Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 39
FRÉTTIR
Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - Fax: 562 0207
Netfang: perlan@perlan.is - Heimasí›a: www.perlan.is
Food&Fun matseðill Perlunnar og Michelin Chéf Markus Winkel-
mann er með eindæmum vel heppnaður – enda margverðlaunaðir
matreiðslumenn á ferð. Áður en gestir gæða sér á kræsingunum
býður Ölgerðin upp á vínkynningu á völdum eðalvínum.
9. mars hefst svo hið geysivinsæla Sjávarréttahlaðborð!
VÍNKYNNING FYRIR MAT
FRAMLENGT TIL 8. MARS!
STÓRI háskóladagurinn verður haldinn í annað
sinn, laugardaginn 25. febrúar, í Borgarleikhús-
inu og gefst þar gestum og gangandi kostur á að
kynna sér námsframboð sjö háskóla sem tefla
fram 98 námsleiðum. Hægt verður að kynna sér
allt frá hrossarækt yfir í kennaranám og að auki
verður hægt að fá ráðgjöf um nám erlendis,
námslán, stúdentaíbúðir og fleira.
Háskólarnir sem standa að kynningunni eru:
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík,
Háskólinn á Hólum, Kennaraháskóli Íslands,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Listaháskóli Ís-
lands og Viðskiptaháskólinn Bifröst.
Álfrún G. Guðrúnardóttir er kynningastjóri
Listaháskóla Íslands og hefur setið í samstarfs-
hópi háskólanna um skipulagningu dagsins. Að
hennar mati hefur þetta kynningarsamstarf
skilað sér með auknum áhuga nemenda á þess-
um háskólum. Hún segir að þótt samstarf há-
skólanna einkennist af samstöðu, tapist ekki
sérstaða hvers háskóla. Í fyrra komu um 2000
gestir og telur Álfrún að margir þeirra hafi sótt
um háskólanám við þá skóla sem kynntu námsframboð
sitt.
Ástæða þess að skólarnir hófu þetta kynningarsamstarf
var að þeir vildu veita mikilvæga þjónustu við nemendur
og þá sem vilja kynna sér það nám sem háskólar landsins
bjóða upp á. Á kynningunni er hægt að tala við kennara,
námsráðgjafa og/eða nemendur sem stunda nú nám við
þessa háskóla en Álfrún telur það vera sérstaklega mik-
ilvægt. Nemendur séu vel til þess fallnir að segja frá sinni
sýn á náminu, félagslífinu, veita upplýsingar um umsókn-
arferli og hvernig háskólasamfélagið er.
Með kynningunni telur Álfrún að fólk hafi aukna mögu-
leika til þess að kynna sér ólíkar námsleiðir, fá hugmyndir
að námsvali og jafnvel öðlast aukna víðsýni gagnvart
námsleiðum. Þetta sé því einstakt tækifæri til þess að fá
yfirsýn á námsframboð.
Stóri háskóladagurinn í Borgarleikhúsinu á laugardag
Frá Stóra háskóladeginum sem haldinn var í fyrsta skipti í fyrra.
Sjö háskólar kynna 98 námsleiðir
Morgunblaðið/Þorkell
ALÞJÓÐLEGUR dagur leiðsögu-
manna var á þriðjudag og af því
tilefni buðu Félag leiðsögumanna
og Ferðaskrifstofa Guðmundar
Jónassonar blindum og sjón-
skertum á Veiðisafnið á Stokks-
eyri. Í safninu fékk hópurinn, sem
taldi um 40 manns, að snerta upp-
stoppuð villt dýr frá öllum heims-
hornum, m.a. Afríku.
Þar hafa eigendur safnsins, Páll
Reynisson og Fríða Magnúsdóttir,
stundað veiðar á síðustu árum og
er afraksturinn fjölbreytt safn
dýra.
