Morgunblaðið - 10.02.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.02.2006, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Svavar Guð-björn Svavars- son fæddist í Reykjavík 10. mars 1978. Hann lést á heimili sínu 2. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Svavar Svavarsson markaðsstjóri f. í Reykjavík 25. ágúst 1948 og Jónína G. Garðarsdóttir kennari, f. á Eski- firði 1. október 1949. Systkini Svavars eru Helga J. Svavars- dóttir f. 31. október 1973, gift Hallgrími S. Sveinssyni og eiga þau eina stúlku og Garðar Á. Svavarsson, f. 16. júlí 1983 í sam- búð með Aldísi A. Sigurjónsdótt- ur og eiga þau einn son. Hálf- systir Svavars er Þórunn H. Svavarsdóttir Paulsen, f. 18. des- ember 1974 í sambúð með Kjart- ani Bjarnasyni og eiga þau þrjú börn. Svavar lauk grunnskólanámi frá Snælandsskóla í Kópavogi 1994 og stúdents- prófi frá Mennta- skólanum við Sund 1999. Á þessum ár- um æfði hann sund með sundfélaginu Ægi og dvaldi sem skiptinemi í Thaí- landi. Með skóla vann hann við ýmis störf bæði til sjós og lands hjá Granda hf. Svavar útskrifað- ist sem lögreglu- maður frá Lög- regluskóla ríkisins í desember 2001 og hóf nám í afbrotafræði við Jacksonville State University í Alabama árið 2003 en varð að hverfa frá námi haustið 2004 vegna veikinda. Frá því í janúar árið 2000 hefur Svavar starfað sem lögreglumaður hjá Lögregl- unni í Reykjavík og eitt sumar á Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglu- stjóra. Útför Svavars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku Svavar. Ég var tæplega fimm ára gömul og við nýflutt í Kóngsbakkann þeg- ar þú komst í heiminn. Ég var svo spennt að fá lítinn bróður. Ég sótti þig oft á leikskólann og passaði þig þangað til mamma og pabbi komu heim úr vinnunni. Samband okkar hefur alltaf verið gott og við gátum alltaf talað saman. Þær eru ógleym- anlegar stundirnar sem við áttum saman í Daltúninu, þú, Garðar og pabbi að spila á gítar og allir sungu með. Þó að oft hafi verið langar vegalengdir á milli okkar í seinni tíð þá var alltaf eins og við hefðum hist síðast í gær. Þetta nýttist okkur vel þegar þú veiktist, við áttum gott með að tala saman og það hjálpaði mikið. Það var stoltur frændi sem hélt í fyrsta sinn á Guðrúnu Karítas þeg- ar hún kom í heiminn. Hún átti stór- an sess í hjarta þínu frá upphafi og síðan að hún fékk vit hefur þú átt stóran sess í hennar hjarta. Hún var alltaf spennt að hitta þig og gaf þér stórt knús og kossa í hvert sinn. Það sem við höfum óttast síðasta eina og hálfa árið er orðið að veru- leika. Samt er þetta svo óraunveru- legt. Ég bara trúi því ekki að þetta hafi gerst. Að síðasta eina og hálfa árið hafi ekki bara verið draumur. En nú ertu farinn og þarft ekki að þjást lengur og við sem eftir stönd- um verðum að trúa því að nú líði þér vel. Það er margs að minnast og margar góðar minningar sem við getum yljað okkur við. Ég er þakk- lát fyrir þann tíma sem við fengum þótt hann hafi verið erfiður. Þú varst svo ákveðinn í að nýta tímann vel og þú gafst okkur svo mikið með því að vera opinn og einlægur. Það má segja að ég hafi kynnst þér upp á nýtt á þessum tíma því það verða einhvern veginn öðruvísi samskipti þegar maður veit hversu dýrmætur hver einasti dagur er. Það verður skrítið að halda áfram án þín. Núna er sársaukinn og söknuðurinn svo mikill en við verðum að læra að láta minningu þína verða ljósið í lífi okk- ar. Helga J. Svavarsdóttir. Elsku bróðir, við börðumst öll saman í hálft annað ár, baráttu sem við vissum frá upphafi að við gætum ekki unnið. Þrátt fyrir það skildi þessi barátta eftir sig mikinn fjölda af litlum sigrum þegar í ljós kom að við höfðum náð einum degi til. Ég hélt að ósanngirni lífsins ætl- aði engum enda að ná þegar þú komst í sumarleyfi frá skólanum í Bandaríkjunum og greindist með al- varlegt krabbamein. Á einu augna- bliki breyttist allt. Ég man svo vel eftir svipnum á þér, eitt augnablik leyfðirðu okkur að sjá hvað þetta var sárt. Framhaldið