Morgunblaðið - 24.02.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Sólhattur
FRÁ
Fyrir heilsuna
ÞÓTT enginn hafi látið lífið í sprengjuárásinni í
borginni Samarra í fyrradag er talið að hún geti
reynst afdrifaríkari en þau hundruð sprengjutil-
ræða sem hafa kostað þúsundir sjíta lífið frá innrás-
inni í Írak. Íraskir sjítar hafa hingað til vakið að-
dáun margra fyrir að halda ró sinni og hefna sín
ekki fyrir blóðsúthellingarnar en nú er útlit fyrir að
þolinmæði margra þeirra sé á þrotum. Flestir sjítar
líta á sprengjuárásina á einn af helstu helgidómum
þeirra sem beina árás á trú þeirra og hættan á alls-
herjarborgarastríði milli þeirra og súnníta er talin
hafa stóraukist.
„Stríðið er nú ef til vill þegar hafið,“ hafði banda-
ríska blaðið The Christian Science Monitor eftir
sjítanum Abu Hassan, götusala í Bagdad. „Þetta er
eitthvað meira og táknrænna en árásir á fólk. Þetta
er árás á það sem við erum.“
Jeremy Bowen, fréttaskýrandi breska ríkisút-
varpsins, BBC, tók í sama streng. Hann sagði að
árásin á helgidóminn hefði vakið miklu harðari við-
brögð en fjöldamorð hryðjuverkamanna og hún
gæti margfaldað hættuna á allsherjarborgarastríði.
„Ástæðan er sú að helgu staðirnir í Mið-Austur-
löndum eru mjög sérstakir í huga fólksins og það á
við um alla trúarhópana . . . Árás á helgidóm er bein
árás á sjálfsmynd og réttindi heils samfélags.“
Torveldar myndun þjóðstjórnar
Fregnir hermdu í gær að minnst 127 manns
hefðu látið lífið í árásum sjíta á moskur súnníta og í
öðrum átökum trúarhópanna eftir sprengjuárásina
á gullhvolfþak Askariya-moskunnar í Samarra. All-
ar öryggissveitir landsins voru í viðbragðsstöðu og
stjórnmálaleiðtogar landsins héldu neyðarfund í
Bagdad.
Árásin er mikið áfall fyrir þá sem reynt hafa að
mynda þjóðstjórn í Írak og einnig fyrir Bandaríkja-
stjórn sem hefur lagt fast að stjórnmálaleiðtogum
sjíta að fallast á tilslakanir til að telja flokka súnní-
araba á að ganga í stjórnina. Árásin eflir á hinn
bóginn harðlínumenn úr röðum sjíta sem telja að
með því að samþykkja tilslakanir sé verið að verð-
launa súnníta fyrir hryðjuverkastarfsemi.
Sjítar hvattir til að verja sig
Bandarískir embættismenn hafa einnig lagt fast
að íröskum ráðamönnum að reka liðsmenn vopn-
aðra hópa sjíta úr her- og lögreglusveitum Íraks og
hafa taumhald á vopnuðu hópunum. Bandaríski
sendiherrann í Bagdad hafði jafnvel varað við því
að Bandaríkjastjórn kynni að hætta fjárstuðningi
sínum við innanríkisráðuneytið í Bagdad og fleiri
stofnanir Íraks ef þetta yrði ekki gert.
Árásin í Samarra eykur líkurnar á því að trúar-
legir flokkar sjíta herði afstöðu sína og hafni kröfu
Bandaríkjastjórnar um að halda aftur af vopnuðum
hópum sjíta. Eftir árásina töluðu jafnvel hófsamir
leiðtogar sjíta um þörfina á því sjítar verðu sig með
eigin liðsafla ef írösk yfirvöld og bandaríski herinn
gætu það ekki. Ali al-Sistani, æðsti klerkur íraskra
sjíta, tók undir þetta sjónarmið. „Ef öryggissveit-
irnar geta ekki tryggt nauðsynlegt öryggi þá geta
hinir trúuðu gert það með hjálp Guðs,“ sagði hann.
Hvatti til friðsamlegra mótmæla
Eftir árásina í Samarra gaf Sistani út yfirlýsingu
þar sem hann skoraði á sjíta að ráðast ekki á mosk-
ur súnníta. Athygli vakti þó að hann hvatti einnig
Íraka til að mótmæla sprengjuárásinni. Hingað til
hefur hann yfirleitt lagst gegn götumótmælum,
jafnvel friðsamlegum, af ótta við að þau leiði til
óeirða og ofbeldis.
