Morgunblaðið - 08.02.2006, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNING Marc Jacobs á komandi vetrar-
tísku sló í gegn á tískuviku í New York á
mánudag. Innblásturinn kom frekar frá
Edie Sedgwick en Grace Kelly. Hann sneri
hefðbundnum frúarfatnaði á haus og gerði
hann að skylduklæðnaði töff kvenmanna.
Einkennandi fyrir sýningar hans eru marg-
laga klæðnaður og er afhjúpað meira af
persónuleika en holdi fyrirsætnanna. Það er
mikill karakter í fötunum hans.
Jacobs er vinsæll meðal yngri kvenna í
Hollywood og á mikið fylgi fræga fólksins.
Á meðal þeirra sem mættu á sýninguna
voru Sofia Coppola, Dita von Teese, Serena
Williams, Helena Christensen, Anna Winto-
ur, Nicole Ritchie, Rachel Bilson og Winona
Ryder.
Jacobs á það til að koma á óvart og það er
aldrei að vita hverju hann tekur upp á næst.
Gestirnir voru því spenntir fyrir sýninguna
sem einkenndist m.a. að stórum prjóna-
flíkum, legghlífum og pilsum yfir buxur,
sem gleður áreiðanlega einhverjar íslenskar
konur sem þurfa þá ekki að skjálfa fyrir
tískuna næsta vetur.
Style.com ýjar að því að þessi sýning hafi
í raun verið endursköpun að „grunge“-
línunni umdeildu sem olli því að hann missti
vinnuna hjá Perry Ellis árið 1992. Hönn-
uðurinn vildi ekkert staðfesta með það eftir
sýninguna. „Þetta snýst um staðina sem ég
hef heimsótt, fólkið sem ég þekki, heims-
leiðtoga og veturinn,“ sagði hann og vildi
ekki láta mikið uppi með innblásturinn.
Jacobs tileinkaði sýninguna Kal Rutten-
stein, yfirmanni hjá Bloomingdales, sem lést
í desember síðastliðnum.
Tíska | Tískuvika í New York: Haust/vetur 2006–7
Skylduklæðnaður
með karakter
AP
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Marc
Jacobs