Morgunblaðið - 24.02.2006, Side 22
E
f að líkum lætur verða
Íslendingar drjúgir
við bolluát á næstu
dögum því hinn ár-
vissi bolludagur er í
nánd næstkomandi mánudag. Bak-
arar treysta sér ekki til að áætla
hve mörgum bollum landinn mun
sporðrenna, en samkvæmt könnun,
sem gerð var á bolluáti landsmanna
fyrir fáeinum árum, má ætla
að hvert mannsbarn
gleypi í sig þrjár boll-
ur að meðaltali. Karl-
peningurinn virðist
mun iðnari við bollu-
átið en kvenkynið því
um 10% karla kváðust
fá sér tíu bollur eða
fleiri en 4% kvenna
sögðust neyta sama
magns.
Venja er að taka
smáforskot á sæluna
enda má gera ráð fyrir
að bollukaffi verði víða á borð-
um landsmanna um helgina. Þá
er eins gott að hafa haldgóðar
uppskriftir við höndina og leyfa
börnunum að taka þátt í bollu-
gerðinni.
Daglegt líf leitaði á náðir
Margrétar Sigfúsdóttur, skóla-
stýru Húsmæðraskólans í
Reykjavík, þar sem rúmlega
tuttugu stúlkur stunda nú nám.
Auk uppskrifta að gerdeigs- og
vatnsdeigsbollum fylgja uppskriftir
að fiskbollum og kjötbollum fyrir þá
sem vilja spreyta sig á þeim.
Fiskbollur
800 g ýsa, roðlaus og beinhreinsuð
1–1½ tsk salt
¼ tsk. pipar
1 laukur
5–6 msk. hveiti
3 msk. kartöflumjöl
1 egg
3–4 dl mjólk
Skerið fiskinn í bita ásamt
lauk og setjið í mat-
vinnsluvél. Hrærið snöggt í
sundur. Þurrefnin sett út í
og blandað saman við.
Egginu bætt saman við og
hrært vel. Mjólkinni hellt
rólega út í. Sumir vilja
meira krydd og gott getur
verið að saxa papriku smátt
og bæta út í fiskdeigið. Boll-
ur mótaðar úr deiginu með
súpuskeið og steiktar í ol-
íu á pönnu.
Kjötbollur
½ kg kjöthakk, t.d. nauta- og svína-
hakk blandað saman
1½ dl hveiti
1 smátt saxaður laukur
1 tsk. salt
¼ tsk. pipar
1 egg
2–4 dl mjólk eða kjötsoð og mjólk
Setjið hakk, hveiti, lauk og krydd
saman í matvinnsluvél og hrærið.
Bætið egginu út í og blandið síðan
mjólkinni rólega saman við. Mótið
bollur og steikið á pönnu í olíu.
Gerdeigsbollur
(12–16 stykki)
2½ dl mjólk
2½ tsk. ger
75 g smjör
1 egg
½ dl flórsykur
6–7 dl hveiti
Lagið gerdeig á venjulegan hátt
og látið lyfta sér. Deigið sett á borð
og tveimur teskeiðum af lyftidufti
hnoðað saman við. Deigið er haft
frekar mjúkt, mótað í bollur og sett
á plötu klædda bökunarpappír.
Bakið við 220°C í 6–8 mínútur.
Vatnsdeigsbollur
(20–24 stykki)
160 g smjörlíki
4 dl vatn
200 g hveiti
5 egg
¼ tsk. salt
Sjóðið saman vatn og smjörlíki.
Hveiti og salti hrært saman við.
Kælt í nokkrar mínútur og sett í
hrærivélarskál. Eggin sett út í eitt
og eitt í einu og hrært á milli. Ef
eggin eru stór duga kannski fjögur
stykki, en deigið á ekki vera of lint.
Setjið bökunarpappír á ofnplötu.
Deigið sett með skeið á plötuna með
góðu millibili, en einnig má sprauta
því á með sprautupoka. Bakið boll-
urnar í miðjum ofni við 200°C í 20–
30 mínútur án þess að opna ofninn
fyrstu 15–20 mínúturnar.
Fylling í bollurnar ræðst af hug-
myndaauðgi og smekk hvers og
eins, en hefðin er að fylla bollurnar
með þeyttum rjóma eða vanillu-
kremi og bragðbæta má þær á ýms-
an hátt, til dæmis með sultu, blá-
berjum, jarðarberjum, ananaskurli,
ávaxtamauki, líkjörum, súkku-
laðibitum, búðingi og fleiru.
Bræddu súkkulaði, glassúr eða öðr-
um afbrigðum af súkkulaðikremi er
svo smurt á toppinn.
MATARKISTAN | Fiskbollur, kjötbollur, vatnsdeigsbollur og gerdeigsbollur
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Þau Hjördís Bára Hjartardóttir, Andri Þór Grétarsson, Guðrún Diljá Ketilsdóttir, Andrea Rán Ragnarsdóttir,
Agla Þórunn Hjartardóttir og Sandra Rún Grétarsdóttir, nemendur í Snælandsskóla, tóku forskot á sæluna.
Bolla, bolla,
bolla, bolla
Pönnusteiktar fiskibollur ásamt kartöflum.
febrúar
Daglegtlíf
„ÉG HELD á honum í hendinni, hann er svo lítill,“ segir
Edda Möller í Kirkjuhúsinu við Laugaveg, þegar hún er
spurð um hlut sem henni er kær. „Þetta er lítill steinn,
slípaður og alveg sléttur öðrum megin og á hann er
límdur lítill silfurkross. Steininn er afskaplega gott að
nudda milli fingranna um leið og maður er að velta ein-
hverju fyrir sér. Hann er mjög góður
við stressi því hann er svo mjúkur með
ávölum hliðum nema á þeirri hlið, sem
strokið er yfir krossinn. Þar er hann
hrjúfari. Steinninn er eins og tvær hlið-
ar á lífinu. Það sem er mjúkt og gott og
reynir ekki mikið á mann og hin þegar
þumallinn strýkst yfir krossinn finnst
fyrir honum. Fyrir mig er það heilmikil
hjálp að handfjatla steininn.“
Steininn fékk Edda að gjöf þegar
hún var stödd í Finnlandi á fundi útgef-
enda kirkna á Norðurlöndum en þar eru steinar eins og
þessi seldir í litlum pokum og spakmæli látin fylgja
með.
Stundum röndótt
„Steinninn liggur alltaf við tölvuna mína í vinunni,“
segir hún. „Og ég gríp hann oft án þess að taka eftir því
þegar ég þarf að taka einhverjar ákvarðanir.“
Edda segist vera alin upp við mjúka litla steina.
„Pabbi safnaði svona steinum og þegar við
skiptum til dæmis um bíl þá hefur hann rétt
okkur stein og sagt, „… hafðu hann í bílnum og
taktu hann í lófann þegar á þarf að halda eða
renndu fingurgómunum yfir hann ef það er
eitthvað sem þarf að gera betur …“,“ segir hún.
„Það er jú þannig að lífið er stundum röndótt
og þá er gott að grípa í eitthvað eins og þennan
stein. Hann er svo róandi. Svo horfi ég á kross-
inn því hann er ekki eingöngu tákn dauðans,
heldur fyrst og fremst tákn lífsins í kristinni trú
og getur hjálpað á svo margan hátt.“
HLUTUR MEÐ SÖGU | Edda Möller á lukkustein
Eins og tvær hliðar lífsins
Eftir: Kristínu Gunnarsdóttur
krgu@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Edda Möller í Kirkjuhúsinu á lítinn lukkustein.
Hrjúfa hliðin er með
silfurkrossi.