Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VETRARHÁTÍÐ Reykjavíkur verð-
ur í kvöld helguð söfnum borg-
arinnar og munu 24 söfn, gallerí og
fleiri stofnanir taka þátt í Safnanótt.
Að vanda er dagskráin fjölbreytt og
verða um hundrað sýningar og uppá-
komur um alla borg.
Dagskráin verður sett í Þjóð-
minjasafninu í kvöld kl. 19.00 og mun
Stefán Jón Hafstein, formaður
menningar- og ferðamálaráðs
Reykjavíkurborgar, setja Safna-
nóttina. Við það tilefni mun skóla-
hljómsveit Austurbæjarskóla leika
nokkur létt lög og safnanætur-
strætóar leggja af stað á þá fjöl-
mörgu staði sem taka þátt í nóttinni.
Á meðal viðburða á Safnanóttinni
verður samískt kvöld í Norræna hús-
inu en þar verða samíska söngform-
inu Joik gerð skil. Samíska söng-
konan Marit Hætta Överli hefur
fært Joik yfir í nútímalegt form en
hún kemur fram ásamt Klemet And-
ers Buljo. Auk samíska söngsins
verða fimm samískar stuttmyndir
sýndar frá klukkan 19.30 til 24.00.
Í Listasafni Reykjavíkur – Hafn-
arhúsi standa nú yfir fjórar sýn-
ingar. Boðið verður upp á leiðsögn
um sýningu Kristínar Eyfells, Fræg
andlit/Óþekktar konur. Á sýningunni
verða myndir sem Kristín málaði á
áttunda og níunda áratugnum af
þekktum andlitum í þjóðfélaginu
ásamt óþekktum konum. Hannes
Lárusson myndlistamaður annast
leiðsögnina en hún hefst klukkan
22.00 í kvöld.
Einnig verður boðið upp á leiðsögn
um sýningu Errós, en nú stendur yf-
ir sýning á verkum sem hann gerði
fyrir árið 1957 þegar hann hélt sína
fyrstu sýningu og ber hún yfirskrift-
ina Listamaður verður til. Til sýnis
eru myndir frá því að hann hóf að
teikna og frá námsárum hans og eru
þau mjög frábrugðin þeim verkum
sem hann er þekktastur fyrir. Þor-
björg Gunnarsdóttir, forstöðumaður
safnadeildar, annast leiðsögnina og
hefst hún klukkan 20.30.
Lesið upp úr bréfum
Einars Jónssonar
Í Listasafni Einars Jónssonar les
Sigurður Skúlason leikari upp úr
bréfum sem Ásgrímur Jónsson og
Jóhannes S. Kjarval sendu Einari
Jónssyni myndhöggvara á árunum
1902–1921. Stundaði Einar meðal
annars nám í Róm á þeim tíma og er
athyglisvert að heyra af upplifun Ís-
lendings á þessari heimsborg á tím-
um sem ferðalög Íslendinga til Suð-
ur-Evrópu voru ekki algeng.
Upplesturinn hefst klukkan 20.00
og verður safnið opið til 24.00.
Svart og sykurlaust
Í Gallerí humar og frægð í Kjör-
garði við Laugaveg verður opnuð
sýning klukkan 18.00 í kvöld um
götuleikhópinn Svart og sykurlaust
en hópurinn var starfandi á árunum
1983–1986. Hópurinn var brautryðj-
andi í götuleikhúsi hér á landi en
starfssemi hans var í anda leikhóps-
ins El Comediants sem kom fram
hér á landi á Listahátíð árið 1980.
Götuleikhópurinn kom víða fram hér
á landi auk þess að fara í leikferð um
Ítalíu og var meðal annars kvikmynd
gerð um þá ferð.
Auk sýningarinnar kemur hljóm-
sveitin Mammút fram auk hip-hop-
tónlistarmannanna Steve Sampling
og Beatmakin Troopa.
