Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 47
UMRÆÐAN
Sími 533 4040
Fax 533 4041
Kristinn Valur Wiium sölumaður s. 896 6913 og Ólafur Guðmundsson sölustjóri s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
HVANNARIMI - ENDARAÐHÚS
Fallega innréttað og vandað endahús, sem stend-
ur innst í lokuðum botnlanga götunnar fast við
Gufuneskirkjugarðinn. Húsið er samtals 180 fm
með fallegum austur- og suðurgarði. Á jarðhæð
er bílskúr með geymslu inn af, anddyri, eitt svefn-
herbergi, baðherbergi, þvottahús, sjónvarpshol,
stofa, eldhús og borðstofa með útgengi út á suð-
urverönd. Á efri hæð er gott hol með svölum, þar
sem að horft er yfir aðalrými hússins, og þrjú svefnherbergi. V. 42 millj.
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
VERSLUNAR- OG ATVINNUHÚSNÆÐI
– TIL LEIGU –
SMIÐJUVEGUR 3, KÓPAVOGI (á móti Orkunni, Bónus og BYKO)
2.700 m² verslunar- og atvinnuhúsnæði. Þar af allt að 2.300 m² á
einu gólfi og í einum sal. Allt að 5,5 m lofthæð og góð bílastæði.
Hamraborg 20A, 200 Kópavogur
Nánari upplýsingar veitir Barbara
í síma 554 0400 eða 863 5404.
leiguradgjof@leiguradgjof.is
www.leiguradgjof.is
Flókagata 2 - Opið hús
Opið hús í dag frá 13.00 til 16.00
Björt og skemmtileg efri sérhæð í
tvíbýli ca 130 fm með sérinngang,
auk studíóíbúðar í kjallara.
Auðvelt í útleigu. Samtals 160 fm.
Svalir, sjávarútsýni. Góð
staðsetning í vesturbæ Hfj. Stutt í
miðbæinn. Verð 29,5 millj. Laus
strax. 26765 Verið velkomin.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
ÞAÐ ER mjög ánægjulegt að mál-
efni eldri borgara verði eitt af meg-
inmálunum í komandi borgarstjórn-
arkosningum. Af nógu er að taka þar
sem lífaldur fólks
hækkar á sama tíma og
fólk vill vera virkt í
samfélaginu svo lengi
sem það lifir. Þannig
njóta eldri borgarar
lífsins og samfélagið
allt nýtur góðs af.
Að mínu mati er það
brýnasta verkefni
næstu ára að byggja
upp þannig nærþjón-
ustu að eldri borgarar
og aðstandendur finni
til öryggis og treysti á
að fá þjónustu við hæfi
þegar á þarf að halda.
Undanfarin ár hefur sérstök
áhersla verið lögð á málefni eldri
borgara í Reykjavík og hefur þjón-
ustan verið að þróast í samráði við
Félag eldri borgara, í Þjónustuhópi
aldraðra og með eldri borgurum inni
á heimilum þeirra. Við reynum að
fylgja eðlilegri kröfu um samráð
sem Öryrkjabandalag Íslands setur
fram á svo skýran hátt; „Ekkert um
okkur án okkar.“
Nú nýlega settu sjálfstæðismenn
fram stefnuskrá sína fyrir borg-
arstjórnarkosningar þar sem þeir
leggja til að fjölga tækifærum eldri
borgara til að búa sem lengst í eigin
húsnæði, t.d. með lækkun fast-
eignaskatta og aukinni samfellu í
heimahjúkrun og heimaþjónustu; að
móta áætlun um að eyða löngum bið-
listum eftir húsnæði fyrir eldri borg-
ara og tryggja nægt framboð bú-
setukosta og skoða leiðir til að auka
val þessa hóps.
Það er frábært að sjálfstæð-
ismenn leggi fram áætlun um að
gera það sem Reykjavíkurlistinn
hefur nú þegar verið að vinna að í
þjónustu við eldri borgara. Það eina
sem hefur verið borgaryfirvöldum
erfitt í sínum uppbyggingar-
áformum eru sjálfstæðismenn og
samherjar þeirra á Alþingi Íslend-
inga.
