Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 25
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 25
MINNSTAÐUR
Heimili óskast fyrir nokkra spræka
og skemmtilega Golf Variant.
Ættbókarfærðir, skoðaðir og frá
góðum heimilum.
Komdu á Klettháls og athugaðu hvort
þú finnur ekki einn sem hentar þér.
Tegund Ekinn Skráður Ásett verð Tilboðsverð Mánaðargr.* Lánstími
Comfort 1,6 Beinsk. 55.000 7/04 1.390.000 1.250.000 18.943 72 mán
4Motion 2,0 Beinsk. 4x4 45.000 10/03 1.740.000 1.560.000 27.591 60 mán
Highline 1,6 Sjálfsk. 48.000 8/03 1.530.000 1.370.000 24.241 60 mán
Highline 4Motion 2,0 Beinsk. 4x4 44.000 5/03 1.590.000 1.430.000 25.299 60 mán
Highline 1,6 Beinsk. 55.000 1/03 1.330.000 1.190.000 21.067 60 mán
Highline 1,6 Beinsk. 59.000 7/02 1.220.000 1.090.000 19.304 60 mán
Comfort 1,6 Beinsk. 76.000 5/02 1.070.000 960.000 17.011 60 mán
4Motion 2,0 Beinsk. 179.000 3/02 890.000 790.000 14.014 60 mán
Variant 1,6 Beinsk. 87.000 2/02 1.070.000 960.000 18.951 60 mán
Comfort 4Motion 2,0 Beinsk. 44.000 11/01 1.170.000 1.050.000 23.842 48 mán
4Motion 2,0 Beinsk. 99.000 5/01 1.030.000 920.000 20.903 48 mán
Highline 4Motion 2,0 Beinsk. 4x4 60.000 5/01 1.550.000 1.390.000 31.527 48 mán
4Motion 2,0 Beinsk. 4x4 116.000 2/01 960.000 850.000 19.321 48 mán
4Motion 2,0 Beinsk. 4x4 77.000 10/00 1.050.000 950.000 21.581 48 mán
*Miðað við bílasamning SP og 10% innborgunFleiri úrvalsbílar hjá umboðsmönnum okkar um land allt
Egilsstaðir | Samvinnunefnd miðhá-
lendis hefur kynnt tillögu að veg-
breytingum á svæðinu norðan
Vatnajökuls.
Skv. tillögu þeirra Óskars Bergs-
sonar, formanns nefndarinnar, Arn-
órs Benediktssonar og Fríðu Bjarg-
ar Eðvarðsdóttur verða tveir vegir
felldir út úr skipulagi, Snæfellsleið
og rannsóknarvegur í Hrafnkelsdal,
en í staðinn kemur tenging frá Kára-
hnjúkavegi meðfram aðgöngum 3 að
þjóðvegi í Hrafnkelsdal.
Fljótsdalshérað hefur farið fram á
að skipulagi verði breytt í þá veru að
vegur að aðkomugöngum 3 að að-
rennslisgöngum Kárahnjúkavirkj-
unar fái að standa að virkjanafram-
kvæmdum loknum og við hann verði
bætt vegi sem tengist þjóðveginum
við Aðalból.
Með tilkomu vegar um Glúms-
staðadal að Kárahnjúkavegi telur
nefndin opnast möguleika á hag-
kvæmri og fljótfarinni tengingu við
hálendið. Jafnframt er talið að með
tilkomu vegtengingar um Glúms-
staðadal skapist aukið öryggi á há-
lendi vegna þess að leiðin liggur
lægra og er betri með tilliti til veðurs
og færðar.
Vegtenging eða enduruppbygging
vega utan þéttbýlis þar sem nýlagn-
ing samkvæmt áætlunum er a.m.k.
10 km að lengd er ávallt háð mati á
umhverfisáhrifum.
Ný vegtenging
inn á hálendi
um Glúms-
staðadal
LANDIÐ
Skagafjörður | Unnið er að könnun
á hagkvæmni lagningar háhraða-
nets um sveitir Skagafjarðar. Gert
er ráð fyrir að nýttir verði mögu-
leikar á lagningu ljósleiðara með
hitaveiturörum en Skagafjarðarveit-
ur lögðu plaströr með hitaveiturör-
um við nýjustu hitaveitufram-
kvæmdir sínar í sveitum héraðsins.
Leiðbeiningamiðstöðin á Sauðár-
króki vinnur að þessari athugun í
samvinnu við Sveitarfélagið Skaga-
fjörð, Akrahrepp, Skagafjarðarveit-
ur og Fjölnet ehf. á Sauðárkróki.
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Leiðbeiningamiðstöðvarinnar,
segir að jafnframt sé gert ráð fyrir
athugun á því hverju það breytir
fyrir samkeppnishæfni og búsetu-
skilyrði í dreifbýlinu að fá hitaveitu
og háhraðatengingu. Verið er að
funda um málið á vegum þessara
aðila en Árni býst við að skýrsla um
kostnað og verkáætlun geti legið
fyrir í vor. Þá verður tekin ákvörð-
un um það hvort í þetta verður ráð-
ist.
Bætir samkeppnishæfni
Það auðveldar málið að Skaga-
fjarðarveitur hafa gert ráð fyrir
ljósleiðara við hitaveituframkvæmd-
ir á síðustu árum. Þessir möguleikar
eru aðallega í Skagafirði austan
vatna. Í samvinnu við Akrahrepp
hefur fyrirtækið verið að leggja
hitaveitu á fjölda bæja í Blönduhlíð.
Þá er unnið að undirbúningi lagn-
ingar hitaveitu í Sléttuhlíð og á
Hofsós, frá borholu í Deildardal, og
sömuleiðis viðbót við hitaveitu í
Hjaltadal. Þá segir Árni líkur á að
hitaveita komi víðar. Hitaveita hef-
ur verið lengur á milli Sauðárkróks
og Varmahlíðar og þar var ekki gert
ráð fyrir ljósleiðara. Árni segir að
þar og á öðrum stöðum sem hita-
veitan nær ekki til verði hægt að
setja upp örbylgjusamband. Gert er
ráð fyrir að háhraðanetið í dreifbýli
Skagafjarðar verði tengt ljósleiðara-
neti Fjölnets sem byggt hefur slíkt
kerfi upp á Sauðákróki og víðar.
Árni segir að forsvarsmenn sveit-
arfélaganna og fyrirtækjanna sem
að þessu standa séu sannfærðir um
að lagning háhraðanets um dreifbýli
héraðsins myndi bæta mjög sam-
keppnishæfni íbúa þar og búsetu-
skilyrði. Fólkið muni njóta kosta
sveitarinnar en hafa um leið sama
aðgang að tveimur mikilvægum
grunnveitum og íbúar í þéttbýli, það
er að segja háhraðaneti og hita-
veitu.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Tenging Starfsmenn Skagafjarðarveitna hafa tengt marga sveitabæi í
Blönduhlíð við hitaveituna að undanförnu og rör fyrir ljósleiðara fylgir.
Ljósleiðari lagður um sveit-
irnar með heita vatninu
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is