Morgunblaðið - 24.02.2006, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ALÞJÓÐAMATSFYRIRTÆKIÐ
Moody’s staðfesti fyrir þremur vik-
um lánshæfismat ríkissjóðs, AAA,
sem er hæsta einkunn fyrirtækisins.
Kristin Lindow, annar af sérfræð-
ingum Moody’s sem sér um lánshæf-
ismatið fyrir Ísland, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að fyrirtæk-
ið hefði ekki séð ástæðu til að breyta
horfum á lánshæfismati ríkissjóðs
þá og sé enn þeirrar skoðunar.
„Við erum með hærra lánshæfis-
mat fyrir ríkissjóð Íslands en mats-
fyrirtækið Fitch, og við sjáum enga
ástæðu til að breyta horfum á því,“
sagði Lindow. Hún hefur verið sér-
fræðingur í lánshæfismati hjá Mood-
y’s fyrir Ísland í 12 ár.
Lindow sagði að vinnan við að
meta lánshæfi ríkissjóðs sé verkefni
sem sé stöðugt í gangi. Fyrir þrem-
ur vikum hefðu sérfræðingar fyrir-
tækisins þó tilkynnt Seðlabankanum
að Moody’s sæi ekki ástæðu til að
gera nokkrar breytingar á matinu.
Ekki hefði heldur þótt ástæða til að
senda út fréttatilkynningu vegna
þessa.
Mjög litlar skuldir
Lindow sagði að Moody’s hefði áð-
ur bent á að ýmsar hættur væru
framundan í íslensku efnahagslífi,
meðal annars vegna mikils við-
skiptahalla og skuldsetningar ís-
lenskra heimila og fyrirtækja og að
þörf væri á aðhaldi í fjármálastjórn
hins opinbera. „Við teljum þó að það
sé ekki hætta á því að lánskjör rík-
isins versni né að gæði bankanna
sem skuldara muni versna,“ sagði
hún.
Hún sagði að skuldir ríkissjóðs
væru mjög litlar um þessar mundir
og staðan væri því sterk til að takast
á við hugsanleg skakkaföll. Ríkis-
sjóður stæði til að mynda mun betur
að vígi nú en árið 1999 þegar tíma-
bundnir erfiðleikar steðjuðu að, sem
tekist hefði þá að leysa með farsæl-
um hætti.
„Við teljum harla litlar líkur á því
að ábyrgðir muni falla á ríkissjóð
vegna skulda bankanna, því þeir
standa það vel að vígi. En jafnvel
þótt það myndi koma til, þá teljum
við að það myndi ekki hafa áhrif á
lánshæfismat ríkissjóðs, meðal ann-
ar vegna þess hve skuldir ríkissjóðs
hafa lækkað mikið og vaxtabyrðin
þar með minnkað og vegna ýmissa
fleiri atriða.“
Lindow sagðist ekki vilja tjá sig
um þá ákvörðun matsfyrirtækisins
Fitch Ratings, að breyta horfum á
lánshæfismati ríkissjóðs vegna
skuldbindinga í innlendri og erlendri
mynt úr stöðugum í neikvæðar, sem
greint var frá fyrr í þessari viku.
Moody’s stendur við hæsta
lánshæfismat ríkissjóðs
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN for-
seta Íslands voru veitt í gær við
athöfn á Bessastöðum. Fjögur
verkefni voru tilnefnd í þetta
skiptið en það var verkefnið Sport-
Cool – Ný tækni til að lina þján-
ingar við íþróttameiðsl sem hlaut
verðlaunin í ár. Að verkefninu
standa Jón Steinar Garðarsson
Mýrdal eðlisfræðinemi og Sig-
urður Örn Aðalgeirsson rafmagns-
verkfræðinemi.
Í rökstuðningi dómnefnar kom
fram að mjög erfitt hefði verið að
velja á milli verkefnanna fjögurra
en þegar upp var staðið hefði valið
byggst á nýsköpunargildi verkefn-
isins og hagnýtingarmöguleikum
þess. Taldi dómnefndin Sport-Cool
verkefnið uppfylla þessi skilyrði
best en horft sé mjög mikið til ný-
sköpunargildisins og taldi dóm-
nefndin Sport-Cool verkefnið vera
líklegra til að ná víðari útbreiðslu
en hin verkefnin. Tæknin gæti
mögulega komið í stað kælipoka til
að lina sársauka við íþróttameiðsl.
