Morgunblaðið - 08.02.2006, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
!"## $
% &
'( )$ "
*+ $ ,
$ $
--.
+% & & &
+
' /' '
( % *+ $
( %
' 0
1 '( 2 % $
/ '( +
0
'
+ % % 3 $& + ' / &&
0 4
$ #0 0 +%
/
0 /
& --0
/
/
$
& 3
%
'
5
& 5
6
& $
(
-- & --
&
,
+ &
&
0 4
$ #0 !
*
%
& $
/
+
/ 7 +
( --.
AKUREYRI
SUÐURNES
Reykjanesbær | Nýir eigendur hafa tekið
við héraðsfréttablaðinu Tíðindunum á
Suðurnesjum. Halldór Leví Björnsson
sölustjóri er tekinn við ritstjórastarfinu af
Sigurjóni Vikarssyni prentsmiðjustjóra.
Halldór gaf út og ritstýrði Suðurnesjaf-
réttum í rúman áratug, þar til hann seldi
blaðið fyrir rúmum fimm árum. „Það
fylgir því ákveðin tilhlökkun. Blaða-
mennskan er baktería sem maður losnar
aldrei við. Maður umgengst marga og
kynnist fólki,“ segir Halldór þegar hann
er spurður hvernig það leggist í hann að
setjast aftur á ritstjórastól. Hann segir að
samkeppnin sé hörð og því fylgi einnig
ákveðin spenna að takast á við þetta verkefni. „Ég kvíði
því ekki. Tíðindin hafa unnið sér ákveðinn sess hér á
markaðnum og gengið vel.“
Prentsmiðjan Grágás stofnaði Tíðindin og
hefur Sigurjón Vikarsson prentsmiðjustjóri
ritstýrt blaðinu og skrifað að miklu leyti og
þannig sett mark sitt á umræðuna. Halldór
segir að byggt verði á því sem blaðið hafi
gert gott og nefnir menningarumfjöllunina
sem dæmi um það, en blaðið verði þróað
áfram. Hann er ákveðinn í að auka áherslu á
fréttir. „Tíðindin verða almennt og óháð
fréttablað. Fjallað verður um málefni svæð-
isins og það sem er að gerast í bæjarlífinu,“
segir Halldór.
Einkahlutafélagið Blaðheimar, sem Hall-
dór er að stofna, er kaupandi Tíðindanna en
Halldór segir að hann muni fá fleiri fjárfesta
til liðs við sig um útgáfuna. Ekki sé komin
endanleg mynd á hluthafahópinn. Prent-
smiðjan Grágás mun áfram sjá um prentvinnslu og
blaðinu er dreift frítt með Póstinum.
Baktería sem maður losnar aldrei við
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Halldór Leví Björnsson
Sandgerði | Lítið hús úr gömlu rat-
sjárstöðinni Rockville á Mið-
nesheiði hefur fengið nýtt hlutverk.
Það var flutt í fyrrakvöld að Sand-
gerðishöfn og verður notað þar sem
skýli fyrir hraðbjörgunarbát Björg-
unarsveitarinnar Sigurvonar.
Verið er að rífa mannvirkin í
Rockville og farga efninu á við-
urkenndan hátt. Umrætt hús slapp
þó við niðurrif vegna þess að unnt
reyndist að flytja það heilt og finna
því nýtt hlutverk. Björgunarsveit-
armenn unnu við flutninginn með
aðstoð frá starfsmönnum Íslenskra
aðalverktaka, O.R. krönum og A.
Pálssyni verktaka. Flutningurinn
gekk vel og það rétt slapp milli
gangbrautarljósa við Strandgötu
og munaði aðeins nokkrum sentí-
metrum.
Lögð verður braut út í sjó frá
húsinu þannig að björgunarmenn
komist fljótt af stað þegar nota þarf
bátinn í neyðartilvikum.
