Morgunblaðið - 24.02.2006, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sigríður Guð-björg Johnson
fæddist í Reykjavík
3. janúar 1929. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni
fimmtudaginn 16.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar Sigríðar
voru Þórhildur Lilja
Ólafsdóttir, f. í
Hafnarfirði 29.
ágúst 1905, d. 28.
janúar 1977, og Páll
Bjarni Sigfússon
togaraskipstjóri, f. á
Ísafirði 29. júní 1900, d. 28. októ-
ber 1970. Sigríður var elst fjög-
urra alsystkina, en bræður hennar
þrír eru Þorkell Páll, f. 1932, Sig-
fús Ásgeir, f. 1934, d. 1980, og
Ólafur Hersir, f. 1936, d. 1997.
Sigríður giftist 24.6. 1949 Hann-
esi Ó. Johnson, framkvæmda-
stjóra Tryggingar hf., f. 12.9.
1923, d. 12.2. 2002. Börn Hannesar
og Sigríðar eru: 1) Hildur Elín
þjónustufulltrúi, f. 16.2. 1952, bú-
sett í Svíþjóð, var gift Magnúsi
Guðbjarti Helgasyni verktaka, f.
20.3. 1950, d. 2.8. 2005, þau skildu.
Börn þeirra eru: a) Sigríður Ýr
sölufulltrúi, f. 27.1. 1972, dóttir
hennar er Elín Ebba, f. 16.1. 2003,
b) Helgi Þór, stjórnunarfræðingur
BA, f. 13.9. 1975, og c) Kristín
Lára, afgreiðslustúlka, f. 9.3.
1983. 2) Agnar,
rekstrarverkfræð-
ingur og fram-
kvæmdastjóri Eir-
bergs ehf., f. 25.11.
1958, kvæntur Sig-
rúnu Gunnarsdóttur
hjúkrunarfræðingi,
PhD, f. 16.5. 1960.
Börn þeirra eru a)
Hannes háskóla-
nemi, f. 23.7. 1983,
b) Kristinn mennta-
skólanemi, f. 2.10.
1986, og c) Sigrún
menntaskólanemi, f.
7.6. 1989.
Sigríður Guðbjörg lauk prófi
frá Kvennaskólanum í Reykjavík
1947. Hún var ein af sex fyrstu
flugfreyjum hér á landi og starfaði
hjá Loftleiðum og Flugfélagi Ís-
lands 1947–1949. Sigríður vann að
líknarmálum á vettvangi kven-
félagsins Hringsins frá 1956. Hún
sat í stjórn félagsins um árabil, þar
af sem varaformaður um tíma og
var formaður Hringsins frá 1981–
1987. Sigríður var gerð að heið-
ursfélaga Hringsins 1994. Sigríð-
ur átti fjölmörg áhugamál sem
hún sinnti af eljusemi og kappi,
hún stundaði m.a. hestamennsku
og vann þar til verðlauna.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Það var aldrei lognmolla í kringum
Sirrý tengdamóður mína. Hún var
sterk kona og hæfileikarík og naut
sín best í góðum félagsskap þar sem
mikið var um að vera og hún hafði
margt fyrir stafni. Áhugamál hennar
voru fjölmörg og hún sinnti þeim af
krafti og eljusemi. Sirrý var glæsileg
og bar með sér reisn og myndugleik.
Ung fékk hún tækifæri til að leita á
vit ævintýra um ókunnug lönd sem
ein af fyrstu flugfreyjum landsins.
Ferðalög voru síðar fastur liður í lífi
hennar og Hannesar sem hún giftist
ung og kvaddi fyrir fjórum árum. Þau
könnuðu fjölmargar fjarlægar slóðir
með vinum sínum en fyrst og fremst
höfðu þau ánægju af því að njóta ís-
lenskrar náttúru, einkum hálendis-
ferða á hestum. Síðar voru það Þing-
vellir sem áttu hug þeirra. Á
Þingvöllum var Sirrý í essinu sínu í
faðmi fjallanna sem hún þekkti svo
vel og hamaðist þar við trjárækt og
að fegra landið í kringum bústaðinn
þeirra. Bústaðurinn var þeirra para-
dís og þar tók Sirrý á móti gestum
með glæsibrag og í faðmi einstakrar
náttúru.
