Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 14
F átt benti til þess að for- setakosningar ættu að fara fram eftir fjóra daga þegar ég kom til Minsk, höfuð- borgar Hvíta-Rúss- lands, og var ekið í rútu inn í miðborgina. Á leiðinni sáust hvergi myndir af þeim fjórum mönnum sem í kjöri voru, ekki einu sinni af forsetanum, Alexander Lúkasjenkó, sem gegnt hefur embætti frá árinu 1994. Hins vegar blöstu fjölmörg stór flettiskilti við í Minsk, en þau voru hluti af op- inberri herferð þar sem helsta slag- orðið var „Za Belarus“ sem lauslega má þýða sem „Vinnum fyrir Hvíta- Rússland.“ Á skiltunum voru nýleg afrek þjóðarinnar tíunduð en mynd- irnar prýddu meðal annars glaðbeitt- ir verkamenn, syngjandi barnastjörn- ur, góðlegar stríðshetjur og námfúsir háskólanemar. Herferðin hófst í febr- úar síðastliðnum, en ráðist mun hafa verið í aðra svipaða árið 2004, þegar samþykkt var í þjóðaratkvæða- greiðslu sem Lúkasjenkó boðaði til að engar hömlur ættu að vera á því hversu oft hann gæti boðið sig fram í embætti forseta, en áður hafði hver forseti aðeins mátt sitja tvö kjörtíma- bil. Myndir í tengslum við herferðina sá ég víða meðan ég dvaldi í landinu, þar á meðal á hótelum, í verslunum og á kjörstöðum. McDonald’s og Lödur Vestræn áhrif eru ekki áberandi í Minsk. Þar er að vísu hægt að gæða sér á McDonald’s hamborgurum en almennt svífur andi Sovétríkjanna sálugu mjög yfir vötnum. Í borginni eru endalausar raðir af gráleitum blokkabyggingum og margir borg- arbúar aka um á Lödum, Volgum og jafnvel Moskvitsum. Þegar ég var komin upp á herberg- ið mitt á hótel Belarus kveikti ég á sjónvarpinu. Eftir að hafa flakkað nokkra stund milli hvítrússneskra stöðva var ljóst að ekki skorti frétta- flutning af Lúkasjenkó á þeim víg- stöðvum – heldur virtist hann þar baða sig í sviðsljósinu. Ekkert varð hins vegar séð til Alexanders Mil- ienkevits, helsta mótframbjóðandans. Tölur sem ÖSE kynnti fyrir kosn- ingaeftirlitsfólkinu um þá fjölmiðlaat- hygli sem frambjóðendur fengu með- an á formlegri kosningabaráttu stóð reyndust líka sláandi. Í Hvíta-Rúss- landi eru allnokkrir ljósvaka- og prentmiðlar í eigu ríkisins og þessir miðlar eru í ráðandi stöðu á fjölmiðla- markaði í landinu. Á þremur helstu ríkisreknu sjónvarpsstöðvunum fékk Lúkasjenkó á bilinu 93–99% allrar umfjöllunar og í helstu ríkisprent- miðlunum var hlutfallið einnig hærra en 90%. Oftast var fjallað um forset- ann með hlutlausum eða jákvæðum hætti. Tvær milljónir króna til umráða Ekki aðeins voru stefnumið mót- frambjóðenda Lúkasjenkós hundsuð af áhrifamestu fjölmiðlunum, heldur reyndist þeim afar erfitt að kynna framboð sitt með öðrum hætti. Fram- bjóðendur máttu ekki greiða fyrir auglýsingar í fjölmiðlum og ekki nota eigið fé eða gjafafé til þess að auglýsa framboð sitt. Ríkið lagði hverjum og einum til upphæð sem samsvarar rúmum tveimur milljónum íslenskra króna til þess að greiða fyrir prentað efni til að nota í baráttunni. Þetta er langtum lægri upphæð en margir frambjóðendur í prófkjörum vegna borgarstjórnarkosninga nýttu hér á landi fyrr í vetur og dugir skammt til kynningar í landi þar sem 10 milljónir manna búa og er helmingi stærra að flatarmáli en Ísland. Þá höfðu yfirvöld sett afar strangar reglur um hvar mætti koma fyrir skilaboðum í aðdraganda kosning- anna. Frambjóðendum var ekki leyft að hengja upp auglýsingar nema á sérstökum stöðum sem leyfðir voru undir slíkt. Að auki bárust fregnir af öðrum hindrunum sem andstæðingar forset- ans mættu. Þeir sem unnu fyrir þá urðu fyrir hótunum og