Morgunblaðið - 24.02.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 23
DAGLEGT LÍF
Flestar konur vilja forðastþað að fá brjósta-krabbamein og leita leiðatil að komast hjá því.
Sumu er ekki hægt að breyta og
má þar nefna aldur, erfðafræði- og
umhverfisþætti. Aðra áhættuþætti
er hægt að hafa áhrif á og þó að
heilbrigður lífsstíll tryggi það ekki
að hægt sé að forðast brjósta-
krabbamein er hann skref í rétta
átt.
Mataræði og hreyfing
Meðal þess sem auðveldast er að
stjórna er neyslumunstur og hreyf-
ing. Hér á eftir eru nokkrar leiðir,
sem hægt er að fara til að minnka
hættuna á brjóstakrabba að því er
fram kemur á vef Mayo Clinic-
sjúkrastofnunarinnar.
Takmarkið áfengisneyslu Sterk
tengsl eru milli áfengisneyslu og
brjóstakrabba. Tegund þess
áfengis sem neytt er; bjór, létt-
vín eða blandaðir drykkir – virð-
ist engu breyta. Til að minnka
líkur á brjóstakrabba er rétt að
takmarka áfengisdrykkju við
einn drykk á dag eða að sleppa
því alveg að neyta áfengis. Sum-
ar rannsóknir gefa til kynna að
fólínsýra, sem er næringarefni
sem finnst í sítrusdrykkjum og
grænu grænmeti, geti minnkað
áhættuna hjá konum sem neyta
áfengis í hófi.
Verið nálægt kjörþyngd
Augljós tengsl eru milli of-
þyngdar og brjóstakrabba.
Þetta á einkum við ef konur
þyngjast seint um ævina, sér-
staklega eftir breytingaskeiðið.
Í umframfituvefjum er upp-
spretta hringrásar estrógens í
líkamanum og hætta á brjósta-
krabba helst í hendur við það
hversu mikið estrógen konur
komast í snertingu við um æv-
ina.
Verið virkar líkamlega
Regluleg hreyfing getur hjálpað
til við að halda þyngdinni í
skefjum og þar af leiðandi
minnkar hættan á brjósta-
krabba. Gott er að miða við
hálftíma í hreyfingu á dag. Ef
hreyfing hefur ekki verið hluti
af daglegu lífi er rétt að byrja
smám saman og bæta við þar til
takmarkinu er náð. Göngur,
skokk og leikfimi eru góðar æf-
ingar þar sem þær styrkja líka
beinin.
Athugið hvort minnka þarf fitu
í mataræðinu
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
fitusnautt mataræði geti lítillega
minnkað hættuna á brjósta-
krabba. Ef mataræðið er fitu-
snautt getur það líka dregið úr
hættu á öðrum sjúkdómum eins
og sykursýki, æðasjúkdómum
og heilablóðfalli. Fitusnautt fæði
getur líka hjálpað til á annan
hátt, t.d. haldið þyngdinni í
skefjum. Takmarkið fituneyslu
við 35% daglegs kaloríumagns
og forðist mettaða fitu.
HEILBRIGÐI | Lífsstíll getur haft áhrif á brjóstakrabbamein
Kjörþyngd
getur verið
góð forvörn
Sérhver kona er í
áhættuhópi varðandi
brjóstakrabbamein. Heil-
brigður lífsstíll – að vera í
góðu formi, takmarka
áfengisneyslu og viðhafa
rétt mataræði – getur þó
minnkað hættuna.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Til mín hefur leitað fjársterkur aðili sem óskar eftir sérbýli í
vesturbæ Reykjavíkur. Skilyrði að eignin hafi 3-4 svefnher-
bergi, sé vel staðsett og í góðu ástandi. Kaupandi getur
veitt ríflegan afhendingartíma sé þess óskað.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband og ég mun veita
nánari uppl. sé þess óskað.
Hákon Svavarsson
lögg. fasteignasali,
sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
SÉRBÝLI Í VESTURBÆ ÓSKAST
ALLT AÐ 60 MILLJ.
Myndir ársins er einstaklega falleg ljósmyndabók sem er í senn
fréttaannáll ársins 2005 og glæsilegur vitnisburður um íslenska
ljósmyndun samtímans.
KOMIN Í
VERSLANIR!
edda.is