Sirrý var afkastamikil og svo
atorkusöm að undrum sætir nú þegar
rifjað er upp allt það sem hún tók sér
fyrir hendur. Hún var alla tíð að læra
eitthvað nýtt og tileinka sér nýjar að-
ferðir, hvort sem það var í hannyrð-
um, bókbandi, skrautmálun, jógaiðk-
un, tónlist, bókmenntum eða
trjárækt. Hún vílaði ekki fyrir sér
hlutina, var hugmyndarík og einhenti
sér í verkefnin, stundum svo mjög að
fólki þótti nóg um. Hún saumaði út
hvert listaverkið á fætur öðru og
gladdi barnabörn sín með fallegum
útprjónuðum peysum sem komu frá
henni næstum eins og á færibandi.
Þannig var líka þegar hún starfaði á
vettvangi Hringsins og fékk þar til
dæmis hugmyndina að jólakortasölu
til fjáröflunar sem varð ein helsta
tekjulind félagsins. Hannesi fannst
stundum nóg um atorkusemina á
heimilinu enda var lundarfar hans
annað og hann kaus að vera á rólegu
nótunum þegar heimilishaldið var
annars vegar. Á heimilinu áttu þau
þó sameiginlega aðdáun sína á ís-
lenskri myndlist. Þar sameinaðist ást
þeirra á náttúru landsins og fegurð
listarinnar hjá gömlu meisturunum.
Ekkert var Sirrý jafnhugleikið og að
tala um landið sitt og verk þessara
meistara og allt fram á síðasta dag
naut hún þess að vera umkringd feg-
urð myndanna sinna.
Sirrý sofnaði hinsta sinni í friðsæld
og umvafin bænum þeirra sem stóðu
henni næst. Að leiðarlokum þökkum
við öllum þeim sem studdu hana síð-
ustu árin og sýndu henni ástúð og
virðingu. Megi góður Guð blessa
minningu Sigríðar Guðbjargar og
fylgja henni á nýrri lífsbraut.
Sigrún.
Nú þegar Sirrý er fallin frá líður
okkur svolítið eins og vegalausu fólki
til fjalla; vörðurnar eru flestar fallnar
og leiðin framundan óþekkt. Þegar
fólkið sem fylgdi okkur alla okkar
æsku og langt fram á fullorðinsár
týnir smám saman tölunni verðum
við sjálf að taka við forystunni. Og þá
vakna loksins spurningarnar sem of
seint er að spyrja: Hvert erum við að
fara? Hvernig komumst við hingað?
Hver erum við eiginlega?
Við sumum þeirra fengum við þó
svör. Sirrý og Hannes voru hafsjór af
fróðleik og minningum um menn og
málefni sem gott var að ausa úr.
Minningin er lifandi um þau, sitjandi
á „kontórnum“ á Skólabrautinni
segjandi ævintýralegar sögur af
kostulegum uppákomum og ættfær-
andi sögupersónurnar jafnóðum inná
íslenskt ættfræðinetið. Það var líka
eins gott því oftar en ekki báru þær
uppnefni eða gælunöfn sem gerðu
þær óþekkjanlegar óinnvígðum. Nýj-
ustu fregnir af ráðuneytisstjóranum
og séranum fylgdu gjarnan með. Síð-
an tók við ströng yfirheyrsla um nýj-
ustu tíðindi af eigin högum. Og guð
mátti vera með manni, ef maður
kunni ekki að ættfæra þá sem komu
þar við sögu! Þegar sýnt var að sögu-
maður kunni engin deili á viðkomandi
annað en fornafn og föðurnafn, þá
voru það þau sem tóku af manni orðið
og röktu langfeðgatal viðkomandi út
um allar þorpagrundir og aftur í ald-
ir, svo engu skeikaði. Bækurnar, um
ættar- og átthagafræði, stóðu í hill-
unum í löngum röðum en voru aldrei
dregnar fram. Mjög líklega kunnu
þau hjónin þær utanað hvort eð er.
Aðrar trakteringar voru heldur
ekki af verri sortinni, ef undan er
skilin skammvinn en söguleg tilraun
Sirrýar til hvítvínsgerðar. Einatt var
boðið uppá kaffi og kökur, stundum
eitthvað sterkara. Og þegar mikið
stóð til var gjarnan slegið í að hætti
hestamanna, sungið og spilað fram-
eftir nóttu. Þar fór Sirrý fremst í
flokki, enda bæði stórgóð söngkona
og liðtæk á gítarinn.
Gamlárskvöldin á Skólabrautinni
áratugum saman eru ógleymanleg.
Þá var líka sem kokkarnir væru ótelj-
andi í eldhúsinu. Þaðan streymdu
kræsingarnar í þvílíkum hrönnum að
eftir því var tekið. Forréttir og steik-
ur, meðlæti og mjöður; þetta ætlaði
engan enda að taka. Og þótt bjallan
hringdi sýknt og heilagt og nýir gest-
ir bættust í hópinn var alltaf til nóg.
