Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 43

Morgunblaðið - 10.02.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 43 MINNINGAR ✝ Þóra Halldórs-dóttir, fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1935. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut mið- vikudaginn 1. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigrún Guð- mundsdóttir, f. á Bæ í Árneshreppi í Strandasýslu, f. 28.6. 1915, d. 26.8. 1998 og Halldór Guðmundsson húsa- smíðameistari, f. á Breiðabólstað á Skógarströnd á Snæfellsnesi, f. 2.5. 1913, d. 11.10. 1994. Þóra var elst sjö systkina, yngri eru 1) Gréta, f. 1937, 2) Hrafnhildur, f. 1940, gift John P. DeMarco, 3) Ragnheiður, f. 1945, gift Guð- mundi V. Ólafssyni, 4) Guðmund- ur, f. 1946, kvæntur Hólmfríði Rögnvaldsdóttur, 5) Sigrún, f. 1949, gift Hafþóri Edmond Byrd, og 6) Björn, f. 1951, kvæntur Auði Gilsdóttur. Þóra giftist 20. október 1956, Gunnari Ragnari Sveinbjörnssyni, f. í Kothúsum í Garði, Gerða- hreppi, 24.11. 1933. Foreldrar hans voru Ágústa Sigurðardóttir, f. í Brennu í Reykjavík 21.8. 1901, d. 13.2. 1936, og Sveinbjörn Árna- son skólastjóri, f, í Kothúsum í Garði Gerðahreppi, f. 2.10.1899, d. 3.6. 1977. Dætur Þóru og Gunn- ars eru: 1) Ágústa Sigríður, f. í Keflavík 6.3. 1957. Hún vinnur við heimsóknarþjónustu hjá Fjöl- skyldu- og félags- þjónustu Reykjanes- bæjar. Eiginmaður hennar er Halldór A. Þórarinsson, verkstæðisformað- ur hjá SBK í Kefla- vík, f. í Reykjavík 17.3. 1957, dætur þeirra eru Þóra Björk, f. í Reykjavík 20.2. 1980, nemi við Háskóla Íslands og starfsmaður hjá IGS, flugþjónust- unni á Keflavíkur- flugvelli, og Ólöf Ösp Halldórs- dóttir, f. í Keflavík 30.3. 1988, nemi við Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Kærasti hennar er Jón Gauti Jónsson nemi, f. í Keflavík 21.7. 1986. 2) Sigrún, f. í Keflavík 1.6. 1959, d. 12.10.2005. Hún vann við verslunarstörf. Synir hennar eru Gunnar Ragnar Sveinbjörns- son, nemi og bílstjóri, f. í Keflavík 18.4. 1980 og Bjarni Jón Svein- björnsson, nemi við Háskóla Ís- lands, f. í Keflavík. 7.10. 1985. 3) Valdís Þóra í Reykjavík, f. 28.51975, vinnur á sérvörusviði Haga hf. Sonur hennar er Andri Fannar Tómasson, f. í Reykjavík 24.8. 2001. 4) Sara Lind, f. í Reykjavík 15.4. 1980 nemi við Há- skólann í Reykjavík. Unnusti hennar er Páll Þórir Jónsson dúk- lagningameistari, f. í Reykjavík 28.6. 1975. Útför Þóru fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku mamma mín, það er svo sárt að kveðja þig, það eru ekki nema nokkrir mánuðir síðan við kvöddum Sissu systur. Það vantar svo mikið í okkar litlu fjölskyldu, þú stóðst eins og klettur við bakið á okkur öllum þegar Sissa lést, þrátt fyrir að vera sárþjáð sjálf. Alltaf að hugsa fyrst og fremst um aðra, ég þekki ekki duglegri manneskju en þig, aldrei kvartaði þú. Það eru svo margar góðar minningar úr barn- æsku. Ég man vel allar ferðirnar upp í Borgarfjörð á sumrin, í veiði í Þverá, Gljúfurá og Brennu. Þú hafðir svo gaman af þessum ferðum og gladdist mikið ef einhver fékk lax. Þú lagðir mikið upp úr því að hafa mikinn og góðan mat og var kjötsúpan fræg. Alltaf passaðir þú að allir