „ein-
valaliði“ njósnara rússnesku leyni-
þjónustunnar.
Leyniþjónusta auglýsir
eftir gagnnjósnurum
EINN starfsmaður Íslensku friðargæslunnar var
staddur í bækistöðvum ISAF, alþjóðlegra örygg-
issveita Atlantshafsbandalagsins í Afganistan, í
bænum Meymana í norðvesturhluta landsins þegar
hópur reiðra múslíma réðst þar til atlögu í gær-
morgun. Til átaka kom og týndu fjórir Afganar lífi
en sex norskir liðsmenn ISAF-sveitanna særðust.
Talsverðar eignaskemmdir urðu í óeirðunum en
m.a. varð tjón á sérútbúnum bíl sem er í eigu Ís-
lensku friðargæslunnar.
Norðmenn reka búðirnar í Meymana og fara þar
fyrir svokallaðri uppbyggingar- og endurreisnar-
sveit ISAF á þessum slóðum. Íslenskir friðargæslu-
liðar störfuðu með Norðmönnunum í Meymana sl.
haust en voru kallaðir heim fyrir jól skv. ákvörðun
Geirs H. Haarde utanríkisráðherra.
Geir sagði í samtali við Morgunblaðið að einn Ís-
lendingur hefði verið í Meymana í gær í því skyni að
undirbúa tvo sérútbúna jeppa, sem Íslendingar
tóku með sér til Meymana í haust þegar þeir komu
þar til starfa, til flutnings til Kabúl þar sem stendur
til að nýta þá.
Tók Geir fram að íslenski friðargæsluliðinn væri
heill á húfi. „Hann mun örugglega halda hópinn
með öðrum sem þarna eru. Ef búðirnar verða
rýmdar þá verður hann í þeirra hópi, býst ég við. En
það stendur reyndar ekki til að gera það, eftir því
sem ég veit best. Það var eitthvað rætt fyrr í dag [í
gær] en hætt við það.“
Geir sagðist halda að grjóti eða einhverju sam-
bærilegu hefði verið kastað í íslenska jeppann, rúð-
ur væru brotnar og dekk sprungin, ekki væri því
um stórtjón að ræða.
Íslendingar í Chaghcharan
halda kyrru fyrir
Sem fyrr segir kallaði Geir íslensku friðargæslu-
liðana á brott frá Meymana í haust og var það gert á
grundvelli þess að spenna hefði magnast á þessum
slóðum. Ólætin í gær tengdust hins vegar birtingu
skopmynda af Múhameð spámanni í Danmörku og
Noregi og víðar, en myndbirtingarnar hafa vakið
mikla reiði meðal múslíma víðsvegar um heiminn.
Utanríkisráðherra sagði í gær að eftir því sem
menn vissu best væri ástand öruggt í Chaghcharan,
vestarlega í Afganistan, en þar eru nú átta íslenskir
friðargæsluliðar. „Við erum auðvitað í sambandi við
þá þar og munum verða það þar til mál skýrast,“
sagði Geir. Lét hann þess getið að Íslendingarnir í
Chaghcharan myndu halda kyrru fyrir í búðunum
að svo stöddu.
Aðspurður um fimm íslenska friðargæsluliða,
sem eiga að halda áleiðis til Afganistans í dag og
leysa menn af hólmi í Chaghcharan, sagði Geir að
ekki yrði gerð breyting þar á. „Við teljum ekki rétt
að breyta þar neinu. Við teljum eðlilegt að það hafi
sinn gang. Menn gæta fyllsta öryggis eftir því sem
hægt er,“ sagði Geir.
Íslendingur í Meymana
þegar til átaka kom
Skemmdir voru unnar á öðrum sérútbúnu jeppanna sem Íslenska
friðargæslan flutti til Afganistans og verið var að sækja
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Ráðist gegn | 16
DÖNSK stjórnvöld létu í gær í ljós létti yf-
ir vaxandi stuðningi vestrænna ríkja,
einkum Bandaríkjanna og Bretlands, við
Dani vegna deilunnar um skopmyndir af
Múhameð spámanni sem birtust fyrst í
danska dagblaðinu Jyllands-Posten.
Ráðamenn í Bandaríkjunum og Bret-
landi gagnrýndu í fyrstu blaðið fyrir að
birta myndirnar en tónninn í þeim hefur
breyst. Þeir lýsa nú yfir stuðningi við Dani
og gagnrýna götumótmæli múslíma.
„Ljóst er að þessi stuðningur frá
stórum löndum dregur úr þrýstingnum á
okkur og er okkur hugarléttir, einkum
vegna þess að stuðningurinn kemur frá
Bandaríkjamönnum og Bretum sem ollu
okkur vonbrigðum með gagnrýni sinni og
skorti á samstöðu,“ sagði danskur stjórn-
arerindreki.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hringdi í gær í forsætisráðherra Dan-
merkur til að votta Dönum stuðning sinn.
AP
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, á blaðamannafundi í gær um deiluna um skopmyndir
af Múhameð spámanni. Hann hvatti til þess að deilan yrði leyst með friðsamlegum skoðanaskiptum.
Dönum
léttir
Leiðtogar vesturvelda heita Dönum stuðningi í deilunni um skopmyndirnar
SKULDABRÉFAÚTGÁFA Kaup-
þings banka hefur vegna fjármögn-
unar íbúðalána sinna fengið hæstu
mögulega lánshæfiseinkunn, Aaa,
hjá Moody’s, alþjóðlega lánshæfis-
matsfyrirtækinu. Það gerir bankan-
um kleift að veita áfram íbúðalán
með 4,15% verðtryggðum vöxtum,
sem eru talsvert lægri vextir en allir
aðrir aðilar á þessum markaði, þ.m.t.
Íbúðalánasjóður, bjóða.
Þetta var kynnt á blaðamanna-
fundi sem Kaupþing banki efndi til í
gær. Þar kom fram að þetta væri
sama lánshæfismat og skuldabréf fá
sem gefin eru út af íslenska ríkinu
eða með ríkisábyrgð og að Kaupþing
banki væri fyrsta íslenska einkafyr-
irtækið til að gefa út skuldabréf með
sambærilegri lánshæfiseinkunn og
ríkissjóður.
„Það hefur verið brotið blað í fjár-
málasögu Íslands,“ sagði Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings banka, á fundinum. „Þetta ger-
ir okkur kleift að fjármagna þessi
íbúðalán sem við hófum að veita fyrir
einu og hálfu ári á samkeppnishæf-
um kjörum.“
KB banki
fær hæstu
lánshæfis-
einkunn
Íbúðalán | 11
♦♦♦