Morgunblaðið - 10.02.2006, Page 23

Morgunblaðið - 10.02.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 23 MINNSTAÐUR SUÐURNES Garður | Bæjarráð Sveitarfé- lagsins Garðs hefur ákveðið að aukna niðurgreiðslu á skólamat í Gerðaskóla í áföngum þannig að allir nemendur skólans geti fengið heitan mat í hádeginu frá og með upphafi skólastarfs haustið 2008. Þegar þessi þjónusta verður komin að fullu til framkvæmda nemur viðbótarkostnaður bæjarfélagsins 12 milljónum kr. á ári. „Þetta mál hefur verið til um- ræðu hjá okkur áður, eins og hjá fleiri sveitarfélögum. Sú umræða sem fram hefur farið að und- anförnu, ekki síst í Morgunblaðinu, varð til þess að við fórum aftur yfir málið og niðurstaðan varð sú að við myndum veita þessa þjónustu,“ segir Sigurður Jónsson, bæj- arstjóri í Garði. Einn þriðji kaupir ekki mat Í Gerðaskóla eru nú um 220 börn og kaupa 150 þeirra mat í hádeg- inu. Mun það vera svipað og víða annars staðar. Máltíðirnar eru að- keyptar, frá Matarlyst hf. í Kefla- vík, og kostar hver máltíð 333 kr. Sveitarfélagið niðurgreiðir þær nú um 100 krónur þannig að foreldr- arnir þurfa að greiða 233 krónur. Bæjarráð samþykkti samhljóða tillögu F-listans sem fer með meiri- hluta í bæjarstjórn, um þetta efni. Í henni felst að niðurgreiðslurnar verða auknar um 50 krónur 1. apr- íl næstkomandi og verður hlutur foreldra því 183 krónur. Nið- urgreiðslurnar verða síðan auknar aftur á komandi hausti og haustið 2007 og haustið 2008 verður inn- heimtan hjá foreldrum alveg felld niður og greitt verður fyrir máltíð- irnar að fullu úr bæjarsjóði. „Við höfum þá stefnu að efla skólastarfið eins og við mögulega getum, bæði í leikskóla og grunn- skóla, og lítum svo á að ókeypis skólamáltíðir eigi að vera eðlilegur hluti af skólastarfinu. Það er ómögulegt að það skuli alltaf vera einhver hluti af börnunum sem af einhverjum ástæðum getur ekki farið í mat. Það á að vera réttur allra nemenda að fá ókeypis mál- tíð, án tillits til efnahags foreldr- anna. Þetta er líka uppeldislegt at- riði. Svonefnt ruslfæði eykst síðfellt og slæmt að beina börn- unum í það. Það er stórt framfara- skref ef við getum vanið börnin á það strax á fyrstu árum grunn- skóla að setjast að matarborði í há- deginu og borða hollan og góðan mat,“ segir Sigurður. Sumir vilja ekki matinn Erna M. Sveinbjarnardóttir, skólastjóri Gerðaskóla, segir að góð þátttaka hafi verið í skóla- matnum þegar hann var tekinn upp en þátttakan hafi eitthvað minnkað. Hún telur hana þó síst verri en gengur og gerist. Hún segir að ýmsar ástæður geti verið fyrir því að börnin taki með sér nesti frekar en að kaupa mat í skólanum og segist ekki þekkja þær allar. Segist Erna þó vita nokkur dæmi um matvanda krakka sem ekki líki aðkeypti mat- urinn og vilji frekar taka með sér samloku að heiman og borða þann- ig mat sem þau þekki. Ekki séu nein vandkvæði því samfara. Börn- in hafi aðgang að grilli og borði sinn mat við hlið hinna. Erna segist ekki vita ákveðin dæmi þess að foreldrar sleppi því að kaupa mat af fjárhagslegum ástæðum en tekur fram að það sé sjálfsagt skýringin hjá einhverjum. Nefnir sem dæmi þegar mörg börn séu í skólanum úr tekjulitlum fjöl- skyldum og að ódýrara geti verið að útbúa nestið heima. „En ég veit líka um tekjulítið fólk sem velur að kaupa mat fyrir börnin,“ segir Erna. Ókeypis skólamáltíðir eru ekki ákveðnar samkvæmt ósk stjórn- enda