Morgunblaðið - 24.02.2006, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
BAUGSMÁLIÐ
SIGURÐUR Tómas Magnússon,
settur saksóknari í Baugsmálinu, hóf
málflutning sinn fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gærmorgun á því að
taka fram að enn væri verið að afla
frekari gagna vegna þeirra 32ja
ákæruliða sem Hæstiréttur vísaði frá
dómi í haust, m.a. til að kanna hvort
ákæra yrði gefin út að nýju. Sú aðal-
meðferð, sem nú stendur yfir í
Baugsmálinu, snertir aðeins þá átta
ákæruliði sem eftir stóðu af uppruna-
legu ákæruliðunum fjörutíu sem rík-
islögreglustjóri gaf út á hendur for-
svarsmönnum Baugs og annarra sl.
sumar.
Sigurður Tómas rifjaði upp að-
draganda þess að ríkislögreglustjóri
gaf út ákæruna. Sagði hann rann-
sóknina hafa teygt anga sína víða frá
því að hún hófst árið 2002 með húsleit
í aðalskrifstofum Baugs Group, m.a.
til Lúxemborgar, Bandaríkjanna og
Færeyja auk Íslands. Rannsóknin
hefði staðið sleitulaust yfir allan
þennan tíma ef frá væru taldar
nokkrar vikur þegar líkfundarmálið
svokallaða tók allan tíma rannsókn-
araðila. Tók hann fram að í öllu ferl-
inu hefði sjálfstæði rannsóknaraðila
verið tryggt.
Átta ákæruliðir
– sex sakborningar
Sigurður gerði næst grein fyrir
þeim lögum sem meint brot hinna
ákærðu eru talin varða, þ.e. brotum á
ársreikningum, almennum hegning-
arlögum og tollalögum. Sex af þeim
átta ákæruliðum sem eftir standa
varða meint brot Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, forstjóra Baugs, fjórir
varða meint brot Tryggva Jónssonar,
fyrrverandi forstjóra Baugs, og
sömuleiðis Stefáns Hilmarssonar,
fyrrverandi endurskoðanda Baugs,
og tveir varða meint brot Önnu Þórð-
ardóttur sem var endurskoðandi
Baugs. Þá varðar einn ákæruliður
meint brot Jóhannesar Jónssonar,
fyrrverandi stjórnarmanns Baugs,
og einnig varðar einn ákæruliðanna
brot dóttur hans, Kristínar Jóhann-
esdóttur, sem var m.a. framkvæmda-
stjóri Gaums.
Sigurður skipti málflutningi sínum
í tvennt; í fyrri hluta fjallaði hann um
ákæruliði er snerta brot gegn al-
mennum hegningarlögum og lögum
um ársreikninga og Jón Ásgeir,
Tryggvi, Stefán og Anna eru ákærð
fyrir. Felast ákæruatriðin aðallega í
meðferð lána til stjórnarmanna, hlut-
hafa og framkvæmdastjóra Baugs og
tengdra félaga, m.a. Gaums og Fjár-
fars, sem ekki eru sundurliðuð og
skýrð í ársreikningum fyrir árin
1998–2002. Í síðari hluta málflutn-
ings síns fjallaði Sigurður um bílainn-
flutning og ætluð brot Jóns Ásgeirs,
Jóhannesar og Kristínar, sem talin
eru varða tollsvik og rangfærslu
skjala.
Stjórn Baugs vísvitandi blekkt
Í umfjöllun um ársreikninga
Baugs minnti Sigurður á að á árun-
um 1999–2003 hefði Baugur verið al-
menningshlutafélag þar sem rík
krafa væri gerð um rétt vinnubrögð
stjórnenda og að eftirlit væri gott.
Jón Ásgeir og Tryggvi hefðu hins
vegar vísvitandi fært lán til félaga
tengdra Baugi ranglega í ársreikn-
ingi og leynt þeim fyrir stjórn félags-
ins. Lánin hefðu verið falin undir
liðnum aðrar skammtímakröfur í árs-
reikningum, án viðunandi skýringa.
Sigurður sagði það hafið yfir allan
vafa að mati ákæruvaldsins að um
ásetning ákærðu hefði verið að ræða
og að stjórn fyrirtækisins hefði verið
vísvitandi blekkt.
