Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 23
Auglýsing um kjördæmisfundi í kjördæmum Kirkjuþings Kjörstjórn við Kirkjuþingskjör 2006 boðar hér með til kjördæmisfunda í kjördæmum Kirkjuþings, sbr. 5. gr. starfsreglna um kjör til Kirkjuþings og ákvæði til bráðabirgða í sömu reglum. Kjördæmisfundum er ætlað að ganga frá tilnefningum á leikmönnum til kjörs til Kirkjuþings og eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru á kjördæmisfundi. Kjördæmisfundir í kjördæmum Kirkjuþings verða haldnir á þeim stöðum og tímum sem greinir á vef Þjóðkirkjunnar kirkjan.is. Fundinn sækja formaður eða einn fulltrúi úr sóknarnefnd hverrar sóknar í kjördæminu. Þá er leikmönnum sem njóta kosningarréttar í kjördæminu heimilt að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Ennfremur eiga þeir sem tilnefndir hafa verið af sóknarnefndum til kjörs kost á að mæta á fundinn til að kynna sig. Dagskrá hvers fundar er sem hér segir: 1. Formaður sóknarnefndar eða fulltrúi úr sóknarnefnd þeirrar sóknar kjördæmisins þar sem flestir þjóðkirkjumenn eru setur fundinn og fram fer kosning fundarstjóra og ritara. 2. Fundarstjóri kallar eftir og kynnir tilnefningar sóknarnefnda kjördæmisins á kjörgengum leikmönnum til kjörs. 3. Fram fer kynning á þeim sem sóknarnefndir hafa tilnefnt til kjörs. 4. Fundurinn tilnefnir kjörgenga leikmenn, hafi ekki nægilega margar tilnefningar borist frá sóknarnefndum í kjördæminu. 5. Leynileg kosning, ef fleiri eru tilnefndir en tilnefna skal í kjördæminu. Hver sóknarnefnd hefur eitt atkvæði. 6. Fundarslit. Vakin er athygli á því að sóknarnefndir geta tilnefnt kjörgenga leikmenn til kjörs fram að kjördæmisfundi og skilar formaður sóknarnefndar, eða fulltrúi sóknarnefndar á kjördæmisfundinum, tilnefningunni á kjördæmisfundi. Miðbær | Reiðhjól er ágætis farartæki í miðbænum, sér- staklega á annatímum í umferð- inni. Fólk kemst jafnvel hraðar yfir en á bíl. Það er ekki algengt að fólk sjáist tvímenna á hjól- hestunum sem þó var raunin í því tilviki sem ljósmyndarinn festi á filmu. Morgunblaðið/Ómar Tvímennt á hjólhestinum Umferðin Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Skólaþing var haldið í Hafralækjarskóla í síðustu viku og gafst foreldrum og starfs- fólki skólans þar möguleiki á að tala um skólastarfið og þótti mörgum þetta kær- komið tækifæri til þess að segja skoðun sína og heyra álit annarra. Rætt var um margt það sem vel er gert og líka það sem mætti vera öðruvísi, en í umræðum kom fram vilji sveitafólks til þess að skólinn hætti fyrr á vorin en nú er. Í því sambandi var talað um lögbundna frídaga, skipulagsdaga, vetrarfrísdaga, við- taladaga og frídaga í tengslum við árshátíð og góugleði. Þá kom fram að páskamán- uðurinn er oft ódrjúgur til náms, en á þessu ári eru einungis tólf skóladagar í apríl. Hugmyndin gengur út frá því að þjappa einhversstaðar saman til þess að skólinn geti hætt a.m.k. viku fyrr frá því sem nú er, því auðvitað vilja sumir sveitamenn hafa krakkana meira heima í vorverkunum.    Framkvæmdahugur er í mörgum bænd- um enda hefur víða birt til í búskapnum. Það er samt ekki allsstaðar auðvelt því mjög erfitt er að fá iðnaðarmenn til starfa því allir eru þeir uppteknir. Múrarar og rafvirkjar liggja ekki á lausu og langur biðtími er eftir smiðum. Þá eru pípulagningamenn ekki á hverju strái. Á síðasta ári sótti einn Þingeyingur um að læra pípulagnir í Verkmenntaskólanum á Akureyri en það var því miður ekki hægt þar sem enginn annar umsækjandi fannst og deildin því ekki starfrækt.    