Nýsköpunarverðlaun afhent
Morgunblaðið/Eggert
Sigurður Örn Aðalgeirsson og Jón Steinar Garðarsson Mýrdal taka við verðlaununum úr hendi Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, en í verkefni þeirra er kynnt ný tækni til að lina þjáningar vegna íþróttameiðsla.
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær tillögu Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur borg-
arstjóra þar sem áréttaður er
ásetningur borgaryfirvalda um
að einbýlis- og parhúsalóðir í
Úlfarsárdal séu ætlaðar fjöl-
skyldum til að byggja sér hús-
næði, en ekki verktökum. Til-
lagan var samþykkt með fjórum
samhljóða atkvæðum.
Í greinargerð borgarstjóra
sem fylgdi tillögunni kemur fram
að gert sé ráð fyrir að bygging-
arverktakar standi að uppbygg-
ingu fjölbýlis- og raðhúsa en
byggingarréttur á einbýlis- og
parhúsalóðum gangi til ein-
staklinga. „Þeim markmiðum
verður náð með því að hver ein-
staklingur geti aðeins keypt
byggingarrétt á einni lóð undir
sérbýli,“ segir í greinargerðinni.
Tilefni tillögunnar er nið-
urstaða útboðs á lóðum sem fram
fór á svæðinu á dögunum en þar
átti Benedikt Jósepsson bygg-
ingameistari hæsta tilboð í 39 af
40 einbýlishúsalóðum.
Benedikt mun fá að velja sér
þá lóð sem hann kýs, sá er átti
næsthæsta tilboðið hefur þá
næsta valkost og svo koll af
kolli.
Þegar Morgunblaðið náði tali
af Benedikt hafði hann ekki
ákveðið hvort unað yrði við nið-
urstöðu borgaryfirvalda. Hann
segir að vel þurfi að fara yfir
málið áður en til ákvörðunar
komi.
Aðeins einni lóð
úthlutað á mann
í Úlfarsárdal
FASTEIGNAVERÐ hefur staðið í
stað á undanförnum mánuðum og
skýr merki eru um að þær verð-
hækkanir, sem einkenndu fast-
eignamarkaðinn í upphafi síðasta
árs, séu í rénun. Þá hefur velta á
markaði á höfuðborgarsvæðinu
minnkað sem sýnir að markaður-
inn er að róast.
Þetta kemur fram í nýju vefriti
fjármálaráðuneytisins. Þar er bent
á að ef framhald verði á þessari
þróun muni það hafa áhrif á vísi-
tölu neysluverðs og þar með verð-
bólgu en tvo þriðju hækkunar vísi-
tölunnar á síðustu tólf mánuðum
megi rekja til fasteignaverðsins.
Vísitalan hafi hækkað um 4,2%
síðustu tólf mánuði, en einungis
um 1,5% sé fasteignaverðið undan-
skilið.
Hækkun á
fasteignamarkaði
talin í rénun
TÍMAMÓT hafa orðið í stúdentapólitíkinni með
samstarfi tveggja helstu fylkinganna innan Háskóla
Íslands, Vöku og Röskvu.
Að loknum kosningum til Stúdentaráðs og Há-
skólaráðs 8. og 9. febrúar fékk engin fylking hrein-
an meirihluta og varð því að mynda starfhæfan
meirihluta. Í gær var Sigurður Örn Hilmarsson,
oddviti Vöku, kjörinn formaður Stúdentaráðs í gær
og framkvæmdastjóri er Ásgeir Runólfsson, oddviti
Röskvu.
Að sögn Sigurðar Arnar eru skemmtilegir tímar
framundan hjá Stúdentaráði og segist hann hafa
trú á glæsilegri hagsmunabaráttu stúdenta. „Við
njótum 90% fylgis kjósenda og ættum að geta orðið
öflugir málsvarar stúdenta á næsta ári,“ segir
hann. „Jafnvel þótt Vöku og Röskvu hafi greint á í
ýmsum málum erum við þó sammála um að við vilj-
um gera góðan skóla enn betri og það er grundvöll-
ur þessa samstarfs.“
Ásgeir Runólfsson tekur í sama streng og segir
90% stuðning stúdenta gefa Stúdentaráði tækifæri
til að vera sterk rödd út á við. „Ræða þarf um fjár-
svelti Háskóla Íslands sem allir eru sammála um að
sé til staðar en enginn gerir neitt í,“ segir hann.
