Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 17 FYRIR BREYTINGAR EFTIR BREYTINGAR Gefið ykkur góðan tíma fyrir flug því nú standa yfir framkvæmdir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Verslunar- og þjónustusvæði farþega mun tvöfaldast og nýjar verslanir verða opnaðar. Markmið stækkunar og breytinga í flugstöðinni er að bregðast við spám um öra fjölgun farþega á ferð um Keflavíkurflugvöll. Stjórnendur og starfsmenn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. munu vinna markvisst að því í samstarfi við verktaka að framkvæmdirnar valdi farþegum sem allra minnstum óþægindum. Breytingarnar valda þó óhjákvæmilega raski og hafa nokkur áhrif á starfsemi í flugstöðinni. Fólk er því hvatt til þess að gefa sér góðan tíma fyrir flug. Nánari upplýsingar á www.airport.is Velkomin í stærri og endurbætta flugstöð sumarið 2007 ZAPPA PLAYS ZAPPA miðasala 2. apríl www.rr.is LIONSKLÚBBURINN Engey afhenti á dögunum barna- og unglingageð- deild LSH gjafastyrk upp á 200.000 kr. Fjármagninu verður ráðstafað til starfandi tónlistarmeðferðar á BUGL. Myndin var tekin við afhendingu styrksins af konum úr Lionsklúbbnum Engey ásamt Hrefnu Ólafsdóttur félagsráðgjafa og Steinunni Gunnlaugs- dóttur hjúkrunarfræðingi. Styrkja BUGL STARFANDI verkstjórar á Keflavíkurflugvelli komu nýlega saman til fundar hjá Verkstjór- afélagi Suðurnesja, þar sem rætt var um hvað væri fram- undan í ljósi brotthvarfs hers- ins. Ýmislegt bar á góma á fundinum, svo sem möguleika á starfslokasamningum og rétt til biðlauna. Einnig komu upp spurningar um hvort munur væri á stöðu starfsmanna varnarliðsins á Ís- landi og aftur í Skotlandi þar sem viðskilnaður Bandaríkja- hers var að sögn mun mann- úðlegri. Fannst fundarmönnum staðan sem upp er komin kvíð- vænleg og ekki séð hvernig þeir sem ekki fá starf fljótlega, eftir að uppsagnarfrestur rennur út, ættu að komast af eins og greiðslum atvinnuleysisbóta væri háttað. Eftir að því var svarað til að ekki væri búið að setja í lög fyr- irheit ríkisstjórnarinnar um tekjutengingu atvinnuleysisbóta sem samþykkt voru 15. nóvem- ber sl. var samþykkt að skora á ríkisstjórnina að setja nú þegar í lög ákvæði um tekjutengingu atvinnuleysisbóta eins og lofað hefur verið. Tekjutenging atvinnu- leysisbóta í lög nú þegar EINNOTA DVD-diskar eru nú fáan- legir í nokkrum verslunum hér á landi og er Ísland fyrsta landið í heiminum sem býður slíka diska til sölu, að sögn Árna Jenssonar, framkvæmdastjóra Intus ehf. sem sér um kynningu og markaðssetningu á vörunni. Með einnota DVD-disk er átt við venjulegan hefðbundinn DVD-disk með þeirri undantekingu að í diskn- um er útbúnaður sem setur af stað efnahvarf inni í disknum á fyrirfram ákveðnum tíma. Efni í kjarna disksins dreifist undir yfirborði hans um leið og hann er settur í spilarann og eyðir upplýsingum af disknum á ákveðnum tíma þannig að ekki er lengur hægt að horfa á myndina. Það er stillanlegt hvenær efnahvarfið fer af stað, en í þeim diskum sem til sölu er hér á landi gerist það allajafna eftir 48 klukkustundir, að sögn Árna og er þaðan dregið vöruheitið 48DVD. Hann segist hafa rekist á þessa uppfinningu í Frakklandi. Sama verð og fyrir vídeóspólur Alls eru til 17 myndir á einnota DVD-diskum í Hagkaupum, Olís og 10-11 verslunum í dag og segir Árni 15 titla í viðbót í framleiðslu. Einnota diskur kosti 500 krónur. ann segir ýmsar spurningar hafa vaknað meðal þeirra sem hann hafi kynnt vöruna fyrir og segir algeng- ustu spurninguna vera þá hvort disk- arnir springi í tækjunum! „Svo er ekki,“ segir Árni og tekur fram að engin ytri ummerki komi fram á disknum þegar hvarfið á sér stað. En hvernig horfir með umhverfis- þáttinn varðandi einnota DVD-diska? Árni segir að þar sé að huga að tvennu. Annars vegar séu það umbúð- irnar um diskinn, en hann bjóði sína vöru ekki í plasthulstri eins og vaninn sé með DVD-diska heldur í pappírs- umslagi unnu úr endurunnum pappír. Hins vegar sé það diskurinn sjálfur og segir Árni að reynt verði að koma til móts við umhverfissjónarmið með því að bjóða skilagjald og hafa endur- vinnslumerkingar á vörunni. Rætt hafi verið við Sorpu um samstarf til að hvetja fólk til að skila disknum. Morgunblaðið/Eggert Árni Jensson, framkvæmdastjóri Intus, með tvo af þeim einnota diskum sem til sölu eru um þessar mundir. Einnota DVD-diskar til sölu hér HARÐUR árekstur varð á mótum Grænugötu og Glerárgötu eftir há- degi sl. föstudag þegar bifreið skall aftan á aðra bifreið. Að sögn lögregl- unnar á Akureyri voru sex fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins til skoðunar en áverkar voru minni þegar að var gáð. Skemmdist annar bíllinn talsvert en var þó ekki talinn ónýtur. Harður árekstur á Akureyri ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.