Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jónas Helgasonfæddist hinn 30. apríl 1918. Hann dó á Sjúkrahúsinu á Húsavík hinn 17 mars síðastliðinn, sonur hjónanna Helga Jónassonar náttúrufræðings og bónda á Gvendar- stöðum og konu hans Halldóru Jóns- dóttir frá Fornastöð- um. Jónas var elstur átta systkina: Næst- ur var Ingi, f. 1919, d. 1984, kvænt- ur Guðnýju Þórhallsdóttur frá Ljósavatni, þau eignuðust fjögur börn; Rannveig, f. 1921, hennar maður var Þorvaldur Helgason úr Reykjavík, hún eignaðist einn son; Forni, f. 1923, d. 1981, bjó á Gvend- arstöðum með systkinum sínum; Sæmundur, f. 1925, kvæntur Guð- björgu Guðmundsdóttur frá Haf- þórsstöðum í Norðurárdal, þau eiga fimm börn; Oddur, mjólkur- fræðingur í Reykjavík, f. 1926; Jór- unn, f. 1928, hennar maður var Guð- mundur A. Jónsson, hún á eina dóttur og Kristín, f. 1930, býr á Gvendarstöðum, hún á einn son. Jónar var á Al- þýðuskólanum á Laugum í 2 vetur, seinni veturinn í smíðadeild, vann við smíði á brúnni yfir Skjálfandafljót neð- an Ófeigsstaða einn- ig vann hann við húsbyggingar hjá sveitungum og víðar. Hann var mikill félagsmála- maður, var í ungmennafélaginu Gaman og alvara, var þar formað- ur um tíma, sat í hreppsnefndinni um skeið, var í Skógræktarfélagi Suður-Þingeyinga. Jónas var mik- ill bindindismaður og var lengi áfengisvarnafulltrúi hreppsins. Útför Jónasar fer fram frá Þór- oddstaðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Jarðsett verður í heimagrafreit á Gvendarstöðum. Í dag er til moldar borinn ástkær mágur minn, Jónas Helgason frá Gvendarstöðum. Við hjónin, Sæmundur og ég, nut- um frá upphafi kynna okkar ríku- legrar vináttu hans og ástríkis bæði gagnvart okkur sjálfum og síðan okkar afkomenda á meðan hann lifði, þökk sé honum. Hann lifði bara of stutt eins og allir þeir er við vildum ekki missa. Fyrir nokkrum árum datt okkur hjónunum í hug að setja niður svona til að prufa og skreyta umhverfið, nokkrar trjáplöntur. Fyrr en varði, var Jónas kominn á jeppa sínum með 20 plöntur sem hann plantaði sjálfur í örlítinn auðan reit norðan við bæinn okkar. Ár eftir ár kom Jónas með fleiri plöntur í reitinn sinn sem í dag er orðinn stærðar garður og heitir í höfuð honum: Jónasarreitur. Jónas var mikill skógræktarunn- andi og þótti afar vænt um skóg- ræktina sína. Það var svo gaman þegar við komum að Gvendarstöðum og hann fór með okkur á jeppanum sínum upp í hlíðina fyrir ofan bæinn svo við gætum horft yfir veldi hans, skóginn hans allan. Það voru yndis- legar stundir Sá erfiði sjúkdómur er lagði hann að velli er eftir á að hyggja varla samboðinn þeim manni er Jónas hafði að geyma því honum varð ekki svo heitið gæti misdægurt alla sína ævi. Hann var sterkbyggður maður til líkama og sálar og bar veik- indi sín með hetjulund til síðasta dags og kvaddi jarðvist sína með reisn. Guð veri með sálu hans, ég veit að hann fær góða heimkomu þar sem hann er nú. Jónas, hjartans þakkir fyrir öll okkar kynni og innileg kveðja frá bónda mínum. Þín mágkona, Guðbjörg. Nú fækkar þeim óðum, sem fremstir stóðu, sem festu rætur í íslenzkri jörð, veggi og vörður hlóðu og vegi ruddu um hraun og skörð, börðust til þrautar með hnefa og hnúum og höfðu sér ungir það takmark sett: að bjargast af sínum búum og breyta í öllu rétt. Þessi orð skáldsins Davíðs Stef- ánssonar komu mér í hug er ég frétti andlát gamals sveitunga míns og frænda, Jónasar Helgasonar á Gvendarstöðum. Jónas var mikill og góður ræktunarmaður í bestu og víð- ustu merkingu þess orðs. Heimahag- arnir bera því fagurt vitni, en þeir voru honum afar kærir og gott er til þess að vita að þar skuli honum búin hinsta hvíla. Nágrannar mínir