Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 68
J eff Who? hefur vakið verðskuldaða athygli hér á landi fyrir grípandi lög og skemmtilega sviðsframkomu en fyrsta breiðskífa sveitarinnar Death Before Disco sem kom út rétt fyrir jól, hefur selst í tæpum þúsund ein- tökum. Upphaf Jeff Who? má rekja aftur til ársins 2000 þegar meðlimir sveitarinnar, sem allir stunduðu nám við MR, hófu að spila saman í hinu og þessu æfingarhúsnæði í borginni. Það var hins vegar ekki fyrr en fjórum árum síðar – sömu helgi og Airwaves- hátíðin stóð yfir – sem sveitin treysti sér til að spila fyrir framan áhorfendur og þá varð Bar 11 fyrir valinu en staðurinn gegndi þetta sama kvöld einskonar „off venue“-stöðu á há- tíðinni. Segja má að hjólin hafi fyrst byrjað að snúast fyrir alvöru þegar Jeff Who? var boð- ið að hita upp fyrir Skotana í Franz Ferdin- and í september á síðasta ári en hápunkt- inum var líklega náð á síðustu Airwaves- tónleikum þar sem sveitin gerði stormandi lukku í Hafnarhúsinu fyrir framan hátt í þús- und tónleikagesti. Allt Rachel að kenna Undirritaður hitti Elís Pétursson bassa- leikara og Bjarna L. Hall, söngvara Jeff Who?, á kaffihúsi einu hér í borg og spurði þá hvernig þessi New York-ferð hefði komið til. „Rachel heitir bandarísk kona sem kemur hingað til Íslands reglulega til að vera við- stödd Airwaves-hátíðina,“ útskýrir Bjarni „Og við kynntumst henni eitt árið svona eins og fólk kynnist á hátíðum sem þessum. Svo vorum við eitthvert kvöldið að spjalla við hana og spurðum hvort hún gæti ekki verið okkur innan handar við að finna tónleikastaði í New York og áður en við vissum af var hún búin að koma því í kring. Hún er víst með umboðsskrifstofu þarna úti og þekkir marga í tónlistariðnaðinum svo að þetta tók á sig aðra og stærri mynd en við gerðum í upphafi ráð fyrir.“ „Fólk var alltaf að spyrja hvort við værum ekki á leiðinni til útlanda,“ heldur Elís áfram, „og stundum fannst manni eins og við værum að missa af einhverju hlaupi. Þetta byrjaði bara sakleysislega en er kannski núna orðið að meiri alvöru. Okkur skilst að það ætli ein- hverjir úr tónlistarbransanum í New York að mæta á tónleikana og hver veit, kannski er einhver þarna til í að dreifa plötunni eða gera einskonar þróunarsamning við okkur.“ „Fyrir mér er stór hluti af þessari ferð að geta spilað fyrir fólk sem hefur ekki heyrt í okkur áður,“ segir Bjarni. „Þeir sem fíla tón- listina okkar hafa þegar séð okkur spila á Ís- landi. Jafnvel þó að það mæti bara 50 manns á tónleikana þarna úti að þá er maður samt sem áður viss um að þetta fólk hefur aldrei heyrt í okkur áður og það verður gaman að upplifa það.“ Aldur skiptir engu máli Það er ekkert voðalega langt síðan þið komuð út úr bílskúrnum og nú hafið þið bara gefið út eina plötu. Eruð þið vissir um að þið séuð tilbúnir að fara út og spila? „Já, já,“ svarar Bjarni um hæl. „Við tökum þetta ekki það alvarlega.“ „Það er ekkert svo mikið að græða á því að liggja of lengi á hlutunum og ætla sér fyrst að semja besta lag í heimi áður en maður treystir sér til að leyfa einhverjum að heyra það, “ heldur Elís áfram. „Þó að það komi ekkert út úr þessu núna erum við samt búnir að stimpla okkur inn og kynnast einhverju fólki sem seinna gæti komið sér vel að þekkja.“ Eruð þið hræddir um að vera komnir yfir ákjósanlegan aldur þegar hafðar eru í huga unglingasveitir á borð við Jakobínurínu? „Nei, ég hafði ekki einu sinni pælt í þessu,“ svarar Bjarni og hlær og lítur á Elís. „Þó að það sé klisja held ég að aldur skipti engu máli eins lengi og maður hefur gaman af þessu.“ „Þó að ég sé 26 ára gamall, heldur Bjarni áfram, „þá gerði ég samning við sjálfan mig fyrir mörgum árum að fullorðnast ekki fyrr en ég væri orðinn þrítugur. Það eru ennþá fjögur ár í það og á fjórum árum getur margt gerst.“ „Ég er heldur ekki viss um að ungur aldur vinni alltaf með tónlistarmönnum,“ heldur Elís áfram. „Þegar maður er ungur er meiri tími til að hætta og gera eitthvað annað. Stolía er gott dæmi. Það héldu allir að þeir yrðu það stærsta en nú er Stolía fyrir löngu hætt.“ „Ég held líka að ég hefði aldrei þorað upp á svið og syngja tvítugur, núna hef ég gaman af því.“ MH eða Coachella Þú Elís, Þormóður trommuleikari og Þor- björn hljómborðsleikari eruð allir í öðrum tónlistarverkefnum meðfram því að vera í Jeff Who? Hvar á forgangslistanum er þessi hljómsveit? „Ég mundi segja að Jeff Who? væri í fyrsta sæti. Ef Jeff Who? væri bókuð á há- degistónleikum í MH en Ghostigital á Coachella-hátíðinni í Kaliforníu á sama tíma, þá myndi maður kannski vega það og meta hvort giggið maður tæki en ég held að ég tali fyrir hönd okkar allra þegar ég segi að við eigum mest í þessari hljómsveit af þeim sem við erum í. Þetta er miklu meira okkar.