Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 37
UMRÆÐAN
UMFJÖLLUN um dómsmál í
fjölmiðlun gerist sífellt fyrirferð-
armeiri og má hafa það til marks um
vaxandi hlut dómsvaldsins í mótun
réttarins, en sá hængur er þó á að
fjölmiðlar virðast tæp-
lega valda þessu verk-
efni. Allt of oft nær hún
ekki lengra en að
fréttamaður tekur tali
lögmann sem flutt hef-
ur mál og hann lýsir
síðan skoðun sinni;
hins vegar stendur það
á sér að rökstuðning-
urinn í dóminum sjálf-
um sé reifaður og skili
sér til almennings.
Tapsárir lögmenn fá
tækifæri til að koma
gagnrýni sinni á fram-
færi, þannig að stund-
um er svo að skilja sem
dómarar séu úti á
þekju við störf sín.
Fjölmiðlamenn geta
vafalaust borið því við,
að þeir eigi óhægt um
vik að koma röksemd-
um dómara á framfæri
í stuttu og skýru máli,
enda þurfi tíma og sér-
kunnáttu til. Ef sú er
raunin verður fjölmið-
ill sem vandur er að
virðingu sinni að ráða
kunnáttumenn til
starfa; öðrum kosti
verða dómstólar koma
sér upp blaðafulltrúa.
Af skoðanakönnunum
má ráða að dómstólar njóti ekki fulls
trausts almennings og má vafalaust
um kenna ófullnægjandi fréttaflutn-
ingi og óheppilegri umræðu.
II
Mánudaginn 20. marz var haldinn
fundur í Háskólanum í Reykjavík
um sýknudóm Héraðsdóms Reykja-
víkur 15. marz sl. í svokölluðu
Baugsmáli og er frásögn að fund-
inum í Morgunblaðinu 21. marz sl.
Framsögu höfðu þau Áslaug Björg-
vinsdóttir dósent við lagadeild og
Stefán Svavarsson dósent við við-
skiptadeild. Niðurstaða beggja var
sú að dómurinn hafi túlkað 43. gr.
laga nr. 144/1994 um ársreikninga of
þröngt og því sé hæpið að dómurinn
fái staðizt. Síðan fara þau um víðan
völl. Áslaug með skírskotun til Evr-
ópuréttar, meðal annars hvort „4.
tilskipun félagaréttar Evrópusam-
bandsins sé lögleidd með réttum
hætti í okkar regluverk“ og Stefán
með vísan til þess að fyrirtækjum
beri að veita upplýsingar um hvers
konar fyrirgreiðslu til tengdra aðila.
Síðan er haft eftir honum: „Þá gildir
einu hvort það er í einhverjum við-
skiptalegum tilgangi eða ekki.“ Síð-
an skírskotar hann til þess að til-
gangur 43. gr. sé mikilvægur til þess
að viðskipti á fjármagnsmarkaði í
tengslum við fjárfestingar, hluta-
bréfaviðskipti og lánveitingar geti
gengið snurðulaust fyrir sig og farið
fram með eðlilegum
hætti. Loks varpar
hann fram þeirri
spurningu hvort
ákvæði tilskipunar
ESB séu rétt þýdd í ís-
lenzkum lögum.
III
Það er grundvall-
aratriði við túlkun
texta að einstakir hlut-
ar hans séu settir í
samhengi við heildina.
Í samræmi við þetta
verður að skoða hverja
lagagrein í samhengi
við þau lög þar sem hún
er og lögin í samhengi
við það svið lögfræð-
innar þar sem þeim er
skipað. Þannig kann
svo að fara að sama eða
samhljóða ákvæði verði
ekki túlkuð á sama veg
eftir því á hvaða sviði
úrlausnarefnið er. Hin-
ir ákærðu voru sýkn-
aðir af ákæru meðal
annars fyrir brot á 43.
gr. laga um ársreikn-
inga sem varðað getur
allt að 6 ára fangelsi.
