Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 6
ASÍ leggur til að fólk frá nýjum aðild- arríkjum Evrópusambandsins fái að koma til landsins til að leita sér að vinnu, en verði að leggja fram ráðn- ingarsamninga sem staðfesti að farið sé eftir gildum kjarasamningum. Halldór Grönvold aðstoðarfram- kvæmdastjóri segir að þetta sé sama leið og Danir hafi farið við aðlögun nýrra aðildarríkja ESB að vinnu- markaði sambandsins. „Við leggjum til að íbúar þessara nýju aðildarríkja að Evrópusam- bandinu geti komið hér og leitað að starfi eins og allir aðrir EES-borg- arar í allt að sex mánuði. Ef viðkom- andi fær starf á þessu tímabili þá ein- faldlega leggi hann fram gagnvart stjórnvöldum fullgildan ráðningar- samning og ef ráðningarsamningur- inn er í samræmi við íslenska kjara- samninga þá einfaldlega fær viðkomandi staðfestingu um að hann sé í fullum rétti á íslenskum vinnu- markaði. Við erum því ekki að tala um að viðkomandi einstaklingar eða fyrir- tæki, sem þeir ætla að ráða sig hjá þurfi að sækja um atvinnuleyfi og stjórnvöld þurfi í framhaldi af því að taka ákvörðun um hvort það er veitt eða ekki.“ Verið að notfæra sér vankunnáttu fólks Halldór sagði að fólk sem væri að koma frá ríkjum Austur-Evrópu sem nýlega gengu í Evrópusambandið þekkti í mörgum tilfellum ekki reglur eða kjarasamninga. „Við höfum því miður reynslu af því að fyrirtæki séu að reyna að notfæra sér þetta og við þekkjum dæmi um að þetta fólk nýt- ur ekki þeirra kjarasamninga og þeirra réttinda sem því ber. Þetta fólk á rétt á að njóta sömu kjara og aðrir sem eru á vinnumarkaði. Þetta birtist m.a. í því að fólk sem er með langa starfsreynslu og jafnvel starfs- réttindi í viðkomandi grein er ráðið hér sem ófaglært verkafólk á byrj- unarlaunum.“ Áhersla á að tryggja fólki laun í samræmi við starfsreynslu þess Halldór sagði að ASÍ legði mikla áherslu á að koma í veg fyrir þetta, bæði til að tryggja þessu fólki laun í samræmi við starfsreynslu sína og fagþekkingu og eins til að stuðla að því að fjöldi starfsmanna frá þessum ríkjum verði ekki slíkur að hér verði grundvallarbreytingar á kjörum og samskiptum á vinnumarkaði. Í minnisblaði sem ASÍ lagði fram á fundi með félagsmálaráðherra í vik- unni er talað um að fresta ákvæði um frjálsa för launafólks frá nýju aðild- arríkjunum í þrjú ár. Halldór sagði að þó þetta væri lagt til fæli það alls ekki í sér óbreytt ástand. ASÍ væri að leggja til verulegar breytingar en sambandið væri þeirrar skoðunar að nauðsynlegt væri að vera með al- menn skilyrði til að tryggja að hér væri farið að kjarasamningum og líka til að hér yrðu áfram til upplýsingar um fjölda starfsmanna sem koma frá þessum löndum. Halldór sagði að Bretar hefðu ekki nýtt sér þann möguleika að fresta ákvæði um frjálst flæði á vinnumark- aði. Því færi hins vegar fjarri að pólskir verkamenn gætu komið til landsins án þess að hafa skráð sig. Finnar ætluðu að falla frá fyrirvar- anum í vor en eftir sem áður þyrfti erlent starfsfólk að skrá sig. Halldór sagðist ekki vera viss um að það væri svo mikill munur á stefnu Finna og Breta og þeirrar stefnu sem ASÍ væri að leggja til að fylgt yrði hér á landi. „Alvarlegustu málin sem við fáum inn á okkar borð eru þegar erlend eða íslensk fyrirtæki eru að ráða starfs- fólk hingað til lands á grundvelli þjónustusamninga eða starfsmanna- leiga og í raun og veru að borga þessu fólki langt undir því sem því ber. Við höfum hundruð dæma um þetta. Við hvetjum stjórnvöld til að skoða þetta mál í heild sinni.“ Halldór sagðist gera sér vonir um að ef þessi „danska leið“ yrði farin yrði minna um að menn nýttu sér starfsmannaleigur og gerðu þjón- ustusamninga. Fyrirtæki gætu þá ráðið til sín fólk, í mörgum tilvikum áður en það kæmi til landsins og því ættu engar tafir að verða á því að það gæti hafi störf vegna afgreiðslu á leyfisumsóknum. „Því miður eru hins vegar til aðilar með starfsemi hér á landi sem eru að nota þessar starfsmannaleigur og gera þessa þjónustusamninga ein- faldlega til þess að skjóta sér undan öllum skyldum. Það tengist þessari starfsemi, því miður, skattasnið- ganga og aðrir hlutir sem eru á mörk- um hins löglega. Þessir aðilar eru kannski ekki tilbúnir að ráða til sín Letta eða Pólverja, gefa út ráðninga- samninga sem eru í lagi hafandi hættuna af því að þetta fólk fari að leita réttar sín einhvern tímann síð- ar,“ sagði Halldór. 