Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 41 MINNINGAR Hreppafjöllum eða á flatneskjum Sjálands. Hann var settur í gifs og varð að liggja í því hreyfingarlaus í marga mánuði. Komst ekki á ról fyrr en snemma vors 1940. Bjarni tók þessu mótlæti með þolgæði sínu sem var reyndar einstakt alla tíð. Hann sendi fjölda bréfa heim að Hlíð og víðar til frændfólksins. Þau voru öll skrifuð með blýanti því hann lá í marga mánuði hreyfing- arlaus á bakinu og gat ekki tekið sér blekpenna í hönd. En Bjarni mun hafa sent bréf frá sér víðar. Til þess að stytta sér stundir komu sjúklingarnir sér upp bréfasamböndum innan spítalans. Bjarni datt í þann lukkupott að komast í bréfasamband við annan langlegusjúkling í líkri aðstöðu. Það var Margrét Helgadóttir sem varð svo eiginkona hans, er þau bæði höfðu náð heilsu um það bil tveimur árum eftir að hann lagðist inn. Þau náðu bæði lífinu, sem ekki var þá endilega víst um berklasjúk- linga. En þau náðu einnig góðum ástum og lifðu í fallegu hjónabandi sem stóð í áratugi. Ég minnist heimilis þeirra fyrst í Hamri við Eyraveg á Selfossi. Þar bjuggu þau þröngt inni á annarri fjölskyldu og deildu eldhúsi með húsráðendum. En von bráðar voru þau komin út í húsbyggingu að Reynivöllum 4 á Selfossi og þar stóð heimili Mar- grétar til æviloka þótt hún lægi síð- asta tímann á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum. Gestaboð dag og nótt er það sem mér finnst einkennandi fyrir lífs- starf Margrétar Helgadóttur. Hlý- leiki við alla, lífsgleði og fjör, var það sem einkenndi þau bæði, Bjarna og Möggu. Það löðuðust all- ir að þeim, þeir Hlíðarmenn öðrum fremur. Og héðan frá Litlu-Sandvík var vart farið að Selfossi án þess að komið væri við að Reynivöllum 4. Ég held að ég hafi ekki einu sinni misboðið gestrisni þeirra er ég kvaddi þar dyra eina vetrarnótt fyrir áratugum síðan. Var að koma af þorrablóti á Þingborg þar sem mér var ætluð einhver upptroðsla. En svo fór að vitlausan norðanbyl gerði og ófærð var strax komin á Selfossi. „Sýslumannsskaflinn“, sem þá var næsta árlegur fyrir austan Sýslumannsbústaðinn, var alls ekki fær bílum, svo ekki var farið lengra. Magga kom til dyra er ég barði þar upp á klukkan rúmlega 3. Og hvað var sjálfsagðara en taka á móti þreyttum ferðalang en einmitt þá. Uppábúið rúm virtist tilbúið og næsta morgun, eftir ríkulegan morgunverð, þakkaði gesturinn fyrir sig eftir þessa sjálfsögðu mót- töku – að þeim fannst. Magga var alla tíð heimavinnandi húsmóðir. Það var yndi hennar að búa gestum sínum glæsilegt veislu- borð, og með miklu umburðarlyndi þoldi hún að bóndi hennar væri ein- att ónáðaður með öllu því kvabbi sem fylgdi byggingarfulltrúa- embættinu. Eitt sinn er ég var þar við hádegisverðarborð þeirra hjóna taldi ég að Bjarni hefði þrisvar ver- ið kallaður frá því að sinna erind- um. Má nú ekki minna vera en að við Hlíðarmenn þökkum fyrir okkur þessari miklu höfðingsmanneskju og óskum Margréti Helgadóttur velfarnaðar í landi lifenda þar sem hún mætir ástvinum sínum. Páll Lýðsson. Tuttugasti mars mánudagur á keyrslu niður í miðbæ Reykjavíkur. Umferðin þung