sumir voru handteknir og jafnvel hnepptir í varð- hald þegar þeir voru að störfum. Framboð þeirra Alexanders Milink- evits, eins helsta stjórnarandstæð- ingsins, og Alexanders Kozulins, til- kynntu bæði til ÖSE að slíkar truflanir á baráttunni hefðu reynst þeim þungar í skauti. Í skýrslu sem ÖSE birti eftir kosningarnar segir að 18. mars, daginn fyrir kjördag, hafi 8 af 30 löggildum fulltrúum framboðs Milinkevits verið í haldi yfirvalda og um eitt hundrað aðrir stuðningsmenn þess. Sama dag voru um 80 stuðn- ingsmenn Kozulins í haldi og einn lög- gildur fulltrúi hans hafði verið sekt- aður um upphæð sem samsvarar 162.000 íslenskum krónum, fyrir að eiga fund með stuðningsfólki fram- boðsins á einkaheimili, en slíkt er bannað samkvæmt gildandi lögum í landinu. Lögregluríki Á kjördag dvaldist ég ásamt hópi kosningaeftirlitsmanna í landamæra- borginni Brest, sem er í suðvestur- hluta landsins. Það var dálítið sér- stakt að hugsa til þess að borgin er í aðeins í örfárra kílómetra fjarlægð frá Póllandi, sem núorðið á aðild að Evrópusambandinu og Atlantshafs- bandalaginu. Rútuferðin frá Minsk til Brest tók um fimm klukkustundir en ferðin var farin í fylgd lögreglubíls, sem ók á undan okkur með blikkandi ljós. Á þjóðveginum var sáralítil umferð og erfitt að átta sig á tilgangi lögreglu- fylgdarinnar, en kannski var hún samt ekki óeðlileg í því lögregluríki sem Hvíta-Rússland er. Alls munu vel á annað hundrað þúsund lögreglumanna starfa í land- inu. Þetta er langtum meiri fjöldi en í Póllandi, sem þó er fjórum sinnum fjölmennara. Þá hafa Hvít-Rússar yf- ir að ráða stórum her og öryggislög- reglu, sem enn gengur undir nafninu KGB. Okkur var sagt að við mættum vel búast við því að fylgst yrði með okkur, meðan við dveldumst í land- inu. Þegar komið var til Brest var eft- irlitsfólkinu skipt í tveggja manna hópa, og fékk hvert teymi um sig bíl- stjóra og túlk sér til aðstoðar. Verk- efni hópanna var svo að fara milli kjörstaða og kanna hvort þar væri farið að settum reglum í kosningun- um. Eftirlitsfélagi minn var rúmlega þrítugur Lithái, starfsmaður í lithá- ísku utanríkisþjónustunni. Hann mundi tímana tvenna, enda Sovétrík- in enn við lýði þegar hann var að Kosningar í skugga hindrana og ofbeldis Forsetakosningar fóru fram í Hvíta-Rússlandi um síð- ustu helgi og var Alexander Lúkasjenkó lýstur yfir- burðasigurvegari að þeim loknum. Elva Björk Sverris- dóttir var í hópi um 400 eftirlitsmanna sem fylgdust með kosningunum á vegum Öryggis- og samvinnustofn- unar (ÖSE), en stofnunin hefur gagnrýnt kosning- arnar harðlega. Morgunblaðið/Elva Björk Sverrisdóttir Íbúar í Minsk ganga hjá auglýsingaskilti sem var hluti af opinberri herferð fyrir kosningarnar. Helsta slagorð herferðarinnar var „Vinnum fyrir Hvíta-Rússland“. Morgunblaðið/Elva Björk Sverrisdóttir Frá mótmælum á Októbertorginu í Minsk á mánudag. Þar voru á bilinu 3.000—4.000 manns saman komin. 14 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ RÍKIÐ er helsti atvinnurekandinn í Hvíta-Rússlandi, en um 80% landsmanna starfa hjá ríkinu. Fólk er aðeins ráðið til eins árs í senn, samkvæmt lögum sem tóku gildi árið 2002. Lágmarks- laun jafngilda um 5.500 krónum á mánuði, en samkvæmt op- inberum upplýsingum er með- altal mánaðarlauna á hvern vinn- andi mann upphæð sem samsvarar um 18.000 krónum. Það er með því hæsta sem þekk- ist í fyrrverandi Sovétlýðveld- unum. Langflestir Hvít-Rússar búa í húsnæði sem er í eigu rík- isins. Flestir vinna hjá ríkinu 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.