Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 35
gæta á N-Atlantshafi hljóti að hafa áhuga á að þar ríki stöð- ugleiki. Hann tók undir það. Það er í allra þágu að þessi mál leysist sem fyrst. Rússar nefndu einnig alveg eins og Frakkarnir, sem ég hitti fyrir skömmu, að þeir gætu selt okkur tæki og búnað,“ sagði Geir. Áður en fundur utanrík- isráðherranna hófst lagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra blóm- sveig á gröf óþekkta hermannsins í Moskvu. Utanríkisráðherra heimsótti einnig skrifstofu Actavis í Moskvu og kynnti sér starfsemi hennar á Rússlandsmarkaði. Geir mun eftir helgina hitta ut- anríkisráðherra Þýskalands og ræða við hann m.a. um varnarmál Íslands. kvæði. Einnig ræddu þeir málefni Sameinuðu þjóðanna og framboð Íslands til Öryggisráðsins. Geir sagði að venjan væri að ríki sem eru með fast sæti í Öryggisráðinu gæfu ekki upp afstöðu sína varð- andi kosningu nýrra ríkja í ráðið, en Lavrov hefði farið mjög vin- samlegum orðum um það hlutverk sem Ísland gæti gegnt á þessum vettvangi. Lavrov er fyrrverandi sendiherra Rússlands hjá Sþ. Stöðugleiki á N-Atlantshafi mikilvægur „Ég gerði honum nokkuð ít- arlega grein fyrir nýrri stöðu í varnarmálum á Íslandi. Rússar hafa auðvitað mikinn áhuga á þeim málum. Ég sagði við hann að allir þeir sem eiga hagsmuni að bandsins na sam- errarnir sland leiðtoga- rður í m Norð- r Rúss- ss fjöll- efni æga vídd Rússar, r auk amskipti - gið hefur t opna á skoð- n þar frum- ja ki og búnað Reuters áðherra Rússlands, áttu fund í Moskvu í gær. áðherra Rússlands MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 35 úi í dag ða lít- þurfa að gginga m við l 1996 ert betri rst ef gt sins seg- hafi ldri ni við og vel- ar 1. mst ég hefur hjá íbú- um landsins almennt á síðustu tíu árum. Ein af ástæðum þess er sú að öryrkjar, sem margir voru með litla eða enga skattbyrði árið 1995, voru farnir að greiða um- talsverðan hluta af tekjum sínum í skatta árið 2004, samkvæmt nið- urstöðum Hagstofu Íslands á greiningu allra skattframtala í landinu. Í skýrslunni kom t.d. fram að einhleypir öryrkjar höfðu að jafn- aði greitt rúmlega 7% af heildar- tekjum sínum í skatt árið 1995 en árið 2004 voru þeir farnir að greiða um 17% af tekjum sínum í skatt. Á mynd 2 er sýnt hvernig skattbyrði öryrkja jókst á tíma- bilinu. Þar eru taldar allar tekjur öryrkja samanlagðar (frá al- mannatryggingum, lífeyrissjóðum og atvinnutekjur) og nettóskatt- greiðslur sýndar sem hlutfall af heildartekjum. (Nettóskattar eru tekjuskattar og eignaskattar samanlagðir að frádregnum barna- og vaxtabótum). Þetta er mikil aukning á skattbyrði, úr 7% í 17%, sem hefur haft mjög nei- kvæð áhrif á afkomu öryrkja í landinu. Öryrki sem einungis lifir af líf- eyri frá Tryggingastofnun rík- isins var skattfrjáls frá 1988 til 1996, en hefur síðan þá greitt sí- vaxandi skatta af hámarkslífeyr- inum, líkt og eldri borgarar. Í dag lítur dæmið svona út hjá einhleypum öryrkja sem lifir ein- ungis á lífeyri frá almannatrygg- ingum: Hafi hann orðið öryrki 18 ára eða yngri fær hann hærri líf- eyri en eldri borgarar því aldurs- tengda uppbótin leggst til fulls ofan á hámarkslífeyrinn, alls kr. 132.590 á mánuði. Af þessu greið- ir hann nú kr. 19.660 í skatta á mánuði (alls 235.900 kr. á ári). Ráðstöfunartekjur hans eru því 112.930 kr. á mánuði. Flestir ör- yrkjar eru hins vegar með lægri lífeyri en þetta frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Ef skattleysismörk hefðu fylgt launaþróuninni, eins og eðlilegast hefði verið, væri öryrki með há- markslífeyri frá TR nærri skatt- laus í dag eins og hann var 1996 og fyrr. Hann hefði því um 235.000 krónum meira í ráðstöf- unartekjur á ári en nú er. Aldurstengda uppbótin, sem samið var um milli Öryrkja- bandalagsins og ríkisstjórn- arinnar