Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þér er óhætt að fella grímuna, bara borga, það er ekkert meira leyndó.
Matur getur veriðstórt vandamál ílífi fólks og þeir
sem haldnir eru átfíkn af
einhverju tagi glíma við
ýmsa erfiðleika, eins og
þunglyndi, þráhyggju og
einmanaleika. OA-samtök-
in (overeaters anonymous)
hafa verið starfrækt hér á
landi í 24 ár en í Bandaríkj-
unum hafa þau verið til frá
árinu 1960. Á undanförn-
um árum hefur starfsemi
OA hér á landi styrkst og
eflst og eru 17 OA-deildir starf-
ræktar á landinu, þar af 12 á höf-
uðborgarsvæðinu.
OA-samtökin eru ætluð fólki
sem vill losna úr viðjum matarfíkn-
ar með því að takast á við vanda-
málið einn dag í senn, á sama hátt
og félagar í AA-samtökunum, sem
takast á við áfengis- og vímuefna-
fíkn, gera. Innan OA er unnið eftir
sama 12 spora kerfi og innan AA,
en fyrsta sporið í kerfinu felst í því
að fólk viðurkenni vanmátt sinn
gagnvart mat og að það geti ekki
lengur stjórnað eigin lífi.
Lífið snýst um mat
Það sem einkennir fólk sem
glímir við átfíkn er að það hefur
ekki stjórn á því magni fæðu sem
það innbyrðir. Líf þess fer að snú-
ast um mat, hvað viðkomandi ætli
að borða, hvenær og hversu mikið.
Smám saman getur þetta ástand
leitt til þess að fólk einangrast frá
öðrum og það verður þunglynt.
Margir þyngjast mikið og fólk
skammast sín gjarnan fyrir átið, en
gengur illa að hafa stjórn á mat-
aræðinu. Það reynir oft að ná tök-
um á ástandinu og ráðgerir megr-
unarkúra og líkamsræktarátök
meðan á ofáti stendur.
Slíkar leiðir duga þó yfirleitt
skammt og fólk dettur aftur í sama
farið að nýju. Dæmi um erfiðar að-
stæður sem fólk með matarfíkn
lendir í eru veislur og aðrir mann-
fagnaðir, þar sem gnægð girnilegs
matar er í boði. Viðkomandi verður
þá heltekinn af hugsunum um
hvort einhver taki eftir því ef hann
fer fjórar ferðir að veisluborðinu
og á því erfitt með að einbeita sér
að samskiptum við annað fólk í
boðinu.
Þeir sem glíma við matarfíkn og
hafa leitað til OA á Íslandi eru á
mismunandi aldri og koma úr ólík-
um þjóðfélagshópum. Þeir sem
sækja fundi samtakanna eru allt
frá unglingsaldri og upp í fólk sem
komið er á eftirlaun. Marga má
skilgreina sem ofætur, þ.e. fólk
sem borðar of mikið og er langt yfir
kjörþyngd. Í samtökunum er einn-
ig fólk sem ekki er of feitt en hefur
stundað ofát á köflum, eða neytir
sætinda í miklu óhófi og sniðgeng-
ur að mestu aðra fæðu.
Töluvert margir sem leita til OA
hafa þjáðst af átröskunarsjúk-
dómnum búlímíu, og aðrir hafa
fengið anorexíu.
Á endastöð
Margir sem leita til OA telja sig
komna á endastöð þegar þeir koma
þangað. Þeir hafa þá reynt ýmis-
legt til að losa sig við matarárátt-
una, svo sem megrunarkúra af
ýmsu tagi, átaksnámskeið, föstu og
fleira. Hjá OA eru haldnir fundir í
viku hverri þar sem fólk greinir frá
reynslu sinni og nýtir sér 12 spora
kerfið til að reyna ná bata. Sam-
tökin mæla með því að þeir sem
ekki hafa leitað þangað áður mæti
á byrjendafundi, en einnig eru
starfræktir sérstakir hópar innan
samtakanna, svo sem karlahópur,
sem hittist reglulega.
OA-samtökin líta á matarfíkn
sem sjúkdóm, en gefa sig þó ekki
út fyrir að vera meðferðaraðilar,
heldur er markmið starfseminnar
að fólk hjálpi sjálfu sér og öðrum í
sömu sporum. Engin félagaskrá er
haldin, nafnleynd ríkir út á við og
allt sem fram fer á fundunum er
trúnaðarmál. Engin þátttökugjöld
eru hjá samtökunum og deildir
þeirra eru reknar með fé sem fé-
lagar leggja sjálfir til. Þau tengjast
engum félagsskap öðrum, pólitísk-
um, trúarlegum eða hugmynda-
fræðilegum, og taka ekki afstöðu
til málefna annarra en sinna eigin.
Margir gera mataráætlanir
Auk þess að starfa samkvæmt
12 spora kerfinu stunda félagar í
OA svonefnt fráhald, sem merkir
að þeir halda sig frá ofáti. Á heima-
síðu OA segir að fyrir marga félaga
tákni fráhald miklu meira en það
að sleppa því að borða of mikið. Það
feli ekki aðeins í sér frelsi frá mat,
heldur einnig frá neikvæðum hugs-
unarhætti. Mismunandi er hvaða
reglur fólk setur sér til þess að ná
því markmiði að losa sig undan
matarfíkn. Margir gera sérstakar
mataráætlanir í upphafi, ýmist fyr-
ir matartegundir og matar-
skammta. Fyrir aðra er matar-
áætlunin breiður rammi sem veitir
meiri sveigjanleika í viðleitni við-
komandi til að halda sig frá ofáti og
stunda fráhald.
Á sunnudag, 26. febrúar, verður
árlegur kynningarfundur OA-
samtakanna. Þar munu fjórir fé-
lagar segja frá reynslu sinni af OA
og er öllum sem áhuga hafa á starfi
samtakanna velkomið að kynna sér
það. Fundurinn verður haldinn
klukkan 14–16 í Héðinshúsinu á
Seljavegi 2 í Reykjavík.
Fréttaskýring | OA-samtökin aðstoða fólk
sem glímir við matarfíkn
Herjar á fólk
á öllum aldri
Margir sem leita til OA hafa farið ýmsar
leiðir til að losna við matarfíknina
Sætindi reynast matarfíklum erfið freisting.
Borðar þú þótt þú sért
ekki svangur/svöng?
Borðar þú þegar þú ert ekki
svangur/svöng? Þessa spurningu
má finna í sjálfsprófi sem hægt
er að taka á vef OA-samtakanna,
telji fólk að það kunni að vera
haldið matarfíkn. Í prófinu er
fólk meðal annars spurt hvort
það skipuleggi át sitt leynilega
eða eyði miklum tíma og hugsun
í mat. Einnig er spurt hvort fólk
borði til að flýja áhyggjur og
vandræði eða finni til sektar eftir
að hafa borðað yfir sig.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
TENGLAR
...........................................
oa.is