Moqtada al-Sadr, róttækur klerkur sjíta, tók
undir áskorun Sistanis um að ráðast ekki á moskur
súnníta.
Jeremy Bowen sagði að það eina góða við ástand-
ið í Írak nú væri að ráðamennirnir gerðu sér fulla
grein fyrir hættunni á borgarastyrjöld og vildu ekki
að landsmenn gengju í gegnum sömu hörmungar
og Líbanar gerðu í fimmtán ár eftir 1975.
„Þeir lifa í menningu þar sem það er eðlilegt að
láti í ljósi reiði sína og sorg saman á götunum,“ seg-
ir Bowen í grein á fréttavef BBC. „Þeirra bíður á
hinn bóginn það erfiða verkefni að stjórna reiðinni
og beina henni í réttan farveg, að leyfa fólki að fá
útrás fyrir reiðina án þess að þeir missi tökin.“
Allsherjarborgarastríð gæti orðið til þess að Írak
skiptist upp í þrjú ríki og jafnvel leitt til enn meiri
ólgu og ofbeldis í Mið-Austurlöndum, að sögn Bo-
wens. „Það er þess vegna sem flestir Írakar, í öllum
fylkingum, vilja ekki borgarastríð – og þess vegna
sem sumir öfgamenn vilja það og reyna allt sem
þeir geta til að koma því af stað.“
Telja að endurkoma Mahdis sé í nánd
Árásin gæti einnig orðið til þess að áhrif klerka-
stjórnarinnar í grannríkinu Íran ykjust í Írak. Um
90% íbúa Írans eru sjítar og klerkastjórnin hefur
litið á sig sem verndara allra sjíta í heiminum.
Í helgidómnum í Samarra eru grafir tíunda og
ellefta ímams sjíta, en þeir dóu báðir á níundu öld.
Hjá sjítum er ímam syndlaus, óskeikull leiðtogi ísl-
ams, afkomandi Alís, fyrsta ímamsins og bræðr-
ungs og tengdasonar Múhameðs spámanns.
Sagt er að tólfti og síðasti ímaminn, Muhammad
al-Mahdi, hafi fæðst og seinna horfið í Samarra.
Hann er sagður eiga að snúa aftur til jarðar til að
koma þar á friði og réttlæti fyrir heimsendi.
Vopnaðar sveitir stuðningsmanna Sadrs eru
nefndar eftir Mahdi. Klerkurinn og fylgismenn
hans eru sannfærðir um að endurkoma tólfta
ímamsins sé í nánd. „Hann hvarf [í Samarra] inn í
yfirnáttúrulegt svið, þannig að þetta verður túlkað
sem árás á ímaminn Mahdi, árás á manninn
þeirra,“ hafði The Christian Science Monitor eftir
Juan Cole, sérfræðingi í sögu sjíta við Michigan-
háskóla í Bandaríkjunum.
Forseti Írans, Mahmoud Ahmedinejad, er á
meðal þeirra sem telja að endurkoma Mahdis sé í
nánd.
Fréttaskýring | Árásin í Samarra talin auka hættu á borgarastyrjöld í Írak
Líta á sprengjutilræðið
sem beina árás á trú sjíta
AP
Íraskir sjítar, sem búa í Íran, láta í ljósi reiði og sorg vegna árásarinnar á helgidóm sjíta í Samarra.
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
’Allsherjarborgarastríð gætiorðið til þess að Írak skiptist upp
í þrjú ríki og jafnvel leitt til enn
meiri ólgu og ofbeldis í Mið-
Austurlöndum.‘
ÁÆTLAÐ er að hungursneyð vofi yf-
ir allt að 11 milljónum manna í aust-
anverðri Afríku eftir langvarandi
þurrka. Hjálparsamtökin Oxfam
sögðu í gær að fólk væri þegar farið
að falla og ástandið gæti versnað ef
ríki heims létu ekki meira fé af hendi
rakna til að afstýra hörmungum.
Að minnsta kosti 40 manns í Norð-
ur-Kenýa, aðallega börn, hafa þegar
dáið af völdum vannæringar og sjúk-
dóma sem raktir eru til þurrkanna.
Um þriðjungur barna undir fimm ára
aldri í norður- og austurhéruðum
Kenýa þjáist af vannæringu. Allt að
70% búpeningsins í sumum hérað-
anna hafa drepist, að því er fram kom
í frétt The Washington Post.
Í Sómalíu hafa sjö dáið af völdum
vatnsskorts sem talið er að geti orðið
tugum þúsunda manna að bana verði
þeim ekki komið til hjálpar. Að sögn
Oxfam eru mörg dæmi um að fólk og
einkum börn drekki eigið þvag til að
reyna að lina þjáningarnar.