Sagði Sigurður að í raun þyrfti
ekki að fjalla um hvort þetta hefðu
verið ólögmæt lán skv. 104 gr. laga
um hlutafélög, aðeins um hvort um
lán væri að ræða yfir höfuð. „Ef það
er lán, þá er það ólögmætt. Svo ein-
falt er það,“ sagði Sigurður og vísaði
til 43. gr. laga um ársreikninga þar
sem m.a. segir að tilgreina skuli fjár-
hæðir lána í ársreikningum, svo og
veðsetningar, ábyrgðir og tryggingar
sem veittar hafa verið félagsaðilum
eða stjórnendum félags eða móður-
félags þess vegna tengsla þessara að-
ila við félögin, sundurliðað ásamt
upplýsingum um vexti, greiðslukjör
og aðra helstu skilmála. Eigi þetta
einnig við gagnvart einstaklingum,
nátengdum þeim sem taldir eru upp
að framan. Þessi grein hafi verið
margbrotin samkvæmt málflutningi
Sigurðar.
„Verjendur telja þetta heimila
háttsemi og um þetta verður deilt hér
í dag,“ sagði Sigurður.
Hugtakið lán
Benti hann á að verjendur og sak-
borningar hefðu talað um umræddar
greiðslur sem annaðhvort „beinar
lánveitingar“ eða „viðskiptalán“ sem
eigi enga stoð í ársreikningslögunum.
Sagði Sigurður erfitt að sjá að papp-
írslaust, tryggingalaust og ábyrgðar-
laust lán án gjalddaga gæti verið við-
skiptalán. Því losaralegra og óskil-
greindara sem lánið væri því ríkari
ástæða væri til að gera grein fyrir því
í ársreikningi. Sama í hvaða búning
verjendur og sakborningar hafi
ákveðið að klæða hugtakið lán, þá
falli umræddar greiðslur örugglega
undir skilgreininguna um lán. Sig-
urður sagði að þó einhverjir héldu því
fram að um óverulegar fjárhæðir
væri að ræða, (t.d. um 462 milljónir
króna í lok reikningsárs 1998 skv.
ákæruskjali), yrði að horfa til við-
skiptaumhverfisins á þessum árum
og skoða upphæðirnar í því sam-
hengi. Þá benti hann á að almennir
hluthafar í Baugi hefðu ekki haft að-
gang að þessu lánsfé, aðeins stjórn-
endur og önnur félög tengd Baugi.
Einnig að ekki væri getið um lána-
starfsemi í starfsreglum Baugs. Þar
kæmi m.a. fram að lán skyldu lögð
fyrir stjórn en því ákvæði væri sér-
staklega stefnt gegn lánum til aðila
tengdra Baugi. Við blasi að þessar
reglur hafi verið brotnar í tilviki
Gaums.
Sigurður ítrekaði þá afstöðu
ákæruvaldsins að refsivert væri að
leyna í ársreikningum lánum til aðila
tengdra Baugi. Engum stjórnar-
manni hefði verið kunnugt um lán-
veitinguna sem tali sínu máli.
Gaumur fær lán hjá Baugi
sem fær lán hjá Straumi
Sigurður sagði að komið hefði fram
að Gaumur hefði styrkt Baug með því
að fara á undan í fjárfestingum og
taka áhættu. Nefndi hann sem dæmi
að í maí 2001 hefði Gaumur fengið
100 millj. kr. lán hjá Baugi vegna
fjárfestinga í Nordic Restaurant
Group. Tók Baugur lán hjá Straumi
til að lána Gaumi féð. Gaumur hefði
þarna tekið það sem kallað hefi verið
upphafsáhætta og svo hefði Baugur
fylgt í kjölfarið. Baugur hefði ekki
tekið þessa skuld Gaums yfir fyrr en
tveimur árum seinna en þá hefði við-
komandi fjárfesting verið orðin lítils
virði. Sagði Sigurður ekki hafa komið
fram nein dæmi um velheppnuð við-
skipti þar sem Gaumur fór á undan
Baugi önnur en þau eru sneru að Ar-
cadia á sínum tíma. En í raun skipta
viðskiptin sjálf engu máli, að sögn
Sigurðar. Ákæruvaldið væri ekki að
fetta fingur út í viðskiptin sjálf heldur
út í að Gaumur og einnig Fjárfar
borguðu ekki lánin sem voru því
áfram inni í bókhaldi Baugs. Það
væri athugavert.
Sigurður vitnaði m.a. til bréfs Stef-
áns Hilmarssonar endurskoðanda til
Jóns Ásgeirs þar sem sýnt væri að
hann hefði talið umrædd viðskipti í
andstöðu við 104. gr. hlutafélagalaga.
Þá vitnaði hann einnig í bréf fjár-
málastjóra Baugs til Tryggva og
Jóns Ásgeirs þar sem hann lýsti
áhyggjum af stöðunni. Þá veltu
Tryggvi og Jón Ásgeir því fyrir sér í
tölvupósti, sem Sigurður skýrði frá,
hvort lán til Gaums væru í samræmi
við lög. Segir Tryggvi nauðsynlegt að
„finna nýjan flöt“ á viðskiptareikn-
ingnum.