Að búa á eigin heimili
Það er yfirlýst stefna borgarinnar
sem er í samræmi við framtíðarsýn
þjónustuhóps aldraðra að fólk búi
heima eins lengi og hægt er. Til að
styðja þessa stefnu höfum við á kjör-
tímabilinu samþætt félagslega
heimaþjónustu og heimahjúkrun en
það tveggja ára tilraunaverkefni er
nú strand þar sem heilbrigðisráðu-
neytið hefur ekki veitt því áfram-
haldandi brautargengi þrátt fyrir
ítrekaðar viljayfirlýsingar velferð-
arráðs. Þá höfum við aukið félags-
lega heimaþjónustu þannig að í raun
má segja að heimili fólks verði að
þjónustuíbúð þegar þörf er á. Fjöl-
breytt félagsstarf er mikilvægt þeim
sem annars búa einir og er þróun
starfsins á þeim 14 félagsmið-
stöðvum sem starfandi eru í borg-
inni í höndum fólksins í sækir það.
Framundan er aukin áhersla á þenn-
an þátt. Að lokum er vert að segja
frá nýrri þjónustu sem hefur það
markmið að bæta aðstæður þeirra
sem búa heima en eiga erfitt með að
fara á milli staða. Þetta er aksturs-
þjónusta eldri borgara
sem þróuð var í sam-
vinnu borgaryfirvalda
og Félags eldri borg-
ara.
Fasteignaskattar
hér og þar
Eitt mikilvægt atriði
í að tryggja eldri borg-
urum sjálfstæða bú-
setu er að veita þeim
tekjuminni afslátt og
eða niðurfellingu á
fasteignagjaldi. Í
Reykjavík fá allir ör-
yrkjar og eldri borgarar sem eru
undir ákveðnum tekjuviðmiðunum
sjálfkrafa lækkun og eða niðurfell-
ingu fasteignagjalds. Ekki þarf að
sækja um þar sem réttur fólks er
skýr. Öll sveitarfélögin í kringum
okkur hafa þann gamaldags hátt á
að láta fólk hafa fyrir því að sækja
um afslátt og tekjumörkin eru lægri.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að
það eru sjálfstæðismenn sem stjórna
í þessum sveitarfélögum, en voru
það ekki þeir sem vildu lækka fast-
eignagjöld?
Fjölbreytt búseta
Sjálfstæðismenn benda á að
tryggja þurfi nægt framboð bú-
setukosta fyrir eldri borgara og það
tek ég heilshugar undir. Þess vegna
hefur Reykjavíkurborg á síðustu
misserum ráðstafað lóðum undir 166
íbúðir fyrir aldraða við Ferjuvað,
Sléttuveg og Suðurlandsbraut, auk
íbúða fyrir 80 manns við Sóltún. Þá
byggðum við 50 þjónustuíbúðir í
Grafarholti. Auk þessa höfum við
skilgreint eldri íbúðir sem þjónustu-
íbúðir. Viðkomandi þarf ekki lengur
að flytja til að fá þjónustu eins og um
þjónustuíbúð væri að ræða, nú er
það „þjónustuíbúðin heim“.
Hjúkrunarheimili í bið
Í dag bíða um 260 eldri borgarar í
Reykjavík eftir hjúkrunarrými þrátt
fyrir að hafa verið metnir í mjög
brýnni þörf fyrir slíkt úrræði. Á
sama tíma liggur Reykjavíkurborg
með hundruð milljóna á biðreikn-
ingum sem er okkar hlutur í þeim
hjúkrunarheimilum sem samið var
um við ríkið að myndu rísa á árunum
2002 2006. Við getum ekki nýtt það
fjármagn sem við höfum tekið frá í
þessa uppbyggingu þar sem rekstr-
arleyfi fyrir hjúkrunarheimilum
hafa strandað á samþykktum rík-
isins.
Fjármálaráðuneytið hefur ekki
veitt nema brot af því fjármagni sem
getið var um í samningi frá 2002 um
uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Ég fagna því að sjálfstæðismenn
vilji vinna að bættum hag eldri borg-
ara í Reykjavík. Ég skora á þá að
sýna vilja sinn í verki þar sem þeir
hafa umboð til slíks, þ.e. á Alþingi og
í þeim sveitarfélögunum þar sem
þeir eru í meirihluta. Þá fyrst verða
kosningaloforð þeirra hér í Reykja-
vík trúverðug.
Hverjum geta
eldri borgarar treyst?
Björk Vilhelmsdóttir fjallar
um málefni eldri borgara ’Fjármálaráðuneytiðhefur ekki veitt nema
brot af því fjármagni sem
getið var um í samningi
frá 2002 um uppbyggingu
hjúkrunarheimila.‘
Björk Vilhelmsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans og skipar 4.
sæti lista Samfylkingarinnar og
óháðra í Reykjavík.
smáauglýsingar
mbl.is