Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 4
4 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TVEIR íslenskir málfræðingar eru
höfundar fræðigreinar sem birtist í
nýjasta tölublaði hins virta málvís-
indatímarits Language. „Það felst
auðvitað gífurlegur heiður í því að fá
birta eftir sig grein í þessu tímariti,
þar sem hér er um að ræða leiðandi
tímarit innan málfræðinnar,“ segir
Jóhanna Barðdal, málfræðingur og
höfundur greinarinnar „Oblique sub-
jects: A common Germanic inheri-
tance“ (Aukafallsfrumlög: Sameig-
inlegur germanskur arfur) ásamt
Þórhalli Eyþórssyni málfræðingi. Jó-
hanna lauk doktorsprófi í norrænum
málvísindum við Háskólann í Lundi
og hefur sl. ár verið með rannsókn-
arstöðu við Háskólann í Bergen. Þór-
hallur lauk doktorsprófi í almennum
málvísindum við Cornell-háskóla í
Bandaríkjunum og starfar nú að
rannsóknum við Háskóla Íslands.
Að sögn Jóhönnu er Language eitt
virtasta tímarit heims innan al-
mennrar málfræði og af mörgum tal-
ið samsvar málfræðinnar við Nature
innan raunvísinda. Language er gef-
ið út af Linguistic Society of Am-
erica, og hefur komið úr síðan 1924.
Á þeim tíma hafa aðeins birst fimm
greinar eftir fræðimenn starfandi við
norræna háskóla, þ.e. einn norskan
fræðimann, þrjá sænska og einn ís-
lenskan, en árið 1963 birtist grein
eftir Hrein heitinn Benediktsson
prófessor um hljóðbreytingar í for-
sögu norrænna mála. Þess má geta
að 24 ár eru liðin síðan síðast kom út
fræðigrein eftir norrænan málfræð-
ing í Language.
Spurð um efni greinarinnar segir
Jóhanna þau Þórhall hafa þar fært
rök fyrir því að aukafallsfrumlög,
sem nú er aðeins að finna í nútíma ís-
lensku, færeysku og þýsku, séu í
raun germanskur arfur sem horfið
hafi úr öðrum germönskum tungu-
málum. Sem dæmi um aukafalls-
frumlag nefnir hún setninguna „Mér
líkar Guðmundur“ þar sem frum-
lagið (mér) sé í þágufalli og andlagið
(Guðmundur) í nefnifalli. Segir hún
slíka setningargerð hafa verið að
finna í öllum germönskum og
indóevrópskum málum, en horfið
með tíð og tíma.
Fundu dæmi máli sínu til stuðn-
ings í textum Immanúels Kant
Að sögn Jóhönnu var það ástralsk-
ur fræðimaður, Avery Andrews, sem
fyrir rúmum tuttugu árum vakti
fyrst athygli á þeirri sérstöðu ís-
lenskunnar að í málinu væri að finna
aukafallsfrumlög og síðan þá hafi
umræðan verið býsna heit innan mál-
fræðinnar. Bendir Jóhanna á að al-
mennt sé litið þannig á innan mál-
fræðinnar að aukafallsfrumlögin í
nútímaþýsku væru ekki frumlög
heldur andlög sem hegði sér að hluta
til eins og frumlög, þ.e. séu einhvers
konar frumlagsígildi án þess að vera
frumlög. „Hafa menn viljað meina að
í forngermönsku hafi þessi liður ver-
ið andlag, en við höldum því hins veg-
ar fram í greininni að þessi liður hafi
ávallt hegðað sér setningarlega eins
og frumlag,“ segir Jóhanna og bend-
ir á að máli sínu til stuðnings hafi þau
Þórhallur fundið dæmi úr þýskum
textum allt aftur frá 18. öld. Dæmin
sem þau fundu snúa að nafnháttar-
setningum á borð við „Hvað fær okk-
ur til að líka ekki fólkið í kringum
okkur?“ en í slíkri setningu tekur
sögnin „líka“ nafnhátt. „Í ákveðnum
gerðum af nafnhætti, þegar frumlag
nafnháttarins hefur sömu vísun og
frumlag aðalsagnarinnar, sleppir
maður frumlaginu, þ.e. „okkur“ í
þessu tilviki,“ segir Jóhanna og
bendir á að það sé talin óyggjandi
sönnun þess að umræddur liður sé
frumlag að það geti horfið í nafnhátt-
arsetningum. „Samkvæmt bæði
þýskum og almennum skrifum á ekki
að vera hægt að búa til svona dæmi á
þýsku. Við fundum hins vegar nokk-
ur slík dæmi t.d. í skrifum heimspek-
ingsins Immanúels Kant frá árinu
1787, auk þess sem við höfum fundið
dæmi úr nýjum þýskum dagblöðum
og fræðigreinum.“
Íslenskir málfræðingar hafa fengið birta fræðigrein í vísindatímaritinu Language
„Gífurlegur heiður“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Þórhallur
Eyþórsson
Jóhanna
Barðdal
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hefur lagt til í ríkisstjórn
að heimiluð verði stofnun hlutafélags
um flugleiðsöguþjónustu og flugvall-
arekstur Flugmálastjórnar Íslands
og að til félagsins verði lagðar eignir,
réttindi, skuldir og skuldbindingar
sem tilheyra flugleiðsöguþjónust-
unni og flugvallarekstrinum.
