Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 37

Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 37 MINNINGAR var einstakur. Hún var einstaklega ljúf og næm og hafði alltaf nægan tíma fyrir okkur barnabörnin og fylgdist náið með því sem við tókum okkur fyrir hendur og var mjög um- hugað um velferð okkar. Þó að ég viti að hún sé komin á betri stað og laus við sársaukann og kvölina er erfitt til þess að hugsa að ég muni ekki fá að njóta fleiri stunda með henni. Þá er gott að geta yljað sér við ótal góðar og ljúfar minningar um hana, þær verða aldrei teknar frá mér. Amma var mögnuð kona. Ég bið henni Guðs blessunar og megi hún hvíla í friði. Ásdís Halla. Hún Ásdís amma var duglegasta kona sem við höfum kynnst. Hún vann alla ævi mikið en var ekki fyrir að kveinka sér. Amma var falleg og glæsileg kona án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því. Hún vildi öllum vel og hafði fjölskylduna alltaf í fyrsta sæti. Amma og afi voru heppin að eiga stóra fjölskyldu, mörg börn og barnabörn. Þrátt fyrir stóran barna- hóp náðu þau alltaf að halda vel utan um alla og fylgdust með af áhuga hvað hver og einn var að gera. Sunnubrautin var griðastaður allra í fjölskyldunni og þar leið öllum vel. Það var rosalega gaman að vera barn sem tilheyrði Sunnubrautarfjölskyld- unni. Það var svo mikið af spennandi og framandi hlutum og amma gaf börnunum frjálsar hendur. Amma var alltaf til í að leyfa okkur að gista og fannst það ekki mikið mál, þó svo að við höfum oft verið ansi fyrirferð- armiklar. Þá fékk maður að gista í holunni, þ.e. á milli ömmu og afa, og kveikt var á rás 1 allar nætur. Sumarbústaðurinn var ofarlega í hugum ömmu og afa. Bústaðurinn var sannkallað ævintýraland og þar eyddu amma og afi stórum hluta sumars. Amma plantaði og hlúði að lúnum gróðri á meðan afi sá um grenitrén. Oft fengum við frænkurn- ar að fljóta með í bústaðinn og það þótti okkur gaman. Þá eyddum við öllum deginum í að hamast og leika okkur, busla í læknum og stundum hjálpuðum við ömmu með gróðurinn. Farið var í Minni-Borg sem var mikið gleðiefni enda fengum við yfirleitt eitthvað góðgæti. Á kvöldin fórum við svo inn í bústað, þreyttar, sælar og skítugar og oftar en ekki var tekið í spil. Amma sagði okkur ýmsar sögur frá því þegar hún var lítil, á meðan logaði á olíulömpunum. Til dæmis sagði amma okkur frá því að hún æfði sund þegar hún var lítil stelpa og átti ullarsundbol. Okkur er sérstaklega minnisstætt þegar við tvær fórum ásamt Ásdísi Höllu og ömmu í nokkra daga í bústaðinn. Þá vorum við önn- um kafnar allan daginn og amma gróðursetti. Þegar kvölda tók hafði Ásdís Halla alltaf eldað kvöldmat á gaseldavélinni, sem kom sér ansi vel eftir amstur dagsins. Þessar bústað- arferðir með ömmu og afa eru ógleymanlegar og yndislegar í alla staði. Öll boðin sem amma hélt á Sunnu- brautinni voru einstök og ekki má gleyma sunnudagsmatnum. Þá var amma með mat fyrir fjölda manns sem hún sá yfirleitt um ein og af mikl- um myndarskap. Þó sá afi um læri og sósu. Samverustundirnar með fjöl- skyldunni hefðu trúlega ekki orðið eins margar ef ekki hefði verið fyrir ömmu og afa. Elsku amma Ásdís, við erum svo þakklátar fyrir að þú hafir verið amma okkar. Það er gaman að rifja upp allar frábæru stundirnar sem við áttum með þér. Við munum alltaf sakna þín og þú munt eiga sérstakan stað í hjörtum okkar um alla framtíð. Þínar Ásdís Ólafsdóttir og Salvör Gyða Lúðvíksdóttir. Elsku amma. Ég þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum sam- an, og allar skemmtilegu ferðirnar í sumarbústaðinn sem við fórum í sam- an og skemmti ég mér konunglega. Þegar ég var lítil var ég oft hjá þér og afa og fannst mér það svo skemmti- legt. Ég mun alltaf geyma allar góðu minningarnar sem við áttum saman í hjarta mínu. Vort traust er allt á einum þér, vor