Morgunblaðið - 24.02.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RÆKJUVERKSMIÐJAN Meleyri
á Hvammstanga, ein elsta rækju-
verksmiðja landsins, hefur sagt upp
öllu starfsfólki sínu, rúmlega tuttugu
talsins, með lögbundnum uppsagnar-
fresti. Ástæðan eru þeir rekstrarerf-
iðleikar sem rækjuiðnaðurinn hefur
átt við að glíma síðustu misserin, en
rækjuverksmiðjum á landinu hefur
fækkað úr 20 í 8 á síðustu sjö árum.
Ólafur Bjarni Halldórsson, starf-
andi stjórnarformaður fyrirtækisins,
sagði að rekstrarskilyrði rækjuiðn-
aðarins hefðu versnað það mikið
einkum undanfarin tvö ár að óumflýj-
anlegt hefði verið að undirbúa
rekstrarstöðvun. Þar spili stærstu
rulluna lækkandi afurðaverð en það
hafi lækkað á síðustu sjö árum í er-
lendri mynt um rúmlega þriðjung.
Þá skipti hátt gengi íslensku krón-
unnar einnig verulegu máli og loks
hafi innlendur kostnaður aukist mik-
ið síðustu árin, en laun hafi til að
mynda hækkað um 57% á þessu
tímabili.
„Með þessar rekstrarforsendur er
næsta undarlegt hvað menn hafa
haldið lengi út,“ sagði Ólafur og bætti
við að það segði sína sögu að árið
1999 hefðu verið starfandi 20 rækju-
verksmiðjur í landinu, en nú væru
þær 8 talsins og hann spáði því að að
óbreyttu yrðu ekki margar eftir um
áramót.
„Við héldum fund með okkar fólki í
gær (í fyrradag) og útskýrðum
kringumstæðurnar og sögðum því að
við ættum engan annan kost en að
grípa til uppsagna. Við létum það
jafnframt fylgja að ef rekstrarskil-
yrðin bötnuðu, sem við höfum lengi
beðið eftir að gerðist, myndum við
tvímælalaust halda rekstrinum
áfram,“ sagði Ólafur Bjarni ennfrem-
ur.
Hann bætti því við að þeir hefðu
keypt rækjuverksmiðjuna í apríl
1999 eða fyrir tæpum sjö árum síðan
og á þessu tímabili hefði verksmiðjan
ekki stöðvast nema í 2-3 mánuði sam-
anlagt. Hún hefði verið stofnuð árið
1972 og væri því sennilega elsta
rækjuverksmiðja landsins.
Meleyri á Hvammstanga
segir upp öllu starfsfólki sínu
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
HÓLMFRÍÐUR Bjarnadóttir,
starfsmaður stéttarfélagsins Sam-
stöðu á Hvammstanga, sagði að
ýmsar blikur væru á lofti í atvinnu-
málum í héraðinu, en fólk væri
samt vongott um að úr rættist.
Hún sagði að auk uppsagnanna
hjá Meleyri myndu síðustu starfs-
mennirnir í saumastofunni hætta
eftir rúman mánuð, fimm misstu
þar vinnuna auk þess sem skipu-
lagsbreytingar stæðu yfir hjá kaup-
félaginu. Eigendaskipti hefðu orðið
að sláturhúsinu um áramót og end-
urskoðun stæði yfir á verslunar-
rekstrinum sem myndi þýða ein-
hverja fækkun starfa. Þá myndi
fækka á skrifstofunni hjá kaup-
félaginu og Heilbrigðisstofnunin á
staðnum hefði þurft að skera mikið
niður undanfarin ár og það væri
aldrei að vita hvað það þýddi ef
framhald yrði á í þeim efnum.
„Fólk hér í Húnaþingi vestra er
afskaplega duglegt að finna ýmsar
leiðir í atvinnumálum. Hér eru
mörg smáfyrirtæki og fólk nokkuð
frjótt í þeim efnum,“ sagði Hólm-
fríður og benti á að staðurinn væri
afskaplega vel í sveit settur miðja
vegu milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar í blómlegu landbúnaðarhéraði
sem væri til dæmis mjög hentugt til
sauðfjárræktar.
Hún bætti því við að þetta væri
erfiðasti tíminn í atvinnumálum á
svæðinu, frá því í enduðum október
og fram á útmánuði.
Blikur á lofti
Mbl./Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Morgunblaðið/Ómar
ÞAÐ hefur viðrað vel til útivinnu að undanförnu enda
verið einmuna tíð. Byggingarnar þjóta upp í nýju
hverfunum og ekki ónýtt að leggja á þakdúk eins og
viðraði í gær með útsýni til Vífilsfellsins eins og á
myndinni sem tekin er við Andarhvarf í Kópavogi. Það
er ekkert útlit fyrir að þetta breytist því spáð er hæg-
lætisveðri um helgina og hita yfir frostmarki lengst af
um mestallt land.