Hús frá
Rockville
fær nýtt
hlutverk
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
L-LISTINN, Listi fólksins mun
bjóða fram við bæjarstjórnarkosning-
ar á Akureyri á komandi vori og er
þetta í þriðja sinn sem listinn býður
fram. Nú eru tveir fulltrúar listans í
bæjarstjórn, en L-listafólk stefnir
hærra nú og segir þriðja sætið bar-
áttusætið auk þess sem listinn vill
komast í meirihlutasamstarf í bæjar-
stjórn svo vinna megi málum hans
brautargengi.
Oddur Helgi Halldórsson mun
skipa fyrsta sæti listans nú sem hinn
fyrri skipti sem boðið hefur verið
fram. Hann hefur setið í bæjarstjórn
frá árinu 1994, kom þá inn fyrir
Framsóknarflokk, en sagði skilið við
félaga sína þar og bauð sig fram í
nafni L-listans. Komst við kosning-
arnar 1998 einn manna inn af þeim
lista, en við kosningarnar 2002 náði
listinn tveimur mönnum inn í bæjar-
stjórn.
„Við teljum að það sé þörf fyrir
okkur, að vera okkar í bæjarstjórn
hafi verið til góðs og því viljum við
áfram bjóða bæjarbúum upp á þenn-
an valkost,“ segir Oddur Helgi en
hann tilkynnti um framboðið á fundi í
gær. „Við finnum mikinn meðbyr úti í
bæ, meiri en fyrir fjórum árum og enn
meiri en fyrir átta árum. Þess vegna
ætlum við að hella okkur í slaginn í
þriðja sinn og erum bara bjartsýn.“
Framboðslistinn verður kynntur
18. mars, en sem fyrr segir mun Odd-
ur Helgi skipa fyrsta sætið. Hvernig
viljum við að Akureyri verði í lok kjör-
tímabils, árið 2010? er þema sem L-
listinn mun vinna út frá að þessu
sinni. Stefnuskrá er ekki tilbúin, en að
mati Odds Helga munu skipulagsmál
án efa verða í flokki heitra kosninga-
mála á komandi vori. Þar mun mið-
bærinn koma við sögu, svæðið frá
Samkomuhúsi í suðri að Glerá í
norðri, þar er íþróttavallasvæðið með
talið. Skiptar skoðanir eru meðal bæj-
arbúa um hvort völlurinn í hjarta bæj-
arins eigi að víkja fyrir verslunarmið-
stöð eða hvort byggja eigi hann upp.
„Ég er alveg til í að völlurinn fari, en
það verður að huga að því að þetta er
mjög verðmætt svæði,“ segir Oddur
Helgi.
Þá nefnir hann að bæta þurfi sam-
göngur innanbæjar með byggingu
stofn- og tengibrauta og að skoðað
verði hvort fýsilegt sé að leggja
syðsta hluta Dalsbrautar í stokk neð-
anjarðar. Nægar byggingarlóðir
þurfi ætíð að vera fyrir hendi, bæði
undir íbúðarbyggingar sem og at-
vinnuhúsnæði og þá bendir hann á að
listinn vilji skipuleggja íbúðarbyggð í
Landi Ytra-Krossaness og Þórsness
út að Brávöllum. Aðalforsenda þess
að Akureyringum fjölgi sé að nægt
lóðaframboð sé fyrir hendi á hverjum
tíma.
Listinn vill byggja reiðhöll, bæta
aðstöðu fimleikafólks og gera öllum
grunnskólabörnum kleift að stunda
íþróttir með því að niðurgreiða æf-
ingagjöld. Þá vill L-listinn stórauka
fjármagn til vímuvarna og forvarna
og mun síðar kynna áherslubreyting-
ar í forvörnum sem taldar eru skila
betri árangi. „Við ætlum að sýna tölu-
lega fram á minni vímuefnaneyslu á
Akureyri í lok kjörtímabils árið 2010,“
segir í fréttatilkynningu sem lögð var
fram á fundinum.
Þá segir Oddur Helgi að listinn sé á
móti sölu á hlut Akureyrarbæjar í
Landsvirkjun, verðið sem boðið hafi
verið sé einfaldlega of lágt. Loks má
nefna að eitt af stefnumálum L-
listans er að ókeypis verði í strætó.
