Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 49 KIRKJUSTARF Elísa Sveinsdóttir, Suðurgarði 9. Elva Björk Sigurðardóttir, Elliðavöllum 6. Hinrik Örn Sölvason, Freyjuvöllum 10. Hrönn María Jóhannsdóttir, Elliðavöllum 15. Ingi Þór Hallgrímsson, Gígjuvöllum 3. Ingvar Steinþórsson, Óðinsvöllum 7. Jóna Kristín Birgisdóttir, Suðurvöllum 2. Karen Guðnadóttir, Suðurvöllum 20. Kristinn Ingi Reynisson, Hringbraut 44. Kristján Helgi Olsen Ævarsson, Heiðarhorni 8. Magnús Þór Magnússon, Gígjuvöllum 6. Sigurður Vignir Guðmundsson, Bragavöllum 2. Thelma Rut Kristinsdóttir, Norðurvöllum 26. Ferming í Keflavíkurkirkju 26. mars kl. 14. Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Fermd verða: Alexandra Bernh. Guðmundsdóttir, Heiðarholti 23. Ármann Ævar Halldórsson, Norðurgarði 7. Berglind Gréta Kristjánsdóttir, Hamragarði 1. Eðvald Freyr Ómarsson, Heiðarbraut 3e. Elísa Rut Gunnlaugsdóttir, Ægisvöllum 5. Eyjólfur Sverrisson, Bragavöllum 8. Guðrún Ólöf Olsen, Heiðarbóli 43. Harpa Rún Guðlaugsdóttir, Heiðarbraut 7f. Hildur María Sveinsdóttir, Háholti 25. Jón Vigfússon, Ránarvöllum 13. Kristinn Bergsson, Hamragarði 12. Kristín Rán Júlíusdóttir, Bragavöllum 11. Kristján Þór Smárason, Heiðarbóli 23. Óli Baldur Jakobsson, Ránarvöllum 19. Pálmar Sigurpálsson, Norðurgarði 10. Sandra Guðný Víðisdóttir, Norðurvöllum 58. Sigrún Ósk Magnúsdóttir, Heiðarbóli 15. Tanía Björk Gísladóttir, Ásgarði 2. Trausti Örvar Jónsson, Heiðarbraut 29c. Viktor Smári Hafsteinsson, Heiðarbraut 2. Ferming í Akraneskirkju 26. mars kl. 10.30. Prestur sr. Eðvarð Ingólfsson. Fermd verða: Arnar Þór Ólason, Jörundarholti 136. Guðjón Freyr Eiðsson, Jörundarholti 144. Heiðar Þór Lárusson, Vogabraut 36. Helga Rós Gísladóttir, Eyrarflöt 2. Jón Björgvin Kristjánsson, Stillholti 1. Jóna Kolbrún Einarsdóttir, Höfðabraut 14. Margrét Rán Magnúsdóttir, Vesturgötu 88. Telma Björk Helgadóttir, Esjuvöllum 24. Unnur Rebekka Þráinsdóttir, Jörundarholti 30. Ferming í Akraneskirkju 26. mars kl. 14. Prestur sr. Eðvarð Ingólfsson. Fermd verða: Auðunn Björnsson, Krókatúni 3. Ástrós Sveina Jóhannesdóttir, Vesturgötu 147. Baldur Ólafur Kjartansson, Reynigrund 24. Engilbert Svavarsson, Einigrund 14. Hallur Flosason, Jörundarholti 232. Hildigunnur Einarsdóttir, Háholti 1. Hinrik Grétarsson, Hjarðarholti 5. Ingþór Kárason, Esjubraut 14. Karólína Hrönn Hilmarsdóttir, Skagabraut 41. Ólafur Jósef Ólafsson, Jaðarsbraut 7. Sigrún Rós Arnardóttir, Merkurteigi 8. Sigurður Trausti Karvelsson, Skarðsbraut 2. Sóley Bára Bergsteinsdóttir, Jörundarholti 140. Valgerður Stefánsdóttir, Faxabraut 15. Vigdís Ólafsdóttir, Jörundarholti 224. Selfosskirkja 50 ára LAUGARDAGINN 25. mars og sunnudaginn 26. mars verður það haldið hátíðlegt að 50 ár eru liðin frá vígslu Selfosskirkju. Í tilefni af afmælinu verður sung- in morguntíð kl. 10 á laugardeg- inum og miðdagstíð kl. 11.30. Þá verður heitt á könnunni. Kl. 16.30 þann sama dag (laugardag) verður samkoma í Selfosskirkju. Séra Sig- urður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, flytur erindi um séra Sig- urð Pálsson (1901–1987) vígslu- biskup Skálholtsbiskupsdæmis og frumkvöðul að endurnýjun helgisiða og messusöngs á Íslandi. Sókn- arprestur rifjar upp nokkur atriði úr sögu kirkjunnar. Unglingakór Selfosskirkju syngur undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Sunnudaginn 26. mars verður barna- og fjölskyldusamkoma í kirkjunni kl. 11. Sama dag (sunnu- dag) verður sungin hátíðarmessa kl. 14. Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup predikar en sókn- arprestur þjónar fyrir altari. Kór- stjóri er Glúmur Gylfason, organisti Jörg Sondermann og forsöngvari Stefán Þorleifsson. Kirkjukór Sel- fosskirkju auk barna og ungmenna. Í athöfninni verður sunginn Kirkjuvígslusálmur eftir Hjört Þór- arinsson. Þá verða tekin í notkun nýr kaleikur, patína og oblátuöskj- ur, gjöf Kvenfélags Selfosskirkju. Gripirnir voru smíðaðir af Hörpu Kristjánsdóttur gullsmið. Eftir athöfnina býður sókn- arnefnd öllum viðstöddum veislu- kaffi á Hótel Selfossi. Kirkjan var vígð á pálmasunnu- dag, hinn 25. mars 1956, af herra Ásmundi Guðmundssyni, biskupi Ís- lands. Bjarni Pálsson (1912–1987), skólastjóri Iðnskólans á Selfossi, teiknaði kirkjuna. Yfirsmiður var Guðmundur Sveinsson húsasmíða- meistari (f. 1923). Múrverk vann Friðrik Sæmundsson múrarameist- ari (1927–2005). Kirkjan var máluð að innan af hjónunum Jóni og Grétu Björnsson árið 1955. Orgel Selfoss- kirkju er af gerðinni Steinmeier frá Hamborg og var tekið í notkun 1. nóvember 1964. Við hátíðarguðsþjónustu í Selfoss- kirkju hinn 11. ágúst 1991 var þess minnst að lokið var bygginga- framkvæmdum við kirkju, safn- aðarheimili og turn. Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup Íslands, bless- aði bygginguna. Ég vona, að Selfyssingar fjöl- menni við hátíðarhöldin. Sr. Gunnar Björnsson. Æðruleysismessa í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði Á MORGUN, sunnudaginn 26. mars kl. 20, verður æðruleysismessa í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði. Það er hóp- ur áhugafólks um æðruleysismessur sem stendur á bak við þetta helgi- hald ásamt prestum Fríkirkjunnar. Þetta áhugafólk hefur kynnst reynslusporunum 12 sem liggja til grundvallar í öllu starfi AA- samtakanna svo og samtaka að- standenda alkóhólista í Al-Anon og annarra samtaka sem vinna á sama grunni en þar má nefna Sporin 12 – andlegt ferðalag sem m.a. eru starf- rækt í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Fyrsta æðruleysismessan var haldin í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fyrir einu og hálfu ári síðan og hafa þær verið haldnar mánaðarlega nema yfir sumartímann. Heitið á messunni er dregið af æðruleysisbæninni sem notuð hefur verið um langan aldur af félögum í AA-samtökunum og Al-Anon. Æðruleysismessur eru kjörið tækifæri fyrir alla þá sem kynnast vilja nánar góðum aðferðum til að bæta líf og líðan. Tónlistin verður af léttara taginu í stíl við þá gleði sem auðkennir góðan bata og annast „Fríkirkjubandið“ hana. Að lokinni messu munu þau sem standa á bak við þetta framtak bjóða upp á kaffisopa í safnaðarheimili Fríkirkjunnar. Æðruleysismessa í Hafnarfjarðarkirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 26. mars kl. 20.00 fer fram æðruleysismessa í Hafnarfjarðarkirkju. Prestar eru sr. Ólafur Jens Sigurðsson og sr. Gunnþór Þ. Ingason. Baldur Baldursson