6 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR fermingargjöf Flott hugmynd að Kira 3 Frábært kúlutjald með stóru fortjaldi. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 3 18 24 03 /2 00 5 Fermingartilboð 8.990 kr. Verð áður 10.990 kr. Tjöld frá 5.990 kr. SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 VEGNA yfirlýsinga Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, í hádegisfréttum RÚV um að „stjórnvöld hafi gefið SA vilyrði fyrir því að öllum hömlum á flæði vinnuafls yrði aflétt frá 1. maí í tengslum við endurskoðun kjarasamninga í nóvember,“ vill ASÍ koma eftirfarandi á fram- færi: „ASÍ kannast ekki við að Sam- tökum atvinnulífsins hafi í tengslum við endurskoðun kjara- samninga í nóvember sl. verið gefin fyrirheit um að hömlum á frjálsu flæði vinnuafls verði al- gjörlega aflétt þann 1. maí nk. Þegar SA tóku málið upp við ASÍ í tengslum við endurskoðun kjarasamninganna var um það rætt að þríhliða nefnd félags- málaráðuneytisins um málefni EES-svæðisins, þar sem ASÍ, SA og félagsmálaráðuneytið eiga fulltrúa, myndi fjalla efnislega um þróun vinnumarkaðarins sl. tvö ár til að undirbúa ákvarð- anatöku um næstu skref. Af hálfu ASÍ hefur verið lögð tals- verð vinna í að undirbúa slíka umfjöllun og lagðar fram mót- aðar tillögur um viðbrögð, sem m.a. fela í sér talsverða tilslökun frá núverandi fyrirkomulagi um frjálst flæði vinnuafls frá þessum ríkjum, en jafnframt að aðhald með þjónustuviðskiptum verði aukið og að tekin verði upp ábyrgð notendafyrirtækja á kjörum starfsmanna sem sinna þjónustu við þau. Það eru Al- þýðusambandi Íslands því al- gjörlega nýjar fréttir hafi stjórn- völd verið búin að gefa SA fyrirheit um efnislega nið- urstöðu þessara viðræðna, áður en þær fóru í gang, þegar í nóv- ember á síðasta ári.“ Engin fyrirheit gefin að mati ASÍ ASÍ vill að fólk frá nýjum aðildarríkjum ESB verði að leggja fram ráðningarsamninga Leggja til að all- ir EES-borgar- ar geti komið og leitað að vinnu Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir ASÍ leggur til að fólk frá nýjum aðildarríkjum Evrópusambandsins fái að koma til landsins til að leita sér að vinnu, en verði að leggja fram ráðningarsamninga sem staðfesti að farið sé eftir gildum kjarasamningum. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÓSKAR Vigfússon, fyrrverandi formaður Sjómannasambands Íslands, lést fimmtu- daginn 23. mars, 74 ára að aldri. Óskar fæddist 8. desember 1931 í Hafnarfirði, sonur hjónanna Epiphaníu Ásbjörnsdóttur, hús- móður, og Vigfúsar Vigfússonar, sjómanns. Óskar kvæntist Nicol- ínu Kjærbech Vigfús- son, f. 27. september 1937, og eignuðust þau þrjú börn. Óskar lauk barnaskólaprófi frá Lækjarskóla í Hafnarfirði, og starf- aði fyrst um sinn sem verkamaður og iðnverkamaður hjá Rafha og Venusi. Hann var háseti á ýmsum skipum á árunum 1948–1967. Óskar starfaði hjá Sjómannasam- bandi Hafnarfjarðar frá 1970–1976, þar af sem formaður frá 1974. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sjómenn, og tók við formennsku Sjó- mannasambands Ís- lands árið 1976 og var formaður félagsins til 1994. Óskar sat í stjórn sjómannasambandsins til 2005 og í stjórn Hrafnistu til dauða- dags. Samhliða öðrum störfum sat Óskar í fulltrúaráði Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði frá 1970– 1985. Hann sat í miðstjórn Alþýðu- sambands Íslands frá 1976, í stjórn og varastjórn Fiskveiðasjóðs frá 1982 og í ráðgjafarnefnd um stjórn fiskveiða frá 1983–1990. Andlát ÓSKAR VIGFÚSSON ALLS bárust 124 tillögur að nýju nafni sameinaðs sveitarfélags Húsa- víkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxar- fjarðarhrepps og Raufarhafnar- hrepps. Eins og búast mátti við eru tillögurnar misjafnar eins og þær eru margar og á meðal tillagna voru Orkan, Perlan, Gósenland, Sveitar- félag Garðars Svavarssonar og Framtíðarbyggð. Verkefnisstjórn um nýtt nafn bíður hið viðamikla og erfiða verkefni að fækka í hópnum og bera þau undir örnefnanefnd og í kjölfarið á því, bera þau undir íbúa sveitarfélagsins í skoðanakönnun en hún verður haldin í maí. 124 tillögur um nýtt nafn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.