ástarfaðir mildi. Þín náð og miskunn eilíf er, það alla hugga skyldi. (Páll Jónsson.) Ég sakna þín sárt. Þín Iðunn Lúðvíksdóttir. Ég sá hana fyrst sumarbjart kvöld 1955, er Þorvaldur, bróðir minn, kom með hana á heimili okkar Ólafs. Hún var ekki margmál en bar með sér sterkan persónuleika, sem einkenndi hana alla tíð. Ásdís var þá nýútskrif- uð hjúkrunarkona og varð það ævi- starf hennar ásamt því að sjá um heimili og fimm börn, svo geta má nærri að oft hefur hún örþreytt lagst út af á koddann. Ásdís var glæsileg kona, há og grönn með dökkt, fallegt hár og vakti athygli hvar sem hún fór. Ásdís og Þorvaldur bjuggu lengst af í stóru einbýli í Kópavoginum, fluttu þangað 1970. Heimili þeirra stóð ætíð opið fyrir fjölskyldum beggja og var þar því oft mannmargt. Eftir að börn- in komust upp og stofnuðu sín eigin heimili var gamla heimilið þeirra hjá pabba og mömmu þeim mjög kært og voru þau oft mætt í sunnudagsmatinn ásamt mökum og börnum, sem sífellt fjölgaði, og eiga Ásdís og Þorvaldur nú 18 barnabörn og eitt langömmu- barn. Árið 2000 seldu þau einbýlið í Kópavogi, eftir 30 ára búsetu, og keyptu íbúð í Bólstaðarhlíð 15. Þá var heilsan farin að bila hjá báðum, en þau nutu þess að ferðast til útlanda og ekki síður að sækja leikhús. Ásdís var mikil hannyrðakona, eins og móð- ir hennar, og liggja eftir hana margir fallegir munir, sem prýða heimili þeirra. Nú á bróðir minn um sárt að binda, þar sem hann liggur mikið sjúkur á Landakotsspítala. Það var gæfa þeirra beggja hvað börnin hafa reynst þeim vel, ekki síst núna í þeirra miklu veikindum. Þau eiga nú öll um sárt að binda og bið ég algóðan Guð að styrkja Þorvald minn og alla afkomendur þeirra Ásdísar. Guð veri með henni í nýjum heimkynnum. Anna S. Lúðvíksdóttir. Ég var á ellefta aldursári þegar Ásdís og Þorvaldur móðurbróðir minn gengu í hjónaband. Hann var þá 27 ára og ég orðin áhyggjufull, fannst að hann ætti að vera búinn að festa ráð sitt fyrir löngu og óttaðist að hann væri að missa af lestinni. Ásdís var því í mínum huga kærkomin við- bót við fjölskylduna. Ég kynntist Ás- dísi þó ekki að ráði fyrr en um ári síð- ar, þegar fyrsta barn þeirra Þorvalds fæddist og ég tók að venja komur mínar á heimili þeirra í þeirri full- vissu að ég væri ómissandi við umönnun og uppeldi barnsins. Í fyrstu var ekki laust við að ég væri feimin við þessa hávöxnu, ungu konu. Feimnin rann þó fljótlega af mér, þegar ég kynntist Ásdísi betur. Frá fyrsta degi tók hún mér eins og jafn- ingja og ræddi við mig eins og ég væri fullorðin manneskja. En hún gerði líka kröfur til mín í samræmi við það og sýndi mér fullt traust í mikilvægu uppeldisstarfi mínu. Næstu fjögur árin bættust þrjú börn við fjölskylduna og jukust heimsóknir mínar í réttu hlutfalli við fjölgunina. En það var ekki bara ég ein sem vandi komur mínar á heimili þeirra, heldur stóð það opið okkur öllum, systrabörnum Þorvalds, hvenær sem var. Börnin fjögur eltust og þroskuðust og uppeldismóðurinn rann af mér, en áfram hélt ég heimsóknum mínum til þeirra. Hlýlegt viðmót Ásdísar og Þorvalds, notalegt heimili og and- rúmsloft laðaði að. Ásdís var glæsileg kona, há og beinvaxin og bar sig vel. Hún var dul í skapi en hreinskiptin og laus við fals og fagurgala. Hún var hjúkrunar- fræðingur að mennt, eða hjúkrunar- kona, eins og það var kallað í þá daga og vann við það starf stærstan hluta starfsævinnar, ásamt því að annast stórt heimilið og lífleg börnin. Þegar Ásdís var á fertugasta aldursári bættist fimmta barnið í hópinn. Þótt vinnudagurinn væri oft langur og efa- lítið erfiður gaf hún sér tíma til að sauma föt á börnin og sinna öðrum hannyrðum en henni var ýmislegt til lista lagt. Fyrir um sex árum seldu Ásdís og Þorvaldur heimili sitt til þrjátíu ára, enda börnin öll löngu flogin úr hreiðr- inu, og fluttu í notalega íbúð í