Morgunblaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 49 FRÉTTIR BJÖRGUNARBÁTURINN Sigurvin fór í fyrradag um 80 sjómílur norður í haf til að ná í veiðskipið Jón Stein- grímsson RE 7 973, en skipið hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna. Leiðindaveður var á þessum slóðum en ekk- ert amaði að áhöfninni og hafði hún það þokkalegt. Bógskrúfan gat beint skipinu með stefnið í vind og öld- ur. Sigurvin og kom að bryggju á Siglufirði með bátinn klukkan 23.35 um kvöldið, en ferðin hafði gengið vel, ganghraði mun hafa verið um 6 sjómílur með bátinn í togi. Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson Fékk veiðarfæri í skrúfuna Tívolísyrpa Íslandsbanka og Hróksins TÍVOLÍSYRPA Íslandsbanka og Skákfélagsins Hróksins stendur fram á vor og er fyrir alla krakka á grunnskólaaldri. Teflt verður í ein- um opnum flokki en verðlaunað í eftirtöldum þremur flokkum: 1. til 3. bekkur, 4. til 6. bekkur og 7. til 10. bekkur. Fyrsta mótið hefst sunnudaginn 12. febrúar í höfuðstöðvum Íslands- banka á Kirkjusandi kl. 13. Fyr- irkomulagið er með þeim hætti að fyrst fara fram þrjú stigamót, eitt í mánuði, og munu 6 krakkar úr hverjum flokki tryggja sér rétt til að tefla á úrslitamóti í maí. Fyrstu verðlaun á úrslitamótinu eru ferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar. Íslandsbanki og Hrókurinn munu einnig verðlauna þau sem lenda í 1., 2. og 3. sæti á öllum stigamótum sem haldin verða í Íslandsbanka. Einnig verða viðurkenningar fyrir mætingu og framfarir á hverju móti og dregið verður í happadrætti þannig að allir eiga möguleika á vinningi. Boðið verður upp á ókeypis veit- ingar fyrir keppendur og foreldra. Allir eru velkomnir. Skákskóli Hróksins, Ármúla 44, býður einnig upp á ókeypis æfingar fyrir börn og heldri borgara. Æfingar fyrir 60 ára og eldri verða á þriðjudögum kl. 15–16.30. Æfingar fyrir stúlkur á grunn- skólaaldri verða á miðvikudögum kl. 17.15–18.45. Kennsla fyrir stráka og stelpur á grunnskólaaldri verður á fimmtudögum kl. 17.15–18.45. Jóga fyrir karl- menn hefst á ný GUÐJÓN Bergmann hefur ákveðið að endurvekja námskeiðið Jóga fyr- ir stirða og stressaða karlmenn, eftir nokkurra mánaða hlé, segir í frétta- tilkynningu. Guðjón hefur haldið þessi námskeið í Jógamiðstöðinni, Ármúla 38, síðastliðin fjögur ár. Á námskeiðinu eru kenndar einfaldar teygjur í bland við djúpöndunar- og slökunartækni sem þátttakendur geta nýtt sér í framhaldi af nám- skeiðinu. Næsta námskeið hefst 20. febrúar. Skráning er hafin á www.jogamidstodin.is. Tekið á hraðakstri við Hraunberg LÖGREGLAN í Reykjavík fékk ábendingu fyrir helgi um hraðan akstur bifreiða í Hraunbergi í Breiðholti. Þar er 30 km hámarks- hraði og við götuna er m.a. leik- skóli og mikil umferð gangandi fólks. Síðastliðinn föstudag fór lög- reglan á vettvang og mældi hraða 84 bíla. Þar af voru 29 á of miklum hraða og geta vænst sektar. Aftur var mælt í götunni á mánudag og þá voru 7 af 38 á of miklum hraða, eða á 44–59 km/klst. Styður tillögu um stækkun friðlandsins MEIRIHLUTI í hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps fagnar yfirlýs- ingu umhverfisráðherra um áform- aða stækkun friðlands Þjórsárvera og er tilbúinn að vinna að því með umhverfisráðherranum. Yfirlýsing þessa efnis var samþykkt á fundi sveitarstjórnar. „Hugmyndir hafa verið ræddar í hreppsnefnd um að hefja undirbúning að því að koma Þjórsárverum inn á heimsminjaskrá UNESCO. Þeim hugmyndum hefur óformlega verið komið á framfæri við umhverfisráðherra,“ segir í bók- un meirihluta sveitarstjórnar. Bónusfjöltefli í Kringlunni HRÓKURINN og Bónus bjóða börnum og fullorðnum í opið og ókeypis fjöltefli við Henrik Daniel- sen, stórmeistara og skólastjóra Hróksins. Fjölteflið verður í dag, föstudaginn 10. febrúar, við