skömmu fyrir kosningar 2003, nemur nú kr. 22.870 á mán- uði. Þegar búið er að draga skattinn (kr. 19.660) frá lífeyri þess öryrkja sem fær hámark ör- orkulífeyris frá ríkinu heldur hann um 3.200 krónum eftir af uppbótinni. Megnið af upphæð aldurstengdu uppbótarinnar rennur því aftur til ríkisins í formi skatta. Þannig hefur aukna skattbyrðin étið upp kjarabætur sem ríkisstjórnin samdi um að veita öryrkjum. Er það sjálfsagt að leggja svo auknar skattbyrðar á lág- tekjufólk eins og öryrkjar sann- arlega eru? Í hópi öryrkja eru meðal ann- arra blindir, hreyfihamlaðir, heyrnarlausir, þroskaheftir, geð- fatlaðir, fólk sem hefur slasast illa í umferðarslysum og fólk sem glímir við afleiðingar erfiðra sjúkdóma. Skattlagning fátæktar Þróun skattlagningar á Íslandi á síðustu árum ætti að vera mörgum umhugsunarefni, af ýmsum ástæðum. Þjóðinni hefur verið sagt að skattar væru að lækka. Þvert á móti hafa skattar á almenning hækkað meira en í nokkru öðru OECD-ríki frá 1995 til 2004, um leið og skattar á fyr- irtæki og stóreignafólk hafa lækkað. Rýrnun skattleysismark- anna hefur fært skattheimtuna sífellt neðar í tekjustiga þjóð- arinnar, þannig að lágar tekjur sem áður voru skattfrjálsar eru nú skattlagðar í sívaxandi mæli. Lægsti lífeyrir og lægstu tekjur á vinnumarkaði eru ekki lengur skattfrjáls, þó erfitt sé að draga fram lífið á þeim kjörum. Fólk sem hefur kjör undir fá- tæktarmörkum er farið að greiða skatta, án þess að kjarastaða þess hafi á nokkurn hátt batnað umfram kjör annarra í þjóðfélag- inu. Í reynd hafa kjör lág- tekjufólksins dregist afturúr kjörum meðal- og hátekjufólks. Hvaðan kom annars sú hug- mynd að gera fátæktarkjör að fé- þúfu fyrir skattakló hins op- inbera? dri borgara og öryrkja ’Er það sjálfsagt aðleggja svo auknar skatt- byrðar á lágtekjufólk eins og öryrkjar sann- arlega eru? ‘ Höfundur er prófessor við Háskóla Íslands. ttbyrði einhleypra öryrkja 1995 til 2004 iddir skattar sem % heildartekna .2 9.9 11.9 12.1 14.3 13.9 14.6 17.1 997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 sla Hagstofu Íslands úr öllum skattframtölum öryrkja Mynd 1: Vaxandi skattlagning ellilífeyris frá 1997 0 20.000 40.000 60.000 80.000 100.000 120.000 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 K r. á m á n u ð i - v e rð la g h v e rs á rs Ellilífeyrisþegi: hámarkslífeyrir í krónum Skattleysismörk Skattaður hluti lífeyris Lífeyrir skattfrjáls til 1996 MARSMÁNUÐI fylgir gjarnan sú tilfinning að vorið sé rétt handan við hornið. Það birtir bæði í náttúrunni og í sálartetr- inu við þá tilhugsun og af og til verða sporin manns svo undurlétt og leikandi – rétt eins og vorið sjálft sé í kroppnum. Hugurinn hvarflar aftur í tím- ann, um 28 ár. Páskarnir voru snemma á ferðinni það árið, skír- dagur var hinn 23. mars. Það var fal- legur dagur með vori í lofti og lítill drengur ákvað að tími væri kominn til að leggja af stað í lífsferðalagið stóra. Ferðalag sem átti eftir að leiða hann um ljúfar götur og hættuleg einstigi og að lokum í svart- nætti sem engu eirði og gleypti líf hans áð- ur en það fyllti tvo tugi ára. Þó svo það séu orðin átta ár frá því hann ákvað að lífið væri ekki þess vert að lifa því er minningin um daginn skelfilega þegar ég frétti lát hans jafn sterk og það hefði gerst í gær. Lítill drengur með fallegt bros er mér sífellt í huga. Einhvern veg- inn tekst tímanum ekki að skæna yfir sárið stóra sem varð til þeg- ar hann hvarf. Fyrst í undir- heima borgarinnar og svo yfir móðuna miklu, rétt fyrir tvítugs- afmælið sitt. Í hvert sinn sem ég sé frétt um ungt fólk á afbrotabraut, heim- ilislaus ungmenni og skelfilegar afleiðingar eiturlyfjanotkunar fæ ég sting í hjartað. Ég fyllist reiði í garð þjóðfélags sem getur leyft ungu fólki að vera á götunni, sem horfir á ung líf tapast vegna þess að annað er í forgangi. Mig langar til þess að skamm- ast út í kerfið sem er svo lokað í sínum fílabeinsturni að það sér ekki vandann. Kerfi sem er stundum svo ósveigjanlegt að ekkert pláss er fyrir einstakling- inn og segir blákalt að enginn vandi sé til staðar nema hann sé til í skýrslum. Við, foreldrar þeirra barna og ungmenna sem farið hafa þessa leið; að nota eiturlyf og/eða stunda afbrot, jafnvel farið á ver- gang og í kjölfarið tekið eigið líf, berjumst alla daga við hugsunina: Hvað ef?  