Morgunblaðið - 24.02.2006, Page 18
TEPPI Á STIGAHÚS
- got t verð -
komum og gerum verðtilboð
Sædýraskinn og sjórekin lík
www.sjominjasafn.is
SAFNANÓTT Á GRANDANUM
20:00 & 21:00
Sædýraskinn
Tískusýning
22:00
Sjórekin lík
Terry Gunnel þjóðfræðingur
Safnið er opið til kl. 01:00
Sjómin jasafn ið í Reyk jav ík
Ósk
alö
g s
jóm
ann
a
Hrunamannahreppur | Bænd-
urnir í Birtingaholti I í Hruna-
mannahreppi, Marta Jónsdóttir
og Ragnar Magnússon, buðu
gestum í svokallað „opið fjós“
um helgina. Þau reka eitt af
nýju hátæknifjósunum sem
byggð voru í hreppnum á síð-
asta ári, fjós sem tekur 120 kýr
og er með tvo mjaltaþjóna.
Fjöldi fólks kom til að skoða.
Meðal þeirra var Matthías Veig-
ar Ólafsson sem lét fara vel um
sig í kálfastíunni á meðan full-
orðna fólkið skoðaði tæknina.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Rólegt í kálfastíunni
Fjós
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Nýr formaður Heimis | Jón Sigurðs-
son frá Reynistað var kjörinn formaður
Karlakórsins Heimis í Skagafirði á aðal-
fundi kórsins. Páll Dagbjartsson, skóla-
stjóri í Varmahlíð, gaf ekki kost á sér
áfram.
Kemur þetta fram á skagafjordur.com.
Aðrir í stjórn Heimis voru kjörnir Ingi-
mundur Guðjónsson, Jón Hallur Ingólfs-
son, Gunnar Sandholt og Gísli Árnason
en þeir eru allir búsettir á Sauðárkróki.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Virkjun eða verndun | Skjálfandafljót,
Suðurá, Svartá: Náttúra, verndun, virkjun,
er yfirskrift ráðstefnu sem efnt verður til í
Kiðagili í Bárðardal nú á sunnudag, kl. 14.
SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norð-
urlandi, efna til ráðstefnunnar.
Markmið ráðstefnunnar er að ræða um
náttúru á þessum slóðum og kynntar verða
hugmyndir um þjóðgarð norðan Vatnajök-
uls og virkjun í Skjálfandafljóti. Fyrirlestra
flytja Árni Hjartarson, jarðfræðingur hjá
Íslenskum orkurannsóknum, um jarðfræði
og vatnafar á slóðum Skjálfandafljóts og
Suðurár; Sigurður Á. Þráinsson, deildar-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, um áform
stjórnvalda um þjóðgarð norðan Vatnajök-
uls og áhrif í Bárðardal og fulltrúi félagsins
Hrafnabjargavirkjun hf. um áform um
virkjun í Skjálfandafljóti.
Listahátíð í Ozon | Lista- og menning-
arhátíð unglinga í félagsmiðstöðinni Ozon
verður haldin í félagsheimilinu á Hólmavík
næstkomandi laugardag klukkan 20. Þetta
er orðin árlegur viðburður í menningarlíf-
inu á Ströndum og er um leið ein helsta
fjáröflun félagsmiðstöðvarinnar.
Einar Már Guðmundsson rithöfundur
verður aðalgestur kvöldsins. Mun hann lesa
úr verkum sínum og spjalla við gesti. Fjöldi
annarra listamanna kemur fram.
Lónsflæðum og sér yfir til Tjörnes-
fjalla sem Keldhverfingar kalla Vest-
urfjöll.
Ekki þarf að minna á að í hinum
enda sveitarinnar er Þjóðgarðurinn í
Jökulsársgljúfrum með sínum fjöl-
breyttu náttúrufyrirbærum eins og
Ásbyrgi, Hljóðaklettum og Dettifossi.
JÓNMUNDUR Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, lýsti fegurð-
inni við Víkingavatn í viðtali við
Morgunblaðið nýlega. Myndin sem
blaðið fékk senda úr Kelduhverfi ætti
að staðfesta orð hans.