Öll söfn sem taka þátt í Safnanótt-
inni munu verða merkt með bláum
ljósaseríum en önnur söfn og gallerí
sem taka þátt í Safnanóttini eru Sjó-
minjasafnið í Reykjavík, Borg-
arbókasafnið í Tryggvagötu, Borg-
arskjalasafn Reykjavíkur,
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Graf-
íksafn Íslands, Listasafn Reykjavík-
ur – Kjarvalsstöðum, Grasagarður
Reykjavíkur, Menningarmiðstöðin
Gerðubergi, Árbæjarsafn, Raf-
heimar, Gallerí 100°, Listasafn Ís-
lands, Þjóðmenningarhús, Listasafn
ASÍ, Sögusafnið, Safn og Ný-
listasafnið.
Ókeypis er inn á alla viðburði
Safnanætur og mun sérlegur safna-
næturstrætó aka gestum á milli
safna. Nánari upplýsingar um dag-
skrá Safnanætur og Vetrarhátíðar er
hægt að nálgast hjá Höfuðborg-
arstofu eða á vefsíðu Vetrarhátíðar,
www.rvk.is/vetrarhatid.
Vetrarhátíð | Yfir hundrað viðburðir og sýningar í söfnum borgarinnar
Blá ljós einkenna Safnanótt
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hljómsveitin Mammút kemur fram í Galleríi Humri og frægð klukkan 19 í kvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Leiðsögn um sýningu á verkum Errós, Listamaður verður til, hefst klukkan 20.30 í kvöld.
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra mælti fyrir frum-
varpi til laga um breytingu á laga-
ákvæðum um fjármálaeftirlit á
Alþingi í gær. „Tilgangur frum-
varpsins er að skýra betur eftirlits-
heimildir Fjármálaeftirlitsins og
eyða óvissu um samspil laga um op-
inbert eftirlit með fjármálastarfsemi
og ákvæði ýmissa sérlaga sem Fjár-
málaeftirlitinu er falið að fram-
kvæma,“ sagði ráðherra.
Í frumvarpinu eru lagðar til breyt-
ingar á nokkrum lögum og sagði ráð-
herra í lok ræðu sinnar að um mikils-
vert mál væri að ræða. „Kjarni þessa
frumvarps er að taka af allan vafa
um að gildissvið laganna nái ekki að-
eins til eftirlitsskyldra aðila heldur
einnig til annarra sem heyra undir
starfsemi eftirlitsins; hnykkt er á því
að Fjármálaeftirlitið er sjálfstætt
gagnvart ráðherra, ákvæði um
kærunefnd eru felld brott, gert er
ráð fyrir því að ágreiningsmál fari
beint til dómstóla og skýrð eru enn
frekar ákvæði um virka eignarhluta
og samstarf eigenda þeirra.“
Í frumvarpinu er m.a. lagt til að
fellt verði á brott ákvæði um að fyr-
irhugaðar aðgerðir Fjármálaeftir-
litsins skuli þegar í stað tilkynntar
ráðherra. Össur Skarphéðinsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
gerði ákvæðið að umtalsefni og sagði
að samkvæmt því hefði ráðherra
lagalegan rétt og hugsanlega skyldu
til að tjá sig um
aðgerðaleysi
Fjármálaeftirlits-
ins. „Samkvæmt
þessu hefur ráð-
herra t.d. lagaleg-
an rétt til að tjá
sig við Fjármála-
eftirlitið varðandi
það hvort eftirlit-
ið hefði átt að
grípa til aðgerða
vegna hugsanlegra rangra upplýs-
inga um eignarhlut þýsks banka í
Búnaðarbankanum þegar hann var
einkavæddur.“
Valgerður svaraði því til að sér
fyndist óæskilegt að ráðherra tjáði
sig um gjörðir Fjármálaeftirlitsins.
„Eftirlitið er sjálfstætt og vinnur
sjálfstætt. Og með því að taka þetta
ákvæði út úr lögunum, sem við leggj-
um til, erum við að hnykkja á því að
það er sjálfstætt,“ sagði hún.
Össur Skarphéðinsson tók þó
fram í umræðunum að hann væri
býsna ánægður með frumvarpið.
Hann sagði að þingmenn Samfylk-
ingarinnar hefðu talað fyrir sterkum
eftirlitsstofnunum. Hann sagði jafn-
framt að íslenskur fjármálamarkað-
ur væri enn á bernskuskeiði og að
honum hefði stundum fundist sem
fyrirtæki og athafnamenn hefðu
teygt sig út á ystu nöf; einstakir at-
hafnamenn hefðu farið út á hið gráa
svæði og jafnvel handan við það.