Um brot endurskoðendanna Stef-
áns og Önnu sagði Sigurður að þeim
hefði borið að gera athugasemdir um
að skýringar vegna lánanna þyrftu að
koma fram samkvæmt ársreiknings-
lögum. „Þau eru sérfræðingar og
eiga að spyrna við fótum,“ sagði Sig-
urður. Þau ættu að endurskoða
reikninga félagsins en ekki taka við
fyrirmælum frá yfirmönnum þess.
Hins vegar hefði upplýsingum vísvit-
andi verið haldið leyndum. Endur-
skoðendurnir hefðu nánast verið
framlenging á bókhaldsdeild Baugs,
misst hlutleysi og ef til vill verið háðir
vilja stjórnenda. Sigurður sagði að
engu varðaði hvort tjón hefði orðið
vegna þessara lánaviðskipta, skulda-
staða Gaums og Fjárfars hefði verið
sveipuð leynd sem væri refsivert.
Tók hann fram að refsing vegna brot-
anna gæti numið fangelsi allt að sex
árum.
Rangar upplýsingar
í aðflutningsskýrslum
Í síðari hluta málflutnings síns ein-
beitti saksóknari sér að þeim ákæru-
liðum er varða innflutning á fjórum
bifreiðum og talinn er varða brot á
tollalögum og almennum hegningar-
lögum en upphaf rannsóknar á þess-
um atriðum má rekja til kæru Jóns
Geralds Sullenbergers, fyrrverandi
viðskiptafélaga Baugs. Eru ákærðu
talin hafa brotið lög með því að hafa
við innflutning bifreiðanna gefið
rangar upplýsingar í aðflutnings-
skýrslur á grundvelli tilhæfulausra
reikninga. Aðflutningsgjöld hafi ver-
ið reiknuð út frá aðflutningsskýrsl-
unum og því hafi ákærðu vikið sér
undan því að standa skil á virðisauka-
skatti og vörugjaldi að fullu.
Jón Gerald og fyrirtæki hans Nor-
dica áttu milligöngu um bílaviðskipt-
in fyrir hönd Baugsmanna en bílarnir
voru innfluttir frá Bandaríkjunum og
Kanada. Í öllum tilvikum voru gefnir
út fleiri en einn reikningur vegna við-
skiptanna með hvern bíl og Baugur,
Gaumur og Bónus m.a. greiðendur
þeirra. Aðeins einn reikningur fyrir
hverja bifbreið var hins vegar lagður
til grundvallar aðflutningsskýrslum í
hvert sinn.
Eins og vel skorið púsluspil
Varðandi tvo bíla sem Jón Gerald
útvegaði Jóhannesi og Kristínu hefur
að sögn Sigurðar komið fram að Jó-
hannes bað Jón Gerald að ræða við
Kristínu um uppgjörið og ákveðið
hefði verið að skipta reikningnum í
þrennt, á milli Jóhannesar, Kristínar
og Baugs. Síðan hafi hins vegar einn
reikninganna verið greiddur af
Pönnu pizzum en sá reikningur skil-
aði sér aldrei til tollayfirvalda hér á
landi og sú upphæð sem bílarnir
kostuðu því töluvert lægri í aðflutn-
ingsskýrslu en raunkostnaður var.
Þannig hafi ákærðu komið sér undan
því að standa skil á virðisaukaskatti
og vörugjaldi.
Fyrrverandi maki Kristínar, Jón
Garðar Ögmundsson, framkvæmda-
stjóri í Pönnu pizzum, hélt fram fyrir
dómi á föstudag að umræddur reikn-
ingur, sem Pönnu pizzur greiddu,
hefði verið vegna ráðgjafarþjónustu
eins og fram kæmi í skýringum á
reikningnum en ljóst væri að um-
ræddur reikningur hefði verið hluti
af kaupverði bifreiðanna. Sagði Sig-
urður framburð Jóns Garðars væg-
ast sagt ótrúverðugan og að engin
gögn styddu frásögn hans af ferða-
lagi til Flórída þar sem ráðgjafar-
þjónusta frá Nordica hefði átt að vera
fengin. Þá kannaðist Jón Gerald ekki
við umrædda heimsókn eða störf fyr-
ir Pönnu pizzur. „Ef öllum gögnum
er raðað saman falla þau vel saman
eins og vel skorið púsluspil,“ sagði
Sigurður um þennan þátt málsins.
Jón Ásgeir lagði á ráðin
Þá vék Sigurður að innflutningi
tveggja bíla sem Jón Ásgeir stóð að
og Jón Gerald hafði milligöngu um á
árunum 1998 og 2000. Við annan bíl-
inn hefði Jón Gerald óskað eftir því
að greiðslan yrði í tvennu lagi að fyr-
irmælum Jóns Ásgeirs. Nordica svo
gefið út tvo reikninga, annan til Bón-
uss að upphæð um 30 þúsund doll-
arar og hinn til Jóns Ásgeirs að upp-
hæð um 6 þúsund dollarar en í
skýringum komi fram að upphæðin
væri vegna hótels og ferðakostnaðar.