og þá gellur síminn. Þennan dag dó Margrét Helgadótt- ir móðir Helga Bjarnasonar vinar míns. Hugurinn leiftrar tilbaka, Margrét var gift frænda mínum Bjarna Pálssyni frá Hlíð, iðnskóla- stjóra og arkitekt. Hjónin og börnin þeirra voru okkar nánustu vinir og okkar öryggi er foreldrar okkar voru ekki nálægir ef eitthvað fór úrskeiðis í þessu litla samfélagi sem Selfoss var. Foreldrar okkar byrj- uðu sinn búskap í kjallaranum hjá þeim og seinna fluttum við skáhallt yfir götuna á Reynivelli 5. Mín fyrstu kynni af frænda mínum Helga urðu þá og varð hann strax einn af mínum bestu vinum. Alltaf tók Margrét mér einstaklega vel, sama hve mikið var að gera hjá henni því húsið var yfirleitt fullt af fólki því Bjarni var með skrifstof- una heima. Minnist ég þess að um kvöld og helgar var oft þéttsetinn bekkurinn af fólki vegna teikninga af húsum og hönnun í kringum það. Bernskuár mín og systkina minna voru einstaklega góð, ekki síst vegna nágrennis við þetta góða fólk. Margrét og Bjarni áttu stóran frændgarð og einnig var Bjarni í mjög erilssömu starfi þannig að Margrét hafði mjög fáar hvíldar- stundir. Hjónin voru mjög samhent og heimilislífið var kátt þrátt fyrir allt. Við börnin í götunni fluttum út í heim eftir að við stálpuðumst en komum aftur og settumst flest að í Reykjavík. Oft var keyrt á Selfoss og þá var ótrúlega gott að koma við hjá Margréti á Reynivöllum 4, bragða á kökum hennar og sérstak- lega á hafrakexinu sem var nánast himneskt. Þá var maður svo sann- arlega kominn heim. Í minningunni um bernsku okkar er Margrét stór því hún var alltaf til staðar og henn- ar heimili opið fyrir okkur. Þegar við strákarnir vorum fimm ára gamlir ákváðum við að færa Mar- gréti stórt tré að gjöf, svo mjög mátum við hennar góðu kosti. Við fórum í næsta nágrenni, tókum fal- legt tré og gróðursettum það í miðj- an kartöflugarð Margrétar. Frúin sem átti tréð grunaði okkur strax og við játuðum fljótlega og vorum settir snemma í rúmið þann daginn. Daginn eftir vorum við drengirnir boðnir í kökur hjá Margréti og ekk- ert var talað um gærdaginn, Mar- grét hafði leyst málið. Í dag á útfarardegi Margrétar eru fimmtíu ár síðan Selfosskirkja var vígð af Ásmundi biskup en Bjarni Pálsson teiknaði hana. Ég er viss um að þegar fram líða stundir verður hún talin eitt af gersemum okkar, þessi látlausa en samt hríf- andi kirkja þar sem hún stendur á þessum tignarlega stað og er þegar orðin kennileiti Selfoss. Trúlega hefur Bjarni kallað á Margréti til sín í dag. Guð blessi minningu Mar- grétar og innilegustu samúðar- kveðjur mínar og fjölskyldunnar til afkomenda hennar og vina. Ólafur Hjaltason. Það er nú meira hvað það voru margar Möggur í litlu götunni okk- ar á Selfossi. Af fimm húsum var bara eitt sem engin Magga bjó í. Það voru Magga systir, Magga Tage eða Bjarna, eftir því hver tal- aði um hana, Magga Eyjólfs og svo hún Magga Helga eða Bjarna eftir því hver talaði um hana. Þær voru kátar og glaðar vinkonur en um- fram allt voru þær góðar. Og hún Magga Helga, eða Magga hans Bjarna, var svo hlý að það var bara best að vera hjá henni allan daginn. Eini