Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 54. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Takt
u en
ga
áhæ
ttu v
ið v
erk
lega
r
fra
mkv
æm
dir
Þar
finn
ur þ
ú m
eist
ara
og
fagm
enn
til v
erk
sins
Samtök iðnaðarins
Bolla og
aftur bolla
Sígildar uppskriftir fyrir
bolludaginn | Daglegt líf
Bílar og Íþróttir í dag
MIKIÐ var um dýrðir á Austurvelli í gær-
kvöldi þegar Vetrarhátíðin í Reykjavík var
sett þar með pomp og prakt. Þeim fjölmörgu
sem mættu á staðinn var boðið upp á suðupott
með leik, dansi og tónlist og ljós í öllum regn-
bogans litum lýstu upp skammdegið. Atriði
hátíðarinnar skipta hundruðum og sérstök
áhersla er lögð á Laugardalinn. Hátíðinni lýk-
ur á sunnudag.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vetrarhátíðin sett
ALÞJÓÐA matsfyrirtækið Moody’s
staðfesti fyrir þremur vikum láns-
hæfismat ríkissjóðs, AAA, sem er
hæsta einkunn fyrirtækisins. Krist-
in Lindow, annar af sérfræðingum
Moody’s sem sjá um lánshæfismatið
fyrir Ísland, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að fyrirtækið
hefði ekki séð ástæðu til að breyta
horfum á lánshæfismati ríkissjóðs
þá og væri enn þeirrar skoðunar.
„Við erum með hærra lánshæfismat
fyrir ríkissjóð Íslands en matsfyr-
irtækið Fitch, og við sjáum enga
ástæðu til að breyta horfum á því,“
sagði Lindow.
Lindow segir að skuldir ríkissjóðs
séu mjög litlar um þessar mundir og
staðan sé því sterk til að takast á við
hugsanleg skakkaföll. Ríkissjóður
stæði til að mynda mun betur að vígi
en árið 1999, þegar tímabundnir erf-
iðleikar steðjuðu að. „Við teljum
harla litlar líkur á því að ábyrgðir
muni falla á ríkissjóð vegna skulda
bankanna, því þeir standa það vel að
vígi,“ segir Lindow.
Stöðugar horfur fyrir bankana
Matsfyrirtækið Fitch Ratings
staðfesti í gær lánshæfismat sitt á
íslensku viðskiptabönkunum þrem-
ur, Kaupþingi banka, Landsbanka
og Íslandsbanka og svo Straumi-
Burðarási. Segir í tilkynningu frá
Fitch að horfur á lánshæfismati
bankanna séu stöðugar þrátt fyrir
að lánshæfismat ríkissjóðs vegna
skuldbindinga í innlendri og er-
lendri mynt hafi verið staðfest með
breyttum horfum, úr stöðugum í
neikvæðar, síðastliðinn þriðjudag.
Mikil umfjöllun var um veikingu
íslensku krónunnar í erlendum fjöl-
miðlum í gær í kjölfar tilkynningar
Fitch frá því á þriðjudag. „Gjaldeyr-
isórói á Íslandi breiðist út“ stóð í
fyrirsögn á vef Berlingske Tidende.
„Gengiserfiðleikar á Íslandi hafa
víðtæk áhrif,“ sagði á vef norska
sjónvarpsins og „Hrun krónunnar
hefur áhrif á heimsvísu,“ sagði í fyr-
irsögn Financial Times.
Sumir fjölmiðlar gengu mun
lengra í fyrirsögnum sínum; „Ís-
landsskipið laskast, öll rauð viðvör-
unarljós blikka á Íslandi,“ sagði
norska Dagbladet og „Ísland á
barmi kreppu,“ stóð í fyrirsögn á
forsíðu Dagens Næringsliv.
Gengi krónunnar styrktist um
1,0% í gær, eftir að það lækkaði um
tæp 2% í fyrradag og tæp 4,5% dag-
inn þar áður. Hlutabréf hækkuðu
einnig í gær. Úrvalsvísitalan hækk-
aði um 3,0% en hún lækkaði um
1,9% í fyrradag og um 3,3% á
þriðjudag.
Moody’s ósamstiga Fitch
! !"