Aðeins hærri reikningnum hefði ver-
ið framvísað við tollafgreiðslu bílsins
hér á landi. Sagði Sigurður að með
þessu væri ljóst að Jón Ásgeir hefði
lagt á ráðin um að aðflutningsskýrsla
yrði gerð á grundvelli annars reikn-
ingsins og því um ásetning að ræða.
Bifreiðin hefði verið til eigin nota.
Sama hefði verið uppi á teningnum
varðandi innflutning bifreiðar árið
2000. Í bókhaldi Baugs hefði reikn-
ingur, sem fyrirtækið greiddi vegna
bílakaupanna, verið færður inn sem
aðkeyptar markaðsupplýsingar en
svo leiðréttur í bifreið án virðisauka-
skatts. Gaumur hefði síðan keypt bíl-
inn af Baugi en fram hefði komið að
hann var ætlaður eiginkonu Jóns Ás-
geirs.
Rekinn áfram af réttlætiskennd
Þegar hér var komið sögu í mál-
flutningi Sigurðar sagði hann að allt
sem fram hefði komið í máli Jóns
Geralds Sullenbergers samræmdist
gögnum sem lögð hefðu verið fram.
Hann hefði verið rekinn áfram af
réttlætiskennd þó að hefndarhugur
kunni að hafa komið þar inn í. Í fram-
haldinu sagði Sigurður útilokað að
Jón Gerald hefði undirbúið fyrr-
greind reikningsviðskipti í þeim til-
gangi að koma sök á ákærðu. Á þess-
um tíma hefði samband hans og Jóns
Ásgeirs verið í góðu lagi. Hann hefði
þurft að treysta því að reikningarnir
þrír sem út af stóðu í bílamálinu
hefðu verið greiddir og einnig á tölu-
verða heppni. Ljóst mætti vera að
Jón Ásgeir hefði tekið ákvörðun um
innflutning bílanna, hefði vitað um
kaupverðið og lagt á ráðin um
skýrslugerðina. Reikningar í bók-
haldi Baugs hefðu ekki haft rétt
kaupverð og að Jón Ásgeir hefði fyrir
hönd Baugs komið sér undan að fyr-
irtækið stæði skil á virðisaukaskatti.
Ákærðu hefðu þar með komið í veg
fyrir að fyrirtækið greiddi rétt gjöld.
Allir bílarnir hefðu verið fluttir inn
með svipuðum hætti. „Í raun styður
hvert tilvik hin,“ sagði Sigurður.
Í lokin sagði Sigurður að efnahags-
brot allra ákærðu hefðu verið um-
fangsmikil og áframhaldandi. Sak-
borningar hefðu ekki sýnt iðrun í
málinu og lagt sig fram við að leyna
brotum sínum. Hins vegar hefði eng-
inn kært fyrirtækið, félagið væri nú
komið af markaði og sakborningar
ekki gerst sekir um brot áður sem
talist geti.
Settur saksóknari flutti mál sitt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun
Efnahagsbrotin umfangs-
mikil og áframhaldandi
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Saksóknari og verjendur búa sig undir málflutninginn í héraðsdómi að loknu hádegishléi í gær.
SETTUR saksóknari lagði enn
fram gögn við aðalmeðferð Baugs-
málsins í gær. Um var að ræða
skjalaskrá sem m.a. innihélt gögn
sem Arnar Jensen aflaði hjá lög-
reglunni í Kanada vegna innflutn-
ings bifreiða þaðan til Íslands og
frá Skráningarstofu. Sýndu gögnin
m.a. fram á að bílarnir þrír sem frá
Kanada komu hefðu verið teknir
þar af skrá.
Verjendur ákærðu mótmæltu því
harðlega að gögnin skyldu lögð
fram, t.d. væri hluti gagnanna á
frönsku og ekki væri kostur á að
bera þau undir skjólstæðinga áður
en munnlegur málflutningur myndi
hefjast. Settur saksóknari, Sig-
urður Tómas Magnússon, sagðist
vera að leggja gögnin fram þar sem
hann vildi ekki liggja á þeim þó
hann ætlaði sér ekki að byggja mál-
flutning sinn á þeim. Þá hefði hann
haldið að verjendur hefðu sambæri-
leg gögn þegar undir höndum.
Dómurinn gerði 20 mínútna hlé á
meðan verjendur báru saman bæk-
ur sínar en að því loknu drógu þeir
mótmæli sín til baka og skjalaskrá-
in var þar með lögð fram í málinu.
Skjalaskrá lögð fram