Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 17
ERLENT
TALIÐ er að a.m.k. 56 hafi látist þeg-
ar þak Baumansky-markaðarins í
Moskvu hrundi í gærmorgun. Er lík-
legt að tala látinna eigi enn eftir að
hækka, en alls slösuðust 32. Líklegt
er talið að flestir þeirra sem fórust
hafi verið frá Aserbaídsjan og öðrum
fyrrverandi sovétlýðveldum.
„Skyndilega féll allt saman,“ sagði
Oktay Salmanov, kaupmaður frá
Aserbaídsjan. „Ég stóð nærri aðal-
innganginum og það var ástæðan fyr-
ir því að mér tókst að komast út í
tæka tíð. En þrjár systur mínar lét-
ust, eins og samstarfsmaður minn,“
sagði Salmanov grátandi.
Björgunarmenn fyrirskipuðu þögn
á slysstað á 15 mínútna fresti til að
hlusta eftir fórnarlömbum í rústun-
um. Nokkrir þeirra sem voru á lífi
undir rústunum hringdu í ættingja úr
farsímum, en það hjálpaði björgunar-
mönnum að staðsetja þá. „Tíminn er
að renna út,“ sagði Sergei Shoigú,
ráðherra neyðarmála, við blaðamenn
í gær.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
reyndi að fullvissa þegna sína um að
yfirvöld hefðu brugðist rétt við og
sagði að „björgunarmenn gerðu allt
sem þeir gætu til að hjálpa fórnar-
lömbunum“. Slysið átti sér stað á op-
inberum frídegi og er talið að það hafi
bjargað því að tala látinna var ekki
enn hærri.
Snjóþungt hefur verið í Moskvu
upp á síðkastið og segja yfirvöld að
rannsakendur séu að íhuga hvort
skortur á snjólosun af þakinu hafi
valdið því að það hrundi.
Var burðarvirkið gallað?
Nodar Kancheli, arkitektinn sem
hannaði bygginguna, var viðstaddur
björgunaraðgerðirnar, en hann sagði
að „röng notkun“ á burðarvirki henn-
ar kunni að hafa verið orsakaþáttur í
slysinu. En samkvæmt fyrstu frétt-
um fjölmiðla höfðu auka vörupallar
verið tengdir við þak byggingarinnar
í bága við byggingarreglur.
Önnur ástæða fyrir því að yfirvöld
eru að rannsaka burðarvirki hússins
er sú að fyrir tveimur árum fórust 28
þegar þakið á Transval vatnsgarðin-
um í Moskvu, sem var hannaður af
sama arkitekt, hrundi. En líkt og nú
var þá talið að gallar í burðarvirki
hefðu valdið slysinu.
Þetta er í þriðja sinn á sl. mánuði
sem snjóþyngslum er kennt um að
þak hrynur með miklu manntjóni í
Evrópu. Fyrsta atvikið átti sér stað í
bæversku Ölpunum í Þýskalandi 2.
janúar, þegar 15 létust eftir að þak
skautahallar hrundi og annað í Suð-
ur-Póllandi 28. janúar, þar sem 65
fórust eftir að þak sýningarhallar
hrundi.
Júrí Lúzhkov, borgarstjóri
Moskvu, sagði að svo virtist sem
flestir þeirra sem létust hafi verið
innflytjendur, en meirihluti kaup-
manna á mörkuðum borgarinnar
kemur frá fyrrum sovétlýðveldunum
á Kákasussvæðinu. Sagði Lúzhkov
ekkert benda til að um hermdarverk
hefði verið að ræða.
AP
Björgunarmenn aðstoða konu sem missti son sinn þegar þak markaðarins í Moskvu hrundi í gær.
Ljóst að meira en
fimmtíu týndu lífi
Mikill mannskaði þegar þak markaðar í Moskvu hrundi
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tonbridge. AP. | Breska lögreglan
handtók í gær karl og konu í
London og eru þau talin tengjast
ráninu á einni miðstöð örygg-
isþjónustufyrirtækisins Securitas
í Kent í fyrrakvöld.
Um er að ræða 29 ára gamlan
mann og 31 árs gamla konu en
auk þess hefur lögreglan lýst eftir
rauðum sendibíl. Telur hún, að
fimm bílar hafi komið við sögu í
ráninu. Hefur tveimur milljónum
punda, um 232 millj. ísl. kr., verið
heitið fyrir upplýsingar.
Talið er að skipulögð glæpa-
samtök hafi staðið fyrir ráninu en
að sögn talsmanns lögreglunnar,
Adrian Leppards aðstoðaryfirlög-
regluþjóns, var ránið framkvæmt
af „hernaðarlegri nákvæmni“.
Ránið hófst með því, að menn-
irnir stöðvuðu bíl framkvæmda-
stjóra miðstöðvarinnar og sögðu
við hann, að hefði hann ekki sam-
starf við þá, yrði fjölskyldu hans
unnið mein. Á sama tíma komu
tveir menn á heimili hans, leiddu
burt konu hans og son og höfðu í
gíslingu um stund. Þegar á mið-
stöðina kom voru 15 starfsmenn
hennar bundnir og fénu rænt.
Allt að 50 milljónir punda
Sérstakt eftirlit hefur verið fyr-
irskipað í öllum höfnum Bret-
lands, en hugsanlegt er að ræn-
ingjarnir reyni að yfirgefa landið.
Lögreglan gat þó ekki gefið
greinargóða lýsingu á mönn-
unum, sumir þeirra voru klæddir
sem lögreglumenn og með and-
litsgrímur.
Ekki hefur verið uppgefið hve
stór ránsfengurinn var og mun
það raunar ekki liggja fyrir.
Leppard sagði hins vegar að um
væri að ræða a.m.k. 20 millj.
punda en að upphæðin gæti þó
verið allt að 50 millj. punda, eða
um 5,8 milljarðar íslenskra króna.
Handtökur í
London í gær
Ránið í Bretlandi í fyrrakvöld er talið
tengjast skipulagðri glæpastarfsemi
Washington. AP. | Ný 228 síðna
skýrsla Hvíta hússins um viðbrögð
við fellibylnum Katrínu bendir til
víðtækra mistaka bandaríska heima-
varnaráðuneytisins. Segir höfundur
skýrslunnar, Frances Fragos Town-
send, heimavarnarnaöryggisráðgjafi
Hvíta hússins, að ráðuneytið hafi
skort hraðvirk kerfi til að eiga í sam-
skiptum, meta skemmdir og sam-
ræma björgunarstarfið.
Segir Townsend að lærdómurinn
af fellibylnum sé sá að stofna þurfi
sérstaka aðgerðamiðstöð til að sam-
eina viðbrögð við hamförum á öllum
stjórnstigum í framtíðinni.
Bush fyrirskipaði gerð skýrslunn-
ar nokkrum dögum eftir að Katrín
afhjúpaði umfangsmikla galla í við-
bragðskerfi alríkisstjórnarinnar við
hamförum. Alls létust um 1.300
manns vegna Katrínar og hundruð
þúsunda þurftu að yfirgefa eyðilögð
heimili sín þegar fellibylurinn gekk
yfir.
„Við höfum lært af lexíum fortíð-
arinnar um hvernig betur megi
vernda íbúa Bandaríkjanna,“ sagði
George W. Bush, forseti Bandaríkj-
anna, að loknum ríkisstjórnarfundi í
gær. „Ég var ekki sáttur við við-
brögðin á alríkisstigi.“
Harðorð
skýrsla um
fellibylinn