Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 24
24 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Í samningaviðræðunum umframtíð Kósóvó leggur MarttiAhtisaari, sem leiðir viðræð-urnar fyrir hönd SÞ, áhersluá að ræða fyrst „praktísk
málefni“, eins og fjármál og sam-
vinnu sveitarstjórna, áður en fram-
tíðarstaða Kósóvó verður rædd. Það
eru svo sem skiptar skoðanir um
það hvort yfirleitt einhver málefni
varðandi svæðisstjórnun Kósóvó
séu óviðkomandi framtíðarstöðu
héraðsins. En nálgun Ahtisaaris er
skiljanleg í ljósi samskipta serb-
neskra yfirvalda og heimastjórnar-
innar í Kósóvó, því þessir tveir að-
ilar eru á öndverðum meiði um
framtíðarstöðu héraðsins. Hingað
til hafa þeir ekki viljað mætast aug-
liti til auglitis til að ræða þetta mál.
Stálin tvö hafa verið svo stinn að
hið svokallaða alþjóðasamfélag hef-
ur forðast að horfast í augu við
þessa grundvallarspurningu, enda
erfitt að sjá fyrir friðsama lausn.
Þau sjónarmið sem erfitt verður
að sætta er krafa serbneskra yf-
irvalda um að Kósóvó verði hluti af
Serbíu, en endurheimti einskonar
sjálfstjórn líkt og það hafði til árs-
ins 1989. Þá var héraðið svipt sjálf-
stjórn og serbnesk yfirvöld hófu
ógnarstjórn gegn Kósóvó-Albönum
sem leiddi til loftárása NATO á
Serbíu. Kósóvó-Albanar taka þessar
hugmyndir ekki í mál. – Þeir vilja fá
sjálfstæði, punktur, basta. Ósætt-
anlegar kröfur, segja sumir, á með-
an aðrir færa rök fyrir því að jafn-
vel þótt samningar næðust um
framtíðarstöðu Kósóvó á pappír,
væri enn langt í land með að raun-
verulegar sættir og endanlegur
friður kæmist á. Meira þurfi að
koma til.
Í nýjasta hefti vefritsins Peace,
Conflict & Development Journal
fjallar Hjörtur Bragi Sverrisson,
mannréttindalögfræðingur og dokt-
or í alþjóðasamskiptum, um hug-
myndir sínar um að sett verði á
laggirnar einhverskonar sannleiks-
og sáttanefnd í Kósóvó. Hjörtur
starfaði fyrir Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu (ÖSE) í Kós-
óvó á árunum 2001–2004, þar sem
hann kannaði grundvöllinn fyrir því
að slík nefnd yrði sett á laggirnar.
Þreifingar hans hafa leitt margt
áhugavert í ljós varðandi uppbygg-
ingarstarfið í Kósóvó og tilraunir til
að samþætta ólík sjónarmið. Sjón-
armið, sem segja má að séu sprottin
upp úr sundurleitum hugmynda-
heimum þar sem menn virðast sam-
mála um fátt; sjónarmið sem eru
ekki endilega byggð á heilögum
sannleika. Það eru nefnilega áhöld
um það hver sannleikurinn raun-
verulega sé. Í greininni, sem ber yf-
irskriftina Truth and Reconciliation
Commission in Kosovo: A Window
of Opportunity? segir Hjörtur þörf-
ina fyrir sannleiks- og sáttarnefnd
aldrei hafa verið meiri, nú þegar
leiða á til lykta samningaviðræður
um framtíðarstöðu héraðsins fyrir
lok árs.
Á forsendum heimamanna
Þegar Hjörtur kom til Kósóvó ár-
ið 2001 sá hann að lítið hafði verið
gert til að leiða sam-
an aðila að átökunum
og ræða sáttaumleit-
anir; tilfinningu fyrir
réttlætingu, hefnd,
fyrirgefningu, refs-
ingu og sátt. „Þegar
ég fór að tala um
þetta sá ég hins veg-
ar fljótlega að ég var
ekki einn um að vilja
skoða þetta. Ég sá líka að þetta var
mjög viðkvæmt mál, alls ekki hent-
ugt til opinberrar umræðu.“
Hvað varðar framkvæmd á verk-
efninu sagðist Hjörtur sjá fyrir sér
að sannleiks- og sáttanefndin yrði
hluti af stærra ferli sem nú þegar á
sér stað í Kósóvó sem fæli í sér að
störf hennar yrðu fléttuð inn í rétt-
arhöld yfir grunuðum stríðsglæpa-
mönnum, lýðræðisuppbyggingu og
fleira. Hann sagði það lykilatriði að
Kósóvóbúar (öll þjóðarbrot) stýri
ferlinu sjálfir, setji nefndina á lagg-
irnar og þrói aðferðafræðina, jafn-
vel þótt verkefnið verði ekki „full-
komið“ að mati alþjóðlegra
stofnana.
„Það eru ýmsir möguleikar til
staðar þegar svona nefnd er sett á
laggirnar. Ákveða þarf hvaða völd
hún hefur, hvaða tímabil hún skoð-
ar, hvort einhver skilyrt sakarupp-
gjöf verði partur af henni og hvort
hún geti nefnt nöfn, sem dæmi.
