Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BOÐUNARDAGUR Maríu er í dag,
25. mars, en í dag sendir Smekk-
leysa frá sér geisladiskinn „Til
Máríu“ með söng Kammerkórs
Suðurlands.
Á diskinum er trúarleg tónlist
eftir Gunnar Reyni Sveinsson tón-
skáld og lagasmíðar hans við ærsla-
vísur Æra-Tobba. Einsöngvarar á
diskinum eru Hallveig Rúnars-
dóttir, Anna Sigríður Helgadóttir,
Hrólfur Sæmundsson og Sverrir
Guðjónsson, en Sverrir er jafn-
framt listrænn stjórnandi disksins.
Undirleikari er Kári Þormar, org-
anisti í Áskirkju.
Kammerkór Suðurlands var
stofnaður 1997 af Hilmari Erni
Agnarssyni, organista og söng-
stjóra í Skálholtskirkju, sem stjórn-
að hefur kórnum frá upphafi. Áður
hefur kórinn gefið út diskinn „Ég
byrja reisu mín“.
Kórinn heldur útgáfutónleika í
Þjóðmenningarhúsinu 1. apríl kl.
15. Þar kemur fram auk einsöngv-
ara og kórs gítarleikarinn Símon H.
Ívarsson.
Sungið „Til Máríu“
Kammerkór Suðurlands ásamt
Hilmari Erni Agnarssyni.
BRYNJÓLFSMESSA eftir Gunnar
Þórðarson verður frumflutt í Íþrótta-
akademíunni í Keflavík í dag kl. 16.
Flytjendur á tónleikunum eru kórar
Keflavíkurkirkju, Skálholtskirkju og
Grafarvogskirkju, ásamt Barnakór
Keflavíkurkirkju, Kammerkór Bisk-
uptungna og Unglingakór Graf-
arvogskirkju. Þá leikur hljómsveitin
Jóns Leifs Camerata með söngv-
urunum, en einsöngvarar í messunni
eru þau Jóhann Friðgeir Valdimars-
son tenór og Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran.
„Ég skrifaði messu árið 2000 og
langaði þá strax að gera aðra, og þá
með latínutextanum,“ segir Gunnar í
samtali við Morgunblaðið, aðspurður
hvers vegna hann hafi ákveðið að
skrifa messu. „Því það er nú það sem
menn hafa verið að fást við gegnum
aldirnar. Hin messan var hins vegar á
íslensku.“
Og er þetta þá svona skemmtilegt
form að semja í? „Já, ég fann að þetta
hentaði mér ágætlega. Þetta er söng-
ur, ekki bara hljóðfæraleikur, og svo
fannst mér áskorun að skrifa fyrir
kór. Þannig var þetta reyndar allt,
því þó textinn sé mikill dýrðarsöngur
verða líka að vera einhver átök í mús-
íkinni – það þarf að byggja upp og
draga úr. Það var gaman að eiga við
það,“ svarar Gunnar, sem segir þó
margar fallegar stemmningar að
finna í verkinu.
Sú ákvörðun að kenna messuna við
Brynjólf kom til nokkuð seinna, að
sögn Gunnars. Hann segist hafa átt
gott samstarf við kórstjóra hinna
þriggja kóra sem syngja í messunni;
Hákon Leifsson, sem verður stjórn-
andi á öllum tónleikunum, Hilmar
Örn Agnarsson og Hörð Bragason,
og í samræðu við þá, eftir að ákveðið
var að sameina kórana þrjá, kom upp
hugmyndin að kenna messuna við
Brynjólf – enda notar Gunnar texta
Brynjólfs að hluta í verkinu. „Hann
skrifaði á latínu, og samdi meðal ann-
ars heillangan texta sem er einskonar
óður til Maríu meyjar. Ég tók bara úr
honum það sem passaði fyrir mig,
enda held ég að hann sé einar tíu síð-
ur,“ útskýrir Gunnar.
„Gunna Þórðar“-melódíur
Aðspurður hvort á tónlistinni sé
einhver „Gunna Þórðar“-blær, eða
hvort hann sé að færa sig út fyrir sitt
hefðbundna svið, segir Gunnar tón-
listina á vissan hátt öðruvísi en
kirkjukórar séu vanir að syngja.
„Fyrir mig er þetta líka aðeins öðru-
vísi vinna – í staðinn fyrir þriggja
mínútna lög eru kaflar í messunni allt
upp í 8–9 mínútur, sem er nýtt fyrir
mig. En melódíurnar eru ekkert ólík-
ar mér, það held ég alls ekki. Um-
gjörðin er bara önnur.“
Þannig að fólk sem er hrifið af
þinni tónlist ætti að kunna að meta
messuna? „Já, ég held það.“
Gunnar segist hlakka til frumflutn-
ingsins, enda hafi æfingar hingað til
gengið að óskum. „Það var stórt og
mikið sánd maður, þegar þetta fór að
hljóma,“ segir hann að síðustu.
Tónlist | Brynjólfsmessa Gunnars Þórðarsonar frumflutt í Keflavík í dag
„Stórt og mikið sánd“
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Brynjólfsmessa Gunnars Þórð-
arsonar verður flutt í Íþrótta-
akademíunni í Keflavík í dag kl. 16.