Myndin er tekin steinsnar vestan
við Víkingavatn, frá svokölluðum
Ljósmynd/Óli Halldórsson
Vetrarfegurð í Kelduhverfi
Hallmundur Krist-insson var á sjö-unda áratug síð-
ustu aldar er hann var á
ferð niður með Jökulsá og
leit ógnarlegan Dettifoss
augum:
Vofir háski yfir oss
ennþá gerast dramar.
Þeir sem detta í Dettifoss
detta aldrei framar.
Á þessum árum tók
hann þátt í uppfærslu
Leikfélags Akureyrar á
Munkunum á Möðruvöll-
um og gerði sér að leik að
yrkja um alla í sýning-
unni. Síðasta vísan var
svona:
Þá er bara eftir einn
innan úr Leirunum;
náungi sem nefnist Hreinn
nema í eyrunum.
Þá kemur ein eftir Dav-
íð Hjálmar Haraldsson
limrusmið:
Þótt bjartsýni best sé í hófi
ég bráðum lýk embættisprófi
og helst kýs þá starf
er hagleiks við þarf,
á höggstokknum mælti Jón
bófi.
Að detta í
Dettifoss
pebl@mbl.is
Siglufjörður | Gísli Rúnar Jónsson hjá
Suðurleiðum sagði, í samtali við Morgun-
blaðið, það vera alrangt að fyrirtæki hans
hafi fengið aukastyrk frá ríkinu til að nið-
urgreiða rútuverð á leiðinni Siglufjörður–
Sauðárkrókur þegar flug til Siglufjarðar
hafi verið lagt af á sínum tíma.
Fram hefur komið í Morgunblaðinu að
miðaverð á þessari leið hafi hækkað um
260% eftir að nýr sérleyfishafi tók við leið-
inni en hann rakti hækkunina til þess að
Suðurleiðir hafi fengið umræddan styrk.
Gísli segir að eftir útboðið hafi nýr leyf-
ishafi fengið leyfið á þeim forsendum að
hann teldi sig þurfa lægstu greiðsluna frá
ríkinu, greiðslu sem væri ekkert annað en
styrkur. Hann sagði að núverandi leyfis-
hafi væri að slá ryki í augu neytenda með
því að segja að engin raunveruleg hækkun
hafi verið á miðaverði.
Fengu ekki
aukastyrk til
niðurgreiðslna
Fljótsdalshérað | Níu gefa kost á sér í
opnu prófkjöri Framsóknarflokksins á
Fljótsdalshéraði sem haldið verður 11.
mars nk., segir í fréttatilkynningu.
Það eru Anna Sigríður Karlsdóttir í 2.–4.
sæti, Arngrímur Viðar Ásgeirsson í 1.–3.
sæti, Björn Ármann Ólafsson í 1. sæti,
Elva Dröfn Sveinsdóttir í 4.–6., Gunnhildur
Ingvarsdóttir í 2.–4. sæti, Helga Þórarins-
dóttir í 5.–6. sæti, Jónas Guðmundsson í
3.–4. sæti, Páll Sigvaldason í 1.–3. sæti og
Unnur Inga Dagsdóttir í 2.–4. sæti.
Prófkjörið fer fram í sal framsóknar-
félaganna á Egilsstöðum og geta fé-
lagsmenn kosið, ásamt stuðningsmönnum.
Framsóknar-
menn halda
prófkjör
♦♦♦
Hafnarfjörður | Samningur Verkalýðs-
félagsins Hlífar í Hafnarfirði og Launa-
nefndar sveitarfélaga fyrir hönd Hafnar-
fjarðarbæjar hefur verið samþykktur í
almennri atkvæðagreiðslu. Atkvæði
greiddu 162 félagsmenn sem eru 42% af
þeim sem eru á kjörskrá. Já sögu 146 eða
liðlega 80%, en 15 sögðu nei.
Hlíf samþykk-
ir samninga
♦♦♦
Dýrin í Árskóla | Tíundi bekkur Árskóla
á Sauðárkróki sýnir um þessar mundir leik-
ritið Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjorn
Egner. Það hefur heyrst að sýningin sé í
alla staði glæsileg og sennilega allra flott-
asta skólasýningin til þessa, segir á frétta-
vefnum skagafjordur.com. Guðbrandur
Ægir Ásbjörnsson leikstýrir.
Frumsýning var fyrr í vikunni en verkið
verður sýnt áfram, sýning er í kvöld og
næstkomandi sunnudag.