gallinn á henni var sá að hún vaknaði seinna á morgnana en ég, svo ég komst ekki til hennar jafn- snemma og mig langaði til. Þá var gott að búa á ská á móti og sjá þeg- ar fólkið var komið á ról og skoppa þá yfir á Bjarnastaði. Og hvað var svo hægt að gera þarna allan daginn? Í fyrsta lagi var nú eiginlega ekkert bannað. En ef maður gerði eitthvað af sér, þá var sagt: … uss! Uss var mesta skammaryrðið í því húsi. Í eldhús- inu var skúffa með kexi, í ísskápn- um mysingur sem við Inga settum í teskeiðar og sleiktum og kölluðum ís. Í litla herberginu var skápur sem gaman var að gramsa í og best þegar maður lokaði að sér. Kjall- arinn var annar heimur, eftirlits- laus, og bauð upp á ótal tækifæri, þvottahúsið með suðupottinum, rullunni og blankunni og kyndiklef- inn þar sem við Inga sátum stund- um í rökkrinu og horfðum í eldinn. Á veturna bjuggu eldri krakkarn- ir til snjóhús og ekki var bannað að fleygja sér af svölunum í skaflana né að klifra upp á bílskúrsþak og hoppa fram af. Magga var lágvaxin, hnellin, glöð og góðvildin sjálf. Bjarni var hár og grannur, listrænn, mildur en al- vörugefinn. Þau voru hvort öðru happafengur. Magga veiktist af berklum árið 1938, fór á Landakot og beið bata lengi. Bjarni, sem hafði haldið til Kaupmannahafnar með pabba til framhaldsnáms, varð að snúa heim berklaveikur og leggjast inn á Landakot. Þar kynntust þau Magga gegnum bréfaskriftir milli hæða og trúlofuðust án þess að hafa sést. Þó maður eltist og yfirgæfi göt- una sína var maður ekki komin „heim“ á Selfossi nema að koma við hjá Möggu. Hún hafði þann ómet- anlega kost að vilja bara vera heima hjá sér og fara hvergi, nema í mesta lagi út á horn í Daddabúð. Því mátti ganga að því vísu að finna hana á sínum stað, brosmilda og gjöfula á samveru og heimsins bestu kleinur og hafrakex. En nú er hún Magga sofnuð svefninum langa og ekki þýðir að bíða þess að hún vakni. Og ljúfur er sá draumur, þegar kemur að okkur að vakna hinum megin, að finna hana á sínum stað og njóta samveru sem fyrr og ná að þakka henni fyrir hlýjuna og birtuna sem fylgir minn- ingu hennar. Unnur Hjaltadóttir. Elskuleg vinkona mín og fyrrver- andi tengdamóðir er kvödd í dag. Mér eru enn minnisstæðar mót- tökurnar sem ég fékk á Reynivöll- um hjá Margréti og Bjarna í fyrsta sinn sem ég kom þangað. Þær hefðu sæmt þjóðhöfðingja. Þessar móttökur lærði ég síðar voru ein- kenni þeirra hjóna. Gestir voru boðnir velkomnir og alltaf var boðið til veislu. Elska og umhyggja um- vafði þá sem Reynivelli heimsóttu og gistu. Margrét varð fyrir alvarlegum veikindum sem ung stúlka og ég hef alltaf trúað að sá erfiði skóli hafi mótað viðhorf hennar til lífsins. Margrét helgaði líf sitt því að annast ástvini sína. Hún lét ekkert tækifæri ónotað til að sýna um- hyggju sína í verki. Rauð- sokkahreyfingin var henni ekki að skapi. Henni fannst boðskapur þeirra gera litið úr húsmóðurstarf- inu og það líkaði henni ekki. Mar- grét er eina konan sem ég hef kynnst sem skipti húsverkum niður í flokka. Á morgnana vann hún grófari verk í morgunkjól. Um hádegi skipti hún um föt, snyrti sig og sinnti