Þetta er ekkert sem gerist á einni
nóttu, þetta er margra ára vinna.
En það er mikilvægt að Kósóvóbúar
sjái nefndina sem sína eigin.“ Innan
þessa ramma sagði Hjörtur stuðn-
ing alþjóðasamfélagsins hins vegar
nauðsynlegan. „Þetta yrði dýrt fyr-
irtæki og krefst sérþekkingar, sem
er ekki fyllilega til staðar í Kósóvó.“
Hvaða viðbrögð hefurðu fengið
við hugmyndinni?
„Þó að svona nefndir hafi verið
stofnaðar víða, eru þær ekki það
sem menn hugsa fyrst um þegar
stríði er nýlokið. Hefndin stendur
fólki miklu nær. Það vill líka sjá
réttlætinu framgengt í gegnum
dómskerfið, réttarhöld. Við rædd-
um þessar hugmyndir við fólk í
Kósóvó, Serbíu, Bosníu og víðar.
Serbar settu til að mynda upp sína
eigin nefnd á sínum tíma. Sú nefnd
var hins vegar svæfð þegar formað-
urinn fór að undirbúa viðræður um
hlutverk Serba í
Srebrenica, það var
nokkuð sem þótti
ekki tímabært að
ræða í Belgrad.“
Hjörtur sagði við-
líka hugmyndir hafa
verið uppi meðal ým-
issa leiðtoga í Kó-
sóvó haustið 1999, en
þá hafi einnig verið
talið of snemmt að setja þær í fram-
kvæmd.
„En flestir sem ég talaði við voru
jákvæðir, sumir mjög jákvæðir.
Umræðan var ekki hvort, heldur
hvernig. Sumir Kósóvó-Albanar sáu
hins vegar slíka nefnd ekki fyrir sér
fyrr en að sjálfstæði Kósóvó væri í
augsýn. Einn vel þekktur andófs-
maður sagði að eins og staðan væri,
vildi hann ekki sættir, það yrði að
halda hatrinu við, annars yrðu Kós-
óvó-Albanar ekki tilbúnir til að
berjast þegar alþjóðasamfélagið
gæfi Kósóvó aftur í hendur Serba.
Aðrir sögðust ekki telja sannleiks-
og sáttanefnd ganga í Kósóvó vegna
þess að hatrið væri einfaldlega of
mikið. Ég gef ekki mikið fyrir slíkt,
í fyrsta lagi held ég að hatrið sé
ekki eins djúpstætt og margir
halda. Þar fyrir utan er nefnd sem
þessi ekki fyrir fólk sem elskar
hvert annað, heldur fyrir fólk sem
hatar hvert annað.“
Í greininni segir þú sannleiks- og
sáttaferli vanta inn í umræður um
„Ekki fyrir fólk sem
elskar hvert annað“
Þrátt fyrir að tæp sjö ár séu
liðin frá því að Sameinuðu
þjóðirnar (SÞ) tóku við yfir-
stjórn Kósóvóhéraðs í suður-
hluta Serbíu, blasir við að
sáttaumleitanir milli stríð-
andi fylkinga eru ennþá að
miklu leyti í ólestri. Stefnt er
að því að í ár verði samið um
framtíðarstöðu Kósóvó, en
fyrstu beinu viðræðurnar
milli leiðtoga Serba og Kós-
óvó-Albana hófust í Vínar-
borg í febrúar sl. Hjörtur
Bragi Sverrisson mannrétt-
indalögfræðingur hefur
fjallað um kosti þess að
stofnuð verði sannleiks- og
sáttarnefnd um málefni
Kósóvó. Hrund Gunnsteins-
dóttir ræddi við hann.
Hjörtur Bragi Sverrisson, mannréttindalögfræðingur og doktor í alþjóðasamskiptum, hefur áhuga á að sett verði á laggirnar einhverskonar sannleiks- og sátta-
nefnd í Kósóvó. Hjörtur starfaði fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) í Kósóvó á árunum 2001—2004.
’Það er mikil-vægt að Kós-
óvóbúar sjái
nefndina sem
sína eigin.‘
Háskólinn í Reykjavík boðar til hádegisfundar
með Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra,
mánudaginn 27. mars.
Í erindi sínu fjallar forsætisráðherra um þau skilyrði
sem eru fyrir hendi hér á landi til að gera Ísland að
álitlegum kosti sem alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Auk þess mun forsætisráðherra m.a. fjalla um:
• tækifæri íslenskra fyrirtækja til vaxtar
• hvernig hægt sé laða auknar fjárfestingar til landsins
• vaxtarbrodda atvinnulífsins
• samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs til að koma íslenskri
fjármálaþjónustu á heimsmælikvarða
Að loknu erindi forsætisráðherra verða opnar umræður
og fyrirspurnir.
Fundurinn verður haldinn í stofu 101 í Háskólanum í
Reykjavík, Ofanleiti 2 og stendur frá klukkan 12 til 13.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 599 6200 www.ru.is
HÁDEGISFUNDUR MEÐ
HALLDÓRI ÁSGRÍMSSYNI,
FORSÆTISRÁÐHERRA
„Ísland sem alþjóðleg
fjármálamiðstöð”