Loksins þegar sýnt þótti að ekki yrði
lengra gengið, þá kom aðaltrompið:
ÍSINN! Þótt allt gleymist og týnist
og tröllum sýnist þá mun sjerrý-ísinn
hennar Sirrýar munast meðan öndin
bærist. Þvílíkt lostæti! Það er nota-
legt að orna sér við minninguna um
Sirrý. Síðast sáum við hana á gaml-
árskvöld. Þá höfðu hlutverkin snúist
við. Við vorum flutt á Nesið og hún
kom í mat til okkar. Enda þótt heils-
an væri orðin biluð þá var ennþá
sama reisn yfir henni og alltaf. Og í
veitingunum átti hún ennþá metið.
Þótt við værum ekki færri en 15 við
eldamennskuna tókst okkur ekki að
slá matreiðslu hennar einnar við.
Við kveðjum Sirrý með söknuði og
þakklæti fyrir góðar og ánægjulegar
stundir. Blessuð sé minning Sigríðar
Johnson.
Guðrún, Friðþjófur, Gunn-
laugur. Ólafur, Helga Guðrún.
Stundum kynnumst við fólki á lífs-
leiðinni, sem hefur meiri og sterkari
áhrif á okkur en aðrir samferðamenn
okkar. Oftast er það fólk, sem á ein-
hvern hátt sker sig úr hópnum, er
sérstakt og litar lífið öðrum og sterk-
ari litum en við hin.
Þannig var hún Sirrý, sem við
kveðjum hér í dag. Hún var ákaflega
litríkur og skemmtilegur persónu-
leiki. Hispurslaus og ófeimin við að
tala tæpitungulaust og hafði oftast
aðra sýn á menn og málefni en fólkið í
kringum hana. Blíð og góð var hún
einnig og mátti ekkert aumt sjá.
Mínar fyrstu minningar af Sirrý
eru þegar hún, Hannes föðurbróðir
minn og Hildur dóttir þeirra bjuggu
á Miklubraut 28 en ég og mín fjöl-
skyld á númer 64. Mikill samgangur
var á milli fjölskyldnanna og vorum
við Hildur miklar vinkonur. Í minn-
ingunni gekk ég þar út og inn eins og
mér þóknaðist og átti þar jafnvel mitt
„eigið“ glas og disk sem fannst mikið
til koma. Þá var Klambratúnið leik-
völlur okkar Hildar sem og krakk-
anna í hverfinu. Þeir voru ófáir
sunnudagsbíltúrarnir á þessum tíma
með þeim. Þá var farið í heimsókn til
ömmu Nunnu, til foreldra Sirrýar í
Tjarnargötunni og oft á Þingvöll.
Ekki minnkaði leiksvæði okkar er
þau fluttist upp úr 1960 á Seltjarn-
arnesið. Þá var lítið búið að byggja á
Nesinu og var Valhúsahæðin heill
ævintýraheimur fyrir allan krakka-
skarann, sem bjó í þessu nýja hverfi
og margt brallað og prakkarastrikin
mörg. Aldrei minnist ég þess að Sirrý
hafi nokkru sinni skammað okkur
stelpurnar fyrir eitt né neitt. Það var
helst ef henni fannst eitthvað djúpt á
sannleikanum, að hún hvessti á okk-
ur augun, þar til hann rann ljúflega
upp úr okkur. Þá blikkaði hún kank-
vís, kleip okkur í nefbroddinn og
sagði brosandi og blíðlega; Skamm.
Alltaf þegar við hittumst spurði
hún mig frétta og vildi enga hálf-
velgju í svörum. Vildi ómengaðan
sannleikann og ef henni fannst hún
ekki fá hann, hvessti hún á mig aug-
unum eins og í gamla daga.
Mér er sérstaklega minnisstætt
þegar ég 6 eða 7 ára gömul, og bjó hjá
þeim um tíma á Nesinu er foreldrar
mínir voru erlendis. Þá vildi eitt sinn
til það óhapp að ég gleymdi að skrúfa
fyrir vatnslausan krana á baðinu um
miðja nótt og þegar vatnið kom á aft-
ur, rann það óhindrað um húsið og
niður í kjallara. Þegar heimilisfólkið
vaknaði um morguninn var hæðin og
kjallarinn á floti. Ég var óhuggandi,
grét og volaði og vildi fara heim þrátt
fyrir að hún og Hannes reyndu allt til
að hugga mig. Sirrý leiddist að lokum
þetta vol, ákvað að hafa sinn háttinn á
málunum, tók mig í fangið og hvíslaði
blíðlega í eyra mér að hætti ég ekki
að vola myndi hún senda mig vestur.