Messan verður einnig flutt í guðs-
þjónustu í Skálholtskirkju annað
kvöld kl. 20 og í Grafarvogskirkju,
miðvikudagskvöldið 29. mars, kl.
20.30.
Morgunblaðið/Ómar
Sex kórar, hljómsveit og tveir einsöngvarar taka þátt í flutningi messunnar sem verður flutt þrisvar sinnum.
PÉTUR Halldórsson er menntaður
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands, Middlesex University of
London og School of Visual Arts í
New York. Hann hefur haldið
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum bæði hér heima og er-
lendis. Í dag opnar hann sýningu í
Galleríi Sævars Karls. Abstrakt,
meta-náttúra, veðruð skilaboð,
plokkaðir fletir og mjötviður mær
er meðal þess sem þar má finna.
„Þetta eru nokkuð stór olíuverk,
unnin með blandaðri tækni,“ segir
Pétur sem hefur unnið að þessum
verkum á síðastliðnum fimm árum.
Hann útskýrir þessa tækni þannig
að hann ber í verkið alls konar efni
og svo rífur hann efnið af. Eftir rift-
unina stendur eftir mynd sem er
síðan meira áberandi en það sem
hann hefur málað á verkið. „Þetta
er svona að búa til myndir úr efni
sem er talið ónýtt,“ útskýrir Pétur.
Sýningin stendur yfir til 8. apríl.
Pétur Halldórsson
Veðruð skilaboð
hjá Sævari Karli
TÓNLEIKAR Schola cantorum eru
í Hallgrímskirkju á morgun, sunnu-
dag, kl. 16.00 – en ekki í dag eins og
misritaðist í umfjöllun blaðsins um
tónleikana í gær.
Tónleikar Schola
cantorum eru á morgun
Í DAG leikur hin hálfíslenska Theresa Bokany
fiðluleikari ásamt Adam György píanóleikara á
TÍBRÁRtónleikum í Salnum í Kópavogi.
Theresa, sem er ungversk í hina ættina, vakti
verðskuldaða athygli þegar hún lék fyrst í
Salnum ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
píanóleikara árið 2004. Adam György er ungur
og margverðlaunaður píanóleikari frá Búda-
pest.
„Þetta er í annað skipti sem ég spila hér á
landi, en í fyrsta skipti sem ég og Adam spilum
saman opinberlega,“ segir Theresa sem er að-
eins 22 ára gömul. „Ég og Adam erum æsku-
vinir en við vissum þá ekki að við yrðum bæði
atvinnutónlistarmenn, vinskapurinn hefur alltaf
haldist í gegnum árin og núna ákváðum við að
það væri kominn tími til að spila saman.“
Theresa stundar nám í fiðluleik í Þýskalandi
við Tónlistaskólann í Munchen. „Ég byrjaði
fimm ára að læra á fiðlu og var svo heppin að
læra hjá Tibors Vargar sem var einn af meist-
urum fiðlunnar á 20. öld. Þegar ég kláraði stúd-
entsprófið 18 ára varð ég að ákveða hvað ég
vildi gera og það kom ekki annað til greina en
að læra meira í tónlist.“
Spilar sónötu eftir Béla Bartók
Theresa ferðast núna nokkuð mikið um Evr-
ópu og til Japan til að spila. „Mér finnst
skemmtilegast að spila í Þýskalandi því það er
svo mikið að gerast þar í klassískri tónlist.
Fólkið þar þekkir klassíska tónlist mjög vel og
hlustar öðruvísi á hana en annarsstaðar.“
Núna er Theresa í löngu páskafríi frá skól-
anum. Auk þess að koma hingað til lands að
spila mun hún dvelja í Japan í heilan mánuð við
spilamennsku í fríinu. „Ég er ennþá í grunn-
námi og á eftir tvö ár af því. Að því loknu ætla
ég í mastersnám.“
Á tónleikunum, sem hefjast kl. 16.00, leika
Theresa og Adam samleik í c-moll, sónötu
Griegs, og auk þess munu þau flytja fjögur ein-
leiksverk. Theresa spilar sónötu fyrir fiðlu eftir
landa sinn Béla Bartók en Adam leikur umrit-
anir fyrir píanó á þremur verkum eftir Johann
Sebastian Bach og Mendelssohn.
„Adam spilar frekar líflega tónlist og ég spila
verk eftir Bartók sem er frekar öflugt og eitt af
þeim erfiðari fyrir fiðlu.“
Það verða aðeins þessir einu tónleikar í dag
með þeim en Theresa vonast til að spila fyrir
Íslendinga fljótt aftur.
Tónlist | Ungir tónlistarmenn á Tíbrártónleikum í Salnum
Æskuvinir leika saman sónötu Griegs
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
„Þetta er í annað skipti sem ég spila hér á landi, en í fyrsta skipti sem ég og Adam spilum saman op-
inberlega,“ segir Theresa sem er aðeins 22 ára gömul, en þau Adam eru æskuvinir.
Miðasala á tónleikana fer fram í síma 570-0400
og á netinu á www.salurinn.is.