Eftirlitsheim-
ildir skýrðar
Valgerður
Sverrisdóttir
JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra sagði á Al-
þingi á þriðjudag að skýrsla sér-
fræðinga og yfirmanna sjúkra-
tryggingasviðs Tryggingastofnunar
ríkisins (TR) um réttlátari not-
endagjöld í sjúkratryggingum hér
á landi, væri meingölluð. Hann
kvaðst jafnframt vera ósammála
veigamiklum þáttum í skýrslunni.
„Ætlast menn til þess að notenda-
gjöld á öldruðum, börnum eða ör-
yrkjum séu hækkuð til að einfalda
kerfið? Er það það sem menn ætl-
ast til? Ég er ósammála þessu.“
Ásta R. Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, spurði
ráðherra út í skýrsluna í upphafi
þingfundar. Hún sagði að í skýrsl-
unni kæmi fram réttmæt gagnrýni
á greiðsluþátttökureglur. Í skýrsl-
unni væri sömuleiðis talið nauðsyn-
legt að taka til gagngerrar endur-
skoðunar allt regluverk um
greiðsluþátttöku sjúkratrygginga;
reglurnar yrði að endurskoða og
einfalda til að tryggja jöfnuð.
Ásta sagði að skýrslan hefði ver-
ið nokkuð í fréttum en þó hefði hún
ekki verið birt opinberlega. Hún
spurði hvers vegna svo hefði ekki
verið. Jafnframt óskaði hún eftir
því að skýrslan yrði kynnt í heil-
brigðis- og trygginganefnd þings-
ins. Ráðherra sagði að skýrslan
væri aðgengileg bæði hjá ráðuneyt-
inu sem og hjá TR. Hann sagði að-
spurður að hún væri þó ekki komin
á netið.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Framsóknarflokks og
stjórnarformaður TR, sagði að
skýrslan hefði verið kynnt ræki-
lega á stjórnarfundi TR fyrir helgi.
Þar hefði komið fram að skýrslan
væri opinbert gagn; engin leynd
hvíldi yfir henni. Hann sagði enn-
fremur athyglisvert að í skýrslunni
kæmi m.a. fram að notendagjöld
drægju lítið úr kostnaði við heil-
brigðiskerfið. Hann sagði að í
skýrslunni væru atriði sem vert
væri að skoða.
Segir skýrslu um
sjúkratrygging-
ar meingallaðaÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttirmenntamálaráðherra sagði á Alþingi í
gær að unnið væri að því að leysa
vanda Háskólans á Akureyri. „Ég vil
ítreka að aldrei hefur verið um nið-
urskurð að ræða til Háskólans á Ak-
ureyri og það er afskaplega mikilvægt
að við hlúum vel að þessari merkilegu
og mikilvægu menntastofnun.“
Hún sagði að unnið væri að því, í
samvinnu við rektor HA, að fara yfir
fjárhag skólans. „Það höfum við auð-
vitað gert með það í huga að gera
hann sterkari og öflugri til að ganga
til móts við nýja tíma, aukna sam-
keppni og fleira í háskólamálum.“
Hún tók fram að nemendum Háskól-
ans á Akureyri hefði fjölgað um 123%
á árunum frá 2000 til 2005. Fjárveit-
ingar til skólans hefðu á sama tímabili
aukist um 113% á föstu verðlagi. Vel-
vilji Alþingis til skólans væri því alveg
skýr.
Kristján L. Möller, þingmaður
Samfylkingarinnar, var málshefjandi
umræðunnar um Háskólann á Ak-
ureyri. Hann sagði m.a. að aukin
verkefni skólans yrðu ekki fjár-
mögnuð með núverandi rekstrarfé
skólans. Hann hvatti ráðherra til að
vinna málefnum skólans brautargengi
innan ríkisstjórnarinnar og innan
fjármálaráðuneytisins. Hann sagði
jafnframt mikilvægt að samhljómur
yrði um málefni skólans meðal póli-
tískra flokka; málefni skólans mættu
ekki verða að pólitísku bitbeini.
Unnið að því að
leysa vanda
Háskólans
á Akureyri