segir frá reynslu sinni. Tónlistarflutningur verður á léttum og björtum nótum hljómsveit- arinnar Gleðigjafa. Þrír A-hópar sækja nú vikulega fundi í Vonarhöfn safnaðarheimilisins Strandbergs. Þess er vænst að AA-menn, og aðrir sem nýta sér 12 spora kerfið til stuðnings í lífinu, fjölskyldur og vel- unnarar þeirra sæki æðruleys- ismessuna á sunnudagskvöldið kem- ur í Hafnarfjarðarkirkju. Hún er öllum opin og eftir hana verður boð- ið upp á kvöldhressingu í Vonarhöfn safnaðarheimilisins Strandbergs. Tómasarmessa í Breiðholtskirkju ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til sjöttu messunnar á þessum vetri í Breið- holtskirkju í Mjódd sunnudags- kvöldið 26. mars kl. 20. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu átta árin. Fram- kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guð- fræðinema og hópur presta og djákna. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mik- il áhersla er lögð á fyrirbænaþjón- ustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og fram- kvæmd Tómasarmessunnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Að Tómasarmessunni lokinni verður síðan kökubasar barna- og unglingakórs Breiðholtskirkju til styrktar ferðalagi kórsins á norrænt barnakóramót í Danmörku í sumar. Kyrrðarstund og barnamessur í Grafarvogskirkju NÚ eru fermingar hafnar í Graf- arvogskirkju. Barnaguðsþjónustur verða haldnar áfram kl. 11 í kirkj- unni og í Borgarholtsskóla. Kyrrðarstundir eru í hádegi á miðvikudögum kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins, séra Vigfús Þór Árnason, séra Anna Sigríður Pálsdóttir, séra Bjarni Þór Bjarna- son og séra Lena Rós Matthías- dóttir, þjóna fyrir altari. Organisti er Hörður Bragason. Allir velkomn- ir. Breskur stúlknakór í Langholtskirkju STÚLKNAKÓRINN Schola Cantor- um of Calne frá Vestur-Englandi syngur við messu í Langholtskirkju á boðunardegi Maríu, sunnudaginn 26. mars, kl. 11. Kórinn syngur líka á tónleikum í kirkjunni síðdegis kl. 16 ásamt Gradualekór Langholts- kirkju og er aðgangur þá ókeypis. Vídalínsmessa ÞAÐ er stór dagur í Vídalínskirkju sunnudaginn 26. mars, þá verður frumflutt ný messa kl. 11 í kirkj- unni. Höfundur þeirrar lofgjörðar er tónskáldið Hildigunnur Rúnars- dóttir. Messan er samin við hefðbundinn latneskan messutexta, en á milli kaflanna er sungið úr Postillu hr. Jóns Vídalíns. Verkið er samið fyrir kór Vídalínskirkju, tvo einsöngvara og hljómsveit. Flytjendur eru kór Vídalínskirkju, Hallveig Rúnars- dóttir sópran, Ólafur Rúnarsson tenór og hljómsveit. Það er Jóhann Baldvinsson organisti og kórstjóri Garðasóknar sem stjórnar. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Friðrik J. Hjartar ásamt Nönnu Guðrúnu Zoega djákna þjóna fyrir altari. Boðið verður upp á akstur frá Hlein- um kl. 10.40. Sunnudagskóli á sama tíma undir stjórn Rannveigar Kára- dóttur æskulýðsfulltrúa. Sjá www.gardasokn.is. Allir velkomnir. Hjóna- og sambúðarmessa MIKILVÆGUSTU undirstöðurnar í sambúð og hjónabandi eru ástin, trúfestin og virðingin. Allar þessar þrjár stoðir þarf rækta. Það er mik- ilvægt að kirkjan bjóði þjónustu sem hjálpar hjónum og sambúðarfólki að rækta þessar undirstöður. Þess vegna er boðið til hjóna- og