Gerðaskóla. „En við erum ánægð með allt gott sem gert er fyrir skólasamfélagið. Þetta hlýtur að koma öllum barnafjölskyldum bæjarins til góða,“ segir hún. Tólf milljónir á ári Fram kemur að viðbótarkostn- aður bæjarsjóðs nemur liðlega 4,3 milljónum kr. á þessu ári og fer síðan stighækkandi til ársins 2008 er hann nemur 12 milljónum kr. „Vissulega kostar þetta heilmikið,“ segir Sigurður bæjarstjóri. Reikn- að er með að börnunum sem nýta sér matarþjónustuna fjölgi eftir því sem niðurgreiðslan eykst og að nánast öll börnin verði í mat þegar innheimtan fellur niður. Sveitarfélagið Garður er með ágæta fjárhagsstöðu. Sigurður segir að vissulega sé þetta mikið átak. „Við verðum að forgangs- raða og hugsanlega hægja á ein- hverjum framkvæmdum á næstu árum,“ segir hann. Sveitarfélagið nýtir ekki að fullu tekjustofna sína, er til dæmis með 12,7% útsvar og 0,32% fasteignaskatta á íbúðar- húsnæði en bæði þessi hlutföll eru talsvert undir því sem heimilt er. Sigurður segir að ekki sé farið að ræða það hvort hækka þurfi skatt- ana vegna þessarar ákvörðunar. „Ég held þó að íbúarnir hefðu skilning á því, ef það þyrfti til að koma til að auka þjónustuna,“ seg- ir hann. „Svo keyrum við þetta fram af ákveðinni bjartsýni. Hér er mikil uppbygging sem hefur í för með sér fjölgun íbúa og auknar tekjur á næstu árum,“ segir Sig- urður. Sigurður telur að Garðurinn sé fyrsta sveitarfélagið sem veitir þessa þjónustu, að minnsta kosti fyrsta sveitarfélagið af þessari stærð. „Við höfum gert okkur grein fyrir því að þessi þjónusta og fleira á eftir að ganga yfir allt þjóðfélagið, að ókeypis matur verði sjálfsagður hluti af skóla- starfinu,“ segir Sigurður Jónsson. Sveitarfélagið Garður eykur niðurgreiðslur á skólamat í Gerðaskóla í áföngum Börnunum boðinn ókeypis matur eftir tvö ár Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frímínútur Allir nemendur Gerðaskóla í Garði fá frían mat í hádeginu þeg- ar stefna bæjaryfirvalda kemst að fullu til framkvæmda. Erna M. Svein- bjarnardóttir Sigurður Jónsson Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Kjalarnes | Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra sat á þriðjudagskvöld fund á Kjalarnesi, sem íbúar boðuðu til, en þar voru til umræðu samgöngu- mál á svæðinu og fyrirhuguð Sunda- braut. Bergþór Ólason, aðstoðarmað- ur samgönguráðherra, segir fundinn hafa verið gagnlegan. Íbúasamtök Kjalarness hafi kynnt fyrir ráðherra sjónarmið sín og óskir sem snúa að öryggismálum. Þeir hafi lýst skýrum vilja til þess að framkvæmdir við Sundabraut hæfust sem allra fyrst og sagt það mikið hagsmunamál, einkum fyrir þá íbúa svæðisins sem sækja at- vinnu til borgarinnar. Bergþór segir fjármuni vegna verksins til reiðu, en Reykjavíkur- borg eigi eftir að ákveða hvar brautin eigi að liggja. Ráðherra hafi á fund- inum lýst áhyggjum sínum af þessari stöðu mála. Stutt frá þjóðvegi 1 að barnaskóla Hólmar Þór Stefánsson, íbúi á Kjalarnesi, er einn þeirra sem skipu- lögðu fundinn með ráðherra. Hann segir íbúana hafa miklar áhyggjur af umferðaröryggi. „Hér er mjög stutt frá þjóðvegi 1 og niður að barnaskóla. Leyfilegur hámarkshraði er 70 km á klukkustund en bílar aka hér hjá á 90 km hraða,“ segir Hólmar. Hann segir íbúa einnig óttast aftanákeyrslur þeg- ar þeir beygja af þjóðveginum og inn í hverfið á Kjalarnesi og hafi á fund- inum spurt hvernig hægt væri að bæta aðkeyrslu