Listi fólksins býður fram í þriðja sinn og stefnir á þrjá menn í bæjarstjórn
Teljum að það
sé þörf
fyrir okkur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Oddur Helgi Halldórsson: Verður í efsta sætinu og faðir hans, Halldór
Árnason, alltaf kallaður Dóri skó á Akureyri, í heiðurssætinu. Gamla
saumavélin af skóvinnustofunni er aftan við Odd í bækistöðvum L-listans.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
L-LISTINN, eitt framboða, hefur
tekið skýra afstöðu til þess að ál-
ver á Norðurlandi skuli reist á
Dysnesi í Eyjafirði og mun vinna
að framgangi þess máls. Oddur
Helgi Halldórsson, leiðtogi
listans, telur iðnaðarráðherra,
Valgerði Sverrisdóttur „engan
veginn hafa staðið sig í þessu
máli“, eins og hann orðaði það á
fundi í gær þar sem tilkynnt var
um framboðið. Hann segir Val-
gerði varpa ábyrgðinni á stað-
arvalinu yfir á Alcoa, sem lýst
hefur áhuga á að reisa álver á
Norðurlandi, en svo sem fram
hefur komið hafa þrír staðir ver-
ið nefndir; Dysnes í Eyjafirði,
Brimnes í Skagafirði og Bakki
við Húsavík. „Með þessu er hún
að etja fólki og sveitarstjórnum á
svæðinu saman,“ segir Oddur
Helgi. Hann segir ráðherra hafa
lýst yfir að margir hefðu áhuga
fyrir að reisa álver, „og ef það er
rétt og Alcoa vill ekki vera á
Dysnesi á bara að bjóða öðrum
þann kost“. Oddur Helgi segir
Eyfirðinga lengst hafa beðið eftir
stóriðju, „og ef sú bið er einhver
mælikvarði, þá hljótum við að
vera næst í röðinni“.
Oddur gagnrýnir ráðherra
Fer á safn | Framkvæmdaráð
hefur samþykkt að veghefill í eigu
Akureyrarbæjar af Austin-
western-gerð frá árinu 1946 ásamt
tilheyrandi fylgi- og varahlutum
verði afhentur Samgöngusafninu á
Ystafelli í Köldukinn til varð-
veislu.
Sýning | Brynhildur Kristinsdóttir
heldur sýningu á Bókasafni Háskól-
ans á Akureyri. Sýningin stendur til
1. mars næstkomandi. Brynhildur
hefur haldið nokkrar einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum. Hún
starfar nú hjá Fjölmennt, fullorð-
insfræðslu fatlaðra.Bókasafn Há-
skólans á Akureyri er opið alla virka
daga frá 8 til 18 og frá 12 til 15 á
laugardögum.
Maríubjallan | Forsala er hafin á
sýninguna Maríubjölluna, en hún
verður frumsýnd í næstu viku, 16.
febrúar í nýju leikhúsi Leikfélags
Akureyrar, Rýminu sem er íHafn-
arstræti 73, þar sem áður voru Dyn-
heimar, Lón og nú síðast Húsið.
Þetta er kraftmikil og átakanleg
sýning sem engan lætur ósnortinn
segir í tilkynningu. Sýningartíminn
er takmarkaður og mun sýningum
ljúka fyrir 24. mars þegar Litla
Hryllingsbúðin verður frumsýnd.
Mikil aðsókn hefur verið að leik-
ritum LA í vetur og oft færri komist
að en vilja.
Fyrirlestur | Sigurbjörg Árnadótt-
ir flytur fyrirlestur í dag, miðviku-
daginn 8. febrúar, kl. 12 í stofu L201
á Sólborg um ferðaþjónustu og
hvernig hún geti eflt atvinnulíf sem
fyrir er í dreifðum byggðum lands-
ins, skapað ný atvinnutækifæri og
skilað arði. Mun hún fjalla um
hvernig Finnum hefur tekist á síð-
ustu tuttugu árum að stöðva flótta
úr strjálbýli Lapplands með því að
byggja upp hágæða ferðaþjónustu.