Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 29 DAGLEGT LÍF Í MARS Ég fer ekkert endilega ímargra daga gönguferðireða sigra fjöll til þess aðfá hreyfingu, ég geri það fyrst og fremst til að komast í snert- ingu við náttúruna og sem næst fögrum stöðum,“ segir Jóna Lísa Gísladóttir, sem er mikill göngu- garpur og kann hvergi betur við sig en í umhverfi þar sem mannshöndin hefur hvað minnst komið við sögu. „Stundum þegar ég er stödd lengst inni í óbyggðum þá læt ég þau orð falla að þar vilji ég búa, en sam- ferðamenn mínir hlæja bara að mér og skilja ekkert í þessari sérvisku. En fyrir mér er þetta lífið.“ Jóna Lísa segist þrífast á návígi fjalla sem fylli hana orku og hún nýtur friðarins fjarri mannabyggðum. Ein með hundinum í bústaðnum Hún býr í Reykjavík en hugurinn leitar stíft til æskuslóðanna heim í Skaftártungu. „Ég er fædd og upp- alin á Flögu. Foreldrar mínir voru bændur og frelsið sem ég bjó við í sveitinni er enn innra með mér, sem verður til þess að ég vil komast sem oftast út fyrir borgina. Fyrir um fimmtán árum þegar ég var stödd á Flögu þá tætti ég bræður mína út í brjáluðu moldroki til að hjálpa mér við að steypa undirstöður fyrir sum- arbústaðinn minn, því mér lá svo á að reisa hann. En tíminn leið og bú- staðurinn kom ekki fyrr en fyrir þremur árum. Þar vil ég helst vera allar helgar, ein með sjálfri mér og hundi dóttur minnar en hann býr hjá Sigurgeiri bróður mínum sem er bóndi á Flögu. Þarna er mikil ró og ég fer gjarnan í nokkurra klukku- tíma gönguferðir sem hressa sál og líkama. Mér finnst alltaf jafn erfitt að snúa aftur til Reykjavíkur.“ Skemmtilegt fólk gerir góða göngu betri Jóna Lísa er að sjálfsögðu í Skaft- fellingafélaginu ásamt öðrum burt- fluttum Skaftfellingum og með fólki úr því félagi gengur hún tvisvar í viku í Reykjavík. „Við förum í klukkutíma röskan göngutúr á mið- vikudögum og svo tveggja tíma lengri ferðir á laugardögum og þá út fyrir þéttbýlið, til dæmis upp í Heið- mörk, á Úlfarsfell, Esjuna eða að Hvaleyrarvatni. Við köllum okkur Skálmara því gönguhópurinn heitir Skálm, eins og ein áin í sýslunni okkar.“ Auk þess gengur Jóna Lísa einu sinni í viku með samstarfskonu sinni um Elliðaárdalinn. „Svo fer ég í lengri ferðir á sumrin með Skálm- urunum sem eru skemmtilegt fólk og mikið gert af því að setja saman vísur og hafa gaman af því að vera til. Í fyrra fórum við á Lónsöræfi og ég hitaði upp með því að ganga Laugaveginn með nokkrum spræk- um konum. Eftir að ég kom af Öræf- unum skellti ég mér í göngu um Fögrufjöll sem eru við Langasjó og við enduðum á toppi Sveinstindar, og það var unaðslegt,“ segir Jóna Lísa og tekur fram að hún þurfi ekki að fara langt til að finna „brjál- æðislega staði“ og nefnir þar sem dæmi Hrífunesheiði og Flöguheiði í heimahögunum. Gleymi að athuga með myrkfælni Í lok maí stefnir Jóna Lísa á að ganga á Hvannadalshnúk með nokkrum vinum. „Ég sneri upp á höndina á Sigurgeiri bróður mínum og fékk hann til að koma með mér í þessa þrekraun ef ég þyrfti að láta bera fyrir mig birgðirnar svo ég komist nú örugglega alla leið. Þetta er tólf tíma ganga og ég hlakka virkilega til. Það jafnast ekkert á við fjallafriðinn, að vera laus við allt áreiti sem ergir mann í hversdags- lífinu.“ Jóna Lísa iðar í skinninu þegar vorlyktin kemur í loftið og hún ætl- ar að bruna í sveitina um helgina og eiga góðar stundir ein með sjálfri sér í bústaðnum. „Margir spyrja mig hvort ég sé ekki myrkfælin þeg- ar ég er þarna ein í svarta myrkri á veturna en ég svara eins og satt er að ég viti ekki hvort ég sé myrkfæl- in af því ég gleymi alveg að athuga það.“  FERÐALÖG | Óbyggðirnar kalla á Jónu Lísu Gísladóttur Þrífst á návígi við fjöll Þegar Jóna Lísa gekk um Fögrufjöll endaði hún á Sveinstindi og þar var þessi mynd tekin. Göngugarpurinn Jóna Lísa inni við Landmannalaugar síðastliðið sumar. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.