Málið er með öðrum
orðum refsimál og
snýst þá um hvort 43.
gr. sé fullnægjandi refsiheimild. Í
VIII. kafla dómsins er skírskotað til
„viðurkenndra sjónarmiða um skýr-
ingu og beitingu refsiheimilda í ís-
lenzkum rétti…“ Þau sjónarmið sem
þar skal hafa í huga eru einkum, að
vafa beri að túlka sökunaut í hag, að
refsiheimild sé skýr, framvirk og af-
dráttarlaus. Af því, sem rakið er hér
að framan og reist er á frásögn
Morgunblaðsins, virðist ljóst, að á
fundinum hafa mál ekki verið rædd á
þessum grundvelli, heldur með það
að leiðarljósi hvernig viðskiptalög-
gjöf, félagaréttur og reiknings-
skilalöggjöf geti bezt tryggt snurðu-
laus viðskipti. Reifuð eru margvísleg
álitamál sem þar verða fyrir, einkum
hvort íslenzk löggjöf samræmist
Evrópulöggjöf sem fráleitt verður
talin gild refsiheimild að íslenzkum
rétti. Allt styður það eindregið
sýknudóm í refsmáli. Eigi að síður
er niðurstaða fyrirlesara sú að hæp-
ið sé að dómurinn standist. Hér er
langt seilst til að gera dóminn tor-
tryggilegan.
Fræðafundur eða
áróðursfundur
Sigurður Líndal fjallar um
Baugsmál og fundinn í HR
’Allt styður þaðeindregið sýknu-
dóm í refsimáli.
Eigi að síður er
niðurstaða fyr-
irlesara sú að
hæpið sé að dóm-
urinn standist.
Hér er langt
seilst til að gera
dóminn tor-
tryggilegan.‘
Sigurður Líndal
Höfundur er prófessor emeritus.
ÞAÐ HEFUR verið fróðlegt að
undanförnu að fylgjast með um-
ræðum um móð-
urmálið. Það sem vakti
umræðuna var meðal
annars yfirlýsing rekt-
ors á Bifröst um „mál-
farsfasisma“, en það
orð taldi hann við hæfi
að nota um sjónarmið
þeirra sem vilja fylgja
viðteknum reglum um
málnotkun. Góðar
greinar til mótvægis
hafa meðal annars kom-
ið frá Ingvari Gíslasyni,
fyrrum mennta-
málaráðherra, Ingu
Rós Þórðardóttur, kennara, og Pétri
Gunnarssyni, rithöfundi, og sjálfsagt
fleirum.
Þeir sem erlendis búa fylgjast
margir með fréttum og umræðum á
netinu, sem gefur þó hreint ekki full-
komna mynd af því sem sagt er og
skrifað. Þakkað skal íslenskum fjöl-
miðlum fyrir netþjónustuna, sem þeir
veita. Hún er mikils virði. En lengi
getur gott batnað.
Ótrúlega margir málsóðar ganga
lausir í netfjölmiðlum. Prófarkales-
arar virðast oft víðsfjarri eða valda
ekki verkefni sínu. Á stundum virðist
þó málvillan eiga sér rætur utan fjöl-
miðlanna.
Nokkur nýleg dæmi:
Mbl.is. 15.03.2006
„Þetta er gamanleikur um Saddam
Hussein og félögum hans,“ sagði
Saddam við dómarann.
NFS á visir.is 14.03.2006
„Og mér finnst, hæstvirtur forseti,
að sem formanni nefndarinnar harmi
ég þessar rangfærslur,“ sagði ........,
formaður iðnaðarnefndar.
Ruv.is 09.03.2006
Róbert segir að bankarnir séu tek-
in út og metin af þar til bærum stofn-
unum og engin ástæða til að bregðast
of hart við fyrr en þeirra mat breyt-
ist.
Fréttablaðið
09.03.2006
Útlit er fyrir gríð-
arlegri uppskeru í ár.
Mbl.is. 05.03.2006
Rússneskir embætt-
ismenn, m.a. utanrík-
isráðherra landsins,
Sergei Lavrov, hefur
ekki tekist að fá Hamas
til þess að breyta
stefnuskrá sinni.
Mbl.is. 04.03.2006
Þegar björg-
unarsveitirnar komu á
staðinn var ekkert að sjá og kom þá í
ljós að vegfarandinn, sem tilkynnti
strandið hafði missýnst.
