Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 70

Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 70
70 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hann er nýfloginn til lands-ins eftir erfitt flug yfirhálfan hnöttinn. Það láð-ist að vekja hann í tíma fyrir viðtalið svo hann er seinn fyrir. Samt er Íslandsvinurinn og leik- stjórinn Kevin Reynolds furðuhress og í góðu stuði fyrir viðtal þótt hann sé vansvefta, enda virðist hann van- ur að fá lítinn svefn hér á landi: „Þegar ég kom fyrst til Íslands held ég að ég hafi ekki sofið nema svona átta tíma á þremur sólahringum. Það var alveg brjálað.“ Gerði Jón að presti Kevin er leikstjóri stórmyndar- innar Tristan og Ísold og er kominn að kynna mynd sína hér á landi, en er hérna kannski umfram allt til að láta eftir sér enn eina Íslandsferð- ina: „Ég held þetta sé sjöunda ferðin mín hingað. Ég hreinlega elska Ís- land og það er frábært að vera kom- inn aftur. Ég veit ekki hvað það er, en það er eitthvað við þennan stað sem er svo spennandi,“ segir Kevin og er ekki að draga úr hrifningunni. Fyrstu kynni Kevins af landinu voru fyrir tæpum 10 árum, að hann kynntist Jóni Ólafssyni kaupsýslu- manni í gleðskap hjá Mel Gibson austur í Los Angeles. „Hann bauð mér að koma til landsins í einn af sínum frægu laxveiðitúrum. Ég fór í nokkra slíka og varð hugfanginn af staðnum. Að koma hingað til Íslands var einhver sú svakalegasta upplifun sem ég hafði átt.“ Með þeim Jóni gerðist ágætis vin- skapur en Kevin segist ekki geta munað hvor átti frumkvæðið að því að láta Jón leika litla rullu í Tristan og Ísold, en þar fær hann að fara með nokkrar línur á latínu í hlut- verki prests. „Hann stóð sig ágæt- lega, en ég held að flestum eigi eftir að reynast erfitt að þekkja hann, eins og hann er í myndinni, með hvítt alskegg og í múnderingu.“ Til styrktar góðu málefni Myndin var frumsýnd í Laugarás- bíói á föstudag og var sýningin hald- in sérsaklega til styrktar samtök- unum Einn af fimm, til vitundar- vakningar um þunglyndi, en nafn sitt draga samtökin af því að jafnaði þjáist fimmta hver manneskja af þunglyndi einhverntíma á ævinni. „Ég er mjög glaður að fá að hjálpa til við þetta starf, enda alvarlegur sjúkdómur sem hrjáir marga, og snertir margar fjölskyldur,“ segir Kevin. „Í minni eigin fjölskyldu höf- um við fengið að kynnast áhrifum þunglyndis af eigin raun, og það er í raun ekki fyrr en þunglyndið fer að varða mann sjálfan að maður byrjar að skilja til fulls áhrif sjúkdómsins. Allt sem hægt er að gera til að berj- ast gegn þunglyndi, er gott að gera og sönn ánægja að styrkja við mál- efnið með þessum hætti.“ Raunsæ sýn En að myndinni sjálfri: Kalla má söguna af Tristan og Ísold elstu ást- arsögu evrópskra miðaldabók- mennta, og hefur sem slík þróast á ýmsa vegu og er til í ýmsum út- færslum og hefur jafnvel á köflum þræðst inn í aðrar sögur, eins og af Arthúri konungi. Eins og vænta má hafa margir reynt að fanga söguna á filmu, í ýmsum útfærslum, og það var strax á 8. áratugnum að hug- myndin að kvikmyndinni kviknaði hjá Ridley Scott, sem er framleið- andi myndarinnar. Þeir Kevin hafa þekkst lengi og sannfærðist Kevin endanlega um að taka að sér gerð myndarinnar þegar Ridley sýndi honum tilbúið handritið: „Ég hreifst mjög af sögunni –það er eitthvað ljóðrænt við hana.“ Rétt eins og sagan af elskend- unum ólánsömu tók ýmsum breyt- ingum á miðöldum tók hún einnig breytingum í meðförum handrits- höfundanna í Hollywood: „Ég er viss um að það kann að ergja suma, sem þekkja aðrar útgáfur sögunnar. Raunin er að sagan er til í ýmsum útgáfum, og kannski að sagan sé þekktust eins og hún er sett fram í óperu Wagners. Ég verð að játa að þegar ég las handritið, og heillaðist af því, þekkti ég nær ekkert til sög- unnar, en í kvikmyndahandritinu eru engir ástarelixírar eða galdrar. Og við nánari skoðun fannst mér Sönn ást án galdra Bandaríski leikstjórinn Kevin Reynolds er stadd- ur hér á landi að kynna mynd sína, Tristan og Ís- old. Ásgeir Ingvarsson ræddi við þennan forfallna Íslandsvin um erfitt tökuferli, óvæntan íslenskan aukaleikara og drauma um víkingamynd. Morgunblaðið/Brynjar Gauti„Það er alltaf erfitt að gera kvikmynd, en ég held að þessi sé sú allraerfiðasta sem ég hef gert til þessa.“ Leikstjór- inn Kevin Reynolds. Satt best að segja dauðlang- ar mig að gera vík- ingamynd og taka hana, í það minnsta að hluta til, upp hér á landi Epískt meistarverk frá Ang Lee eeeee L.I.B. - Topp5.is V.J.V Topp5.is S.V. Mbl. M.M.J Kvikmyndir.com walk the line MARTIN LAWRENCE 200 kr. afsláttur fyrir XY félaga www.xy.is Sími - 564 0000Sími - 462 3500 N ý t t í b í ó BEYONCÉ KNOWLES STEVE MARTIN KEVIN KLINE JEAN RENO Bleiki demanturinn er horfinn og heimsins frægastarannsóknarlögregla gerir allt til þess að klúðra málinu… VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG Mamma allra grínmynda er mætt aftur í bíó! Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!! The Producers kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.45 Sýnd í Lúxus kl. 2.40, 5.20, 8 og 10.45 Big Momma´s House 2 kl. 1, 3.40, 5.45, 8 og 10.15 Rent kl. 8 og 10.45 B.i. 14 ára Yours Mine and Ours kl. 4 og 6 Pink Panther kl. 1, 3.45, 5.50, 8 og 10.10 Zathura m / ísl tali kl. 1 B.i. 10 ára Tristan & Isolde kl. 5.45, 8 og 10.20 Big Momma´s House 2 kl. 4, 6 og 8 The New World kl. 10 The Pink Panther kl. 4 Nanny McPhee kl. 2 (400 kr.) Yours, Mine & Ours kl. 2 (400 kr.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.