Morgunblaðið - 24.02.2006, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
a
Komdu í Gerðuberg
á Safnanótt föstudaginn 24. febrúar
Aðgangur ókeypis á fjölbreytta dagskrá kl. 19 - 22
20:00 - 21:00 Páll á Húsafelli spilar á nýjustu uppfinningu sína, barrokk
steinhörpu. Ásamt honum munu þeir Steindór Andersen og Hilmar Örn
Hilmarsson flytja tónlistaratriði til heiðurs Thor Vilhjálmssyni, rithöfundi.
20:00 og 21:00 les Thor Vilhjálmsson úr ritverkum sínum.
Í Gerðubergi stendur nú yfir yfirlitssýning á myndlistarverkum Thors.
Gestum er boðið að skoða hana í nýju ljósi og finna flugfima fugla – vegleg
bókaverðlaun eru í boði fyrir fundvísa fuglaskoðendur frá Eddu útgáfu.
20:00 - 22:00 Tónlistarflutningur nemenda úr Tónlistarskóla Reykjavíkur.
19:00 - 22:00 • Opnun sýningar á handverksmunum Judithar Júlíusdóttur og
• Sérviskusýning í Félagsstarfi Gerðubergs
• Safnamarkaður Borgarbókasafns og Gerðubergs á bókum, bolum og fleiru.
• Sýning Sigrúnar Björgvinsdóttur í Boganum á verkum úr þæfðri ull.
Munið Safnastrætó frá Þjóðminjasafni kl. 19:20 - 19:40 - 20:00 - 20:20 - 20:40.
Sjá nánar á: www.gerduberg.is
Sunnudaginn 26. febrúar
Söngur og sund
byrjar aftur
Sungin verða lög og textar eftir Ómar Ragnarsson
og Ómar kemur í heimsókn ásamt
Hauki Heiðari, píanóleikara.
Sönginn leiðir Signý Sæmundsdóttir
Gróa Hreinsdóttir leikur undir
Sungið í Gerðubergi og synt í Breiðholtslaug
Söngurinn hefst stundvíslega kl. 13:00
Heitt te á undan • Verð kr. 500
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Sími 5757700 · Gerðubergi 3-5
111 Reykjavík · Strætó S4 og 12
SAFNARÁÐ tilnefndi Þjóðminja-
safn Íslands í janúar 2005 til þátt-
töku í samkeppni Evrópuráðs safna
(European Museum Forum, EMF)
um safn Evrópu árið 2006. Í fram-
haldi af tilnefningunni heimsóttu
fulltrúar EMF safnið og gerðu út-
tekt á því í september síðastliðnum.
Í kjölfarið hefur nú verið tilkynnt að
Þjóðminjasafnið er eitt þeirra evr-
ópsku safna sem valin hafa verið til
undanúrslita í samkeppninni í ár.
Safn ársins verður síðan kynnt á að-
alfundi EMF í Lissabon í Portúgal
10.–13. maí nk. og önnur söfn sem
komust í úrslit fá þar formlega við-
urkenningu fyrir þann árangur.
Skilyrði tilnefningar og þátttöku
safns í samkeppninni er að safnið
hafi lokið umfangsmiklum breyt-
ingum eða endurskipulagningu á
einhverjum þætti starfseminnar á
síðastliðnum tveimur árum, eða að
um sé að ræða nýtt safn, stofnað á
síðastliðnum tveimur árum. Ástæða
tilnefningar Þjóðminjasafnsins til
samkeppninnar 2006 er að sögn
framkvæmdastjóra Safnaráðs „vel
heppnuð endurskipulagning og end-
urhönnun sýninga og starfsemi
safnsins, en metnaðarfullt starf
þessa höfuðsafns og þróun hefur
skapað ný, framsýn og mikilvæg við-
mið fyrir íslenskt safnastarf í heild“.
Síldarminjasafnið á Siglufirði var
fyrst íslenskra safna tilnefnt til sam-
keppninnar árið 2004 og hlaut safnið
Micheletti-verðlaunin það ár.
Þess má geta í þessu sambandi að
eins og víða hefur komið fram
standa söfn í Reykjavík fyrir viða-
mikilli dagskrá í kvöld á Safnanótt,
sem er hluti af Vetrarhátíð í Reykja-
vík. Þar gefst fólki kostur á að heim-
sækja söfnin á óvenjulegum tíma og
njóta fjölbreyttra sýninga og dag-
skráratriða – án þess að greiða að-
gangseyri.
Þjóðminjasafnið valið í úrslit
Morgunblaðið/Golli
Þjóðminjasafnið, sem nýverið var opnað eftir viðamiklar breytingar.
Í KVÖLD verða opnaðar tvær
málverkasýningar í Listasafni Ís-
lands, annars vegar á verkum
Gunnlaugs Blöndals, Lífsnautn og
ljóðræn ásýnd, og hins vegar á
verkum Snorra Arinbjarnar,
Máttur litarins og spegill tímans.
Alls verða um 135 verk í öllum
sölum safnsins. Þessir tveir lista-
menn eiga það sameiginlegt að
vera sprottnir úr evrópska ex-
pressjónismanum í upphafi ald-
arinnar og voru þeir báðir miklir
meistarar listrænnar tjáningar.
Að öðru leyti eru þeir um flest
ólíkir í listsköpun sinni.
Gunnlaugur Blöndal kom inn í
íslenska listasögu á þriðja ára-
tugnum en Snorri Arinbjarnar
áratug seinna. Í verkum Gunn-
laugs fer mikið fyrir rómantískri
upphafningu og ljóðrænu inntaki.
Snorri er aftur á móti hluti af
kynslóð sem var að brjótast út úr
ráðandi stöðu landslagsmálverks-
ins. Hann fór í staðinn að fjalla
um veruleika sem var honum
nær.
„Þeir eiga ólíkt erindi inn í ís-
lenska listasögu,“ segir Ólafur
Kvaran sýningarstjóri. „Gunn-
laugur Blöndal er sá listamaður
sem einna fyrstur fjallar um kon-
una, nektina og ljóðrænt innihald
en hlutverk Snorra Arinbjarnar
er að koma með hversdagsleik-
ann, manneskjuna, lífið á bryggj-
unni og í þorpinu inn í íslenska
myndlist. Með því að opna þessar
tvær sjálfstæðu sýningar saman
skerpist á höfundareinkennum
hvors málara um sig.“
Yfirskriftir sýninganna eiga að
gefa nokkuð skýra mynd af höf-
undareinkennum þeirra. Þannig
er lífsnautn og ljóðræn ásýnd
ákveðið viðfangsefni í sýningunni
á verkum Gunnlaugs, en verið er
að fjalla um verk Snorra sem
spegil tímans og lögð er áhersla á
þróun litarins í listferli hans.
Þess ber að geta að fyrir
skemmstu var felldur niður að-
gangseyrir inn á Listasafn Ís-
lands sem er liður í að gera safnið
aðgengilegra fyrir almenning.
Myndlist | Tvær sýningar opnaðar í Listasafni Íslands í kvöld
Litríkir listheimar
Morgunblaðið/Ásdís
Gunnlaugur Blöndal. Frá Vestmannaeyjum, 1951, olía.
Snorri Arinbjarnar. Guli glugginn, 1944, olía.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns Íslands.