á Gvendarstöð- um eru órjúfanlegur hluti bernsku- minninganna. Upp í hugann koma ótal svipmyndir. Jónas var af þeirri kynslóð sem fæddist á fyrsta fjórð- ungi síðustu aldar. Kynslóð sem trú- lega hefur lifað meiri breytingar en nokkur önnur frá því að landið byggðist. Ólst upp við það að berjast áfram og brjóta land til ræktunar áð- ur en vélaöldin hóf innreið sína. Fyrsta kynslóðin sem kynntist drátt- arvélum og þeirri byltingu sem þær höfðu í för með sér. Fyrst litlar vélar, Farmall A, Farmall Cub og gamli Ferguson um miðja síðustu öld. Síð- ar kröftugri dísilvélar í kringum 1960. Jónas átti eina af þeim öflug- ustu í sveitinni á þeim tíma, Fordson Major. Ein af minningunum tengist þeirri vél. Vorverk stóðu yfir á túni útundir merkjum Hlíðar og Gvendarstaða. Klaki að fara úr jörð og sums staðar ansi blautt. Dráttarvélin á kafi og greinilega mikið erfiði framundan að ná henni upp. Hafist var handa við mokstur og grjótburð. Þá heyrðist hinn djúpi en þýði Fordson hljómur og hann sást koma akandi norðan slóða milli bæjanna. Brátt var Jónas kominn í bláa samfestingnum sínum, kaðall bundinn milli véla og málið leyst. Deginum bjargað. Ekkert sjálfsagðara. Eitt dæmi af mörgum um góða granna. Jónas var óþreytandi landbóta- maður. Dæmi um það eru ferðir hans til að hefta fok og uppblástur. Oft hafði hann samband við unglinga í nágrenni sínu og síðan var Fordson notaður til að ná öllum saman og aka á þær slóðir þar sem sáð var fræi og áburði dreift. Stundum inni á Vatns- endamelum, stundum norðan og vestan í Fellinu. Þegar ég hugsa til baka undrast ég hve okkur þótti þetta sjálfsagt, en sé nú að áhugi Jónasar og umræða hafði þessi áhrif. Enginn sá eftir sér við þetta þó ekk- ert væri kaupið, annað en ánægjan og Jónas sjálfur hefur örugglega orðið fyrir verulegum kostnaði vegna þessarar hugsjónar sinnar. Síðan liðu árin. Ég fluttist úr sveit- inni en Jónas bjó áfram sínu búi. Samskiptin urðu minni en þegar ekið var um Kinnina leyndi sér ekki ár- angur Jónasar af trjárækt. Einn góðviðrisdag, 22. maí 2003, ákvað ég að aka austur í Kinn og heimsækja Jónas. Hann var að sinna vorverkum þegar ég kom í Gvendarstaði. Engu að síður gaf hann sér tíma til að ræða landsins gagn og nauðsynjar. Við settumst upp í grænu Löduna og ók- um upp í tunguna fyrir ofan bæinn, eftir vegi sem ég lagði með jarðýtu 20 árum áður og hafði ekki farið síð- an. Nú var hann gróinn og það sem meira var, fallegur skógur var að skjóta rótum allt um kring og neð- anvert voru komin ásjáleg tré. Jónas hafði orð á því að mikið verk væri framundan við grisjun og hirðingu og því þyrfti hann að sinna næstu ár- in. Enginn bilbugur þar. Við fórum til baka og gengum um eldri skóginn, þar sem mikið er af stórum og fallegum trjám, enda var Helgi bóndi og grasafræðingur, faðir Jónasar, mikill áhugamaður um ræktun þannig að Jónas átti ekki langt að sækja áhugann. Þarna fund- um við músarindilshreiður, en það hafði ég ekki áður séð, og umhverfið allt ómaði af klið vorsins. Þetta var ógleymanlegur dagur, einn af þess- um dögum á lífsleiðinni sem ég hefði alls ekki viljað missa af. Síðast hitti ég Jónas á sjúkrahús- inu á Húsavík í maí 2005. Þó að ekki leyndi sér að sjúkdómurinn væri far- inn að ganga ansi nærri honum var andinn óbugaður. Hann sagðist endi- lega þurfa að komast heim til vor- verka. Það gekk eftir og hann hefur vafalaust notið þess að grisja og snyrta trén sem honum voru svo kær. Nú nálgast aftur vor en skarð er fyrir skildi á Gvendarstöðum. Eftir stendur þó gróandi minnisvarði, skógurinn sem á eftir að vaxa og dafna og bera landbótamanninum Jónasi á Gvendarstöðum fagurt vitni um langa framtíð. Sem