væru vel búnir og engum væri kalt. Á unglingsárum mínum fórum við til Spánar á haustin og þar naustu þín vel, í sólbaði eða að skoða þig um, sérstaklega heilluðu litlu fjallaþorpin. Það voru margir fallegir hlutir keyptir sem prýða heimili ykkar pabba og minna mann á þessa tíma. Þegar ég er 18 ára og um það bil að fara að heiman kom Valdís systir í heiminn, og fimm ár- um síðar fæddist Sara. Það ár vor- um við þrjár mæðgurnar barnshaf- andi á sama tíma og fædduð þið Sissa í sömu vikunni. Það var mikið fjör þegar við komum saman með allan hópinn, „amma, mamma“ var kallað úr öllum áttum og sinntir þú öllum köllum. Þú áttir alltaf eitt- hvað gott að gefa smáfólkinu. En nú er smáfólkið orðið fullorðið og mun ég reyna að hjálpa því eftir bestu getu. Elsku mamma, alltaf hefur þú hvatt mig og hrósað mér, sama hvað ég hef tekið mér fyrir hendur, hvort sem það er að sauma, mála eða föndra, og ef þú gast eitthvað hjálpað mér þá varst þú alltaf boðin og búin. Þú varst líka mjög hug- myndarík þegar að kom að föndri, og á ég marga fallega hluti eftir þig. Elsku mamma, þakka þér fyrir að vera alltaf svo yndislega góð amma dætra minna, þín er sárt saknað. Hafðu þökk fyrir allt. Guð blessi þig og varðveiti, hvíl í friði. Þín dóttir, Ágústa. Elsku hjartans mamma mín, til- veran er svo furðuleg núna og það var svo margt sem ég átti eftir að spyrja þig um og margt sem ég átti eftir að læra af þér en minning þín er ljós í lífi mínu. Ég er þakklát fyr- ir að hafa fengið að gefa þér Andra litla sem var augasteinninn þinn og ég er þakklát fyrir að hafa gengið með þér í gegnum súrt og sætt. Ég held að það sé mjög erfitt að finna manneskju sem hefur jafn stórt hjarta og þitt. Þú hjúkraðir mér óteljandi sinnum og einhvern veg- inn skipti það ekki máli hversu gömul ég var, ég var alltaf barnið þitt og fékk ást og umhyggju. Þú átt stórt pláss í hjarta fjölda fólks sem átti samleið með þér. Það er tómlegt í veröldinni án þín. Ég veit að þú ert núna hjá Sissu okkar, ömmu og afa og þau hafa tekið vel á móti þér. Ég reyni að vera sterk og dugleg eins og þú sagðir mér alltaf að vera og passa upp á pabba og alla hina. Það er svo margt sem lifir í minningunni og ég mun ætíð geyma það í brjósti mér. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég elska þig ætíð. Mig langar að enda á bæninni sem þú kenndir mér. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín dóttir, Valdís Þóra. Elsku mamma, hvernig get ég sætt mig við að mamma, konan sem ég elska svo mikið, konan sem stóð ávallt við hlið mér, gat allt og gerði allt fyrir alla, sé farin frá mér. Mamma mín var gull af manneskju, annað get ég ekki sagt. Hún tók marga undir sinn verndarvæng í gegnum tíðina og heimili hennar var ávallt opið öllum. Ég man þegar ég var lítil, þá tók ég alltaf vinkonurnar með heim eft- ir skóla og þá beið okkar alltaf eitt- hvað gott að borða og nær und- antekningarlaust skúffukaka með bleiku kremi. Við hlæjum oft að því að heimili foreldra okkar sé eins og brautarstöð, allir koma þangað til að hittast, borða, spila eða bara njóta félagsskapar hvers annars. En hvað gerum við þegar braut- arstjórinn er