DV. 28.02.2006
„Manni blöskrar fjáraustrið í utan-
ríkisráðuneytinu.“ Ummæli höfð eftir
alþingismanni.
NFS á visir.is 28.02.2006
„Fundur í kjaradeilu Landsam-
bands slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna og Launanefndar sveitarfé-
laganna er lokið hjá
ríkissáttasemjara....“
NFS 24. febrúar 2006
Ken Livingstone, borgarstjóri
Lundúna, hefur verið vikið úr starfi í
mánuð fyrir ummæli sín um blaða-
mann af gyðingaættum.
Mbl.is 20.02.2006
„Það varðar við þjóðaröryggi þeg-
ar við erum haldin í orkugíslingu af
erlendum þjóðum sem líkar ekki við
okkur,“ sagði Bush í Milwaukee í dag.
Úr myndatexta. Orðalagið var end-
urtekið í meginmáli fréttar.
Mbl.is 17.02.2006
Hæstiréttur taldi, að Vest-
mannaeyjabær hafi verið í lófa lagið
að hrekja þessar staðhæfingar manns-
ins með því ...Var Vestmannaeyjabær
því dæmdur til að greiða manninum
fjárhæð, sem svaraði til fjögurra mán-
aða biðlaunum hans.
Þetta eru bara nokkur dæmi um
málfar í netmiðlum að undanförnu og
hefur þá verið horft framhjá aug-
ljósum innsláttarvillum og stafvillum.
Einhverjir munu sjálfsagt telja
þennan lista smásmugulegan sparða-
tíning. Þeir um það.
En er það svona, sem við viljum að
móðurmálið breytist?
Ég held ekki.
Hér með er skorað á forstöðumenn
fjölmiðla að víkja nú af vegi „run-
ólfskunnar“ og ráða fleiri próf-
arkalesara og sýna móðurmálinu þá
virðingu sem það verðskuldar. En
umfram allt ættu þeir þó að ráða til
starfa fólk sem kann að skrifa og tal-
ar gott mál. Látum hugsunarhátt
reiðareksmanna ekki ráða för. Það
kann ekki góðri lukku að stýra.
Málfarslegur metnaður hefur um
sinn orðið hornreka.
Það má aldrei til lengdar verða í
fjölmiðlum sem eru vandir að virð-
ingu sinni.
Vinsælt er um þessar mundir að
stofna svokölluð vinafélög ýmissa
stofnana.
Hvað um vinafélag íslenskrar
tungu ?
Það gæti sem best heitið Málvina-
félagið.
Prófarkalesarar óskast
Eiður Guðnason fjallar
um íslenska tungu ’En er það svona, semvið viljum að móðurmálið
breytist?‘
Eiður Guðnason
Höfundur er sendiherra og
áhugamaður um íslenska tungu.
eidurgudnason@gmail.com.
Ásbúð 20 - Opið hús
Opið hús í dag frá kl. 14.00 til 16.00
Í einkasölu mjög gott raðhús á
tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr samtals um 166,3 fm. Eignin
er á mjög góðum barnvænum stað
þar sem er stutt í skóla, leikskóla og
framhaldsskóla. Fallegur garður í
suður. Eignin skiptist í forstofu, hol,
vinnuherbergi, baðherbergi, tvö
góð herbergi, geymslu og bílskúr. Á
efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, hol, hjónaherbergi, barnaherbergi,
baðherbergi ásamt sjónvarpsholi á millilofti. Góðar innréttingar og gólf-
efni eru parket og flísar. María tekur á móti. Verð 39,9 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Ef þú bókar bílaleigubílinn heima á Íslandi
bíður hann þín á áfangastað. Hver leiga færir
þér 500 Vildarpunkta að auki. Bókaðu
bílinn núna í 50 50 600 og tryggðu þér meira
öryggi og betri þjónustu á ferðum þínum
erlendis hvert sem leið þín liggur.
50 50 600 • www.hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
16
24
03
/2
00
6
Tilboð
Bókaðu fyrir
1. apríl
og fáðu
1.000
Vildarpunkta
fyrir leigu hvar
sem er í heiminum
V
I L
D
A R
P U N K T
A
R