„Við þurfum einnig að beita okkur fyrir fleiri mál-
um innan háskólans s.s. endurtektarprófum í jan-
úar og júní. Ég bind miklar vonir við öflugra Stúd-
entaráð og við viljum efla það til enn meiri
virðingar en nú er.“
Vaka og Röskva til samstarfs
Morgunblaðið/Ómar
Fulltrúar sameinaðs Stúdentaráðs HÍ. Sigurður Örn
Hilmarsson og Ásgeir Runólfsson.
„Sammála um að við viljum
gera góðan skóla enn betri “
TVEIR starfsmenn Enex í El Salva-
dor hafa verið kallaðir heim til Ís-
lands tímabundið þar sem fundað
verður með þeim og farið yfir örygg-
ismál. Er það gert í kjölfar þess að
Jón Þór Ólafsson, sem starfaði sem
staðarverkfræðingur fyrir Enex,
fannst látinn á afskekktu svæði rétt
fyrir utan San Salvador, höfuðborg
landsins, 12. febrúar síðastliðinn.
Lárus Elíasson, framkvæmda-
stjóri Enex, segir ljóst að staða
starfsmanna í El Salvador verði
endurmetin ásamt því að rækilega
verði farið í gegnum öryggisatriði.
Aðspurður hvort starfsmönnum
verði settar takmarkanir í frístund-
um, segir Lárus að í ljósi liðinna at-
burða sé tæpast þörf á því. Hann
vildi þó engar yfirlýsingar gefa um
hvers lags breytingar yrðu á högum
íslensku starfsmannanna, né hve-
nær þeir myndu snúa aftur til El
Salvador. Enex vinnur við gerð jarð-
varmaorkuvers í landinu og að jafn-
aði hafa tveir til fjórir Íslendingar
starfað á vegum fyrirtækisins þar
syðra frá því vorið 2005.
Litlar upplýsingar
Rannsókn á morðinu á Jóni Þór
og Brendu America Salinas, sem
fundust skotin til bana, gengur hægt
en einnig virðist erfitt að afla upp-
lýsinga frá lögreglunni í San Salva-
dor. Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
hefur reynt að fylgjast með rann-
sókn lögreglunnar og að sögn
Smára Sigurðssonar, yfirmanns al-
þjóðadeildar ríkislögreglustjóra,
hafa fyrirspurnir ítrekað verið send-
ar þangað en fá sem engin svör
fengist.
Ljóst er að enginn liggur undir
grun enn og óljóst er um tilefni
morðanna.
Starfsmenn Enex í El Salvador
Meiri varkárni
verður gætt
KOMIN er ný þýðingartillaga að
Nýja testamentinu á heimasíðu Bibl-
íufélagsins, www.biblian.is. Í þessari
nýju tillögu frá þýðingarnefnd Nýja
testamentisins hefur verið tekið tillit
til þeirra fjölmörgu athugasemda
sem bárust við upphaflegri þýðing-
artillögu sem kynnt var sl. vor.
Áhugasömum gefst tækifæri til að
skoða þessa nýju þýðingartillögu og
senda inn athugasemdir og leiðrétt-
ingar ef einhverjar eru. Skilafrestur
getur þó ekki orðið langur að þessu
sinni, allar athugasemdir þurfa að
hafa borist í síðasta lagi 15. mars
nk., segir í fréttatilkynningu.
Ný þýðingartil-
laga að Nýja
testamentinu
HIÐ nýja bílahús á Laugavegi hef-
ur hlotið nafnið Stjörnuport.
Reykjavíkurborg efndi til nafna-
samkeppni og hlutskarpastur var
Heimir Bergmann Hauksson, íbúi í
Grafarvogi. Verðlaunin voru afhent
í gær og fékk Heimir að launum
fyrir nafnatillöguna gjafakort Mið-
borgarinnar að upphæð 50 þúsund.
Hægt var að senda inn tillögur
frá því í lok nóvember sl. þegar
bílahúsið var opnað og fram að Þor-
láksmessu og bárust alls 1000 til-
lögur frá um 1800 aðilum. Nafna-
nefnd borgarinnar sá svo um að
velja úr tvær tillögur sem Fram-
kvæmdaráð Reykjavíkurborgar
valdi síðan á milli.
Bílahúsið
Stjörnuport