#$%&#
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Moody’s stendur við | 6
Fitch Ratings staðfestir | 14
Onitsha, Lagos. AP, AFP. | Fullyrt er að
kristnir menn í borginni Onitsha í
suðausturhluta Nígeríu hafi drepið
að minnsta kosti áttatíu manns und-
anfarna tvo daga og ræðir þar fyrst
og fremst um múslíma. Ofbeldið
tengist birtingu skopmynda af Mú-
hameð í dagblöðum á Vesturlöndum
en morðin í Onitsha koma í kjölfar
þess að á fjórða tug kristinna manna
týndi lífi er múslímar í norðurhluta
Nígeríu efndu til óeirða vegna skop-
myndanna um síðustu helgi. Tals-
menn Borgararéttindasamtakanna,
CLO, sem aðsetur hafa í Lagos,
greindu frá því að þeir hefðu talið
a.m.k. áttatíu lík á götum Onitsha.
„Þetta var mikið blóðbað og allir
réttsýnir menn hljóta að fordæma
það. Lík manna lágu á víð og dreif
um götur Onitsha,“ sagði Emeka
Umeh, fulltrúi CLO.
Sagði hann að hinir látnu hefðu
verið brytjaðir niður með sveðjum
og hnífum, verið barðir til óbóta með
kylfum og í sumum tilfellum skotnir
til bana. Heilt íbúðarhverfi múslíma
mun hafa verið brennt til grunna.
Blóðbaðið í Onitsha hófst á þriðju-
dag en þá mun orðrómur hafa borist
um bæinn eins og eldur í sinu að
tveir flutningabílar fullir af líkum
kristinna manna, sem drepnir hefðu
verið í óeirðunum sem brutust út
meðal múslíma norðar í landinu,
væru komnir til bæjarins.
Blóðug átök í Nígeríu
Skopmyndamálið hefur leitt til morðbylgju í landinu
Bagdad. AP. AFP. | Á annað hundrað manns
hefur látið lífið í óöldinni í Írak eftir að
Gullna moskan, einn mesti helgistaður sjíta,
var stórskemmd í sprengingu. Jalal Talab-
ani, forseti landsins, skoraði í gær á lands-
menn að halda friðinn og sagði, að brytist út
borgarastyrjöld milli
sjíta og súnníta,
myndi sá eldur eng-
um eira.
Viðræður um
myndun nýrrar ríkis-
stjórnar helstu fylk-
inganna, sjíta, súnn-
íta og Kúrda, eru
farnar út um þúfur en
helstu stjórnmála-
samtök súnníta hafa
hætt þátttöku í þeim
vegna ástandsins í
landinu. Tóku súnnítar heldur ekki þátt í
neyðarfundi, sem Talabani boðaði til í gær,
en á honum var óttinn við borgarastríð í
Írak helsta umræðuefnið.
„Ástandið er ískyggilegt og um annað var
ekki talað á fundinum. Kviðu margir því,
sem kynni að gerast á morgun,“ sagði Mah-
mud Othman, einn kúrdísku fulltrúanna.
Átti hann þá við föstudagsbænirnar en oft
hefur soðið upp úr að þeim loknum. Nokkru
síðar var tilkynnt, að útgöngubannið, sem
verið hefur í Bagdad á nóttunni, myndi
gilda í dag og fram undir kvöld.
Það þótti góðs viti er sjítaklerkurinn
Muqtada al-Sadr skoraði í gær á sjíta og
súnníta að hætta hjaðningavígum en á hinn
bóginn hótuðu sjö skæruliðasamtök súnníta
að svara árásum sjíta í sömu mynt.
Á annað hundrað liggur í valnum
Tölur um mannfall eru mjög á reiki en í
gær var það að minnsta kosti komið vel á
annað hundraðið. Meðal þeirra voru 47
súnnítar, sem fundust skotnir innan um 10
brennandi bíla fyrir suðaustan Bagdad, og
þrír fréttamenn Al-Arabiya-sjónvarps-
stöðvarinnar.
Ástandið í Írak veldur áhyggjum víða og
Bandaríkjastjórn, Evrópusambandið og
Sameinuðu þjóðirnar leggja hart að írösk-
um leiðtogum að stilla til friðar.
Útgöngu-
bann í
Bagdad
Stjórnvöld óttuðust
að upp úr syði eftir
föstudagsbænir
Árás á sjíta | 16
Ungur sjíti með gullið
sitt, byssu úr plasti.
Bílar | Kia Rio er aflmesti dísilsmábíllinn Yamaha spilar út trompum
Nýr Porsche 911 frumsýndur Íþróttir | Heiðar bestur í janúar
Þórey Edda skoðar ýmsa kosti Njarðvík skoraði aðeins 51 stig