Ekki var ég viss hvar sá staður væri,
en taldi fyrir víst að þangað vildi ég
ekki fyrir nokkurn mun vera send,
þerraði því tárin og lét huggast.
Þetta voru miklir umbrotatímar í
veröldinni og dag einn sagði Jón Múli
frá því í hádegisfréttum að í Afríku
hefði Lumumba étið Cassavubu eða
kannski var það öfugt. Þetta þótti
okkur Hildi alveg magnaðar fréttir
og veltum þessu mikið fyrir okkur og
spurðum margs. Hannes reyndi eftir
bestu getu að útskýra þetta fyrir
okkur á þann hátt, sem hann taldi
hæfa börnum, en Sirrý hafði sinn
háttinn á eins og venjulega. Hún taldi
Cassavubu hafa verið vondan á
bragðið, nánast óætan, annað gæti
bara ekki verið, hann hefði verið svo
drepleiðinlegur! Hvernig hún vissi
það var mér hulin ráðgáta og var ég
sannfærð um að hún að hún sæi í
gegnum holt og hæðir og væri jafnvel
göldrótt. Eiginleiki sem mér fannst
einkar eftirsóknarverður og fékk hún
stórt prik fyrir.
Ekki fyrir svo löngu rifjuðum við
þetta upp og hló hún mikið. Sagði mig
„smakkast“ vel og væri langt frá því
óæt! Þótti mér það gott hrós.
Veislur þeirra hjóna voru stórar í
sniðum, mannmargar og afburða
skemmtilegar. Oft stóðu þær lengi og
var höfðinglega veitt eins og þeirra
var von og vísa. Stundum tók hún
fram gítarinn, spilaði og söng fyrir
okkur en hún hafði mjög fallega
söngrödd og kunni ógrynni af lögum.
Í sumarbústaðnum þeirra á Þingvöll-
um var tekið á móti manni með opn-
um faðmi og hlýju eins og alltaf.
Ég kveð Sirrý mína með þakklæti
og söknuði og óska henni og Hannesi
Guðs blessunar og hafi þau þökk fyr-
ir allt.
Margrét Þorbjörg.
Fallin er mikilhæf kona sem hafði
sterk og gefandi áhrif á umhverfi sitt.
Pálína, kölluð Dolly, og Sirrý, eins og
hún var ætíð kölluð af vinum sínum,
kynntust og knýttust vináttuböndum
fimm ára gamlar, en þá urðu þær ná-
grannar í Tjarnargötunni. Báðar
urðu þær heimagangar hvor hjá ann-
arri. Ljóshærða, bláeygða stúlkan
frá Tjarnargötu 34 varð vinsæll gest-
ur og naut strax hylli húsráðenda á
heimili Pálínu á Tjarnargötu 32. Vin-
konurnar sátu í sama bekk í Kvenna-
skólanum árin 1944–1947. Þar eign-
uðust þær margar góðar vinkonur
sem hafa reglubundið hist og rækt
vináttubönd, meðan lífið leyfir.
Sirrý var einstaklega glaðlynd og
lífskrafturinn geislaði af henni. Hún
var mjög lagleg og í alla staði
heillandi stúlka. Hún bjó yfir skör-
ungseðli og það besta í fari hennar
var hvað hún var opin, hrein og bein.
Eftir að námi lauk hóf hún fljótt
störf sem flugfreyja og skyldi engan
undra að henni gæfist kostur á því
starfi sem var eftirsótt en fáar fengu.
Á þeim árum kynntist hún góðum
og gegnum manni, Hannesi Ó. John-
son, sem starfaði einnig hjá Flug-
félagi Íslands. Þau giftu sig árið 1949
og lifðu í hamingjuríku hjónabandi
þar til Hannes lést, árið 2002. Heimili
þeirra stóð nokkur ár í Reykjavík, en
lengst, eða yfir 40 ár, á Seltjarnar-
nesi. Þau komu sér þar upp glæsilegu
heimili, þar sem menningarandi ríkti.
Fjöldi mynda eftir mestu listamenn
þjóðarinnar prýddi veggi og margan
kjörgripinn var að finna í húsi þeirra.
