Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 41
DAGBÓK
Íþróttasamband fatlaðra, Challenge Aspenog Vetraríþróttamiðstöð Íslands standafyrir námskeiðum og fyrirlestrum umvetraríþróttir fatlaðra á Akureyri og í
Reykjavík 27. febrúar til 5. mars.
Hörður Elís Finnbogason skíðakennari er
einn af skipuleggjendum dagskrárinnar: „Segja
má að vetraríþróttir fatlaðra á Íslandi hafi fyrst
byrjað 1995 þegar keypt voru sérsmíðuð skíði til
Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík. Hins vegar
komst starfsemin ekki á flug fyrr en Vetrar-
íþróttamiðstöðin hélt ráðstefnu hér á landi 1998,
og var Paul Spade meðal ræðumanna og fjallaði
um vetraríþróttir fatlaðra.
Í kjölfarið fór Þröstur Guðjónsson, íþrótta-
kennari á Akureyri, til Aspen í Colorado og
hlaut þar þjálfun í skíðakennslu fyrir fatlaða hjá
Challenge Aspen-samtökunum. Við komuna aft-
ur til Íslands hélt hann síðan námskeið og aftur
að árið 2000 en þá kom hópur frá Challenge
Aspen og hélt stórt námskeið í Hlíðarfjalli,“ seg-
ir Hörður og bætir við að síðan þá hafi verið leit-
ast við að halda námskeið í vetraríþróttum fatl-
aðra árlega, þó stundum hafi veðurfar sett strik
í reikninginn.
„Markmið okkar er að kynna Íslendingum
nýja vídd í afþreyingu fatlaðra og sýna fram á að
fatlaðir geta stundað ýmiss konar útiveru og af-
þreyingu allan ársins hring. Ekki er aðeins
kennt á skíði, heldur fjöllum við almennt um
möguleika fjölskyldunnar til að stunda útiveru
með fötluðum fjölskyldumeðlimum.“
Kennara Challenge Aspen segir Hörður hafa
mikla reynslu í útivist og afþreyingu fatlaðra og
eru þeir mikill fengur fyrir dagskrána, en haldn-
ir verða þrír fyrirlestrar og tvö námskeið.
Fyrsti fyrirlesturinn er í Reykjavík 27. febr-
úar kl. 20 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal en
síðari tveir fyrirlestrarnir verða 1. og 3. mars í
Brekkuskóla á Akureyri og hefjast kl. 18. Eru
fyrirlestrarnir ókeypis og öllum opnir en fjallað
verður um starfsemi Challenge Aspen og um
nýjungar á sviði útivistar fyrir fatlaða.
Námskeiðin, sem fara fram í Hlíðarfjalli, eru
tvenns konar: Það fyrra, dagana 1. til 3. mars, er
ætlað fagfólki, s.s. íþróttakennurum, þroska-
þjálfum og iðjuþjálfum, en seinna námskeiðið, 3.
til 5. mars, er ætlað fötluðum, aðstandendum
þeirra og öllum öðrum sem áhuga hafa. Nám-
skeiðið hentar öllum fötlunarhópum, hvort held-
ur er fjölfötluðum eða þroskaheftum, sjón-
skertum og blindum eða þeim sem fatlast hafa
við útlimamissi.
Námskeiðsgjaldi er stillt í hóf og allur bún-
aður er til staðar en þátttakendur þurfa sjálfir
að skipuleggja gistingu og fæði á Akureyri á
meðan námskeiðið stendur yfir.
Skrá má þátttöku sem fyrst á annak@-
isisport.is eða hlidarfjall@hlidarfjall.is.
Íþróttir | Námskeið og fyrirlestrar um möguleika fatlaðra til útiveru og íþrótta að vetri til
Vetraríþróttir fatlaðra
Hörður Elís Finn-
bogason fæddist 1979 á
Akureyri. Hörður lærði
skíðakennslu fyrir fatl-
aða árin 2000–2001 í
Aspen og stundar nám í
ferðamálafræði að Hól-
um í Hjaltadal.
Hörður situr í vetrar-
íþróttanefnd Íþrótta-
félags fatlaðra og
stjórn Siglingaklúbbs-
ins Nökkva á Akureyri.
Sambýliskona Harðar er Freydís Heba Kon-
ráðsdóttir.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Glæpir og góðverk
og Ort í ull
ÞAÐ er mér einkar ljúft að vekja
athygli lesenda á ljómandi leiksýn-
ingu í Iðnó, þessu forna musteri
leiklistarinnar, á sunnudögum og
miðvikudögum.
Þar sýnir leikfélagið Snúður og
Snælda mjög skemmtilegt leikrit:
Glæpir og góðverk skal það heita í
leikgerð Sigrúnar Valbergsdóttur
undir leikstjórn Bjarna Ingvars-
sonar. Hér eru eldri borgarar á ferð
en engin ellimörk á sýningunni,
prýðilega vel farið með öll hlutverk
og skemmtileg tilþrif í gáskafullu
verki. Skýr framsögn og ágæt leik-
ræn tjáning einkenna sýninguna og
þarna sannast vissulega að hlátur-
inn lengir lífið því bráðsmellin til-
svör og skemmtileg en furðuleg at-
burðarás leggjast á eitt með að gera
sýninguna svo vel heppnaða.