Hópurinn var ánægður með
heimsóknina og þær móttökur sem
hann fékk á safninu, segir í frétta-
tilkynningu. Alþjóðlegur dagur
leiðsögumanna var fyrst haldinn á
Íslandi árið 1990 og er sérstök
áhersla lögð á að gleðja þá sem
hafa síður tök á því að ferðast
sjálfstætt.
Blindir skoðuðu villt dýr
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Páll Reynisson segir gestunum sögu af sebrahaus sem er til sýnis á Veiðisafninu á Stokkseyri.
„FERÐAÞJÓNUSTA fyrir alla,“ er
yfirskrift námstefnu sem haldin verð-
ur á Hótel Sögu í dag frá kl. 13-17. Að
námstefnunni standa samgönguráðu-
neytið, Samtök ferðaþjónustunnar,
Ferðamálastofa og Öryrkjabandalag-
ið. Markmiðið er að hvetja þá sem
sinna ferðaþjónustu til að líta á að-
gengi sem eðlilegt gæðaviðmið.
Fötlun er margskonar
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF), væntir þess að í framhaldi af
námstefnunni verði teknar ákvarðan-
ir um hvernig bæta megi upplýsinga-
gjöf um aðgengi fatlaðra ferðamanna.
Erna sagði að í sumum upplýsinga-
bæklingum hefðu gististaðir verið
merktir með svonefndu „hjólastóls-
merki“ hefðu þeir verið aðgengilegir
hreyfihömluðum. Meðan engir aðrir
sinntu slíkri útgáfu gáfu hótelsam-
tökin út hótelbæklinga og voru þá í
samvinnu við Ferlinefnd fatlaðra um
úttektir á gististöðum. Enginn fékk
hjólastólsmerkið nema Ferlinefndin
væri búin að taka staðinn út. „Við höf-
um hvatt aðra útgefendur til að gera
það sama og ég veit ekki betur en að
þeir taki þetta alvarlega,“ sagði Erna.
Í nýrri hótelum og gististöðum er
tekið tillit til þarfa hreyfihamlaðra, að
sögn Ernu. Hún benti á að fötlun gæti
verið margs konar og ekki þyrfti allt-
af stórtækar aðgerðir til að létta fötl-
uðum lífið. „Ég nefni t.d. þá sem eru
sjóndaprir. Það er hægt að láta þá fá
matseðil með stækkuðu letri. Öryrkj-
ar, fatlaðir, margir eldri borgarar
sem eru hreyfihamlaðir og aðrir hóp-
ar eru gríðarstór markhópur, en
þarfir þeirra eru margvíslegar. Lík-
lega þarf að vekja alla þjóðina til með-
vitundar um það.“
Misbrestur á upplýsingagjöf
Sveinn Gústavsson, sem rekur
ferðaskrifstofuna Ferðafélagar ehf.,
þekkir vel til skipulagningar ferða
fatlaðra. Bæði hefur hann tekið á
móti útlendum hópum fatlaðra og
skipulagt ferðir Íslendinga með geð-
raskanir og þroskahamlanir til út-
landa.
Sveinn segir mikið skorta á að upp-
lýsingar um aðgengi fyrir fatlaða
ferðamenn hér á landi séu í lagi. Að
fenginni reynslu segist Sveinn t.d.
ekki bóka gistingu fyrir fólk í hjóla-
stólum nema að skoða aðstöðuna
sjálfur. Hann vann bækling um að-
gengi í Reykjavík (Accessible
Reykjavik) fyrir Sjálfsbjörgu og
Reykjavíkurborg, sem kom út 1997.
Hann kveðst ekki vita hvað hafi verið
gert síðan á því sviði.
„Það er ýmislegt sem ég hef þurft
að vinna í varðandi fatlað ferðafólk og
það er yfirleitt mjög þungur róður,“
sagði Sveinn. „Þegar rætt er um að-
gengi er hjólastóllinn alltaf í huga. En
það gleymist t.d. unga fólkið með
barnavagnana. Það þarf eins að taka
tillit til aðgengis þess.“
Misbrestir á aðgengi
fatlaðra ferðamanna