Hagkvæm verkaskipting
Jafnframt er lagt til að sérstök lög
verði sett um Flugmálastjórn Ís-
lands, sem styrki stofnunina í
breyttu umhverfi og skilgreini betur
hlutverk hennar og starfsemi en gert
er í núgildandi loftferðalögum.
Fram kemur að rætur þessa máls
megi rekja til þess að skipaður var
sérstakur stýrihópur til þess að fara
yfir framtíðarskipan flugmála á liðnu
vori. Átti hópurinn meðal annars að
huga að aðskilnaði eftirlits- og þjón-
ustustarfsemi Flugmálastjórnar í
samræmi við það sem tíðkaðist er-
lendis, að auka gagnsæi stjórnsýslu
á þessu sviði og að auka skilvirkni
þjónustustarfsemi og samkeppnis-
hæfni flugþjónustunnar.
Í tillögum sínum mælti stýrihóp-
urinn með að þjónustustarfsemin
yrði færð til hlutafélags og eftirlits-
hlutverk flugmálastjórnar fundinn
staður í B-hluta stofnun. Kostir
þessa eru taldir skýr lögfræðileg og
hagkvæm verkaskipting, sambæri-
leg rekstrarform og verkaskipting
og í nágrannalöndunum, betri
sveigjanleiki til að veita góða og hag-
kvæma þjónustu, skilvirk stjórn-
sýsla og að alþjóðlegar kröfur í þess-
um efnum séu uppfylltar.
Auka samkeppnishæfni
Fram kemur einnig að við undir-
búning frumvarpa vegna þessara
breytinga hafi verið leitað eftir at-
hugasemdum frá hagsmunaaðilum,
flugrekendum, stéttarfélögum og
Flugmálastjórn auk þess sem frum-
varpsdrögin hafi verið kynnt á net-
inu. Þá hafi verið haldnir nokkrir
fundir með starfsmönnum, stéttar-
félögum og fulltrúum lífeyrissjóða
starfsmanna ríkisins þar sem þessi
mál hafa verið kynnt. Flugráð hafi
einnig fylgst með framvindu málsins
og fagni þessum breytingum og telji
þær til bóta, auk þess sem tillögurn-
ar séu til þess fallnar að auka á
sveigjanleika og samkeppnishæfni í
þjónustustarfsemi flugmálayfir-
valda.
Þjónustustarfsemi
í flugi í hlutafélag
ELDSNEYTISVERÐ hefur hækkað
í vikunni sem er að líða og er mjög
nálægt sögulegu hámarki, en verð á
95 oktana bensíni náði um 117,70
krónum í kjölfar fellibylsins Katrín-
ar sem reið yfir Bandaríkin síðasta
sumar.
Af stóru olíufélögunum þremur er
hæsta útsöluverð á eldsneyti, miðað
við sjálfsafgreiðslu á þjónustustöð,
hjá Esso, lítrinn af 95 oktana bensíni
kostar 117,40 krónur en lítrinn af
dísilolíu 114,50 krónur. Næst kemur
Shell með lítrann af 95 oktana bens-
íni á 116,70 krónur, og lítrann af dís-
ilolíu á 114,00 krónur. Olís er með
lægsta verð á dísilolíu, lítraverð er
113,90 krónur en lítrinn af 95 oktana
bensíni á 116,70 krónur.
Bensínverð
nálægt sögulegu
hámarki
GUÐMUNDUR Pétursson,
starfsmaður Hveragerðisbæjar,
vann að því að binda niður þessa
stærðar kúlu við verslun-
armiðstöðina í Hveragerði þeg-
ar ljósmyndara Morgunblaðsins
bar að garði á dögunum.
Spurður um kúluna sagðist
Guðmundur ekki vita hvaðan
hún kæmi en hún hefði verið að
fjúka um bæinn og hann verið
fenginn til að fjarlægja hana.
Örlög kúlunnar, sem er úr
trefjaplasti, eru óljós, en líkast
til mun ekki líða langur tími
þangað til henni verður fargað,
nema einhver gefi sig fram og
slái eign sinni á hana.
Kúla fýkur
um bæinn
Morgunblaðið/Ásdís
JEPPABIFREIÐ valt á Rangár-
vallavegi við Stokkalæk um eitt-
leytið aðfaranótt laugardags. Að
sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var
einn maður í bílnum og voru meiðsl
hans minniháttar. Hann fór til
skoðunar hjá lækni en var sendur
heim að því loknu. Tildrög slyssins
eru óljós en talið er að ökumað-
urinn hafi misst stjórn á bílnum
með þeim afleiðingum að bíllinn fór
útaf og valt en Rangárvallavegur
er malarvegur.
Bílvelta á
Suðurlandi
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum fyrir helgi að veita eina
og hálfri milljón af sameiginlegu
ráðstöfunarfé sínu til að breyta for-
riti Þjóðskrárinnar svo hægt verði
að skrá þar fólk af sama kyni í sam-
búð. Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðskránni býður óbreytt forrit
ekki upp á slíka möguleika.
Í frumvarpi ríkisstjórnarinnar
um bætta réttarstöðu samkyn-
hneigðra, sem nú er til meðferðar á
Alþingi, er m.a. kveðið á um rétt
samkynhneigðra til að skrá sig í
óvígða sambúð. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Þjóðskránni er með
breytingunum á forritinu verið að
mæta þeim ákvæðum frumvarpsins.
Forriti Þjóðskrár
breytt