Ból- staðarhlíð, í sömu götu og þau höfðu hafið sín hjúskaparár. Þarna hugðust þau njóta ævikvöldsins. En það fer ekki allt eins og maður ætlar. Fyrir ári fékk Þorvaldur alvarlegt áfall og hefur legið lamaður á sjúkrahúsi síð- an. Ásdís hafði um árabil verið kvalin af verkjum, án þess að skýring feng- ist á þeim, þrátt fyrir ótal rannsóknir sérfræðinga. Það var ekki fyrr en síð- astliðið sumar að hún greindist með krabbamein í lungum. Þótt meinið væri fjarlægt með skurðaðgerð fór heilsu hennar hratt hrakandi og það var ekki fyrr en tæpum tveimur vik- um fyrir andlát hennar sem hún greindist loks með útbreitt krabba- mein, m.a. í beinum, sem varð henni að aldurtila. Við kveðjum nú stórbrotna konu, sem alltaf kom til dyranna eins og hún var klædd. Missir Þorvalds frænda míns og barna þeirra og ann- arra afkomenda er mikill. Við hjónin vottum þeim öllum einlæga samúð okkar og biðjum Ásdísi Guðs bless- unar á nýjum slóðum. Megi hún hvíla í friði. Sigríður Ólafsdóttir. Ásdísi Ólafsdóttur, sem kvödd er í dag, hef ég þekkt frá barnsaldri, eða í því sem næst hálfa öld. Á æsku- og unglingsárum mínum var meiri sam- gangur, ekki síst okkar Björns bróð- ur míns, við Þorvald móðurbróður, Ásdísi og börnin, en jafnvel gerist og gengur. Margt kemur í hugann þegar horft er til þess tíma. Við tókum þátt í margvíslegum ferðalögum um landið og gekk á ýmsu. Ferðast var í gamla Bensanum með tvö tjöld, 7 svefnpoka og birgðir af mat og fatnaði í skotti og á grind og troðfullum bíl af fólki, þótt ekki væru allir í fullri stærð. Frænd- systkini mín voru ekkert þægari en önnur börn og töluverður fyrirgang- ur og fjör í bílnum, sem hlýtur að hafa verið vel byggt eintak. – En Ásdís og Þorvaldur voru afburða fararstjórar í þessum óvissuferðum sem munu lengi verða gleðigjafi í minningunni. En þegar hugsað er til Ásdísar, þarf ekki að koma á óvart þótt fjöl- skyldan öll komi í hugann. Því þótt hún stundaði hjúkrunarstörf sín af afli og þolgæði, stundum jafnvel veik sjálf, og réðist ekki á þann garð, þar sem hann er lægstur, þá var fjöl- skyldan og velferð hennar engu að síður í fyrirrúmi. Voru þau hjónin mjög samtaka í þeim efnum. Og lánið lék við þau. Börnin fimm döfnuðu vel, myndarleg og ágæt í hvívetna og hafa ekki dregið af sér við að stækka fjöl- skylduna. Og Ásdís og Þorvaldur í öndvegi hafa fagnað mjög í hvert sinn við fjölgun í fjölskyldunni og fylgst nákvæmlega með vexti og viðgangi hvers og eins. Samkomur hennar, formlegar og óformlegar, voru ávallt tilhlökkunarefni, sem stofnað var til hvenær sem færi gafst. Auðvitað reyndi þá mjög á húsmóðurina, en hún skilaði sínu verki óaðfinnanlega. Ásdís hafði marga kosti sem dugðu henni vel í báðum hlutverkum henn- ar. Hún var greind og örugg. Staðföst var hún og gekk fumlaust að hverju verki, trygg og holl sínum. Síðustu misseri hafa verið erfið þeim Ásdísi og Þorvaldi vegna heilsu- brests, en barnahópurinn hefur stað- ið eins og klettur við hlið þeirra og þar hafa þau uppskorið eins og sáð var til. Ég hugsa á kveðjustund til langra og góðra kynna af Ásdísi Ólafsdóttur og við Ástríður þökkum hlýju og vin- áttu alla tíð. Davíð Oddsson. Í huga mínum er eins og það hafi gerst í gær þegar við mættumst í fyrsta skipti í dagstofu Hjúkrunar- skóla Íslands sem þá hafði aðstöðu á Landspítalanum í Reykjavík. Stór- glæsilegur stúlknahópur, staðráðinn í að læra hjúkrun, hvað sem það nú var. Ég minnist þess að hafa hugsað með mér, „hvað ert þú nú að gera hér, góða mín?