léttari verkum síðdegis Mér fannst alltaf jafnmerkilegt hvernig gestgjafi Margréti var. Hún gat eldað, bakað og undirbúið stóra máltíð án þess að maður gerði sér grein fyrir. Allan tímann sat hún inni í stofu spjallaði, skrapp af og til fram og skyndilega var komið veisluborð hókus, pókus. Margrét hafði lag á að gera jafn- vel soðna ýsu á mánudegi að veislu- máltíð. Ýsan var lögð á hvítan dúk, servéttur og blóm úr garðinum í litlum vasa, umvafið þessu öllu var hlýja og gestrisni. Ég fæ oft kökk í hálsinn þegar ég hugsa um þessar stundir. Svo mikið lagði Margrét sálina í eldamennsku og bakstur að þegar eitthvað angraði hana féllu kökurnar og við grínuðumst með að það væri taugabragð af kökunum. Ef ég spurði hana hvort ekki væri allt í lagi hló hún. Það var alltaf allt í lagi í hennar lífi. Hún ræddi ekki vandamál þeim var ýtt til hliðar. Aldrei hef ég heyrt hana lasta nokkurn mann en hún var alltaf fundvís á jákvæða eiginleika í fari allra. Heimurinn sem við lifum í væri betri ef fleiri Margrétar byggju hann. Elsku Margrét. Ég get aldrei þakkað allt það sem þú kenndir mér og gafst. Þú tókst ekki bara við mér heldur allri minni fjölskyldu. Ég vil að leiðarlokum þakka ást- ina og umhyggjuna sem þú gafst mér, börnum mínum og fjölskyldu minni allri. Ástvinum öllum votta ég samúð. Það okkur er til rauna hve ógjarnt var að launa, við könnumst við það klökk. En fyrir allt sem ertu um eilífð blessuð vertu! Og haf þú okkar hjartans þökk. (G.J.G.) Sigríður Hermannsdótt- ir (Sigga Magga). ✝ Hermann Sigur-vin Þorgilsson, bóndi á Hrísum í Fróðárhreppi í Snæ- fellsbæ, fæddist á Þorgilsstöðum í sömu sveit 27. febr- úar 1926. Hann lést á St Franciskusspít- alanum í Stykkis- hólmi 19. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Áslaug Kristensa Jónsdótt- ir f. á Nýlendu 1. desember 1892, d. 25. febrúar 1973, og Þorgils Þor- gilsson fæddur á Höfða í Eyrar- sveit 5. september 1884, d. 18. júní 1971. Á Þorgilsstöðum ólst hann upp í hópi fjögurra systkina, sem á legg komust en tvö létust í æsku. Systkinin, sem upp komust eru: Þorgils, bóndi á Efri-Hrísum, f. í Hausthúsum 5. des- ember 1918, d. 28. ágúst 2000, Una, f. 18. apríl 1920, bú- sett í Ólafsvík, Her- mann, sem hér er minnst og Anna, f. 14. mars 1928, bú- sett í Reykjavík. Útför Hermanns verður gerð frá Brimilsvallakirkju í Fróðár- hreppi í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þegar við mannanna börn fæð- umst inn í þessa veröld, vitum við fátt um framhaldið öðru fremur en að við munum einnig kveðja hana. Þrátt fyrir þessa vissu kemur það alltaf jafnmikið á óvart þegar sú stund rennur upp, að dauðinn vitjar samferðafólks okkar. Tómleikinn, sem fyllir hjartað þegar fregnin berst er alltaf jafnsár og svo er mér innanbrjósts þegar ég kveð mág minn og vin Hermann Þorgilsson. Hermann bjó lungann úr ævi sinni í foreldrahúsum og vann því heimili, sem sínu eigin jafnt nótt sem nýtan dag. Þar kom að hann festi kaup á jörðinni Hrísum, sem þá var í eyði og þurfti aðhlynningar við. Hafist var handa við að gera íbúðarhúsið upp, rífa allt innan úr húsinu, sem var ein- angrað með