sambúð- armessu í Bessastaðakirkju sunnu- daginn 26. mars kl. 20. Þetta er önnur kvöldmessan af þessu tagi á árinu 2006, en þetta nýja helgihald er samstarfsverkefni Bessastaða- og Garðasóknar. Prest- arnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Friðrik J. Hjartar þjóna fyrir altari, en hjónin Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur og Valdís Ösp Ív- arsdóttir fjölskylduráðgjafi verða með fræðsluna. Tónlistin er í hönd- um Ómars Guðjónssonar gítarleik- ara og Rannveigar Káradóttur söngkonu. Sjá www.gardasokn.is. Allir velkomnir óháð aldri og kyn- hneigð. Stór dagur í Bessastaðasókn SUNNUDAGINN 26. mars kl. 14 verður Taize-messa í Bessastaða- kirkju. Bjartur Logi Guðnason org- anisti mun kynna hina sérstæðu bænatónlist sem kemur frá klaustri í Frakklandi. Síðan munu hann og kór kirkjunnar leiða lofgjörðina ásamt klarínettuleikurunum Vífli Valdimarssyni og Baldvini Tryggva- syni sem eru nemendur við tónlist- arskólann á Álftanesi. Sr. Friðrik J. Hjartar og Gréta Konráðsdóttir djákni þjóna fyrir altari, en sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar. Strax að lokinni messu verður aðalsafn- aðarfundur í hátíðarsal íþrótta- rhússins á Álftanesi. Kl. 11 um morguninn verður sunnudagskóli í sal Álftanesskóla. Um kvöldið verð- ur svo hjóna- og sambúðarmessa í Bessastaðakirkju kl. 20. Allir vel- komnir. Brynjólfsmessa í Grafarvogskirkju Í ÁGÆTRI umfjöllun Morgunblaðs- ins um Brynjólfsmessu, tónverk Gunnars Þórðarsonar, láðist að geta þess að hið glæsilega tónverk verð- ur flutt í Grafarvogskirkju næst- komandi miðvikudag, 29. mars kl. 20.30. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja. Jesus de Montréal JESÚS frá Montréal er fjórða Jesú- myndin af sex sem sýndar eru í Nes- kirkju á sunnudögum kl. 15 undir yfirskriftinni Jesúbíó. Myndin er bæði hefðbundin Jesúmynd og mynd um „kristsgerving,“ þar sem mörkin á milli persónu Jesú og leikarans, sem leikur hann, verða stöðugt ógreinilegri. Spjótum er beint að yf- irborðsmennsku, mannfyrirlitningu og græðgi annars vegar og hins veg- ar að hræsni trúarleiðtoga og vald- níðslu kirkjustofnana. Ásgrímur Sverrisson og Sigurður Árni Þórð- arson flytja stutt inngangserindi um myndina fyrir sýningu. Sýningarnar eru á vegum Guðfræðistofnunar, Deus ex Cinema og Neskirkju og í boði Kristnihátíðarsjóðs. Kaffitorgið opið frá kl. 14. Allir velkomnir. Ensk messa í Hallgrímskirkju Á SUNNUDAG, 26. mars nk. kl. 14.00 verður haldin ensk messa í Hallgrímskirkju. Prestar verða sr. Bjarni Þór Bjarnason og sr. Jón Hagbarður Knútsson. Organisti verður Douglas A. Brotchie. Jónína Kristinsdóttir mun leiða almennan safnaðarsöng. Fimmta árið í röð er boðið upp á enska messu í Hall- grímskirkju síðasta sunnudag hvers mánaðar. Messukaffi. Service in english SERVICE in english at the church of Hallgrímur (Hallgrímskirkja) 26th of March, at 2 pm. Holy comm- union. The fourth sunday of lent. Priests: The Revd Bjarni Thor Bjarnason and the Revd Jón Hag- barður Knútsson. Organist: Douglas A. Brotchie. Leading singer: Jónína Kristinsdóttir. Refreshments after the service. Morgunblaðið/KristinnSelfosskirkja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.