Morgunblaðið - 24.02.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 21
MINNSTAÐUR
Sandgerði | Einstaklingur hefur
sótt um og fengið vilyrði bæjaryf-
irvalda fyrir lóð fyrir gistihús í
Sandgerði. Það verður byggt upp í
áföngum og stefnt að opnun á næsta
ári.
„Þetta hefur verið draumur minn í
nokkur ár, eða alveg frá því ég var
þátttakandi í rekstri hvalaskoð-
unarskipsins Moby Dick. Þá vorum
við með hugmyndir um uppbygg-
ingu í Keflavík en þær þóttu of stór-
tækar. Nú hef ég fengið byr í seglin
og byggi upp í Sandgerði,“ segir
Davíð Þór Ólafsson vélstjóri sem
vinnur að undirbúningi byggingar
gistihússins. Lóðin er við Sandgerð-
isveg, við aðkomuna til bæjarins.
„Ég hef tröllatrú á þessari stað-
setningu í Sandgerði. Þarna er
margt að gerast og menn hafa trú á
þessu verkefni. Plássið er aðlaðandi
og þar er gott að búa,“ segir Davíð
Þór. Hann býr í Keflavík en þekkir
vel til í Sandgerði þar sem hann bjó
um árabil auk þess sem stór hluti af
fjölskyldu hans býr þar enn.
Davíð Þór lítur til viðskipta við er-
lendra ferðamenn á sumrin og segir
að staðsetning svona nálægt flug-
vellinum skapi tækifæri. Síðan hefur
hann áhuga á að höfða allt árið til Ís-
lendinga sem eru að fara til útlanda
eða koma heim og mun bjóða þeim
upp á ferðir til og frá flugstöðinni.
Ferðaþjónusta hefur aukist á Suð-
urnesjum undanfarin ár og segir
Davíð Þór spennandi að taka þátt í
þeirri uppbyggingu. Með opnun
Stafnesvegar opnast ný hringleið frá
Reykjanesvita og Höfnum með
ströndinni til Sandgerðis og þaðan í
Garðinn eða á Reykjanesbraut. Dav-
íð Þór segir að þessi leið verði
skemmtileg fyrir ferðafólk og geti
skapað ákveðin tækifæri.
Hann hyggst reisa gistiheimilið í
áföngum og bæta við nokkrum smá-
hýsum. Fullbyggt á heimilið að geta
tekið 60 til 70 manns í gistingu.
Stefnt er að opnun á árinu 2007 en
Davíð segir að vel þurfi að halda á
spilum til að það megi takast.
Nýr þáttur í atvinnulífinu
Bæjaryfirvöld í Sandgerði eru
ánægð með framtak Davíðs Þórs.
Aðalskipulagi svæðisins hefur verið
breytt svo unnt sé að koma þessari
starfsemi þarna fyrir. „Þetta er stór-
kostlegt, það bætir nýjum þætti við í
rekstri og atvinnulífi bæjarins og
eykur vinnu,“ segir Sigurður Valur
Ásbjarnarson bæjarstjóri.
Einstaklingur undirbýr byggingu gistiheimilis í Sandgerði
„Hef
tröllatrú
á þessum
stað“
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Álög Nýtt gistiheimili í Sandgerði verður skammt frá Álögum, listaverki
Steinunnar Þórarinsdóttur, sem stendur við innkeyrsluna til bæjarins.
Áform Davíð Þór Ólafssyni ásamt
2ja ára syni sínum, Benjamín Þór.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES
Kontrapunktur | Tónlistarskóli Reykjanesbæjar stendur fyrir keppni
meðal nemenda sinna næstkomandi laugardag sem er árlegur Dagur tón-
listarskólanna í landinu. Keppnin er kölluð Kontrapunktur og er keppt
tónfræðiþekkingu ásamt þekkingu á hljóðfærum og almennri tónlist.
Löng hefð er orðin fyrir því að tileinka íslenskum tónlistarskólum síð-
asta laugardag febrúarmánaðar og er tilgangurinn að vekja athygli á
starfsemi skólanna.
Í keppninni verður tekið í notkun nýtt, sérsmíðað fjölborða bjöllukerfi til
að nota í bjölluspurningunum. Kontrapunktur er liðakeppni og er hvert lið
skipað nemendum hvers tónfræðabekks í skólanum. Keppnin fer fram á sal
Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá kl.13 til 18.
FARÞEGUM Strætó fjölgaði um 6,9% í jan-
úar miðað við sama mánuð í fyrra, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá Strætó bs.
Fjölgunin nam alls 50.346 farþegum, sem er
andstætt þróun undanfarin misseri þegar
farþegum Strætó hefur fækkað.
Í janúar á síðasta ári ferðuðust alls 728.887
farþegar með Strætó en nú í ár voru farþeg-
arnir 779.233. Í tilkynningunni segir að fjölg-
unin hafi verið mest hjá þeim sem noti far-
gjaldakort, enda hafi notkun þess umtals-
verðan sparnað í för með sér. Frá því í júlí á
síðasta ári, þegar nýtt leiðakerfi Strætó var
tekið í notkun, hafa stjórnendur Strætó unnið
úr ábendingum frá viðskiptavinum sínum og
vagnstjórum um þætti sem betur mega fara í
leiðakerfinu. „Þeirri vinnu er nú lokið og
munu breytingar á leiðakerfinu taka gildi í
byrjun mars,“ segir í tilkynningunni.
Farþegum Strætó fjölgaði
Reykjavík | Borgarskjalasafn tekur nú þátt í
safnanótt í fyrsta sinn. Safnið verður opið frá kl.