torfi, einangra það upp á nýtt og klæða í hólf og gólf. Þarna var komið gott íbúðarhús og ákvað því Hermann að taka foreldra sína til sín svo þau hefðu það betra í ellinni. Til að fjármagna jarðakaupin fór hann á vertíðir til Hafnarfjarðar og var þar landmaður hjá útgerðarfyr- irtæki. Hermann var góður drengur í alla staði og bað fyrir fólki í nauð og ekki stóð hann í útistöðum við neinn. Ein- hleypur var hann allt sitt líf þótt hann hefði alla burði til að eignast sína eigin fjölskyldu. Svona er lífið, sumir njóta sín, en aðrir ekki. Bú- skapur varð hans ævistarf og yndi hafði hann af því sem starfið bauð. Hestar voru þó í mestu uppáhaldi síðari árin. Okkar kynni eru orðin löng. Fimmtíu og fimm ár höfum við Her- mann skrafað saman, unnið saman og hlegið saman og alltaf var hann sama góða sálin. Hann átti við vanheilsu að stríða síðustu árin og naut þá aðhlynningar Unu systur sinnar og nú síðast hefur hann dvalist á sjúkrahúsi í Stykk- ishólmi og naut á báðum stöðum bestu umönnunar, sem hægt var að veita. Þökk sé þeim. Nú er góður drengur kært kvadd- ur. Blessuð sé minning hans. Sveinn B. Ólafsson. Ég átti því láni að fagna, að fá að dvelja mörg sumur hjá ömmu og afa í sveitinni þar sem þau ásamt sonum sínum Þorgils og Hermanni bjuggu félagsbúi á jörðunum Þorgilsstöðum, Hrísum og Efri-Hrísum. Hermann var ungum drengnum hafsjór af fróðleik og var auk þess mjög laginn við að auðvelda honum að sjá heim- inn frá sjónarhóli fullorðinna og veitti honum gott vegarnesti í skark- ala borgarlífsins að loknum sumar- störfunum í sveitinni. Hermann ólst upp við hefðbundin sveitastörf og gekk til þeirra starfa af dugnaði og eljusemi frá unga aldri. Hann átti einnig mjög auðvelt með að tileinka sér það sem af bók- um má læra. Snemma hafði hann mikinn áhuga á landafræði og sögu. Brennandi áhugi á heimsmálunum entist honum alla ævi og voru honum hugleikin. En næg verkefni blöstu við honum í búskapnum, sem hann gekk til af einstakri ósérhlífni þótt vinnudagur- inn væri oftast langur. Jörð foreldr- anna var lítil og hugur Hermanns og Þorgils bróður hans stóð til meira landnæðis og þar með ræktunar- og stækkunarmöguleika. Hermann og Þorgils keyptu því jarðirnar Hrísa og Efri-Hrísa. Tók þá við þrotlaus vinna við jarðarbætur. Keypt var öfl- ug dráttarvél á þess tíma mæli- kvarða til landbúnaðarstarfanna og hafist handa við að stækka véltæk tún. Árin liðu, túnin urðu stór, vél- arnar stærri, fleiri og fullkomnari. Síðustu árin voru Hermanni erfið, en hann tók því með einstöku jafn- aðargeði, sem reyndar einkenndi líf hans allt. Naut hann þess að vera síðustu misserin hjá Unu systur sinni í Ólafsvík, sem af dugnaði og ósérhlífni hefur gert allt sem í henn- ar valdi hefur staðið til að honum liði sem best. Með þessum orðum kveð ég Her- mann. Hann var heiðarlegur og ætl- aðist til þess af öðrum, bóngóður, ósérhlífinn, látlaus, hlédrægur, orð- var, mikið ljúfmenni og góður vinur, sem ég mun ætíð minnast með sökn- uði og þakklæti fyrir samferðina. Ólafur Sveinsson. HERMANN SIGUR- VIN ÞORGILSSON Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.