Hvað ef strax í leikskóla og barnaskóla væri tekið á vanda sem ljóst er að verð- ur miklu stærri síðar?  Hvað ef til væri stuðn- ingskerfi sem bregst við því að það eru ekki allir eins  Hvað ef hver fjölskylda fengi utan um sig stuðnings- net fagfólks sem legði brautina sem fjölskyldan svo gengi eftir?  Hvað ef rétt- arkerfið áttaði sig á því að fullorðinsfangelsi eru ekki fyrir börn? Hvað ef-in eru mörg og hægt að halda lengi áfram. Þau snúa líka að okkur sjálfum: Hvað gerði ég rangt? Af hverju breytti ég svona en ekki hinsegin? Var ég ómögulegt foreldri? Hverju hefði það breytt ef … ? Betur má ef duga skal Það hefur ýmislegt áunnist á undanförum árum og endalaust er reynt að finna ný ráð, nýjar leiðir. En mitt álit er að miklu meira þurfi að gera. Um það bera vitni þau fjölmörgu ungmenni sem bíða meðferðar vegna neyslu á fíkniefnum og þeir alltof mörgu sem enn eiga hvergi sínu höfði að halla. Ég vil skora á alla þá sem ein- hverju ráða að taka höndum sam- an og ekki gleyma því að horfa á einstaklinginn um leið og búnar eru til stærri lausnir. Þegar um líf og framtíð barnanna okkar er að tefla á ekki að telja krónur og aura. Til þess er líf þeirra of mik- ils virði. Kæra foreldri sem átt barn í vanda. Það er sárara en orð geti lýst að horfa á eftir barninu sínu stefna í glötun og finna sig van- máttugan. Að bíða alla daga eftir að heyra frá lögreglu sem til- kynnir að það sé í gæslu vegna afbrota, að kvíða því stöðugt að næsti gestur sé sá sem tilkynnir lát barnsins og vita um leið að nú sé öll von úti. Ekki reyna að heyja þessa bar- áttu á eigin spýtur. Leitaðu stuðnings, talaðu við aðra for- eldra í sömu sporum, talaðu við alla þá sem hugsanlega geta styrkt þig og aðstoðað og skilja hvað það er sem þú gengur í gegnum. Leggðu þitt lóð á vogarskál- arnar svo hægt sé að koma í veg fyrir að fleiri tapi lífinu í þessari baráttu. Kæri unglingur. Áður en þú tekur ákvörðun um að prófa eit- urlyf og kannski fara inn á af- brotabraut, hugleiddu um stund hvað það getur kostað þig og fjöl- skyldu þína. Mundu að þú átt foreldra, systkini og aðra ætt- ingja sem finna til vitandi það að þú ert á slóðum sem geta valdið þér miklu tjóni. Ég veit að þetta er þér ekki efst í huga þegar að því kemur að skemmta sér en reyndu samt. Fyrir mömmu og pabba sem elska þig meira en allt annað. Lífið er allt of dýrmætt til þess að kasta því á glæ fyrir and- artaks glys. Minningin ein eftir Eftir Vigdísi Stefánsdóttur ’Einhvern veginn teksttímanum ekki að skæna yfir sárið stóra sem varð til þegar hann hvarf. Fyrst í undirheima borgarinnar og svo yfir móðuna miklu, rétt fyrir tvítugsafmælið sitt.‘ Vigdís Stefánsdóttir Höfundur er blaðamaður og stundar nám í Cardiff. Á FUNDI Geirs H. Haarde og Sergei Lavrov bar tengsl Lavrovs við Ísland á góma, en þannig er að móðir hans vann í gamla utanríkisvið- skiptaráðuneytinu í Sov- étríkjunum og annaðist þar Íslandsviðskipti. „Það eru áreiðanlega ýmsir sem tóku þátt í þeim viðskiptum á sín- um tíma sem muna eftir henni. Lavrov sagði mér að hann hefði snemma áttað sig á Íslandi og fékk sem strákur íslenska ullarpeysu. Móðir hans kom nokkrum sinnum til Íslands,“ sagði Geir. Lavrov gekk í íslenskri ullarpeysu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.