Hæglætisveður um helgina
BÆJARSTJÓRN Vestmannaeyja fundaði í gær-
kvöldi þar sem meðal annars var tekin fyrir af-
greiðsla skólamálaráðs um að fresta sameiningu á
leikskólum bæjarins. Var tillagan samþykkt og
klofnaði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vest-
mannaeyjalista í málinu. Þrátt fyrir það lýstu
fulltrúar beggja yfir að samstarfið héldi áfram.
Mikil vinna hefur farið í það undanfarna mánuði
að vinna að sameiningu grunn- og leikskóla bæj-
arins og átti að afgreiða málið á fundinum. Var sam-
þykkt að sameina grunnskóla bæjarins undir eina
yfirstjórn en sameiningu leikskólana frestað. Þrír
leikskólar eru starfandi í Eyjum. Sjálfstæðisflokkur
og Vestmannaeyjalisti mynda meirihluta í bæjar-
stjórn. Hafa framboðin sex fulltrúa af sjö. Sjálf-
stæðisflokkur vildi fresta sameiningunni og leita
annarra leiða til að ná fram hagræðingu. Ásamt
fulltrúum Sjálfstæðisflokks greiddi Andrés Sig-
mundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, at-
kvæði með tillögunni. Lúðvík Bergvinsson, oddviti
Vestmannaeyjalistans, las upp bókun þar sem kom
m.a. fram að tillagan skapaði mikla óvissu um leik-
skólamál í bænum og að þarna hefði hagsmunum
heildarinnar verið fórnað fyrir sérhagsmuni.
Sjálfstæðismenn furðuðu sig á afstöðu Vest-
mannaeyjalistans að ganga gegn afstöðu skóla-
málaráðs og vísuðu því á bug að tillagan mundi
koma niður á þjónustu leikskólanna.
Andrés Sigmundsson sagði eftir atkvæðagreiðsl-
una að þetta væri staðfesting á því að núverandi
meirihlutasamstarf væri í upplausn og það væri
stóralvarlegt mál fyrir Vestmannaeyjar. Lúðvík
Bergvinsson og Elliði Vignisson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, fóru báðir í pontu og lýstu því yfir
að samstarfið héldi þrátt fyrir ágreining í þessu
máli. Lúðvík sagði að meirihlutinn hefði náð miklum
árangri og ætlaði að halda því starfi áfram.
Á kjörtímabilinu hafa þrír meirihlutar starfað í
bæjarstjórn Vestmannaeyja. Fyrst Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur, síðan Vestmanna-
eyjalisti og Framsóknarflokkur og loks Sjálfstæð-
isflokkur og Vestmannaeyjalisti.
Meirihlutinn klofnaði en heldur enn
Sameiningu leikskóla Vestmannaeyjabæjar frestað á fundi bæjarstjórnar
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir
karlmanni á fertugsaldri fyrir að
hafa haft samræði við tvítuga stúlku
á meðan hún gat ekki spornað við
verknaðinum sökum ölvunar og
svefndrunga. Maðurinn var dæmdur
til átján mánaða fangelsisvistar og til
að greiða fórnarlambi sínu 800 þús-
und krónur í miskabætur. Hann var
jafnframt dæmdur til greiðslu sak-
arkostnaðar, rúmlega 1,1 milljónar
króna.
Málsatvik voru þau að í júní árið
2004 hélt stúlkan samkvæmi á heim-
ili sínu þar sem ákærði var gestkom-
andi. Undir morgun sofnaði stúlkan í
svefnherbergi sínu með karlmanni á
svipuðum aldri en þegar hún vaknaði
lá hins vegar ákærði ofan á henni og
kom vilja sínum fram.
Í dómnum kom fram að framburð-
ur stúlkunnar hefði verið afar trú-
verðugur og hún sjálfri sér sam-
kvæm. Ráða mátti af framburði
læknis og sálfræðings að brotið hefði
haft andlegar afleiðingar fyrir hana
og við ákvörðun refsingar ákærða er
litið til þess að hann var sakfelldur
fyrir alvarlegt brot sem hefur beinst
gegn persónu- og kynfrelsi ungrar
stúlku.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Garðar
Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir,
Hrafn Bragason og Markús Sigur-
björnsson. Brynjar Níelsson hrl.
varði manninn en sækjandi var Sig-
ríður J. Friðjónsdóttir saksóknari
ríkissaksóknara.
18 mánaða
fangelsi fyr-
ir nauðgun
RÍKISKAUP hafa valið sex skipa-
smíðastöðvar til áframhaldandi þátt-
töku í forvali um hönnun og smíði á
nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæslu
Íslands. Upphaflega tóku 15 fyrirtæki
þátt í forvalinu, öll erlend. Fyrirtækin
sem uppfylltu settar kröfur eru Aker í
Noregi, Asmar í Chile, Bergen í Nor-
egi, Damen í Hollandi, Peene – Werft
í Þýskalandi og SIMEK í Noregi.
Sex skipasmíða-
stöðvar í forvali
♦♦♦