farinn, eins og Bjarni frændi sagði um daginn. Konan sem hélt öllu saman, hornsteinninn. Mamma, ég veit hreinlega ekki hvernig ég fer að án þín. En minn- ingarnar eru margar og góðar sem ég mun geyma í hjarta mínu alla ævi. Ég veit að þú ert komin á góð- an stað, til Sissu systur og hinna ástvina okkar sem fallnir eru frá. Megi allir Guðs englar passa þig, þín dóttir Sara Lind. Elsku amma, orð fá því vart lýst hversu ótrúlegt það er að þú skulir vera farin frá okkur. Ég hélt að við fengjum lengri tíma saman en ég er þó fegin því að þú þurftir ekki að þjást lengi í þessum hræðilegu veikindum og ég finn huggun í því að nú eruð þið Sissa saman. Það er svo erfitt að rifja upp allar þær góðu minningar sem ég á um þig, þú varst mér alltaf svo hlý og góð. Þú varst alltaf með allt á hreinu, fylgdist alltaf vel með öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Þú tókst ávallt svo vel á móti mér þeg- ar ég kom í heimsókn til þín og afa. Þegar ég var lítil þá gisti maður svo oft hjá þér, afa, Söru og Völlu. Það voru skemmtilegir tímar, þú og afi voruð alltaf að gera eitthvað fyrir okkur, sem ég er mjög þakklát fyr- ir. Mér finnst að núna á síðustu ár- um höfum við náð betur saman eða allt frá því að ég fór að vinna í Hafnarfirði um tíma og var mikið heima hjá þér. Við töluðum um heima og geima og auðvitað á með- an spilað var Yatzy, sem var þitt uppáhaldsspil. Elsku amma, ég skal lofa að bera nafnið vel og vera því til sóma. Þín er sárt saknað. Hvíl í friði, þín Þóra B. Halldórsdóttir. Elsku amma, þín er sárt saknað, en við vitum öll að nú ert þú komin á betri stað þar sem þér líður vel. Elsku amma mín, ég vil þakka þér fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til þín, enda var það ekki sjaldan sem ég kom þegar ég var yngri. Ég hlakk- aði alltaf til helganna að fá að fara til ömmu og gista. Það var alltaf svo mikið að gerast og alltaf svo margir hjá ömmu og afa. Þegar maður kom til ömmu var maður alltaf dreginn í spil, það var það sem þér þótti gam- an og ég man ekki hvað við spil- uðum oft Yatzy. Elsku amma mín, hvíldu í friði, ég sakna þín sárt. Þín Ólöf Ösp. Nú er komið að leiðarlokum að sinni, stóra systir horfin á braut. Hún var kletturinn sem svo gott var að halla sér að. Í hugann streyma minningarnar frá uppvaxt- arárunum á Hjalteyri þar sem gott var að alast upp. Oft var glatt á hjalla og við brölluðum margt sam- an. Stuttu síðar vorum við orðnar þrjár því Hrafnhildur hafði bæst í hópinn. Og síðar komu Ragnheiður og Guðmundur. Á vetrum var oft farið á skíði, sleða og skauta, við undum okkur líka vel með leikföng- in sem pabbi smíðaði handa okkur. Þóra hafði næmt tóneyra og spilaði á orgelið eftir eyranu. Þurfti aðeins að heyra lagið leikið einu sinni til að geta spilað það sjálf. Árið 1947 fluttist fjölskyldan til Keflavíkur og voru það viðbrigði fyrir sveitastúlk- urnar að fara á mölina. Eftir að þangað var komið bættust Sigrún og Björn í hópinn. Þóra útskrifaðist sem hárgreiðslumeistari frá Iðn- skólanum í Keflavík og starfaði á hárgreiðslustofunni Sunnu sem móðir okkar átti þar. Eftir að hún og Gunnar gengu í hjónaband var ávallt gott að sækja þau heim. Hún hlúði ávallt vel að fjölskyldunni og var ánægjulegt að fylgjast með dætrunum í uppvext- inum. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Góður guð varðveiti þig og Sigrúnu og verndi og styrki Gunnar, dæt- urnar, tengdasyni og barnabörnin. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. Og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Gréta systir. Nú er komið að kveðjustund, elsku systir, margs er að minnast frá æskuárunum á Hjalteyri og í Keflavík. Faðir okkar vann við byggingu síldarverksmiðjunnar á Hjalteyri við Eyjafjörð og dvöld- umst við þar til ársins 1947. En þá fluttist fjölskylda okkar til Kefla- víkur. Mér er minnisstætt þegar foreldrar okkar keyptu orgel og það leið ekki langur tími þangað til þú gast spilað á það, af fingrum fram, þó svo að þú hefðir aldrei notið neinnar kennslu á því sviði. Þú áttir líka auðvelt með að spila á gítar og hafðir tóneyra, eins og kallað er. Þóra sagði mér að hún hefði haft það verkefni að sitja með mig á tröppunum á hverju kvöldi til að bíða eftir að pabbi kæmi heim úr vinnunni. Hún sagði mér að það hefði verið ansi strembið, því þungt var í mér pundið. Enda var hún að- eins sex ára gömul, en ég ársgömul, feit og pattaraleg. Á unglingsárunum í Keflavík, gerðist hún meðlimur í skátahreyf- ingunni. Og eftir gagnfræðaskólann lauk hún prófi frá Iðnskóla Kefla- víkur og nam hárgreiðslu og öðl- aðist meistararéttindi í þeirri grein. Hún starfaði á hárgreiðslustofu móður okkar, þar til hún gekk í hjónaband með Gunnari Svein- björnssyni framkvæmdastjóra frá Kothúsum í Garði. Eftir það helgaði hún sig fjölskyldunni og heimili. Þau hjónin bjuggu lengst af á Krók- velli í Garði. Heimili þeirra var mjög fallegt og gestrisni í hávegum höfð, enda var húsfreyjan snillingur í matargerð. Þóra og Gunnar eignuðust fjórar dætur, fyrst þær Ágústu Sigríði og Sigrúnu. Sextán árum síðar fæddist Valdís Þóra og fimm árum seinna bættist Sara Lind í hópinn. Ég sagði alltaf að ég hefði yngt þau svo vel upp, með því að skíra yngri son minn í höfuðið á þeim. Hann heitir Gunnar Þór og var skírður í stof- unni á Krókvelli og hélt Þóra veg- lega skírnarveislu fyrir hann og var allt mjög rausnarlega fram borið, eins og þeirra háttur var. Þóra var alltaf boðin og búin að passa börnin mín, þegar ég þurfti á að halda. Arnar Þór sonur minn var mjög hændur að henni og sagði alltaf við hana að þegar hann yrði stór ætlaði hann að taka hana með sér til tunglsins. Var henni mjög skemmt við þessi orð. Hann á margar góðar minningar frá dvöl sinni þar, eins og Angela systir hans. Síðastliðinn október urðu þau hjónin fyrir þeirri sorg að missa Sigrúnu dóttur sína langt um aldur fram. Ég get helst lýst systur minni sem bjargi sem haggaðist ekki, hvað sem á dundi. Hún var mjög dul að eðlisfari og bar ekki tilfinn- ingar sínar á torg. Stóð sig eins og hetja og bar harm sinn í hljóði, var mikill styrkur fyrir fjölskylduna. Okkur grunaði ekki þá að hún væri helsjúk sjálf og leyndi veikindum sínum fyrir fjölskyldunni. Það er stórt skarð höggvið í fjölskylduna á stuttum tíma og bið ég góðan Guð að styrkja Gunnar, dæturnar, barnabörnin og aðra fjölskyldumeð- limi. Við hjónin, dóttir okkar og synir, kveðjum þig með virðingu og þakklæti. Hvíl þú í friði og Guð blessi minningu þína. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Hrafnhildur. Það er komið að kveðjustund. Kær mágkona er látin eftir stutt veikindi. Það er skammt stórra högga á milli hjá fjölskyldunni. Að- eins eru um 4 mánuðir síðan við fylgdum Sigrúnu dóttur hennar til grafar. Það var glæsileg ung kona sem bróðir okkar valdi sem lífsförunaut, og glæsileika sínum hélt Þóra alla tíð. Ljúft er að eiga góðar samveru- stundir á lífsleiðinni, áður en þær verða minningar. Það var oft glatt á hjalla og gest- kvæmt hjá Gunnari og Þóru, sér- staklega á Krókvöllum. Ekki er hægt að láta hjá líða að minnast á spilamennskuna og þær fjölmörgu stundir er við sátum og spiluðum yatzy, sem var í uppáhaldi hjá Þóru. Það hefur stundum verið sagt að amman sé þarfasti þjónninn og þar var Þóra í aðalhlutverki, svo annt sem henni var um ömmubörnin sín og hlúði svo vel að. Við kveðjum þig að sinni. Bestu þakkir fyrir allt, hvíl í friði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Gunnar bróðir, Gústa, Val- dís, Sara og fjölskyldur, missir ykk- ar er mikill, megi góður Guð gefa ykkur styrk. Edda og Guðrún. Það er ekki laust við það að mér finnist Guð dálítið eigingjarn núna. Það er alls ekki ætlun mín að skammast í Guði þó að maður eigi alltaf að segja það sem manni finnst, heldur langar mig að minnist hennar Þóru móðursystur minnar. Ég á margar góðar og skemmti- legar minningar frá því að ég var send í „sveit“ til þeirra Þóru og Gunnars. Þóra var alltaf góð við mig, mér fannst ég eins og prins- essan sem átti 365 kjóla þegar ég var hjá þeim, því að Krókvellir fannst mér vera höllin og síðan áttu þær systur Gústa og Sigrún heitin helling af fötum sem ég gat mátað. Bróðir var ekki hár í loftinu þegar hann vildi líka fá að fara til Þóru. Get ég enn heyrt hláturinn í henni frænku minni þegar hún rifjaði upp eitt atvik frá þeim tíma, og ætla ég að deila því með ykkur hér í dag. En þannig var að Össuri bróður, á þriðja ári, lá mikið á að komast út í rigninguna þennan morgun, var hann eitthvað farið að lengja eftir frænku sinni að hún kæmi nú og klæddi hann í pollagallann. Tók hann sig því til og klæddi sig sjálfur en gat ekki smellt regnstakknum. Fór sá stutti því til Þóru og sagði þessa frægu setningu: „Þóra smella“ við skulum hafa það í huga að hann kunni ekki segja bókstafina Þ og S og setti bókstafinn H í stað- inn fyrir Þ. Tók það Þóru þó nokkurn tíma að átta sig á hvað hann meinti, og skildi síst í því hversu ljót orð drengurinn kunni. Hún Sigrún amma mín gat líkað hlegið mikið þegar hún rifjaði þetta atvik upp, og er ég þess handviss að nú hlæja þær og hafa gaman, amma, Þóra og Sigrún frænka. Bið ég algóðan Guð um og gefa ástvinum Þóru frið og ró í hjarta. Sigurrós Ásta Hafþórsdóttir. ÞÓRA HALLDÓRSDÓTTIR Þó um stund í þessum heimi þrjóti vinafundur, við erum bundin böndum þeim sem brostið geta ei sundur. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku Þóra. Björn bróðir og fjölskylda. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.