var svo lýsandi fyrir þig bróðir sæll. Þú lagðir áherslu á það að þú værir stóri bróðir minn og ég skyldi umgangast þig þannig, þú þyrftir enga vorkunn. Í stað fram- tíðarinnar var fjölskyldan sett í sæti nr. 1, 2 og 3. Stöðugar áhyggjur þín- ar af líðan þeirra sem þú skilur eftir þig voru dæmigerðar fyrir mann- gerð þína. Þú umkringdir þig vinum og ættingjum sem voru tilbúnir til að njóta lífsins með þér og berjast fyrir öðrum degi. Ég gleymi aldrei einum af okkar stærstu sigrum. Þegar við gátum farið saman til London og horft á fótboltann sem var okkur svo kær og svo stór hluti af samverustund- um okkar. Að koma inn á leikvang- inn þrír saman og horfast í augu við tvö af okkar stærstu augnablikum, við vorum komnir á leikinn og Hall- grímur var kominn í Chelsea-treyju. Í gegnum líf mitt hef ég fengið að fylgjast með þér hvert einasta fót- spor. Þú varst duglegur við að kynna mig fyrir vinum þínum og tryggja það að vinir þínir væru vinir mínir. Þegar árin tóku að líða fór þetta að verða erfiðara og erfiðara þar sem þú snertir líf svo margra og vinir þínir náðu engri tölu. Í gegn- um veikindi þín hafa vinir þínir orð- ið hluti af fjölskyldunni og þakklæti okkar í þeirra garð er mikið, traust- ari vinir eru ekki til. Eftir fráhvarf þitt hef ég setið með Helgu systur og skrifað með henni bréf til allra vina þinna er- lendis og persónuleg bréf til þeirra margra. Þvílíkur fjöldi af vinum og þvílíkir vinir. Ekki nóg með að margir þeirra legðu í löng ferðalög frá öllum heimsálfum til að koma að hitta þig, þá komu margir hverjir oftar en einu sinni. Það er mér ómetanlegt að hafa haft þig í mínu lífi og óviðunandi að missa þig. Augnablikið þegar við Al- dís komum til þín, mömmu og pabba og sögðum að við værum að fara að eignast lítið barn var yndislegt. Þú varst svo glaður fyrir okkar hönd þótt það hefði aldrei hvarflað að þér á því augnabliki að þú myndir halda syni mínum undir skírn. Kæri bróðir, þakka þér fyrir ómetanlegar stundir á liðnum árum og megi bjartir tímar blasa við þér á nýjum stað. Garðar Ágúst. Elsku Svavar, hvar byrja ég á að lýsa sorg minni og söknuði? Svo blendnar tilfinningar, reiði og sorg vega á móti létti yfir því að þjáning þín er liðin. Svo ungur með allt lífið fram und- an er þér tjáð að þinn tími sé á þrot- um. Þetta var og er allt saman svo óraunverulegt. Það eru ekki nema rúm þrjú ár síðan ég hitti þig í fyrsta sinn. Við Garðar höfðum aðeins verið saman í nokkra daga en mér var ljóst að það var þitt samþykki sem ég þurfti að fá til þess að vera með bróður þín- um. Ég verð því að viðurkenna að ég var nokkuð stressuð. En ég slapp fyrir horn, það var skárra að drekka ekkert kók frekar en diet kók! Þú bauðst mig velkomna inn í fjölskyld- una. Það sýndi sig mest í veikindum þínum, þar sem þú ítrekaðir fyrir mér aftur og aftur að ég væri í þín- um innsta hring. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Ég gleymi ekki deginum sem við Garðar tilkynntum þér og foreldr- um ykkar að von væri á litlum sól- argeisla, þetta augnablik sýndi að tárin segja oft meira en þúsund orð. Fjórum mánuðum seinna er von á öðrum sólargeisla, Helga systir ykkar var líka ófrísk. Nú er lítill drengur fæddur og annar á leiðinni. Ég trúi því að þeir hafi verið sendir hingað líkt og engl- ar til að hjálpa okkur í gegnum þennan erfiða tíma. Elsku Svavar, tími þinn hér er liðinn en minning þín mun lifa um ókomna tíð. Aldís Anna. Elsku Svavar. Það tekur mig svo sárt að þurfa að kveðja þig á svo ótímabærum tíma sem þessum. Orð fá ekki lýst hversu mikið ég á eftir að sakna þín. Margar góðar minningar hef ég að geyma sem munu fylgja mér til ævi- loka, allt frá því við lékum okkur saman sem krakkar í trjánum í garðinum hjá ömmu og afa á Dyngjó og þegar við urðum eldri var svo gaman að spjalla við þig um allt og ekkert. Þú varst og ert mér svo kær og okkur öllum í fjölskyld- unni, með allri þinni útgeislun og persónutöfrum sem aldrei munu gleymast. Mikið tómarúm hefur myndast með fráhvarfi þínu sem erfitt verður að fylla. Ég kveð þig nú kæri frændi með miklum söknuði en sál þín og allar minningarnar um góðar stundir munu áfram lifa í hjarta mínu um ókomin ár. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Lóli, Jónína, Helga Jens- ína, Garðar Ágúst, Þórunn Hilma, makar og börn. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi Guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Bettina. Baráttunni er lokið, kæri frændi, en þar stóðst þú þig með sóma, eins og í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Það er þungbært að setjast niður og skrifa fáein orð um þig sem varst okkur öllum svo kær og varst henni Tinu frænku þinni sem besti bróðir. Á þínu stutta æviskeiði áorkaðir þú ótrúlega miklu og stóðst meðan stætt var. Ég vil þakka þér alla hugulsem- ina í gegnum tíðina í minn garð. Þú lifðir svo sannarlega upp til þinnar fyrirmyndar í lífinu, eins og þú orðaðir það svo fallega í minn- ingarorðum um afa þinn Svavar, sem þú sendir alla leið frá Taílandi, þar sem þú varst skiptinemi það ár- ið og gast ekki verið viðstaddur út- förina. Nú ert þú einstök fyrirmynd systkinabarna þinna og frændsystk- ina sem hafa beðið fyrir þér þennan erfiða tíma. Styrkur þinn var foreldar þínir og systkin sem stóðu við hlið þér hverja einustu stund. Guð geymi þig Kristín frænka. Sólin er farin að hækka á lofti og skammdegismyrkrið að láta undan síga, kominn er 2. febrúar þegar þú, elsku Svavar minn, kveður okkur eftir erfið veikindi. Minningarnar eru margar og ljúf- ar, sem hver og ein er geymd sem dýrmæt perla. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Jónína, Svavar, Helga, Garðar, amma Björg og aðrir ást- vinir, Guð styrki ykkur og styðji á þessar sorgarstundu. Minningin um Svavar mun lifa um ókomin ár Herdís. Ég kynntist Svavari á 2. ári í Menntaskólanum við Sund. Þar kynntumst við einnig Boggu og Dagmar og mynduðum við fjögur mjög sterk vinatengsl þetta ár sem hafa haldist sterk síðan þrátt fyrir landfræðilegar fjarlægðir. Við gerð- um svo margt saman ásamt fleirum sem hafa tengst þessum hóp síðan s.s. ferðalög um landið og óteljandi kvöld þar sem við bara sátum og nutum þess að vera í góðra vina hópi og tala saman um allt og ekk- ert. Það er svo margt gott að muna af þeim tíma sem við eyddum saman. Þegar við tókum Steingerði, skóla- blað MS, í nafni ritfrelsis (eða prakkaraskapar) og dreifðum henni um ganga skólans. „Kaffihúsakvöld- in“ okkar heima í Heiðarási með Dagmar og Boggu. Skíðaferðin norður á Akureyri og verslunar- mannahelgin á Skagaströnd. Vídeó- kvöldin okkar þar sem við tókum lé- legar vísindaskáldsögur og átum sveitta Skallaborgara. Fastur punktur síðastliðið ár hef- ur verið þriðjudagskvöldin. Svavar kom í heimsókn með nammi og kók og við horfðum á sjónvarpið. Þrátt fyrir veikindin þá klifraði hann stig- ana hérna upp á þriðju hæð í næst- um hverri viku. Besti hluti þriðju- dagskvöldanna var að skutla honum heim, en þá töluðum við svo mikið saman og sátum löngum stundum úti í bíl fyrir utan heimilið hans. Síð- asta þriðjudagskvöldið var ekki nema tveimur vikum áður en hann kvaddi okkur fyrir full og allt. Að eignast besta vin, trúnaðarvin sem er til staðar sama hvað gengur á er eitt það besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Þann vin fann ég í Svavari. Hann var minn besti vinur, guðfaðir sonar míns og ég á eftir að sakna hans meira en orð fá lýst. Hugrekki, staðfesta og lífsgleði hans í þessum veikindum fylltu mig aðdáun í hvert skipti sem við hitt- umst. Þegar hann átti góða daga mætti hann til vinnu í Lögreglunni eða nýtti tímann til þess að hitta fjölskyldu og vini. Þegar Svavar greindist tóku lögregluembættin sig saman og buðu honum stöðu sem hann gat sinnt í veikindum sínum. Framkoma þeirra var langt umfram væntingar og eiga þau þakklæti og heiður skilin. Þegar Svavar greindist með krabbameinið áttum við von á okkar fyrsta barni. Við höfðum alltaf ætlað okkur að biðja hann um að vera