Morgunblaðið - 24.02.2006, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM 400 KR.
Í BÍÓ
*
DÖJ – kvikmyndir.com
VJV Topp5.is
Kvikmyndir.com
Rolling Stone
Topp5.is
Margverðlaunuð gæðamynd frá leikstjóranum
George Clooney sem hlotið hefur einróma lof
gagnrýnenda um allan heim.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Nýt t í b íó
SEXÍ, STÓRHÆTTULEG OG ÓSTÖÐVANDI
„…listaverk, sannkölluð perla“
DÖJ – kvikmyndir.com
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM!
Óþekkustu börn í
heimi hafa fengið
nýja barnfóstru sem
er ekki öll þar sem
hún er séð.
YFIRVOFANDI HÆTTA OG SAMSÆRI
LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM TVEGGJA EINSTAKLINGA
Ein besta
mynd ársins.
Frá leikstjóra
City of God eftir
metsölubók
John Le Carré
10 BAFTA tilnefningar
4 Óskarstilnenfi ngar
3 Golden Globe
DÖJ – kvikmyndir.com
VJV Topp5.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
BESTA LEIK-
KONA
ÁRSINS
walk the line
V.J.V Topp5.is
S.V. Mbl.
M.M.J Kvikmyndir.com
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
m.a. besta mynd, besti leikstjóri og
besti leikari í aðalhlutverki5
Stórkostleg verðlaunamynd
Byggð á sönnum atburðum
BESTI LEIKARI
ÁRSINS Í AÐAL-
HLUTVERKI
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
THE CONSTANT GARDENER kl. 8 og 10.30
NANNY McPHEE kl. 6 og 8
UNDERWORLD 2 kl. 10 B.I. 16 ÁRA
FINAL DESTINATION 3 kl. 6 B.I. 16 ÁRA
CONSTANT GARDENER kl. 5, 8 OG 10.45 B.I. 16 ÁRA
NANNY MCPHEE kl. 3.40 OG 5.50
UNDERWORLD kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
ZATHURA M / ÍSL TALI kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA
ZATHURA M /ENSKU TALI kl. 5.50 B.I. 10 ÁRA
WALK THE LINE kl. 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
WALK THE LINE LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.40, 8 og 10.10
Óþekkustu börn í
heimi hafa fengið
nýja barnfóstru sem
er ekki öll þar sem
hún er séð.
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SVAKALEGUR
SPENNUTRYLLIR
ÞEGAR RÖÐIN
KEMUR AÐ ÞÉR
ÞÁ FLÝRÐU EKKI
DAUÐANN
FÉLAG tónlistarnema stóð fyrir
baráttutónleikum á skemmtistaðn-
um NASA í fyrrakvöld og voru
Stuðmenn, Diddú, Páll Óskar,
Monica og Ragnheiður Gröndal
meðal þeirra sem tróðu upp. Að
sögn Böðvars Reynissonar, for-
manns Félags tónlistarnema,
heppnaðist kvöldið afar vel og taldi
hann að yfir 200 gestir hefðu sótt
tónleikana.
Allur ágóði af tónleikunum fer í
að greiða kostnað við málarekstur
félagsins á hendur Reykjavíkur-
borg og Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga, en félagið hefur lagt fram
stjórnsýslukæru þar sem það telur
að Reykjavíkurborg hafi brotið
rétt á tónlistarnemum þegar
ákveðið var að greiða ekki lengur
með nemendum eldri en 25 ára og
söngnemendum yfir 27 ára aldri.
Þá hefur félagið einnig gagnrýnt
ákvörðun borgarinnar um að
greiða ekki með tónlistarnemum
úr öðrum sveitarfélögum, sem
sækja tónlistarnám sitt í borginni.
B3 Tríó var meðal þeirra sem komu fram á tónleikum Félags tónlistarnema.
Morgunblaðið/Sverrir
Ragnheiður Gröndal steig á svið.
Baráttutónleikar
tónlistarnema
HLJÓMSVEITIN Mezzoforte er á
leiðinni til Indónesíu þar sem sveit-
in spilar á tónlistarhátíðinni Java
Jazz. Sveitin mun halda úti bloggi
frá ferðinni og lítur fyrsta færslan
dagsins ljós í dag, þótt ferðin hefj-
ist ekki fyrr en á mánudaginn.
Hægt er að skoða færslurnar með
því að smella á hnapp á forsíðu
mbl.is undir hausnum „Nýtt á
mbl.is“.
Að sögn Gríms Atlasonar, um-
boðsmanns sveitarinnar, er hún
vinsælli en margan grunar. „Ég
held að það geri sér ekki allir grein
fyrir því hvað Mezzoforte er virt
hljómsveit um allan heim. Menn
tala oft um Björk, Sykurmolana og
Sigur Rós. Mezzoforte kom á und-
an þeim og er ennþá mjög vinsæl
sveit,“ segir Grímur. „Þeim var
boðið á þessa hátíð, en þetta er
mjög stór hátíð í Asíu, og mjög vel
þekkt í þessum bransa. Þetta verða
tvennir tónleikar sem báðir fara
fram í Jakarta,“ segir Grímur og
bætir því við að nokkrar heims-
þekktar hljómsveitir komi fram á
hátíðinni. „Þarna verða nokkrar
gamlar lummur eins og Kool & the
Gang, Brand New Heavies, og
fleiri góðar sveitir.“
Að sögn Gríms er þetta ekki í
fyrsta skipti sem sveitin fer til
Indónesíu. „Þeir fóru síðast 1997
eða 1998, en ég held að þeir hafi
farið þrisvar áður. Þeir voru mjög
stórir á þessu svæði og reyndar í
Japan líka. Þaðan koma margar
fyrirspurnir um þá,“ segir Grímur.
Aðspurður segir hann enga sér-
staka hræðslu í hópnum vegna
óeirðanna í Mið-Austurlöndum
vegna birtingar danska blaðsins
Jótlands-póstsins á skopmyndum af
Múhameð.
„Ég set smá fyrirvara við þetta
mál, þótt auðvitað séu þetta alvar-
legar fréttir. Ég sá til dæmis í
fréttum í morgun að 500 múslimar
hefðu mótmælt fyrir danska sendi-
ráðið í Jakarta. Maður verður að
gera sér grein fyrir því að það búa
yfir hundrað milljónir manna á
þessu svæði þannig að 500 manns
er ekki mikið í samanburði við
það,“ segir Grímur. Alls mun ferða-
lagið taka um viku og mun hljóm-
sveitin, sem í eru alls sjö manns,
blogga með jöfnu millibili alla ferð-
ina.
Tónlist | Mezzoforte á leið til Indónesíu
Halda úti
bloggi á mbl.is Morgunblaðið/ÞÖKGrímur Atlason er umboðsmaður
hljómsveitarinnar Mezzoforte.
Morgunblaðið/Golli
„Ég held að það geri sér ekki allir grein fyrir því hvað Mezzoforte er virt
hljómsveit um allan heim,“ segir Grímur.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
www.mbl.is
www.javajazzfestival.com/2006
www.mezzoforte.com