þá á vori sunna hlý sólgeislum lauka nærir og fífilkolli innan í óvöknuð blöðin hrærir, svo vermir fögur minning manns margt eitt smáblóm um sveitir lands, frjóvgar og blessun færir. Þessi eftirmæli kvað listaskáldið góða Jónas Hallgrímsson og mér finnst þau eiga vel við um nafna hans Helgason. Ég kveð minn gamla ná- granna með þökk fyrir góða og lær- dómsríka viðkynningu og votta um leið aðstandendum öllum mína dýpstu samúð. Valtýr Sigurbjarnarson. Jæja, nú er Jónas frændi fluttur. Ég spurði hann fyrir mörgum ár- um hvort hann hefði ekki áhuga á að skoða sig um erlendis og hann svar- aði: „Ég hef nægan tíma til þess þeg- ar ég er fluttur hinum megin.“ Jónas var mikill áhugamaður um skógrækt og ræktaði sinn heima- skóg að Gvendarstöðum af ótrúlegri alúð og elju nánast til síðasta dags. Hann náði að skoða alla helstu skóga Íslands og vissi raunar meira um þá en flestir er að þeim standa því hann las og það sem hann var búinn að lesa var aðgengilegt úr hans gagna- grunni alla tíð eftir það til þeirra er á nenntu að hlýða og helst rökræða. Mér er minnisstætt er ég fór með JÓNAS HELGASON Ástkær systir okkar og frænka, ÞURÍÐUR SVALA JÓNSDÓTTIR, Dalbraut 27, áður búsett í Bólstaðarhlíð 64, lést á Landsspítalanum í Fossvogi miðvikudag- inn 15. mars Útförin verður gerð frá Fossvogskapellu miðviku- daginn 29. mars og hefst athöfnin klukkan 13.00. Baldur Jónsson, Katrín Jónsdóttir, Dómhildur Glassford, Jón Erlendsson, Oddur Ólafur Jónsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, ÞORGEIR ÞÓRARINSSON, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 22. mars. Útförin verður auglýst síðar. Helga Haraldsdóttir, Lúther Þorgeirsson, Bryndís Svavarsdóttir, Ragnhildur Jóna Þorgeirsdóttir, Ragnar Rúnar Þorgeirsson, Penkae Phiubaikham, Haraldur Þorgeirsson, Helga Haraldsdóttir, Hafsteinn Þorgeirsson, Áslaug Jakobsdóttir, Sverrir Þorgeirsson, Birna Rut Þorbjörnsdótir, Grétar Þorgeirsson, Diana Von Ancken, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR MAGNÚSDÓTTIR frá Tjaldanesi, andaðist á Landspítala háskólasjúkrahúsi fimmtudaginn 23. mars sl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi fimmtudaginn 30. mars nk. og hefst athöfnin kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Fyrir hönd aðstandenda, Kristjón, Hólmfríður og Lára Sigurðarbörn, Ásthildur, Guðrún og Þórarinn Magnúsarbörn. Ástkær faðir minn og bróðir okkar, GARÐAR PÁLMASON bílapartasali, Básavegi 4, Reykjanesbæ, varð bráðkvaddur á heimili sínu miðvikudaginn 22. mars. Minningarathöfn verður haldin í Fossvogskapellu mánudaginn 27. mars kl. 12.30. Jarðsett verður á Akureyri, nánar auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Áki Heiðar Garðarsson og systkini hins látna. Elskuleg móðir mín og systir, AÐALHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR frá Hraunsási, andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi fimmtudaginn 23. mars sl. Sigurður Jónsson, Erlingur Jóhannesson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓSKAR VIGFÚSSON, Álfaskeiði 3, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 23. mars. Útförin auglýst síðar. Nicolina Kjærbech Vigfússon, Valborg Kjærbech Óskarsdóttir, Óskar Ásbjörn Óskarsson, Hjördís Ólöf Jónsdóttir, Ómar Óskarsson, Erla María Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, HENNING NIELSEN rafvirki, Dalsgerði 3, Akureyri, andaðist á hjúkrunarheimilinu Seli fimmtudaginn 23. mars. Ragnheiður Valgarðsdóttir, Valgarður Stefánsson, Guðfinna Guðvarðardóttir, Ingibjörg Guðrún Haraldsdóttir, Sigurður Klausen, Ragnheiður Haraldsdóttir, Veturliði Rúnar Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.