guðfaðir og það gladdi okkur mikið að hann skyldi þiggja það. Það var einstaklega gott að sjá hversu mikið það gaf honum og í hvert skipti sem hann hitti Magna Val, gladdist hann mikið og það lifnaði yfir honum. Svavar kom mikið í heimsóknir til okkar í gegnum árin og eftir að hann veiktist hélt hann því áfram. Hann ræddi alltaf mikið við okkur um veikindin og vissum við oft betur en aðrir hversu veikur hann var í raun orðinn. Við höfðum oft haft á orði hversu heppin við öll vorum með þá sem standa okkur að baki. Það sannaðist svo sannarlega á þessum síðustu og verstu tímum. Fjölskylda Svavars stóð sig alveg ótrúlega vel í að sinna honum á heimili þeirra. Við viljum koma fram þakklæti og samúðar- kveðju til þessa frábæra fólks. Þið eigið hug okkar allan. Elsku Svavar, okkur þótti svo vænt um þig og þökkum fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt með þér. Nú ert þú kominn á betri stað og þarft ekki að þjást lengur. Jón Pétur Magnason, Dagmar Heiða Reynisdóttir og Magni Valur Jónsson. Í Menntaskólanum við Sund lágu saman leiðir nokkurra ungmenna úr ólíkum áttum. Tókst fljótlega mikill vinskapur með þeim og úr varð skemmtilegur kokteill fólks með ólíkar skoðanir og væntingar. Eftir útskrift skildi leiðir og hvert okkar tók sér mismunandi verkefni fyrir hendur. Þrátt fyrir það óx hópurinn og vináttan styrktist eftir því sem árin liðu. Ekki óraði okkur fyrir að brátt yrði höggið stórt skarð í dýr- mæta hópinn okkar. Eftir sitjum við með ótal spurningar en engin svör. Þeir sem kynntust Svavari kom- ust fljótlega að því að hann bjó yfir miklum mannkostum. Hann var ein- staklega rólegur og yfirvegaður en hafði einnig lúmskan, svartan húm- or sem fylgdi honum hvar sem hann kom. Hann hafði mikinn áhuga á hinum ýmsu þjóðfélagsmálum og því var einstaklega gaman að rök- ræða við hann um heima og geima. Svavar tók öllum jafn vel og fór ekki í manngreinarálit. Hann var sannur vinur vina sinna og fjölskyldan skip- aði stærstan sess í lífi hans. Með þessa eiginleika í farteskinu fann hann sig í starfi lögreglumanns sem hann sinnti af lífi og sál. Hann lét þó ekki þar við sitja heldur hélt til Bandaríkjanna til frekara náms. Í námi kom enn betur í ljós hversu metnaðargjarn og samviskusamur hann var enda var námsferillinn glæsilegur. Góðmennskan var þó aldrei langt undan því ásamt að því að stunda námið af kappi var hann ötull við að aðstoða samnemendur sína. Svavar hafði mikið dálæti á börn- um og lifnaði yfir honum þegar þau voru nærri. Á meðan hann var í lög- reglunni hafði hann á orði að honum þætti einna skemmtilegast þegar börn urðu á vegi hans og voru að forvitnast um lögreglubúninginn. Svavar hafði sérstaklega gaman af frændsystkinum sínum og lagði oft mikinn metnað í þeirra samveru- stundir. Þeim verður ætíð minnis- stætt þegar hann bauð þeim í bíltúr á lögreglubíl þar sem keyrt var um götur bæjarins með blikkandi ljós og sírenur og svo var farið í flugferð á lítilli flugvél um nágrenni Reykja- víkur. Eins og við var að búast vakti þetta mikla lukku og voru frænd- systkinin með stjörnur í augum að ferð lokinni. Þetta er lýsandi dæmi þess sem Svavar gerði fyrir þá sem voru honum kærir. Þegar Svavar greindist með krabbamein, fyrir einu og hálfu ári, kallaði hann vina- hópinn saman og útskýrði stöðu mála. Hann vildi hafa alla hluti á hreinu og fór ekki leynt með veik- indi sín gagnvart okkur en bar sig þó jafnan vel. Ef einhver breyting varð lét hann okkur vita. Þrátt fyrir að vera orðinn máttfarinn undir lok- in hélt hann áfram að hughreysta og hvetja okkur til að sinna verkefnum okkar sem best. Hann átti alltaf auðvelt með að slá á létta strengi og sjá björtu hliðarnar á lífinu sem án efa hjálpaði þeim sem stóðu honum næst að takast á við þessar erfiðu aðstæður. Hann var staðráðinn í að lifa lífinu lifandi fram til síðasta dags og gaf með því fólkinu í kring- um sig ómetanlega gjöf. SVAVAR GUÐBJÖRN SVAVARSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.