19 til 01. Gefst fólki tækifæri á að sækja nám-
skeið af ýmsu tagi, skoða sýningar, Reykjavík-
urkvikmynd og fleira.
M.a. verður safnið með sýningu um erlenda
ferðamenn í Reykjavík fyrr á tímum. Tengt því
verður gömlum Reykjavíkurpóstkortum varpað
á tjald og tækifæri gefst að rifja upp gamla tíma
með börnum eða barnabörnum þegar kvik-
mynd Magnúsar Jóhannessonar um Reykjavík
1957 verður sýnd með reglulegu millibili. Auk
þessa býður Borgarskjalasafnið ókeypis upp á
eftirtalin námskeið:
Kl. 20 Námskeið í skrautritun. Torfi Jónsson
fjallar um leturgerðir, penna, pappír og leið-
beinir fólki um að fara af stað með fyrstu staf-
ina.
Kl. 21 Íslendingabók. Sólveig Ólafsdóttir frá Ís-
lendingabók, kynnir notkun síðunnar, lýsir því
hvernig fólk getur rakið ætt sína og svarar fyr-
irspurnum.
Kl. 22 Lagt af stað í ættfræðirannsóknir. Guð-
finna Ragnarsdóttir ritstjóri Fréttabréfs Ætt-
fræðifélagsins fjallar um munnlega og skriflega
geymd, sögur og sagnir, erfðir af ýmsu tagi,
gáfur og gjörvileik, muni og myndir, en ekki síst
um gildi ættfræðinnar og ættartengslanna.
Kl. 23 Skjalavarsla heimilanna. Svanhildur
Bogadóttir, borgarskjalavörður leiðbeinir um
grunnatriði í skjalavörslu heimilanna.
Borgarskjalasafn
á Safnanótt
Breiðholt | Kynslóðir öttu kappi
í gær þegar tíu nemendur úr átt-
unda til tíunda bekk Öldusels-
skóla heimsóttu eldri borgara í
félags- og þjónustumiðstöðinni
Árskógum og kepptu við þá í
boccia.
Að sögn Kristjáns Sigur-
mundssonar, forstöðumanns Ár-
skóga, stóðu heldri keppendur
unglingunum fullkomlega á
sporði, enda byggir bocciaíþrótt-
in mjög á útsjónarsemi og hittni
frekar en beinum styrk og
snerpu. Leiknar voru þrjár um-
ferðir og kepptu í hverri umferð
þrjú ungmenni móti þremur eldri
borgurum. „Eins og unglingarnir
sögðu, þá „rústuðu“ eldri borg-
ararnir þeim,“ segir Kristján, en
eldri borgarar unnu allar um-
ferðirnar, með samanlagt tuttugu
og einu stigi gegn sjö. „Sannaðist
þá hið fornkveðna að æfingin og
reynslan skapa meistarann. Það
má þó benda á það unglingunum
til málsbótar að þeir voru flestir
að leika þetta í fyrsta sinn.“
Eldri borgarar stunda boccia í
Árskógum tvisvar í viku, æfa sig
og keppa innbyrðis. Stundum eru
haldin mót á milli félags- og
þjónustumiðstöðva eða annarra
sem stunda boccia-íþróttina. Það
voru því vanir karlar og konur
sem mættu unglingunum á boc-
ciavellinum í gær.
Gagnkvæm ánægja
með samstarf
Unglingarnir tóku tapinu alls
ekki illa og kváðust að sögn
Kristjáns afar áhugasamir um að
halda sambandinu. „Eitt af
markmiðunum með þessari
menningarhátíð eldri borgara í
Breiðholti er að stefna saman
yngri og eldri borgurum,“ segir
Kristján. „Við erum t.d. í sam-
starfi við leikskóla hér í hverfinu,
en börnin hafa komið hér í söng-
stund sem við erum með einu
sinni í viku með eldri borgurum.
Þá hafa komið hópar frá leik-
skólum til að taka þátt. Þá
syngja hóparnir fyrir hvor annan
og svo saman í lokin. Það hefur
mælst mjög vel fyrir hjá eldra
fólkinu. Þau hafa gaman að fá
börnin til sín og það er á döfinni
að það verði gagnkvæmt.“
Kristján segir það gríðarlega
mikilvægt að leyfa kynslóðum og
ólíkum hópum að mætast. „Ég
held, eins og við höfum upplifað
síðustu árin og áratugina, að allt-
af sé verið að draga fólk í dilka,
til dæmis eftir aldri,“ segir Krist-
ján. Við viljum vinna að því að ná
kynslóðunum saman og það hef-
ur alveg sýnt sig að báðir hópar
hagnast af, bæði eru eldri borg-
arar mjög ánægðir að taka á
móti bæði börnum og unglingum
og sýna þeim hvað þau eru að að-
hafast hér í félagsstarfinu og
einnig þykir börnum og ungling-
um forvitnilegt að kynnast þessu
og mynda uppbyggileg tengsl
sem allir hagnast á.“
Kristján segir þetta samstarf
vissulega vera lið í því að koma í
veg fyrir þá neikvæðu þróun að
ungt fólki missi af þeirri þekk-
ingu og reynslu sem eldri kyn-
slóðir hafi að miðla „Við erum að
byrja markvissa vinnu í þessu
skyni og við erum alveg sann-
færð um að það eigi eftir að
þróast í ýmsar áttir,“ segir Krist-
ján að lokum.
Öldungar „rústuðu“
unglingunum í boccia
Morgunblaðið/Ásdís
Kynslóðir bítast Einbeitingin skein úr hvers manns auga í Árskógum, en unglingarnir lutu á endanum í
gras fyrir reynslumeiri heldri borgurum.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is