niður í hverfið. Þá hafi fundarmenn spurt hvað væri á dagskrá hjá ráðuneytinu varðandi göng yfir í Mosfellsbæ. Sundabrautin brann einnig á fund- armönnum, að sögn Hólmars. „Okkur var lofað því af R-listanum þegar sameiningarviðræður við Reykjavík fóru fram að árið 2002 yrði hægt að aka Sundabrautina, yfir Kollafjörðinn og upp á Kjalarnes,“ segir Hólmar. Ekkert hafi hins vegar enn gerst í þeim málum. Á fundinum sagði ráð- herra framtíðarsýn sína varðandi Vesturlandsveginn þá að þar verði Sundabrautin með fjórum akreinum upp á Kjalarnes, síðan taki við þriggja akreina vegur með víraleiðara frá Kjalarnesi upp í Borgarnes. Sturla Böðvarsson á fundi með íbúum Kjalarness Íbúar hafa áhyggjur af umferðaröryggi Grafarvogur | Nemendur í 3. bekk Engjaskóla tóku í janúar þátt í svo- kölluðum lestrarspretti í samvinnu við Dómínós-pizzur í Spöng. Þegar nemendur höfðu náð að lesa rúmar 11.000 blaðsíður samtals bauð Jósef hjá Dómínos-pizzum krökkunum að koma og baka sínar eigin pitsur. Hvert barn í bekknum bakaði pitsu, valdi áleggið og fékk svo að fara með hana heim. Gerði þetta að vonum bæði gagn og mikla gleði að sögn Guðrúnar Erlu Björgvinsdóttur, skólastjóra Engjaskóla. „Lestrarsprettir eru alltaf af og til í gangi í skólanum, en þetta var svolítið sérstakt af því að þetta var í tengslum við Dómínós Pizzur. Kennararnir taka alltaf tarnir á veturna, a.m.k. einu sinni eða tvisvar, jafnvel oftar, með svona lestrarspretti,“ segir Guðrún Erla og bætir við að ef önnur fyr- irtæki byðu sig fram við að hvetja börnin á þennan hátt yrði þeim án efa vel tekið. „Þetta var mjög hvetj- andi fyrir börnin. Þau höfðu mjög gaman af þessu, komu stolt með pitsurnar sínar til baka og fóru svo með þær heim. Það er sama hvaðan gott kemur, við notum öll tækifæri til að efla þau svona.“ Ungir bakarar Krakkarnir fengu að spreyta sig á því að baka sínar eigin pítsur eftir lestrarátakið. Þau stóðu sig einnig vel í því verkefni. Duglegir lestrar- hestar bökuðu pitsur LEIKSKÓLAKENNARAR í höfuð- borginni hafa margir hverjir dregið uppsagnir sínar til baka í kjölfar þess að tillaga Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra um kjarabót leikskólakennara var sam- þykkt á fundi borgarráðs á fimmtu- dag í síðustu viku. Björg Bjarnadóttir, formaður Fé- lags leikskólakennara, segist engar tölur hafa yfir um hversu margir hafa dregið uppsagnir sínar til baka en telur að meirihluti þeirra sem sögðu starfi sínu lausu hafi annað- hvort dregið uppsagnir til baka eða ákveðið að gera það. Leikskólakennarar hækka við breytingarnar um fjóra launaflokka, auk þess sem þeir fá mánaðarlega viðbótargreiðslu að upphæð 12.600 krónur. Deildarstjórar og aðstoðar- leikskólastjórar hækka þá um fimm flokka, auk þess sem þeir fá 14.700 kr. mánaðarlega. Björg segist ekki merkja annað en að það ríki almenn ánægja með útspil Reykjavíkur- borgar. „Það get ég sagt fullum hálsi því ég er búin að hitta fleiri hundruð leikskólakennara á fundum núna að undanförnu,“ segir Björg og bætir við að aukin bjartsýni ríki á leikskól- um borgarinnar. Jafnframt hefur hún heyrt að umsóknir séu farnar að berast um laus störf á leikskólum, en afar erfitt hefur að verið að fá nýtt fólk til starfa í langan tíma. Leikskólakennarar hætta við uppsagnir og umsóknir berast Aukin bjartsýni á leik- skólum borgarinnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.