Leikstjórinn kann greinilega þá
list að laða það bezta fram hjá öllum
en efniviðurinn er líka góður þar
sem leikgleðin er í fyrirrúmi og allir
leggja sig fram. Kærar þakkir, káti
hópur.
Svo langar mig að vekja nokkra
athygli á sýningunni hennar Sigrún-
ar Björgvinsdóttur frá Egilsstöðum
í Gerðubergi sem heitir því ljómandi
nafni: Ort í ull og eru orð að sönnu,
falleg og stílhrein myndverk úr
þæfðri ull. Sýningin stendur til 19.
mars svo ég hvet ykkur til að fara
og sjá.
Helgi Seljan.
Góðgerðarvika
NOKKRIR krakkar úr nemenda-
félagi Grunnskólans á Ísafirði eru
þessa vikuna að halda svokallaða
góðgerðarviku sem snýst um að það
verða 3 viðburðir í einni viku og all-
ur ágóði þessara viðburða rennur til
veikra barna í Afríku.
Á miðvikudaginn var menning-
arkvöld sem var opið almenningi.
Á hinum viðburðunum verða veit-
ingar og tónlistaratriði og margt
fleira. Á föstudaginn verður „drag-
show“ og i-Pod/mp3 spilara ball.
Þar koma allir með sinn eigin i-Pod
eða mp3 spilara og eru að skemmta
sér með honum, i-Podinn og mp3
spilarinn mun koma í staðinn fyrir
DJ. Á mánudaginn var bíókvöld, þar
var horft á kvikmynd og haft það
„kósí“.
Allur ágóði þessara viðburða og
styrkir frá hinum ýmsu fyrir-
tækjum svo sem: Langa Manga.
Jóni og Gunnu, Thai Koon, Hár-
kompaníi, Íslandsbanka og mörgum
fleiri munu renna til veikra og fá-
tækra barna í Afríku.
Marthen Elvar Veigarsson Olsen.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Bridshátíð.
Norður
♠109
♥ÁG83
♦D3
♣KDG62
Vestur Austur
♠643 ♠G752
♥D72 ♥104
♦1097642 ♦G85
♣8 ♣Á1093
Suður
♠ÁKD8
♥K965
♦ÁK
♣754
„Hvað ertu að rifja þetta upp – ég
svaf ekki í nótt út af þessu spili.“
Einn af keppendum í Flugleiðamót-
inu var óánægður með frammistöðu
sína í spili dagsins, sem kom upp í
sjöttu umferð á laugardagskvöldinu.
Þegar spilið bar á góma í kaffispjalli á
sunnudagsmorgun kom í ljós að við-
komandi hafði keyrt í sex hjörtu, sem
snarlega fóru niður eftir lauf út og
stungu.
„Auðvitað átti ég að reyna sex
grönd, enda 4-4-fittið er stórlega of-
metið í slemmum.“
Það er nokkuð til í því. Ekki er betra
að spila sex lauf, en þeir örfáu spilarar
sem reyndu sex grönd uppskáru ríku-
lega, því sex grönd vinnast með þving-
un í svörtu litunum.
Skoðum málið. Út kemur tígull og
sagnhafi spilar strax litlu laufi að hjón-
unum. Ef austur dúkkar, fer suður
heim á hjartakóng til að spila aftur
laufi. Legan sýnir sig og sennilega
drepur austur og skiptir yfir í spaða.
Sagnhafi tekur hátt og svínar hjarta-
gosa. Hirðir svo slagina á rauðu litina
og neyðir austur til að fækka við sig
spöðum, svo gosinn í spaða fellur sjálf-
krafa í lokin og spaðaáttan verður úr-
slitaslagurinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 dxc4 4. e3 e6
5. Bxc4 a6 6. a4 c5 7. 0-0 Rc6 8. De2
Dc7 9. Rc3 Bd6 10. Hd1 0-0 11. h3 b6
12. d5 exd5 13. Rxd5 Rxd5 14. Bxd5
Bb7 15. b4 Had8 16. bxc5 Bxc5 17.
Bb2 De7 18. Dc4 Hd6 19. Dg4 Hg6 20.
Dh4 Ba8 21. Hac1 He8 22. Df4 Bd6 23.
Df5 Bc5 24. h4 Rb4 25. Bxa8 Hxa8 26.
Rg5 Bd6
Staðan kom upp í C-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Hollenski alþjóðlegi meistarinn Jan
Werle (2.514) hafði hvítt gegn landa
sínum Harmen Jonkman (2.470). 27.
Hxd6! Dxd6 27. … Hxd6 hefði rakleið-
is leitt til máts eftir 28. Dxh7+. 28.