“ Eruð þið vissir um að þið séuð að leggja allt undir, eins og nauðsynlegt er að gera til að ná árangri, þegar þið hafið aðrar hljóm- sveitir í bakhöndinni? „Það er erfitt að segja og verður líklegast bara að koma í ljós. Við erum samt bara eins og aðrir íslenskir tónlistarmenn, bæði í námi, vinnu og í þremur öðrum hljómsveitum og ég er ekki viss um að annað kæmi til greina. Við höfum ekki ennþá staðið frammi fyrir af- arkostum þannig að ég verð bara að segja pass við þessari spurningu eins og er. Segjum þá sem svo að ykkur verði boðinn samningur í New York. Væruð þið í aðstöðu til að geta stokkið á hann? „Já, …ef þetta er nógu góður samningur,“ segja þeir og hlæja. „Helstu kröfurnar sem ég myndi gera,“ segir Elís, „væri að við þyrftum ekki að borga með okkur, fengjum ágætis laun og ættum þann kost að geta lifað af þessu. Það væri þá kannski Tobbi [Þorbjörn] sem vinnur á verkfræðistofu sem þyrfti að hugsa sig hvað mest um. „Ég held að Tobbi myndi stökkva á það,“ bætir Bjarni við. „Já, hann myndi líklega gera það,“ sam- þykkir Elís, „og Ásgeir [gítarleikari] líka.“ Einlægnin skiptir öllu Það er mikilvægt að geta skapað sér sér- stöðu í útlöndum. Hver er ykkar sérstaða ef við byrjum nú bara á Íslandi? „Ég held að við séum eina Franz Ferdin- and-eftirhermubandið,“ segir Bjarni eftir smáumhugsun og glottir til Elísar sem grípur boltann. „Mér finnst það ekki vera okkar að meta það en ástæðan fyrir því að þetta hefur geng- ið svona vel er að við búum til grípandi og létt popplög með áherslu á gleði. Ég get ekki bent á mörg bönd – sem eru ekki þegar sveitaballabönd – sem ná að halda því. Þetta verkefni var aldrei á leiðinni að verða mjög metnaðarfullt. Ef þú fílar ekki Jeff Who? við fyrstu hlustun þá áttu líklega ekki eftir að fíla hana betur við næstu hlustun.“ Hvernig metið þið þá möguleika ykkar í útlöndum? „Hvað sérstöðuna varðar held ég að það sé nóg að vera frá Íslandi og spila ekki sömu tónlist og Sigur Rós eða Björk,“ svara Bjarni svolítið kaldhæðnislega. „Við erum bara eins og við erum. Við get- um ekkert breytt því til þess að þóknast ein- hverju fólki. Þó að okkur yrðu boðnar millj- ónir fyrir að spila eitthvert álfagjálfur myndum við ekki gera það.“ „Það geta allir búið til popptónlist en það er erfiðara að gera það af einlægni. Þeir sem fá eftirhermustimpilinn á sig, skortir einfald- lega einlægni í því sem þeir gera,“ segir Bjarni og opnar dyrnar fyrir næstu spurn- ingu. Byrjaðir að vinna að nýju efni Gremst ykkur að Franz Ferdinand er oft nefnd þegar ykkur ber á góma? „Ja, það fer eftir því hvernig það er gert,“ svarar Elís. „Franz Ferdinand er náttúrlega á toppnum á þessari senu en það eru fleiri hljómsveitir á svipuðum nótum eins og The Bravery og The Killers. Ef einhver getur rökstutt það fyrir mér hvers vegna við erum líkari Franz Ferdinand en The Killers eða The Bravery, þá skal ég taka því en það hef- ur ekki gerst ennþá. Manni gremst þetta kannski mest vegna þess að það er svo auð- velt að líkja okkur við Franz Ferdinand.“ Eruð þið byrjaðir að vinna að nýju efni? „Já,“ svarar Bjarni. „En við erum yfirleitt alltaf að spila um helgar og hingað til höfum við ekki getað komið saman nema um helgar til að semja. Ég vona að eftir New York get- um við aðeins tekið okkur smáfrí frá spila- mennsku og farið að semja aftur.“ „Það er gaman að spila fyrir fólk, heldur Elís áfram „en „kikkið“ kemur þegar maður er að spila á æfingum og eitthvað gerist sem fær mann til að öskra, „vá, hvað við erum góðir!“ Það er í raun og veru þessi tilfinning sem fær mann til að vilja halda áfram.“ Tónlist | Hljómsveitin Jeff Who? heldur þrenna tónleika í New York um mánaðamótin Ætla ekki að fullorðnast strax Morgunblaðið/ÞÖK Hljómsveitin Jeff Who? heldur til New York í næstu viku þar sem hún hyggst troða upp á þremur stöðum á Manhattan. Þar á meðal eru áætlaðir tónleikar á hinum fornfræga stað CBGB’s en staðnum verður að öllum líkindum lokað á þessu ári. Höskuldur Ólafsson hitti á tvo meðlimi Jeff Who? og spurði þá út í eitt og annað. ’Ef þú fílar ekki Jeff Who? viðfyrstu hlustun þá áttu líklega ekki eftir að fíla hana betur við næstu hlustun.‘ hoskuldur@mbl.is 68 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.