Vorið er í nánd og í góða veðrinu á dög- unum viðruðu margir bændur kindur sínar og fengu þær að fara í göngutúra um túnin. Það var kærkomið að geta þurrkað ullina áður en rúið er, því rakt er í mörgum fjár- húsum. Vetrarbeit í því formi sem áður var er löngu aflögð og ekki lengur reiknað með að hægt sé að drýgja fóður með því að beita utan túns. Þessi tími var kærkominn fyrir skepnurnar því eitt er víst að engin útihús, hversu vel sem þau eru gerð, geta komið í staðinn fyrir góða útivist. Úr sveitinni LAXAMÝRI EFTIR ATLA VIGFÚSSON FRÉTTARITARA sem gert er og markar áframhaldandi vinnu fyrir allt hálendið. Eftir að efnt hefur verið til æfingar á Langjökli samkvæmt þessu nýja skipulagi mun verða hugað að öðrum svæð- um. Undir samkomulagið í Jaka skrifuðu Stefán Skarphéðinsson sýslu- maður í Borganesi, Har- Gert hefur veriðsamkomulag umaðgerðaáætlun fyrir leitar- og björg- unarstarf á Langjökli. Skrifað var undir sam- komulagið í skálanum Jaka í Þjófakrókum, við rætur Langjökuls. Að samkomulaginu standa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, ríkislög- reglustjórinn og lög- reglustjórarnir á Sel- fossi, Borgarnesi og Blönduósi. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu að að- gerðaáætlunin geri allt leitar- og björgunarstarf á Langjökli markvissara með því að boðun björg- unarsveita og stjórnun og leitarskipulag er ákveðið fyrirfram. Samkomulagið er hið fyrsta sinnar tegundar aldur Johannessen rík- islögreglustjóri, Sigurgeir Guðmundsson formaður Landsbjargar, Ólafur Helgi Kjart- ansson sýslumaður á Selfossi og Bjarni Stef- ánsson sýslumaður á Blönduósi. Að undirritun lokinni hélt hópurinn í björgunarsveitarbílum á hábungu jökulsins en þar var skyggni slæmt. Aðgerðaáætlun fyrir Langjökul Vísa eftir RúnarKristjánsson mis-ritaðist í gær. Hann orti um skaðsemi reykinga og snerist merkingin við, meina- siður varð að heilsusið. Hér er vísan rétt: Skorið getur skjótt á grið skapað dauðakynni að magna slíka meinasið móti heilsu sinni. Halldór Blöndal fór með í síðustu þingveislu: Maddama Framsókn finnst mér hnuggin, guggin; mjög að henni er sótt og sorfið og svo er KEA merkið horfið. Magnús Geir Guð- mundsson orti þegar Steingrímur J. Sigfússon birtist á sjónvarps- skjánum og tjáði sig um brotthvarf hersins: Létti hér vissan læt ég í té, er laufgast senn barrið á trjánum. Og Steingrím nú aftur stálhraustan sé, í stuði á sjónvarpsskjánum! Framsókn guggin pebl@mbl.is Miðbær | Fegurð í Fókus, ljósmyndasýn- ing Fókuss, félags áhugaljósmyndara, verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag, laugardag, klukkan 14. Sýninguna prýða ljósmyndir eftir sautján félaga í Fókus. „Fegurðin er allt í kringum okkur en við skynjum hana með mismunandi hætti. Myndir sem valdar eru saman á sýningu með fegurðina í huga eru því ólíkar, eins og ljósmyndararnir sjálfir,“ segir í fréttatil- kynningu félagsins. Þeir sem sýna eru Andri Már Helgason, Arnar Már Hall Guð- mundsson, Daníel Sigurðsson, Guðmundur Albertsson, Hallsteinn Magnússon, Hauk- ur Gunnarsson, Helgi Bjarnason, Jóhann- es Johannessen, Jón Sigurgeirsson, Jón Sigurjónsson, Jónas Erlendsson, Kristinn Sigurjónsson, Páll Guðjónsson, Pálmi Guð- mundsson, Skúli Þór Magnússon, Sæþór L. Jónsson og Þorsteinn Ásgeirsson. Ellefta sýning félagsins Fegurð í Fókus er ellefta ljósmyndasýn- ing Fókuss og sú þriðja í röð viðameiri sýn- inga félagsins sem haldnar eru annað hvert ár. Sýningin verður opin á opnunartíma Ráðhússins til sunnudagsins 9. apríl, nema laugardaginn 1. apríl, þá verður hún opin gestum frá klukkan 14. Fókus hefur starfað í sjö ár. Félagið er opið öllu áhugafólki um ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Fé- lagsmenn voru 66 í upphafi ársins. Mark- mið Fókuss er að virkja ljósmyndun sem áhugamál hjá fólki og skapa um leið öfl- ugan vettvang fyrir félagsmenn til að sinna þessu áhugamáli sínu. Fegurð í Fók- us í Ráðhúsinu ♦♦♦ Reykjavík | Hafin var smíði á 1.257 íbúð- um í Reykjavík á árinu 2005 og hefur sú tala aldrei verið hærri. Lokið var við smíði 782 íbúða á síðasta ári, samkvæmt skýrslu byggingafulltrúa sem lögð var fram í borg- arráði síðastliðinn fimmtudag. Í skýrslunni kemur fram að íbúðarhús- næði var um helmingur alls húsnæðis sem fullgert var á árinu í fermetrum talið. Vörugeymslur og bílskúrar námu 16%, verslunar- og skrifstofuhúsnæði 15%, stofnanahúsnæði 13% og um 6% nýbygg- inga í Reykjavík árið 2005 var iðnaðarhús- næði. Skýrsluna í heild er að finna á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. Aldrei fyrr byrj- að á jafnmörg- um íbúðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.