Hjónin voru vinmörg og ræktar-
söm við vini sína. Oft var vinum
stefnt í hús þeirra á Valhúsahæð og
að ýmsu „hlegið hátt og hent að
mörgu gaman“. Oft var sungið við
undirleik húsmóðurinnar, en allur sá
hljómur er horfinn í ómælisvíddir
þess sem liðið er en oft er saknað.
Sirrý studdi bónda sinn af miklum
styrk við störf hans í viðskiptalífi sem
starfsævi hans var helguð.
Börn þeirra tvö, Hildur og Agnar,
ólust upp við ástúð og umhyggju á
hinu góða heimili þeirra og reyndust
foreldrum sínum styrkar stoðir, þeg-
ar aldur og sjúkdómar sóttu að. Hlut-
ur Agnars er í þeim efnum frábær, en
hann bætti á sig að nokkru hlut syst-
urinnar, þar sem hún er búsett er-
lendis.
Sirrý og Hannes gáfu sig að hesta-
mennsku til ómældrar gleði vina
þeirra sem áttu sama áhugamál.
Margar og miklar ferðir voru farnar
á hestum um byggðir og óbyggðir Ís-
lands. Slíkar ferðir reyna oft á þrek
og þolgæði. Aldrei brást Sirrý í þeim
efnum. Hún átti alltaf nóg af léttu og
ljúfu viðmóti þó að erfiðleikar og basl
steðjaði að og hressti þannig ferða-
félaga sem þess þurftu með. Mátti þá
oft greina garpskap þann sem hún
bjó yfir. Sirrý sætti sig ekki við annað
en mikilhæfa og glæsilega hesta. Það
var því reisn yfir því að sjá hana ríða
snillingum á hestamótum. Stoltust
var hún og minnisstæðust á gæðingi
sínum Gauta. Á þeim snillingi vann
hún til gæðingaverðlauna á lands-
móti á Hólum 1966, en þá var enn
næsta fátítt að konur kepptu á mót-
um til verðlauna. Sirrý og Hannes
voru öflugir félagar í Hestamanna-
félaginu Fáki um langa hríð.
Sirrý starfaði vel og lengi í þágu
barnaspítalasjóðs Hringsins og var
formaður þess félags í sex ár.
Við sem stýrum hér penna komum
okkur upp sumarbústað í Rauðukus-
unesi við Þingvallavatn árið 1967 og
höfum alla tíð síðan notið þar góðra
stunda. Fögnuður okkar var einlæg-
ur þegar Sirrý og Hannes keyptu
nokkrum árum síðar bústað í kallfæri
við okkar hús. Þær voru samtaka
æskuvinkonurnar um heiti húsanna,
Kot skyldu þau kallast, Neskot hjá
Sirrý og Kusukot hjá Dolly.
Samgangur varð mikill milli kot-
anna, oft margsinnis dag hvern. Ráp-
símar nútímans voru þá ekki komnir í
hvers manns vasa, en kallast á með
skilaboð í veðurkyrrð, að öðrum kosti
voru veifur uppi, eftir því hver skila-
boð voru. Sirrý hvatti mjög til göngu-
ferða, stundum um næsta nágrenni,
til að huga að hvað nágrannar hefð-
ust að, en oftar til að kanna fornar
leiðir í Þingvallasveit og þjóðgarðin-
um. Trúlega náðum við að ganga alla
stíga sem þekktir eru í þjóðgarðinum
og þess var gætt að kynnast jafn-
framt sögu mannlífs og merkra
stunda í þessari fögru, söguríku en
harðbýlu sveit. Hún stóð oft við eld-
húsgluggann sinn snemma að
morgni, þá heiðskírt var til að sjá sól-
ina sigla norðan Ármannsfells upp á
morgunhimininn og vekja lífið í hinu
fagra umhverfi. Hún fékk einnig svo
oft að njóta þess að horfa á festingu
himinsins í kvöldhúmi, sjá „drottn-
anna hásal í rafurloga“ og tunglið
stíga upp af Hrafnabjörgum og
Reyðarbarmi upp á kvöldhimininn og
geisla þess endurspeglast í logn-
kyrru vatninu. Himbriminn söng síð-
an vatnsbakkabúana í ró, en vakti þá
einnig að morgni.
Sirrý fagnaði öllu sem hin dýrðlega
náttúra veitti henni og hún reyndi í
sumu að bæta þar um, hún hafði
„græna fingur“ og hlúði að gróðri.
Löngum mátti sjá til hennar þar sem
hún gekk milli trjáa, klippti og lag-
færði og hún vílaði ekki fyrir sér að
SIGRÍÐUR G.
JOHNSON
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is