Dxf7+ Kh8 29. Dc4 Hxg5 30. hxg5
Rd3 31. Dc8+! Df8 32. Bxg7+! Kxg7
33. Dd7+ Kg8 34. Dxd3 hvítur er nú
tveim peðum yfir og með léttunnið
tafl. 34. … Df7 35. Hc6 Hf8 36. Hf6
Da2 37. Hxf8+ Kxf8 38. Dxh7 Da1+
39. Kh2 Dxa4 40. g6 Ke8 41. g7 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
70 ÁRA afmæli. 28. febrúar nk. ersjötugur Ólafur Jónsson,
Jaðarsbraut 25, Akranesi. Hann tekur
á móti gestum sunnudaginn 26. febr-
úar í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akra-
nesi milli kl. 16 og 19.
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI
ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA
Óskum eftir 400-500 fm einbýlishúsi á Seltjarnar-
nesi. Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veita
Sverrir og Óskar
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Réttir kvöldsins
Verð fyrir einrétta: Verð fyrir þrírétta:
Forréttir
Humarsúpa með rjómatoppi og hvítlauksbrauði 990.-
Aðalréttir
Smjörsteiktur skötuselur
með hvívínssósu, grænmeti og bakaðri kartöflu 3.390.- 4.390.-
Kjúklingabringa
með ítalskri basilbættri tómatsósu,
sellerí/gulrótarstrimlum og bakaðri kartöflu 2.950.- 3.890.-
Lambafillet
með sherrybættri sveppasósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu 3.390.- 4.390.-
Nautalundir
með chateaubriandsósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu 3.700.- 4.690.-
Eftirréttir
Súkkulaðifrauð 790.-
Veitingahúsið Madonna, Rauðarárstíg 27-29. Borðapantanir eru í síma 5621988.
LISTA- og menningarhátíð sem
undirbúin er og skipulögð af ung-
lingum í félagsmiðstöðinni Ozon er
orðin að árlegum viðburði í menn-
ingarlífi á Ströndum og er ein
stærsta fjáröflun Ozon ár hvert.
Að þessu sinni verður hátíðin
haldin í félagsheimilinu á Hólmavík
25. febrúar nk. kl. 20.
Einar Már Guðmundsson rithöf-
undur verður aðalgestur kvöldsins,
les úr verkum sínum og spjallar við
samkomugesti.
Aðrir sem koma fram eru m.a.
Stefanía Sigurgeirsdóttir píanó-
leikari og Þorbjörg Matthíasdóttir
þverflautuleikari, félagar úr Leik-
félagi Hólmavíkur, Uppistand með
Júlla hinum eina sanna, fjölbreytt
atriði frá unglingunum í Ozon, tón-
listarmennirnir Hjörtur og Rósi
Núma ásamt söngvaranum Lýð
Jónssyni.
Unglingahljómsveitirnar Dans-
band Victors og Micado, Söngva-
skáldið Kristján Sigurðsson og
Lára G. Agnarsdóttir söngkona,
sönghópurinn Bjútí and ðe bíst,
Stefán Jónsson píanóleikari, Bjarni
Ómar & beibís, kvikmyndagerðar-
menn úr Stuntman-hópnum sýna
brot af því besta, siguratriðið í vest-
fjarðariðli söngvakeppni Samfés
o.fl.
Miðaverð er 1.500 kr. fyrir full-
orðna og 500 kr. fyrir 6–14 ára,
frítt fyrir börn yngri en fimm ára.
Veitingar, kaffi, djús og bakkelsi er
innifalið í aðgangseyri.
Lista- og menningar-
hátíð ungs fólks á
Hólmavík um helgina
SUNNUDAGINN 26. febrúar kl. 16
bjóða Suðsuðvestur og Sigríður
Ólafsdóttir myndlistarmaður til
listamannsspjalls, en þetta er síð-
asta helgi sýningar hennar.
Sigríður talar um verk sín og sýn-
inguna er nefnist „Málaðar myndir
af fólki“. Eins og titillinn ber með
sér er um að ræða mannamyndir og
er vísað til hefðbundins uppruna
verkanna í portrett-málverkum.
Fyrirmyndirnar eru fólk úr nánasta
umhverfi listamannsins, fjölskyldan,
vinir og aðrir sem Sigríður hefur
samskipti við. Hún vinnur úr hverju
viðfangsefni til þrautar og málar
hverja fyrirmynd hvað eftir annað til
að ná fram ákveðnu ferli þar sem
nánd viðfangsefnisins víkur smám
saman fyrir yfirborðinu, þeim form-
um og litum sem fyrirmyndin fram-
kallaði. Við það opnast nýjar víddir
og möguleikar í túlkun og framsetn-
ingu. Hver mynd leiðir til annarrar,
hvert verk sprettur úr öðru. Sigríð-
ur býður sýningargestum að taka
þátt í þessu ferli með því að mála
myndir á staðnum af fyrirfram-
gefnum mótífum.
Suðsuðvestur er opið fimmtudaga
og föstudaga frá klukkan 16–18 og
um helgar frá klukkan 14–17.
Listamannsspjall
í Suðsuðvestur