verslun Bónuss í Kringlunni frá klukkan 16 til 18 og er öllum velkomið að spreyta sig gegn stórmeistaranum. Með fjölteflinu vill Hrókurinn vekja athygli á mikilvægum stuðn- ingi Bónuss við skákstarf meðal barna og ungmenna, segir í frétta- tilkynningu. Meðan á fjölteflinu stendur býður Bónus gestum og gangandi upp á kaffi og kleinur. Háskóli Reykjavíkur stofnar atvinnuþjónustu HÁSKÓLINN í Reykjavík hefur stofnað til atvinnuþjónustu fyrir nemendur sína en með þessu hefur HR hug á því að styrkja samband sitt við atvinnulífið. Að sögn Ástu Bjarnadóttur, forstöðumanns at- vinnuþjónustunnar, hefur þjónusta sem þessi tíðkast í háskólum er- lendis en ekki hefur borið á henni hér á landi. Hún segir þetta vera lið í því að efla tengslin við at- vinnulífið jafnframt sem þjónusta við nemendur skólans eykst fyrir vikið. Um fyrirkomulag þjónustunnar sagði Ásta að tvær leiðir væru í boði fyrir fyrirtæki sem leituðu eftir starfsfólki, annars vegar væri hægt að senda inn auglýsingu sem birt væri á vef sem aðgengilegur væri fyrir núverandi og fyrrver- andi nemendur skólans. Hins veg- ar gætu fyrirtæki beðið þjón- ustuna um að leita eftir ákveðnum starfskrafti með ákveðna eigin- leika en Ásta sagði að mikill fjöldi nemenda hefði gefið þjónustunni aðgang að skólagögnum sínum sem og gögnum frá kennurum og því gæti þjónustan fundið einstak- ling sem hentaði vel kröfum hvers fyrirtækis. Ásta sagði að þjónusta hefði ver- ið sett á laggirnar vegna sífelldrar aukningar á fyrirspurnum fyrir- tækja um starfsfólk en til að byrja með væri þjónusta fyrst og fremst ætluð nemendum í viðskiptadeild en um 300 manns útskrifast úr deildinni á ári hverju, hvort sem er úr grunnámi eða framhalds- námi. Aðspurð um viðbrögð frá at- vinnulífinu sagði Ásta að síminn hefði ekki stoppað á þeim 2 dögum sem þjónustan hafi verið auglýst. Fyrirtæki úr flestum geirum at- vinnulífsins höfðu haft samband en þó hefði borið mest á fjármálafyr- irtækjum. Í FRAMHALDI af tilkynningu Umferðarstofu um að hinn 15. febrúar nk. verði sala á upplýs- ingum úr ökutækjaskrá lögð niður hjá stofnuninni, hefur Lánstraust hf. bætt við upplýsingaveitu fyr- irtækisins úr ökutækjaskrá. Þetta þýðir að hægt er að nálgast sömu upplýsingar úr kerfi Lánstrausts, í stað hjá Umferðarstofu áður. Forsaga málsins er að Umferð- arstofa ákvað að hætta smásölu upplýsinga úr ökutækjaskrá eftir að samkeppniseftirlitið kvað upp úrskurð 10. október sl. um miðlun þessara upplýsinga. Síðastliðin fimm ár hefur Láns- traust hf. verið miðlað upplýs- ingum úr ökutækjaskrá en með nýjum samningi við Umferð- arstofu er Lánstrausti hf. nú heimilað að fjölga uppflettimögu- leikum sínum á www.LT.is þannig að leit í slysaskrá eða leit eftir kennitölu eiganda bifreiðar bætist við. Lánstraust hf. bætir við öku- tækjaskrá Frá undirritun samnings Lánstrausts hf. og Umferðarstofu. Á myndinni eru Sigurður E. Levy, deildarstjóri hjá Lánstrausti hf., og Brynhildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri ökutækjasviðs hjá Umferðarstofu. NOKKUR ferðaþjónustufyrirtæki hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þess er krafist að ekki verði af frekari uppbyggingu stóriðju með tilheyrandi þenslu og háu gengi. Að öðrum kosti verði erfitt að halda úti rekstri ferðskrifstofa á Íslandi og hætt sé við að starfsemi þeirra verði rústir einar árið 2015. „Framtíð ferðaþjónustu er ógn- að með stefnu stjórnvalda í virkj- ana- og stóriðjumálum. Veldur þar fyrst og fremst tvennt, annars veg- ar hátt gengi íslensku krónunnar og hins vegar æ meiri ásókn orku- fyrirtækja í mikilvægustu söluvöru íslenskrar ferðaþjónustu; hreina og ósnortna náttúru. Nú blasir við stórfellt rekstr- artap fjölda fyrirtækja í ferðaþjón- ustu sem er afleiðing virkjunar- stefnu og hás gengis íslensku