Talið er að um 3,5 milljónir Ken-
ýamanna geti orðið hungurmorða
verði þeim ekki komið til hjálpar.
Ástandið er orðið svo slæmt á sumum
stöðum að fólk er farið að borða skor-
dýr til að reyna að seðja hungrið.
Þörf á meiri framlögum
Stjórnvöld og hjálparstofnanir hafa
óskað eftir aðstoð að andvirði alls 574
milljóna dollara, sem samsvarar 40
milljörðum króna, vegna matvæla-
skortsins í Kenýa, Sómalíu og Eþíóp-
íu. Ríki heims hafa lofað 186 milljón-
um dollara og því vantar enn 388
milljónir dollara.
Paul Smith-Lomas, sem stjórnar
hjálparstarfi Oxfam í þessum heims-
hluta, sagði að ríkin þyrftu að bregð-
ast skjótar við til að afstýra miklum
hörmungum. „Peningar sem gefnir
verða eftir þrjá mánuði koma of seint
fyrir marga,“ hafði AFP eftir honum.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna hefur falið Kjell Magne
Bondevik, fyrrverandi forsætisráð-
herra Noregs, að samhæfa hjálpar-
starfið á þurrkasvæðunum. Bondevik
er í Norður-Kenýa til að kynna sér
ástandið og segir að umfang vandans
sé „mjög ógnvænlegt“. Hjálparsam-
tök þurfi að setja sér það langtíma-
markmið að uppræta meginorsakir
hungursneyða, svo sem átök, efna-
hagslega óstjórn og spillingu.
Hungursneyð
vofir yfir 11
milljónum manna
!
"!
"
#
"
$%&'()*+,--./,*
" #
!"
!"
#
$
% $ &
'
! '
#(%# )
#
*
(& !
#
+ 0 12
34 *
Kaupmannahöfn. AP, AFP. | Dönsk
stjórnvöld hyggjast standa fyrir ráð-
stefnu í mars þar sem reynt verður að
stuðla að samræð-
um milli ólíkra
menningarheima
og trúarhópa. Per
Stig Møller, utan-
ríkisráðherra
Danmerkur, til-
kynnti þetta í gær
en ráðstefnan
tengist því upp-
námi sem orðið
hefur vegna skop-
mynda af Múhameð spámanni, sem
fyrst birtust í Jyllands-Posten.
Møller sagði að á ráðstefnunni
myndu tala virtur íslamskur klerkur,
Amr Khaled, tveir íslamskir fræði-
menn frá arabalöndunum og þrír
danskir sérfræðingar. Verður ráð-
stefnan haldin í Kaupmannahöfn 10.
mars nk. en meiningin mun vera að
efna til margvíslegra uppákoma á
næstunni í því skyni að efla samræð-
ur, sem grundvallist á gagnkvæmri
virðingu, milli múslímaheimsins og
þess vestræna.
Hunsuðu viðvaranir
Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráð-
herra Egyptalands, segir hins vegar í
viðtali í Politiken í gær að dönsk
stjórnvöld hafi ítrekað hunsað tilboð
ráðamanna í Egyptalandi um aðstoð
við að koma í veg fyrir að allt færi á
versta veg í deilunni um skopmynd-
irnar af Múhameð.
„Ég sagði að þróunin væri afar
hættuleg. Staðreyndir málsins kynnu
að hafa alvarlegar afleiðingar,“ sagði
Gheit um samtöl sín við danska ráða-
menn vikuna og mánuðina áður en
skopmyndadeilan stigmagnaðist og
leiddi af sér blóðug mótmæli í ýmsum
múslímalöndum. Gheit sagðist hafa
varað Møller við því að málið gæti
undið upp á sig og valdið Dönum
vandamálum í samskiptunum við
araba og múslíma í heiminum.
En viðvörunum þessum var ekki
hlítt, að sögn Gheits. „Viðbrögð utan-
ríkisráðherrans voru: „nei, nei og nei.
Ef þið teljið þetta vandamál ættuð þið
að taka það upp fyrir dómstólum“.“
Heldur Gheit því fram að stjórn-
völd í Egyptalandi hafi sagt Dönum
að þau hefðu skilning á því að menn
vildu ekki snúast gegn tjáningarfrels-
inu. Hitt kynni að hafa dugað, að
dönsk stjórnvöld lýstu þeirri afstöðu
að menn ættu að forðast að móðga
aðra trúarhópa.
Efna til ráð-
stefnu um
samskipti
trúarhópa
Per Stig Møller