Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það er svo þægilegt að díla við ykkur Íslendinga. Þið eruð ekki með neitt sársaukaskyn. Eldri kona hafðisamband viðMorgunblaðið og benti á að á skorti að mat- vöruverslanir byðu upp á heimsendingarþjónustu. Íbúar í þjónustuíbúðunum þar sem konan býr geta fengið keyptan mat virka daga. Um helgar og á öðr- um frídögum er matsalur- inn lokaður. Hún þarf því að kaupa í matinn og ým- islegt annað til heimilisins. Félagslega heimaþjónust- an hefur ekki getað lið- sinnt fólki að þessu leyti, en með breyttum vinnureglum gæti það breyst. Heimsendingum fjölgar hjá Nóatúni Tólf verslanir Nóatúns á höfuð- borgarsvæðinu og á Selfossi bjóða upp á heimsendingarþjónustu. Kristinn Skúlason rekstrarstjóri sagði að þessi þjónusta væri mikið notuð og eftirspurn eftir henni færi ört vaxandi. Viðskiptavinirn- ir ýmist hringja og panta vörur eða senda innkaupalista í tölvu- pósti. Aðallega er það eldra fólk sem notfærir sér þessa þjónustu og mikið er um fasta viðskiptavini. Höfuðborgarsvæðinu er skipt í þrjú hverfi og sérstakir bílar aka vörunum heim. Heimsendingin kostar 450 krónur en ekki er tekið sérstak- lega fyrir að taka vörurnar saman. Pantanir eru sendar heim sam- dægurs og yfirleitt eru vörurnar staðgreiddar með peningum af viðtakanda. Aðrir láta gjaldfæra viðskiptin á greiðslukort. Póstverslun Hagkaups sendir heim vörur Póstverslun Hagkaups býður upp á heimsendingarþjónustu. Að sögn Guðbjargar Jónu Jóhanns- dóttur eru teknar 200 krónur fyrir að taka til vörurnar og 600 krónur fyrir að senda þær heim til viðtak- anda á höfuðborgarsvæðinu. Þannig bætast alltaf 800 krónur ofan á vöruverðið. Gefa þarf upp númer á greiðslukorti til að greiða fyrir vörurnar og sendinguna. Ef pantað er fyrir hádegið á pöntunin að fara út samdægurs, að sögn Guðbjargar Jónu. Hag- kaup eru með sérstakan bíl sem ekur vörum til fastra viðskipta- vina á morgnana og síðan fer hann með sendingar til einstaklinga. Guðbjörg Jóna kvaðst hafa það á tilfinningunni að það færðist í vöxt að fólk fengi vörur sendar heim. Viðskiptavinir sumra Hag- kaupsverslana geta komið í búð- irnar, valið vörur og greitt og fengið þær síðan sendar heim. Póstverslunin er hins vegar eina Hagkaupsverslunin sem afgreiðir pantanir án þess að viðskiptavinir mæti á staðinn. Sjö matvöruversl- anir eru í samtökunum Þín versl- un. Heiðdís Ingvadóttir, starfs- maður á skrifstofu Þinnar verslunar, sagði að verslanirnar þrjár á höfuðborgarsvæðinu byðu ekki upp á heimsendingarþjón- ustu til einstaklinga. Ekki hefur komið til tals hjá Bónus að bjóða upp á heimsend- ingarþjónustu, að sögn Guðmund- ar Marteinssonar framkvæmda- stjóra. Hann sagði að þeir gætu ekki sinnt slíkri þjónustu því þeir hefðu ekki starfsfólk til þess. Það væri talsvert tímafrekt að taka til vörur og senda og slíkt myndi út- heimta fleira starfsfólk. „Við höfum ekki boðið upp á þetta og þar sem ég þekki til, t.d. í Bretlandi, er þetta frekar á und- anhaldi heldur en hitt. Þar úti þarf fólk að borga sérstaklega fyrir þessa þjónustu,“ sagði Guðmund- ur. Sala á kosti í skip er ekki leng- ur á hendi Bónuss og hefur verið flutt til birgðaverslunarinnar Stórkaupa, sem er innan Haga- keðjunnar. Hjá Krónunni hefur komið til tals að bjóða heimsendingarþjón- ustu en engin ákvörðun verið tek- in um að fara út í það. Árni Þór Freysteinsson rekstrarstjóri sagði að þessi þjónusta væri tals- vert tímafrek og því kostnaðar- söm. Krónuverslanir, aðallega úti á landi, selja kost í skip. Þær hafa þó ekki tekið saman vörur fyrir einstaklinga og sent heim. Reglur til endurskoðunar Hjá Velferðarsviði Reykjavík- urborgar er verið að endurskoða reglur um félagslega heimaþjón- ustu, m.a. um meðferð fjármuna notenda þjónustunnar. Ellý Þor- steinsdóttir, skrifstofustjóri á Vel- ferðarsviði, sagði að starfsfólki fé- lagslegrar heimaþjónustu hafi verið bannað, samkvæmt gildandi reglum, að fara með fjármuni not- enda þjónustunnar. Þetta hefur m.a. komið í veg fyrir að starfsfólk geti farið í sendiferðir fyrir þá sem njóta félagslegrar heima- þjónustu. „Það hefur verið bent á að þetta geti verið óhentugt og verið nokk- ur umræða um það. Búið er að gera drög að nýjum reglum þar sem þetta er með öðrum hætti. Það er verið að vinna í þessu og nýju reglurnar eru nú til umsagn- ar,“ sagði Ellý. Verði drögin að nýju reglunum samþykkt taldi Ellý að notendur félagslegrar heimaþjónustu gætu fengið meiri þjónustu. Hún sagði ekki hægt að dagsetja hvenær nýju reglurnar tækju gildi, en taldi að það ætti að geta orðið í vor. Fréttaskýring | Heimsendingarþjónusta matvöruverslana til einstaklinga Heimsending kostar sitt Eldri borgarar eiga margir erfitt með að sinna innkaupum fyrir heimili sitt Sumir eiga erfitt með að kaupa inn. Ódýrustu verslanirnar senda ekki heim vörur  Öldruð kona, sem býr ein í þjónustuíbúð, kvartaði yfir því við Morgunblaðið að sérstaklega væri tekið fyrir heimsendingar- þjónustu matvöruverslana. Slík þjónusta er ekki í boði hjá lág- vöruverðsverslunum og þótti konunni það miður, því eldri borgarana munaði um hverja krónu. Af því tilefni var kannað hverjir bjóða upp á heimsending- arþjónustu á matvörum til ein- staklinga. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.