krónunnar. Ríkisstjórn Íslands rekur mjög einhæfa stóriðjustefnu sem ógnar fjölda svæða á hálendi Íslands og eru mörg þeirra mjög mikilvæg fyrir ferðaþjónustuna. Nægir þar að nefna svæðið norðan Vatnajök- uls, Hellisheiði, Torfajökulssvæðið, Langasjó, Skjálfandafljót, Kerl- ingafjöll og Jökulsá eystri og vestri í Skagafirði svo eitthvað sé nefnt. Undirrituð fyrirtæki krefjast þess að ferðaþjónusta og útivist í ósnortinni náttúru verði viður- kennd sem arðbær og mikilvæg at- vinnugrein til jafns við aðrar at- vinnugreinar í landinu. Nýting þeirra á íslenskum nátt- úruperlum er sjálfbær og til langs tíma mun arðbærari en virkjunar- framkvæmdir og áliðnaður. Jafnframt krefjast fyrirtækin þess að ekki verði af frekari upp- byggingu stóriðju með tilheyrandi þenslu og háu gengi. Að öðrum kosti verður erfitt að halda úti rekstri ferðskrifstofa á Íslandi og hætt er við að starfsemi þeirra verði rústir einar árið 2015.“ Undir yfirlýsinguna skrifa Ferðakompaníið, Íslandsflakkarar, Íslenskir fjallaleiðsögumenn, Ultima Thule og Ævintýrasmiðjan Eskimo. Óttast afleiðingar stóriðjustefnu fyrir ferðaþjónustuna EIGNAUMBOÐIÐ mun um helgina standa fyrir kynningu á fasteignum sem eru til sölu á Spáni ásamt því að aðstoða fólk við fjármögnun. Er þetta gert í samstarfi við spænska fyrirtækið Euromarina, en samkvæmt upplýsingum frá Eignaumboðinu færist það stöðugt í vöxt að Íslendingar fjárfesti í fasteignum á Spáni. Á sýningunni verða meðal ann- ars kynnt á sérstöku kynningar- verði nokkur hús sem hönnuð hafa verið eftir kröfum íslenska mark- aðarins. Íslenskur starfsmaður Euromarina á Spáni, Harpa Guð- laugsdóttir, og framkvæmdastjóri þess, Geli Hernandes de Blas, verða á staðnum og veita upplýs- ingar ásamt starfsfólki Eignaum- boðsins. Hægt verður að fá upp- lýsingar um skoðunarferðir til Spánar og bóka sérstakar kynn- ingar fyrir einstaklinga, fyrirtæki og hópa. Sérstakur Spánarleikur verður í gangi þar sem sýningargestir eiga möguleika á að vinna flugferð til Spánar, gistingu og Spa-meðferð á hótel La Laguna, fjögurra stjörnu hóteli í eigu Euromarina, og golf- hring á La Marquesa-golfvellinum ásamt fleiri góðum vinningum. Áhugi Íslendinga á fjárfesting- um á Spáni hefur aukist á und- anförnum árum og velja margir að kaupa sér sumarhús þar fremur en á Íslandi. Ástæður þess eru meðal annars þær að svipað verð er á sumarhúsum þar og á Íslandi en fjármögnun er auðveldari og veð- urfar dregur einnig marga til Spánar. Með tilkomu lággjalda- flugfélaga hefur ferðamátinn breyst og sífellt auðveldara er að ferðast með flugi. Sýningin mun fara fram á skrif- stofu Eignaumboðsins á Skúlagötu 32–34 og verður opið frá kl. 11 til 17 á laugardag og sunnudag. Sýning á spænskum fasteignum Mikilvægt innlegg í Evrópuumræðuna „EVRÓPUSAMTÖKIN hafa í lang- an tíma haldið því fram að aðild að Evrópusambandinu væri besta leið- in til að tryggja efnahagslega, fé- lagslega og pólitíska hagsmuni Ís- lendinga í fjölbreyttu samfélagi þjóða í heiminum í dag. Spádómur Halldórs Ásgrímssonar forsætis- ráðherra á Viðskiptaþingi í gær um að Ísland verði fullgildur meðlimur Evópusambandsins innan 10 ára er mikilvægt innlegg í umræðuna um stöðu Íslands í alþjóðasamfélag- inu.“ Þetta segir í ályktun frá Evr- ópusamtökunum. Evrópusamtökin taka undir áskorun Halldórs til við- skiptalífsins að ræða Evrópumálin á breiðum grunni. „Það er ljóst að einungis Samtök iðnaðarins hafa haldið uppi virkri umræðu um kosti og galla Evrópusambandsaðildar af öllum hagsmunasamtökum at- vinnulífsins undanfarin ár. Evrópu- samtökin vonast til að áskorun for- sætisráðherrans verði til þess að öll samtök atvinnulífsins taki sig nú saman og hefji markvissa umræðu og fræðslu um Evrópumál.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.