Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 39 UMRÆÐAN NÚ ER komið að því, kæru borg- arbúar. Við höldum okkar eigið þing og látum rödd okkar heyrast. Þau íbúasamtök sem virk eru í Reykjavík hafa stillt saman strengi sína og efna til borgaraþings í Ráðhúsi Reykja- víkur laugardag- inn 1. apríl. Á þinginu mun verða tekið á mörgum atriðum sem snerta líf okkar allra m.a. íbúalýðræði, um- ferðarmálum, sjálfbærri þróun, skipulagsmálum, almennings- samgöngum, sjálfsmynd Reykvík- inga, félags- og velferðarmálum. Áhrif á stefnumál flokkanna Á þinginu flytja erindi nokkrir borg- arbúar, m.a. arkitektar, fræðimenn, fjölmiðla- og kvikmyndagerð- armenn. Á milli erinda verða mynd- aðir umræðuhópar á vinnuborðum, þar sem borgarbúar fá tækifæri til að ræða markvisst brýnustu málefni borgarinnar. Niðurstöður vinnu- borðanna verða svo teknar saman og kynntar fyrir pallborði sem í taka þátt formenn íbúasamtakanna auk fulltrúa þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í sveitastjórnarkosning- unum í vor og fá þeir þá tækifæri til að tjá sig um niðurstöður vinnuborð- anna og taka þátt í gagnvirkum um- ræðum. Niðurstöður þingsins verða síðan teknar saman í greinargerð og birt sem innlegg íbúasamtaka í kosn- ingaumræðuna. Við hvetjum alla Reykvíkinga til að grípa tækifærið til að hafa skoð- anaskipti um mál sem varða okkar heimabyggð og mæta á þing okkar allra í Ráðhúsinu laugardaginn 1. apríl. Þingið hefst kl. 10 og stendur til kl. 15. Dagskráin verður kynnt síðar. Fyrir hönd íbúasamtaka Grafar- vogs, Laugardals, Vesturbæjar norður, Vesturbæjar suður, Þriðja hverfis og Samtaka um betri byggð, DÓRA PÁLSDÓTTIR, kennari og meðlimur í undirbún- ingshópi íbúasamtakanna. Blessuð sértu, borgin mín – Reykvíkingar, látum rödd okkar heyrast á borgaraþingi Frá Dóru Pálsdóttur Dóra Pálsdóttir BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í FRÉTT í Ríkisútvarpinu um dag- inn var talað um að Bandaríkjamenn ætluðu að arfleiða Íslendinga. Þarna er röng málnotkun. Sá sem arfleiðir er að gera ráðstafanir til að veita fjármunum að sér látnum til ein- hvers, sem eru á lífi. Bandaríkja- menn eru ekki að geispa golunni, Guði sé lof. Þarna er um að ræða að þeir hyggist ánafna, gefa fé eða fast- eignir. Þessum mun í orðanotkun má ekki gleyma. Mikilvægt er að nota orð í réttri merkingu til að valda ekki ruglingi. PÉTUR PÉTURSSON þulur. Ánafna, ekki arfleiða Frá Pétri Péturssyni Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Haust Skógarh l í› 18 • 105 Reykjav ík S ími 595 1000 Fax 595 1001 • www.heimsferd i r . i s Heimsferða ævintýri Kynntu þér haustbækling Heimsferða Bæklingurinn er kominn Aldrei glæsilegra úrval - frábært verð Heimsferðir kynna glæsilegar haustferðir sínar árið 2006. Við fljúgum beint til vinsælustu borga Evrópu og bjóðum frábærar ferðir með sérflugi til Karíbahafsins, bæði til Kúbu og Jamaica. Kynntu þér glæsilegasta ferðaúrvalið og tryggðu þér lægsta verðið í eftirsóttustu ferðirnar strax. Jamaica 99.690 kr. Kúba 89.990 kr. Kraká 34.790 kr. Ljubljana 44.590 kr. Róm 58.990 kr. Prag 29.990 kr. Búdapest 35.590 kr. Barcelona 29.990 kr. E N N E M M / S IA / N M 20 96 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.