“, ekki grunlaus um að flestar hafi hugsað eitthvað þessu líkt. Daginn eftir vorum við mættar í skólann, blánemar. Þrjú ár að læra um mannslíkamann innan og utan, um sál og tilfinningar okkar og ann- arra. Ganga virðulega um gangana máttum ekki hlaupa og vinna okkar margvíslegu störf. Við vorum svo sendar til vinnu á sjúkrahúsum um landið í sex mánuði af námstímanum ásamt því að vinna þrjá mánuði á Víf- ilsstöðum og aðra þrjá á Kleppsspít- ala. Þetta voru ævintýralega skemmtilegir tímar. Rokkið kom, rellurnar á Borginni og KK-sextett. Við höfðum ströng útivistarleyfi en vorum stundum klókar. Svo kom stóra stundin með útskriftarveislu í borðstofu og lögðum á hilluna blá- hvítan nemabúninginn, stífaðar blæj- ur og svuntubrjóst. Eftir útskrift fóru sumar af landi brott og aðrar út á land. Við giftumst, eignuðumst heim- ili og börn en héldum ávallt sambandi og ævilangri vináttu. Ég held að síð- an séum við búnar að læra fjórum sinnum hjúkrun. Nú eru horfnar úr hópnum þær Hrefna Jóhannsdóttir, Jóhanna Kjartansdóttir, Áslaug Sigurbjörns- dóttir, Sigríður Bílddal, Vaka Sigur- jónsdóttir og nú Ásdís Ólafsdóttir. Ef ég ætti að lýsa Ásdísi kæmist ég í vanda. Fyrir áratug eða svo fórum við að vinna saman á Hrafnistu í Reykjavík og höfðum ekki unnið saman fyrr. Það var gaman að kynn- ast Ásdísi svona upp á nýtt. Húm- orinn kaldhæðinn, ótrúlega dugleg, traust og ósérhlífin. Þá átti hún til þessa sjaldgæfu meðfæddu blíðu. Fallegt orð, blíða, og hæfði henni svo vel. Í fyrravetur vorum við duglegar og fórum í sundleikfimi tvisvar í viku og á eftir í slugsið, sem var að fara á veitingastað eða kíkja í búðir. Góðir dagar það. Svo einn daginn var allt breytt. Þorvaldur, maður Ásdísar, veiktist alvarlega og hefur ekki náð sér síðan. Ásdís gekk ekki heil til skógar heldur. Þetta var erfitt tíma- bil fyrir alla fjölskyldu þeirra. Börnin voru móður sinni afskaplega góð til hinstu stundar. Hervör og Hrafnhildur, þó ég þekki ykkur ekki í sjón, aðeins í gegn um símann þessar síðustu vikur, þá vil ég segja ykkur að þið eruð líkar henni mömmu ykkar og það er góður arfur. Við skólasysturnar hittumst dag- inn eftir lát Ásdísar. Við biðjum góð- an Guð um að styrkja ykkur í sorg ykkar. Erla Jóhannsdóttir. Elsku amma. Við þökkum þér hvað þú varst góð við okkur og alla. Manni leið alltaf svo vel með þér. Það var svo gaman í sum- arbústaðnum með þér og afa. Takk fyrir skemmtilegu bréfin sem þú sendir okkur. Við skulum passa afa og vera dugleg að heimsækja hann. Takk fyrir allt. Við vonum að þér líði vel hjá Guði. Ástarkveðjur, Signý, Guðrún Ásta og Einar Lúðvík. HINSTA KVEÐJA Hugheilar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ARNAR ÞÓR hæstaréttarlögmanns. Læknum og hjúkrunarfólki á Landspítalanum við Hringbraut, sem önnuðust Örn, eru færðar innilegar þakkir. Hrund Hansdóttir, Hanna Rún Þór, Anna Þór Auðunsdóttir, Hans Ragnar Þór, Margrét Björk, Hrund Hanna, Ísak Rafn og Arna Sigríður, Borghildur Fenger og Hjördís Ólöf Þór. Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, SIGURGEIR M. JÓNSSON frá Efri-Engidal, sem lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar sunnudaginn 5. febrúar, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 11. febrúar kl. 14.00. Jón Jóhann Jónsson, Ásta Dóra Egilsdóttir, Halldór Jónsson, Guðný Indriðadóttir, Magnúsína Kristín Jónsdóttir, Magdalena Jónsdóttir, Ögmundur Einarsson og frændsystkin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður, dóttur, systur og tengdadóttur, SIGRÚNAR PÉTURSDÓTTUR, Kristnibraut 83, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Sigurðar Björnssonar krabba- meinslæknis og starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll. Bogi Magnússon, Magnús Bogason, Guðríður Stella Bogadóttir, Þorgerður Jóhannesdóttir, Guðmundur Friðvinsson, Björg Guðmundsdóttir, Haraldur Gíslason, Hjalti J. Guðmundsson, Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, Þorvaldur S. Guðmundsson, Halldóra Lárusdóttir, Friðvin Guðmundsson, Hafdís Hilmarsdóttir, Guðríður Jónasdóttir, Pétur Eyfeld, Pétur F. Eyfeld, Guðbjörg Karlsdóttir, Þórdís Eyfeld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.